Morgunblaðið - 22.06.1979, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 22.06.1979, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1979 „Þreif bankabókina með al- eigunni og kegpti mér flautu ” Þó komin vaeru mánaðamót maí-júní var veðrið sem á versta vetrardegi Þegar knúð var dyra á litlu, snyrtilegu húsi við Nönnustíg í Hafnarfirði, rok og snjókoma, enda hiti vart mikið yfir frostmarki. En Gunnar Gunnarsson flautuleikari bauð okkur til stofu og Þegar sezt var niður ræddi hann fyrst um skólann. Bók um þarfaii'i Fjölíræðibækur AB 10: John 0. E. Clark (ritstjóri): TÖLVUR AÐ STARFI. Með myndura írá Whitecroft Designs Ltd. Páll Theodórsson þýddi og endur- sagði. Ititstjóri Fjölfræðibóka AB: Örnólfur Thorlacius. Almenna bókafélagið 1979. Tölvur að starfi er tíunda bókin í safni Fjölfræðibóka AB. Þetta eru litlar og handhægar hækur um margvisleg efni og ég býst við að þær komi að einhverju gagni þótt hið þrönga form veiti ekki svör við öllum spurningum. Fjöl- fræðibækur eru svo fáar á ís- lensku að menn taka öllu af slíkum toga fegins hendi. Þessi litla bók getur með texta sínum og skýringarmyndum auðveldað mönnum skilning á umhverfi þar sem tölvan gegnir æ veigameira hlutverki. Ýmsir hafa varað við tölvunni og notkun hennar, óttast að mað- urinn yrði þræll þessa tækis. Þetta er líklega óþarfa bölsýni, ástæðulaust er að viðurkenna ekki að tölvan hefur og mun í ríkari mæli létta ýmis störf. Ekki má heldur gleyma því að í sambandi við öryggisþjónustu hefur tölvan reynst ómetanleg. Páll Theodórsson segir í for- mála: „Tölvur að starfi lýsir öflugu hjálpartæki nútíma þjóðfélags, tæki sem hefur tekið svo örum framförum að margir eru vafalítið varla enn farnir að átta sig á möguleikum tölvunnar og eru enn haldnir nokkrum beyg gagnvart þessum þarfatólum, svo sem títt er um margvíslegar nýjungar". Fyrsti meiriháttar rafreiknir- inn var smíðaður í Bandaríkjun- Bðkmenntlr eftir JÓHANN HJÁLMARSSON um í lok seinni heimsstyrjaldar. Rafreiknir þessi, ENIAC, var fyrirferðarmikill og með miklum og flóknum útbúnaði. Hann þurfti 150 fermetra gólfflöt. Nú gegnir lófastór tölva sama hlutverki og ENIAC. Slikar hafa framfarirnar orðið í smíði tölva. Páll Theodórsson mun eiga stærri hlut í þessari læsilegu og forvitnilegu bók en um getur á titilblaði. Hann hefur endursagt bókina og lagað eftir breyttum tíma með það í huga að tíu ár eru liðin frá því að hún kom fyrst út í Hamlyn All-Colour bókaflokkn- um. í Tölvum að starfi er bent á að svokallaðar útstöðvar með eigin reiknigetu muni verða algengar á heimilum eftir 1—2 áratugi og með þeim verði hægt að komast í samband við öflugri tölvur gegn- um símalínu í því skyni að fá upplýsingar og greiða fyrir ýms- um viðskiptum daglegs lífs sem áður kostuðu mikinn tíma og fyrirhöfn. Niðurstaða bókarinnar er sú að það sé „ávallt maðurinn sem hefur stjórnina. Ekki þarf nema að þrýsta á hnapp til að slökkva á tölvunni". Gunnar Gunnarsson flautuleikari. — Tónlistarskólinn er í breytingu um þessar mundir og er stefnt að því aö gera hann aö tónlistarhá- skóla. Námiö hefur því bæöi verið aö þyngjast og lengjast í hinum ýmsu deildum skólans. Þaö mun að sjálfsögöu taka nokkurn tíma aö koma skólanum á háskólastig, það gerist aö minnsta kosti ekki á einum vetri. Nú, svo er annaö, að nokkrir tónlistarskólar eru þegar farnir aö útskrifa nemendur t.d. meö einleik- arapróf og þá vaknar sú spurning hvort þeir nemendur fari ekki frekar erlendis til framhaldsnáms, en setj- ast í Tónlistarháskóla íslands. Nú hefur bú spilaö meö hljóm- sveit Tónlistarskólans, hvernig gengur að manna slíka sveit? — Já, það er rétt, ég hefi spilað meö hljómsveitinni nánast frá því ég kom í skólann, en hljómsveitin er mjög mikilvægur þáttur í skólastarf- inu