Morgunblaðið - 22.06.1979, Page 11

Morgunblaðið - 22.06.1979, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ1979 11 Rabbað við Gunnar Gunnarsson ustu hljóð, en lét ekki þar við sitja heldur innritaðist í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar þar sem Þórarinn Ólafsson leiddi mig fyrstu Sþorin. Síðan var ég hjá Hafsteini Guð- mundssyni og hvatti hann mig mjög til að halda áfram náminu. Eftir það fór ég inneftir og í Tónlistarskólan- um kenndi mér fyrst Jón H. Sigur- björnsson í 3 ár og síðan var ég hjá enskum kennara, Bernard Wilkin- son, sem hefur reynst mér sérlega vel. Námið hefur því tekiö eina 8 vetur, en með náminu hefur tíminn farið í ýmislegt annaö, svo sem að stunda nám í Kennaraháskólanum, kenna, koma mér upp húsi og þvílíkt, þannig að segja má að tímann hafi ég þurft að nota allvel. En þó Gunnar Gunnarsson hafi ekki hafið flautunám sitt fyrr en 18 ára voru það ekki fyrstu kynni hans af tónlistariökun. Hann lék og söng með söngtríóinu Lítið eitt í þá daga og fékkst hann einnig til að með- ganga að hann hefði á þeim árum samið eina og eina melódíu. Einnig má minnast á það að sem ungur sveinn í Hafnarfirði lék hann í drengjalúðrasveitinni þar á trommur og var sagður svo stuttur að hann sá aldrei yfir þær, enda eru trumbur lúðrasveitarmanna enginn smá- smíði. Er flautunám erfitt? — Þaö er á margan hátt erfitt, en þó má segja að nemendur nái í flestum tilfellum aö spila smálög eftir stuttan tíma. Það tekur auövit- að misjafnlegan langan tíma fyrir fólk að ná tóni, hjá sumum kemur það mjög fljótt, en hjá öðrum seint og það kemur fyrir að fólk hreinlega nái ekki tóni. Þá má t.d. nefna að æfi maður sig ekki á hverjum degi þá getur tekið 1—2 klukkutíma að ná aftur sama stað og maður var á daginn áður, a.m.k. hvað tóninn varðar og var það mín reynsla. Eru margir í flautunámi um þessar mundir? — Já, segja má að flautan sé hálfgert tízkuhljóðfæri og hafa vin- sældir hennar aukist mjög á síöustu 4—5 árum. Popphljómsveitir hafa farið að nota þverflautur og ég held að Manuela Wiesler hafi átt þátt í aö gera flautuna vinsæla með þeim árangri sem hún hefur náð. Eru flautur dýr hljóðfæri? — Nei, að minnsta kosti ekki þær flautur, sem nemendur byrja yfirleitt með, skólaflautur kosta kannski rúmlega 100 þúsund krónur, en svo þegar menn eru lengra komnir í náminu vilja þeir fá vandaðri flautur, sem þá geta kostaö frá einni og allt upp í 4—5 milljónir. Og þeir sem eru á höttunum eftir flautum í efsta verðflokki verða oft að bíða í 2—3 ár eftir henni. Hvert verður stefnt í næsta áfanga? — Það er nú ekki fullráðið enn- þá, flestir tónlistarmenn reyna aö komast til útlanda eftir að námi er lokið hér heima og ég held aö sú verði raunin þrátt fyrir að nám í Tónlistarskólanum komist á háskólastigi. En hafa verður í huga þegar menn fara utan til tónlistar- náms að lítið er unnið við dvöl erlendis nema tryggt sé aö kennar- arnir séu góðir. Menn hafa brennt sig á því og stundum hafnað hjá miðlungskennurum og því held ég að gæta þurfi vel aö þessu atriöi áður en ákveöin er námsdvöl ytra. Og hvað mig varöar þá er áhugi fyrir að halda út, en það verður ekki á næsta vetri. Undanfarna vetur hefi ég starfað nokkuð viö kennslu og tekið nemendur í flaututíma og ég geri ráð fyrir að svo verði enn næsta vetur, enda má segja að kennslan sé skóli út af fyrir sig. — Þá vonast ég til að geta lagt meiri stund á kammertónlist og viö höfum nokkrir saman verið að huga aö verkefnum á því sviöi. Verður pá framtíðarstarf pitt frekar á sviði kennslu, eöa stefna flestir ungir hljóðfæraleikarar að starfi í Sinfóníuhljómsveitinni? — Ég hefi ekki ráðiö þaö endan- lega við mig, en ég er ekki viss um aö ég bindi mig við kennslu ein- göngu, þótt ég grípi vafalaust til hennar þessi