Morgunblaðið - 22.06.1979, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ1979
Styrkir til heyflutninga,
lán til fóðurkaupa og til-
fmnanlegt afurðatjón bætt
Rætt vid Steinþór Gestsson
um tillögur Hardindanefndar
„HARÐINDANEFND áætlar að
viðbótaríóðurkostnaður vegna
lengri innistöðu búfjárins í vor
nemi um 2 milljörðum króna og
hlýtur að verða að taka tillit til
þessa kostnaðar og aukins
vinnuáiags í sveitum og minnk-
andi afurða við verðlagningu
búvara. Ef f járhagsstaða
bænda hefði verið nægilega
traust fyrir, þá ætla ég að þeir
hefðu staðið af sér kostnaðar-
aukann. sem af vorharðindun-
um leiðir, án aðstoðar, en fjár-
hagsstaða margra bænda nú er
slæm og því leggur nefndin til
að Bjargráðasjóði verði gert
kleift að aðstoða þá bændur,
sem verst hafa orðið úti vegna
harðindanna.“ sagði Steinþór
Gestsson, fyrrverandi alþingis-
maður í samtali við Mbl. í gær
en hann er fulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins í svonefndri Harð-
indanefnd, sem nú hefur sent
ríkisstjórninni fyrstu tillögur
Steinþór sagði að tillögur
nefndarinnar gerðu ráð fyrir að
Bjargráðasjóði yrði gert kleift
að bæta tilfinnanleg einstak-
lingsbundin tjón samkvæmt al-
mennum reglum sjóðSins um
afurðatjón og til þessa yrði
útvegað viðbótarfjármagn, ef
nauðsyn krefði. Þá yrði Bjarg-
ráðasjóði tryggt fé til að greiða
kostnað við heyflutninga um
langa vegu en um þessar greiðsl-
ur þyrfti að setja ákveðnar
reglur og forsenda væri að nauð-
syn heyflutninganna væri viður-
kennd af trúnaðarmönnum Bún-
aðarfélags Islands. Sagði Stein-
þór að samkvæmt þeim upplýs-
ingum, sem nefndin hefði þegar
fengið, væri þarna um að ræða
Steinþór Gestsson
kostnað á bilinu 30 til 40 milljón-
ir króna.
Þá er í tillögum nefndarinnar
að sögn Steinþórs gert ráð fyrir
að Bjargráðasjóði verði útvegað
lánsfé, allt að 350 milljónum
króna, og verði sveitarstjórnum
gefinn kostur á að sækja um lán
til sjóðsins fyrir þá bændur, sem
verst eru settir fjárhagslega
vegna fóðurkaupa á þessu vori af
völdum harðindanna. Steinþór
tók fram að fjárþörfin til þess-
ara lána væri enn með öllu óljós
og talan 350 milljónir væri nán-
ast ágiskun en nefndin teldi þó
að það væri hámarksfjárþörfin
til þessa verkefnis. I tillögum
nefndarinnar er gert ráð fyrir að
lánin verði til þriggja ára, vaxta-
laus en með fullri verðtryggingu,
og er miðað við að lánsfjárhæð
til hvers bónda nemi að hámarki
2/3 af þeim aukakostnaði, sem
hægt er að að sýna fram á.
„Þessar tillögur eru aðeins
fyrri áfangi af verkefni nefndar-
innar en hún mun halda áfram
að vinna að tillögum um hvernig
megi að meira eða minna leyti
bæta úr því tekjutapi, sem
bændur verða fyrir, ef ekkert
verður að gert vegna söluerfið-
leika erlendis á umframfram-
leiðslu landbúnaðarvara. Það er
von nefndarinnar að geta skilað
tillögum þar um áður en langt
um líður,“ sagði Steinþór.
Hornstrandir og Jökulfirðir:
Aætlunarferðir
teknar upp að nýju
ef tir 27 ára hlé
A SUNNUDAGINN byrjar
Fagranesið áætlunarferðir í Jök-
ulfirði og Hornstrandir en áætl-
unarferðir þangað lögðust niður
árið 1952.
