Morgunblaðið - 22.06.1979, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1979
15
hitastig í opinberum byggingum
verði laekkað um eina gráðu, í 19
gráður. Þá voru tilkynntar hraða-
takmarkanir og aukið eftirlit með
því að þær verði virtar.
Leiðtogarnir í Strassbourg eru
Margaret Thatcher, Bretlandi,
Helmut Schmidt, V-Þýzkalandi,
Valery Giscard d’Estaing, Frakk-
landi, Mario Andreotti, Ítalíu,
Anker Jörgensen, Danmörku,
John Lynch, írlandi, Gaston
Thorn, Luxembourg, Wilfred
Martens, Belgíu og Van Agt, Hol-
landi.
ERLENT
Oeirðir í Kampala í
kjölfar valdabaráttu
Kampala, 21. júní. AP. Reuter.
AÐ MINNSTA kosti tveir létust
og fimmtíu særðust þegar þús-
undir stuðningsmanna Yusufu
Lulu, forseta landsins, gengu um
götur Kampala og iýstu yfir
stuðningi við forsetann. Her-
menn skutu á fólkið. Yusufu
Lulu sagði við fréttamenn að
hann hefði verið neyddur til að
segja af sér. „En ég er enn
lögíegur forseti landsins,“ sagði
hann og bætti við að hann ætlaði
sér að vera áfram í embætti.
Útvarpið í Kampala sagði í dag,
að Godfrey Binaisa væri forseti
landsins og að yfirlýsing Lulu
forseta væri staðleysa. „Stjórnin
hefur stuðning fólksins," sagði
útvarpið. Lulu sjálfur lýsti því yfir
að hann hefði stuðning fólksins í
landinu. Bankar, verzlanir og
skólar voru lokaðir í Kampala í
dag. Hermenn voru við mikilvæg-
ar stjórnarbyggingar og vega-
tálmar voru víða í borginni.
Mannfjöldinn í Kampala krafðist
þess að meðlimir þjóðarráðsins,
sem hafa verið andvígir Lulu, yrðu
settir í fangelsi.
Yusufu Lulu hefur verið forseti
Uganda í 10 vikur frá falli Idi
Amin, fyrrum einræðisherra
landsins. Embættismenn í
Tanzaníu sögðu fréttamanni Reut-
er, að Tanzanía styddi Binaisi og
að hinir rúmlega 30 þúsund her-
menn í landinu myndu hjálpa við
að koma á röð og reglu, eins og
þeir orðuðu það.
Skæruliðar Sandinista í Lcon og að baki þeim er skriðdreki, sem þeir hafa náð á sitt vald af
stjórnarhernum.
Frakkar og V-Þjóðyeriar
leggja drög að eftirliti
með Rotterdammarkaðinum
IDAG!
(í
erdam. Markaðurinn þar væri
mjög mikilvægur fyrir þjóðir
Evrópu til að geta fengið olíu
þegar skortur er og með stuttu
millibili.
Nú hafa leiðtogarnir, Valery
Giscard d’Estaing og Schmidt
komið sér saman um eftirlit en
hins vegar ekki bein afskipti
ríkisvaldsins í þessum löndum.
Með þetta vegarnesti geta leiðtog-
ar Efnahagsbandalagsins haldið
til Tokyo á leiðtogafundinn þar
með Japönum og Bandaríkja-
mönnum.
Leiðtogar EBE-ríkjanna munu
einnig ræða um framtíðarstefnu
ríkjanna í orkumálum og búist er
við að einhugur muni ríkja þar
um. Það er aukinn olíusparnað og
að kol og kjarnorka verði notuð
meir sem orkugjafi í framtíðinni.
Frakkar hafa þegar tilkynnt ráð-
stafanir í orkusparnaði. Þar er
1973 — Geimfararnir í Skylab I
koma aftur til jarðar eftir lengstu
dvöl manna í geimnum, 28 daga.
1970 — Edward Heath verður
forsætisráðherra Breta.
1962 — 112 fórust með franskri
farþegaþotu á Guadeloupe, Vest-
ur-Indíum.
1961 — Moise Tshombe, forseti
Kongó, látinn laus.
1941 — Innrás Þjóðverja í Sovét-
ríkin.
1940 — Vopnahlé Frakka og
Þjóðverja undirritað.
1933 — Flokkur sósíaldemókrata í
Þýzkalandi bældur niður.
1911 — Georg V krýndur konung-
ur Englands.
1894 — Dahomey verður frönsk
nýlenda.
1815 — Napoleon Bonaparte legg-
ur niður völd öðru sinni.
1807 — Brezka herskipið „Leo-
pard“ stöðvar bandarísku freigát-
una „Cheasapeake", krefst fram-
sals brezkra liðhlaupa og nánast
veldur stríði.
1679 — Orrustan um Bothwell
Bridge milli Englendinga og
Skota.