fyrstu ár. Og um Sinfóníuhljómsveitina er þaö að segja aö það er mjög misjafnt hvaða hljóðfæri vantar þar, nú eru t.d. fullskipuð öll sæti flautuleikara, og flautuleikari þegar í námi erlendis, þannig að það er hart barist um sætin þar. Eg hefi mikinn áhuga á kammertónlist og þaö hefur oft verið svo að t.d. tónlistarkennarar hóþi sig saman og æfi kammertón- list, en hitt er annað, að það er nánast útiiokað að hafa hana að atvinnu á íslandi, það verður yfirleitt aö leggja stund á t.d. kennslu til aö afla sér lífsviðurværis. Ellert B. Schram vinnuveitenda hefur þýðingu, ekki síst ef ríkisstjórn stendur þétt við hlið þeirra. Á þetta skorti í tíð fyrri stjórnar. Þá voru vinnuveit- endur eftirgefanlegir og ríkis- stjórnin hikandi vegna óbilgjarnr- ar stjórnarandstöðu og verkalýðs- hreyfingar, sem kyntu stöðugt undir. Að þessu leyti eru aðstæður allt aðrar nú. Ríkisstjórn „hinna vinnandi stétta“ og vinnuveitend- ur hafa snúið bökum saman. Á sama tíma hefur styrkur verkalýðshreyfingarinnar breyst í máttleysi. Það stafar af þeim augljósu ástæðum, að forystuliðið er veikt, og hefur enn einu sinni opinberað sig sem pólitískt hand- — eftir Ellert B. Schram alþm. bendi, sem lætur stjórnast af flokkslegum hagsmunum en ekki faglegum. Þetta hefur komið skýrt fram í farmannadeilpnni. Farmenn hafa ekki aðeins haft almenningsálitið á móti sér, heldur hefur ASÍ-for- ystan og hinir útvöldu málsvarar verkalýðsbaráttunnar og stétta- stríðsins þagað þunnu hljóði. Farmenn og aðrir launþegar geta ýmsan lærdóm dregið af þeirri þögn. Það er ekki ónýtt fyrir eina ríkisstjórn að hafa bæði vinnu- veitendur og verkalýðsforystuna á sínu bandi. í skjóli þeirrar sam- fylkingar hefur ríkisstjórninni tekist að berja niður farmenn og senda þá sneypta á sjó út án minnstu uppskeru eftir átta vikna verkfall. Menn gera því skóna, að bráða- birgðalögin þjappi ríkisstjórninni saman. Um það er tvennt að segja. I fyrsta lagi: ekki veitir af, því bráðabirgðalögin eru hreinustu smámunir miðað við þau vanda- mál sem nú bíða úrlausnar. í öðru lagi: það fer vel á því, að stjórnar- flokkarnir fallist í faðma á þeim tímamótum, sem þeir banna verk- föll og taka samningsréttinn af launþegasamtökum. Fréttaskýring: Samstarf miðdemókrata og sósíaldemókrata gœti ver- ið fgrirboði meiri kgrrðar Enn á ný ríkir óvissuástand í stjórn- málum Portúgals. Þaö er engu líkara en það eigi ekki að verða hlutskipti Portúgala í bráð aö fá stjórn, sem er öllu meira en nafnið tómt. Eftir aö Mota Pinto varö að segja af sér fyrir nokkru hóf Eanes forseti viöræöur viö flokksfor- menn. Mota Pinto gegnir starfi forsætisráöherra til bráöabirgöa, eða þar til mál hafa veriö til lykta leidd. Mörgum ber saman um að þrátt fyrir allt sé ýmislegt jákvætt um utanþingsstjórn Pintos og sem hún reyndi að gera og átti hún þó undir högg að sækja, einkum vegna ótryggs stuönings á þinginu. Mota Pinto nýtur persónulega mikils álits og fáir treysta sér til að draga hæfni hans í efa. Ekki er vitð hvort hann mun nú draga sig út úr pólitísku vafstri eða stefna aö framboði í kosningum, sem veröa væntanlega ekki fyrr en á næsta ári. Nú þegar Eanes forseti er farinn aö tala við forsvarsmenn flokkanna á hann að venju nokkurra kosta völ. Hann getur skipaö enn einn utan- þingsforsætisráðherrann og tekiö þá áhættu, að þar sigli allt í strand, eöa í bezta falli aö þingið uni þvi i fáeina mánuði. Ellegar hann getur rofið þing og efnt til kosninga, en yfirleitt hafa flokkarnir ekki áhuga á kosningum nú. Og það er ekkert sem bendir til að Eanes leiti til einhvers flokksformannsins um stjórnarmyndun. Þetta yröi fimmta ríkisstjórnin á þremur árum. Sú fyrsta sem var mynduð eftir kosningarnar 1976 var minnihlutastjórn Mario Soares, hún féll eftir nokkra mánuði. Þá