þótt hún eigi oft í vök aö verjast sökum mannfæöar þar eö oft geng- ur erfiðlega aö fylla í skörö þeirra er útskrifast. Hljómsveitinni bættist aö vísu nokkur liösstyrkur þar sem nemendur úr öörum tónlistarskólum fengu aö sþila meö og er spurning hvort ekki sé rétt að efla þaö samstarf meira. Hvenær hóst pú þitt flautunám? Ljósm. Kristján. — Ég var orðinn 18 ára þegar ég byrjaöi eöa alltof gamall, hefði sennilega átt aö byrja 6 árum fyrr. Þaö er nú nokkur saga aö segja frá því hvernig þetta gekk allt fyrir sig. Um nokkurn tíma haföi mig dreymt um aö læra á flautu svo var þaö einn kaldan vetrardag rétt fyrir jólin að ég þreif bankabókina meö aleig- unni í og skundaði í hljóöfæraverzl- un og keypti mér flautu, hverja ég strax fór aö fremja á hin hörmuleg- Að loknu f armannaverkfalli: Bráóabirgðalög- in boða tímamót Þá hefur ríkisstjórnin loksins mannað sig upp í að gefa út bráðabirgðalög, sem kveða á um gerðardóni og banna verkföll og verkbönn. Engan skyldi undra þótt þessi ákvörðun hafi vafist fyrir stjórnarflokkunum. Kemur þar hvort tveggja til, að með þessu er stjórn „hinna vinnandi stétta" að stilla sér þétt upp við hlið vinnuveitenda og brjóta svo kyrfi- lega þau „princip" sem verkalýðs- flokkarnir svokölluðu hafa haft, að straumhvörfum veldur. Flestir viðurkenna, að eins og staðan var orðin hafi ekki verið annarra kosta völ. Farmenn játa það einnig óbeinlínis, með því að falla frá yfirlýsingunum um að þeir virtu slík lög að vettugi. En það hlýtur engu að síður að vera hrikalegt áfall fyrir þetssa stétt launþega að fá slík lög yfir sig eftir átta vikna verkfall. Og það hlýtur einhver að hugsa þeim ráðherrum þegjandi þörfina, sem eyðilögðu gersamlega samnings- stöðu farmanna með sífelldum hótunum um setningu þessara bráðabirgðalaga. Nú þegar verkalýðsflokkarnir hafa gengið undir þetta jarðar- men, svipt stór launþegasamtök verkfalls- og samningsrétti og lögskipað gerðardóm, er ljóst að stórtíðindi hafa gerst í íslenzkum stjórnmálum. Hatrömmustu átökin í stjórn- málasögunni hafa einmitt sprottið út af aðgerðum stjórnvalda til að grípa inn í rétt verkalýðshreyfing- arinnar til að beita verkfallsvopn- inu og knýja fram kjarabætur í samningum. Gerðardómur hefur ávallt verið eitur í beinum verka- lýðshreyfingarinnar og bannorð í eyrum sósíalista. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn hefur átt þátt í því að grípa til neyðarráðstafana af þessu tagi á árum áður, hefur það verið túlkað af andstæðingum flokksins sem sönnun á fjandsamlegri afstöðu hans til verkalýðs og réttlátrar kjarabaráttu. Endalaust má deila um hvenær aðstæður kalla á svo harkalegar aðgerðir stjórnvalda, eins og nú hefur verið gert. En aðalatriðið er að með aðgerðum ríkisstjórnar- innar hafa verkalýðsflokkarnir, þ.e. Alþýðubandalag og Alþýðu- flokkur, viðurkennt nauðsynina á því, að til slíkrar lagasetningar megi grípa. Ætti það vissulega að styrkja ríkisstjórnir í framtíðinni, til að grípa í taumana á neyðar- stundum og treysta þær að því leyti í sessi gagnvart óbilgjörnum þrýstihópum og pólitískum skæru- hernaði. Önnur markverð staðreynd blasir og við eftir undangengin átök. Vinnuveitendasamband ís- lands hefur sýnt óvæntan styrk og stendur uppi sem hinn raunveru- legi sigurvegari þessarar orra- hríðar. Vinnuveitendur létu ekki taka sig á taugum og sátu við sinn keip, þar til stefna þeirra varð ofan á með bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinnar. Styrkur vinnuveitenda varð auðvitað meiri, þar sem þeir höfðu ríkisstjórnina á bak við sig, og sífelldar hótanir einstakra ráð- herra um bráðabirgðalög af því tagi sem hafa verið sett, gerðu samningsstöðu farmanna von- lausa. Þetta sýnir að samtakamáttur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.