Það er Djúpbáturinn hf. á ísa-
firði sem gerir Fagranesið út
Fyrsta ferðin verður í Grunnuvík
á sunnudag. Brottför er klukkan
10 frá Isafirði en komið aftur að
kvöldi. Messað verður að Stað og
annast sr. Jakob Hjálmarsson
guðsþjónustuna.
Næsta ferð er 28. júní í Jökul-
firði, brottför kl. 10 en komið kl.
5.30 um daginn til ísafjarðar. 19.
júlí og 16. ágúst verða viðkomu-
staðir Leirufjörður og Bæir.
Fyrirhugaðar eru fleiri ferðir á
Jökulfirði og eru upplýsingar
veittar á skrifstofunni.
Ferðir á Hornstrandir verða
sem hér segir:
Fyrsta ferðin 6. júlí, brottför kl.
14, viðkomustaðir eru Aðalvík,
Fljótavík, Hornvík og Furufjörð-
ur. 13., 20. og 27. júlí, brottför kl.
14, viðkomustaðir Aðalvík, Fljóta-
vík og Hórnvík. 16. og 23. júlí,
brottför kl. 9 f.h., viðkomustaðir
Aðalvík, Fljótavík og Hornvík.
14. júlí fer Fagranesið ferð á
sveitaball að Bæjum. Brottför frá
ísafirði er klukkan 20 en haldið
verður til Isafjarðar aftur að
dansleik loknum.
Leiðrétting
VEGNA fréttar í Mbl. í gær, 21.6.,
um sýningu Braga Ásgeirssonar í
anddyri Norræna hússins, skal
tekið fram að það var forstöðu-
maður hússins Erik Sönderholm
er fór fram á það við listamanninn
að hann lánaði teikningar sínar
við kvæði Jóns Helgasonar,
Áfanga, til sýningar í anddyri
hússins. Stendur sýningin yfir
fram í næsta mánuð.
Rangur mynda-
texti leidréttur
ÞAU LEIÐU mistök urðu að með
mynd um atburði sjómannadags-
ins fylgdi rangur texti, þar sem
Pétur Sigurðsson, formaður
Sjómannadagsráðs var að afhenda
heiðurspening í tilefni dagsins.
Sagt var að myndin væri af Herði
Kristjánssyni að taka við viður-
kenningu vegna námsárangurs í
Vélskólanum, en hið rétta er að
hún sýnir Vilhjálm Óskarsson
taka við heiðurspeningi til
aldraðra sjómanna, fyrir hönd
föður síns, Óskars Guðfinnssonar,
háseta.
Eru allir hlutaðeigandi beðnir
velvirðingar á þessum mistökum.
Ráðstef na um
hvalavernd
á mánudaginn
STARFSHÓPUR Náttúruvernd-
arfélags Suðvesturlands um
hvalavernd heldur fund mánu-
daginn 25. júnf að Hótel Loftleið-
um kl. 20.30 (ráðstefnusalurinn).
Efni fundarins verður hvala-
vernd og stefna íslendinga í
hvalveiðimálum. Fundurinn er
öllum opinn.
Ætlunin er að bjóða fulltrúum
þeirra aðila, sem beint eða óbeint
eiga hlut að máli. Má þar til nefna
íslensk stjórnvöld, alþingi, vís-
indamenn (ef til vill erlendis frá),
Hval h.f., Greenpeacesamtökin.
Fram að þessu hefur lítið sem
ekkert verið rætt um hvalavernd
og stefnu Islands í hvalveiðimál-
um. Ætti því þessi fundur að gefa
fólki kost á að kynnast þessum
mikilvægu málefnum frá fleiri en
einni hlið.
(Fréttatilkynning).
Avextir til afgreiöslu i dag og næstu daga:
Appelsínur:
áætlaö útsöluverö í Reykjavík kr. 437
Epli rauö: áætlað útsöluverö í Reykjavík kr. 545
Fást í öllum helstu matvöruverzlunum landsins.
------------.— . .................. —---------
AVEXTIR ALLA DAGA