tók viö samsteypustjórn miðdemó- krata og Sósíalistaflokks Soares og var hún viö völd í sjö mánuöi eða svo. Síðan tók viö aö nafninu til utanþingsstjórn Nobre da Costas, en hún var aðeins við lýði, áhrifalaus meö öllu, í nokkrar vikur. í október valdi svo Eanes Mota Pinto, rétt fertugan þrófessor í Coimbra, sem átti sæti á stjórn- lagaþinginu 1975—1976 fyrir al- þýðudemókrata, til að mynda stjórn og þótt viö ramman reip væri að draga tókst Pinto að öðlast traust þingsins, þótt margt fleira kæmi til og á endanum varð Pinto að segja af sér og þarf ekki að fjölyröa um þær forsendur; þær eru hinar söm^og valdiö hafa falli fyrri ríkisstjórna í Portúgal, sundurþykkja og ágreiningur um leiðir. Þó hafði stjórn Mota Pintos setið í röska átta mánuöi og mun það vera met þessi þrjú ár. Portúgalar óttast margir öngþveiti það sem portúgölsk stjórnmál eru að veröa. Sósialistaflokkur Mario Soaresar hefur löngum verið samansettur af ólíkum öflum og Soares hefur ekki nýtzt tíminn, frá því að hann hætti sem forsætis- ráðherra, til aö styrkja flokkinn. Um tíma virtist sem fylgi PS hefði verulega dvínað. En þar er svo sem ekkert við að styðjast nema valtar skoöanakannanir, sem allra sízt þurfa að gefa rétta mynd í Portúgal, þar sem ætla má að hinn óbreytti borgari gerist nú allgram- ur og þreyttur út í pólitíkusana. En nú hafa þau tíðindi gerzt að miödemókratar og sósíaldemó- kratar hafa undirritað samstarfs- samning og voru þaö foringjar flokkanna, Freitos do Amaral, form. miðdemókrata, og Sa Car- neiro, form. Sósíaldemókrata- flokksins, sem gengu frá því. Flokkarnir hyggjast bjóða fram sitt í hvoru lagi, en hafa með sér nána samvinnu. í kosningum á næsta ári er mjög trúlegt að þessir flokkar Do Amaral formaður CDS-Miðdemókrataflokksins. galskra stjórnmála og miklar vonir eru bundnar við, mun alllengi hafa haft hug á þessu og var töluverður undirbúningur og aðdragandi að málinu. En ætla má að það hafi nokkuð tafið framgang þess, að sósíaldemókratar áttu eftir að út- kljá ýmis innanflokksmál, umfram allt heiftúðugar deilur um formann flokksins. Á flokksþinginu PSD nú fyrir skömmu lét aöalkeppinautur Sa Carneiro, Sousa Franco, til skarar skríða. Sousa Franco lagði allt undir og tefldi djarft en lyktir urðu þær að Sa Carneiro var endurkjör- inn og kom aö mörgu leyti sterkur frá stormasömu flokksþingi. Þó voru ekki allir á eitt sáttir og Sousa Franco hefur nú klofið sig út úr PSD ásamt með 37 þingmönnum sem fylgja honum að málum og eru þeir að undirbúa stofnun nýs flokks sem byöi fram í kosningun- um á næsta ári. Þeir sem fylgjast með portúgölskum stjórnmálum telja að slíkur flokkur Sousa Francos gæti fengið töluvert fylgi óánægðra kjósenda allra flokk- anna. Og þá er auðvitað bara spurningin hvað margir kjósendur gömlu flokkanna reynast óánægðir á kjördegi. En hvað sem nú veröur á næstunni sýnist sem þaö sé um margt \T/ ERLENT jákvætt og gæti verið fyrirboöi meiri kyrröar í portúgölskum stjórnmálum, að CDS og PSD hafa nú tekið höndum saman. Ekki veitir þeim af meiri ró í Portúgal til aö reyna að skipa sínum málum svo aö þar geti framfarir oröið raunverulegri og lífskjör betri en raunin hefur orðiö á sl. ár. Fyrir nú utan að það býður aðskiljanlegum hættum heim ef það endaöi meö því að verða hálfgerður kækur að skipta um stjórn að jafnaöi tvisvar á ári. Fyrir þjóð sem hefur yfriö nóg að takast á við í uppbyggingu og framþróun er hreint ekkert sniðugt að sitja upþi með slíkan kæk. h.k. Sa Carneiro formaður ÞSD-Sósíaldemókrataflokksins. tveir myndi þá stjórn — svo fremi þetta bandalag standi enn — því að öllu óbreyttu fá þessir tveir flokkar meirihluta á þinginu. Freitos do Amaral, sem er einhver skærasta stjarna á himni portú-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.