1543 - Hinrik VIII af Englandi
Vestnraotu ■> ■ Niiiii 12!! »11
StrassbourR. 21. júní. AP.
LEIÐTOGAR Efnahagsbanda-
lagsríkjanna níu hittust í Strass-
bourg í dag og árangur hefur
þegar komið í ljós. Frakkar og
V-Þjóðverjar hafa lagt drög til
samkomulags um að eftirliti með
olíumarkaðnum f Rotterdam
skuli komið á og er þar komin
málamiðlun milli þessara þjóða.
Frakkar hafa viljað mjög strangt
eftirlit allra þjóða og að sjálft
verðið og brask með það verði
undir ströngu eftirliti. V-Þjóð-
verjar hafa verið þessa letjandi,
telja að markaðurinn myndi ein-
ungis færast annað. Helmut
Schmidt, kanslari V-Þýzkalands,
sagði að á milli 3% og 4% af
olíusölu heimsins færu um Rott-
setur Frökkum úrslitakosti, sem
jafngilda stríðsyfirlýsingu.
1533 — Ferdinand af Austurríki
og Suleiman Tyrkjasoldán undir-
rita friðarsamning.
Afmæli. Giuseppe Mazzini, ítalsk-
ur þjóðernissinnaleiðtogi (1805—
1872) - Sir H. Rider Haggard,
brezkur rithöfundur (1856—1925)
- Sir Julian Huxley, brezkur rit-
höfundur (1887) - Sir John Hunt,
brezkur fjallgöngumaður (1910).
Andlát. Roger I Sikileyjarkonung-
ur 1101 - Nicolo Machiavelli,
ítalskur stjórnmálaheimspeking-
ur, 1527.
Innlent. Björn Jónsson ráðherra
segir Tryggva Gunnarssyni upp
bankastjórastöðunni við Lands-
bankann 1909 - Tillagan „með
Gamla sáttmála" samþykkt á
þingmálafundi í Reykjavík 1907 -
Hýðingardómi Sigurðar Breið-
fjörðs breytt 1840 - Hátíðarmessa
í dómkirkjunni leysist upp út af
brestum í bitum kirkjuloftsins
1825 - Hólmaselskirkja brennur í
Skaftáreldum 1783 - f.Steingrímur
Hermannsson 1928.
Orð dagsins. Vandi fylgir veg-
semd hverri — Cicero (10—43
f.Kr.).
3 teknir fyrir niósnir
Karlsruhe, 21. júní. AP.
NÝTT njósnamál er nú komið
upp í V-Þýzkalandi. Þrír menn
voru handteknir á mánudag, þrjú
önnur komust undan, ákærð fyr-
Fréttir af veðri víða
um heim bárust ekki í
gærkvöldi, og eru les-
endur beðnir velvirð-
ingar á því.
ir njósnir fyrir A-Þýzkaland að
því er saksóknarinn í Karlsruhe
tilkynnti í dag. Þeir sem voru
handteknir eru höfuðsmaður í
v-þýzka hernum, verkfræðingur í
þjónustu bandaríska hersins og
embættismaður í Bonn.
Þá voru hjón grunuð um njósn-
ir, þau sluppu til A-Þýzkalands en
ekki er vitað hvar Martin Hensel-
mann 63 ára gamall sölumaður,
sjötti maðurinn í njósnahringnum
er niðurkominn.
Saksóknarinn í Karlsruhe gaf
ekki upp nánar hvað mennirnir
eru grunaðir um og hversu alvar-
legt njósnamálið væri einungis að
njósnararnir hefðu unnið fyrir
leyniþjónustu a-þýzka varnar-
málaráðuneytisins.
fí 'f l*
Tómas
Gaf st upp
Shannon, 21. júní AP — Reuter
FLUGRÆNINGINN, sem rændi
Boeing 727 í innanlandsflugi í
Bandaríkjunum í gær gafst upp
fyrir írsku lögreglunni á Shann-
on flugvelli á Irlandi. Flug-
ræninginn, Nikola Kavaja, gafst
upp án nokkurrar mótspyrnu.
Hann er Serbi, og bíður dóms í
Bandaríkjunum fyrir að leggja á
ráðin um morð á jógóslav-
neskum sendiráðsmönnum.
Kavaja rændi Boeing 727
þegar hún var á leið frá New
York til Chicago. Hann krafðist
að fá lausan félaga sinn, sem nú
er í fangelsi. Hann fór þó frá
Chicago án hans, eftir að hafa
sleppt farþegum lausum. Þotan
lenti síðan í New York. Þar
krafðist flugræninginn að fá
þotu með meira flugþol og nýja
áhöfn. Álitið var að hann ætlaði
til S-Afríku. Lent var á írlandi
til að setja benzín á Boeing 707
þotuna sem hann hafði fengið í
New York. Þar tilkynnti flug-
ræninginn að hann myndi gefast
upp og gekk hann niður þrepin
og til lögreglunnar.
Þettagerðist ao 21.júní