Morgunblaðið - 22.06.1979, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ1979
Göngudeild nýju
geðdeildarinnar
tók til starf a í gær
STARFRÆKSLA göngudeildar
hinnar nýju geðdeiidar Landspít-
alans hófst í gær. Ekki er Ijóst
hve mörgum sjúklingum hún
mun þjóna, en starfsmenn göngu-
deildarinnar verða tólf til að
byrja með að því er Tómas
Ilclgason yfirlæknir tjáði Morg-
unblaðinu í gærkvöldi.
Ekki er ljóst hvenær geðdeildin
öll verður opnuð, en ástæða þess
að göngudeildin hefur þegar verið
opnuð, er sú að byggingarnefndin
hefur afhent stjórnarnefndinni þá
deild, og verður hún nú starfrækt
í samræmi við þær starfsmanna-
heimildir sem fengnar eru.
Sjúkradeildirnar hafa enn ekki
verið afhentar og starfsmanna-
heimildir til að reka þær eru ekki
fengnar.
Skipstjórinn á Garðey
fékk eina miiljón í sekt
SKIPSTJÓRINN á Garðey SF 22
var í gær dæmdur í einnar mill-
jónar króna sekt á Höfn í Horna-
firði fyrir meint landhelgisbrot.
Afli var enginn, en veiðarfæri
sem metin voru á 368 þúsund
krónur voru gerð upptæk. Dóm-
inn kvað upp Friðjón Guðröðar-
son sýslumaður.
Það var á þriðjudagskvöld sem
Landhelgisgæslan kom að Garðey
út af Ingólfshöfða, 2.7 mílur frá
landi, samkvæmt ítrekuðum mæl-
ingum Landheldisgæslunnar.
Skipstjórinn viðurkenndi ekki
brot sitt, en talið er að í og með
hafi ónákvæmni eða ónógri not-
kun siglingatækja verið um að
kenna. Lágmarkssekt fyrir land-
helgisbrot báts af þessari stærð er
751 þúsund krónur.
Skákmenn á faraldsf æti:
Guðlaug ætlar að
verja Norðurlanda-
meistaratitilinn
SKÁKMENN verða mjög á far-
aldsfæti á næstunni og hér á eftir
verður getið þátttöku íslenzkra
skákmanna í nokkrum erlendum
skákmótum:
HEIMSMEISTARAMÓT
UNGLINGA
Margeir Pétursson alþjóðlegur
meistari mun taka þátt í heims-
meistaramóti unglinga 20 ára og
yngri, sem fram fer í Skien í Noregi
og hefst í lok júlí. Verður að telja
líklegt að Margeir verði ofarlega í
þessu móti.
Þá mun Jóhann Hjartarson taka
þátt í heimsmeistaramóti unglinga
17 ára og yngri, sem fram fer í
Belfort í Sviss á sama tíma og
mótið í Noregi. Sömuleiðis verður
að telja líklegt að Jóhann verði
meðal efstu manna í þessu móti
tefli hann af fullum styrkleika.
GUÐLAUG VER
TITIL SINN
Norðurlandamótið í skák fer
fram í Sundvall í Svíþjóð og hefst
það 26. júlí n.k. Líklegt er að 17
íslenzkir skákmenn verði með í
þessu móti. í kvennaflokki mun
Guðlaug Þorsteinsdóttir verja
Norðurlandameistaratitilinn, sem
hún hefur unnið á tveimur síðustu
mótum og ennfremur mun Is-
landsmeistarinn Áslaug Kristins-
dóttir keppa í kvennaflokki. I karla-
flokki verða allmargir íslendingar
meðal keppenda og má þar nefna
Ingvar Ásmundsson íslandsmeist-
ara og þá bræður Jón L. Árnason og
Ásgeir Þ. Árnason.
INGVAR VER EKKI
TITIL SINN
World Open skákkeppnin í Phila-
delfiu í Bandaríkjunum fer fram
dagana 30. júní til 4. júlí nk. Fjórir
íslenzkir skákmenn verða þar með-
al keppenda, Margeir Pétursson,
Haukur Angantýsson, Guðmundur
Ágústsson og Sævar Bjarnason.
Ingvar Ásmundsson sigraði sem
kunnugt er í þessu móti í fyrra en
hann gat ekki komið því við að
verja titil sinn að þessu sinni.
TEFLIR í DANMÖRKU
Jóhannes Gísli Jónsson skákmað-
ur heldur í dag til Danmerkur, þar
sem hann mun tefla í opna danska
meistaramótinu fyrir unglinga.
Keppendur eru um 40 og verða
tefldar 9 umferðir eftir Monrad-
kerfi. Þátttökurétt hafa skákmenn
20 ára og yngri en Jóhannes Gísli er
16 ára gamall.
Listaverk síðustu 20 ára
varðveitt í Nýlistasafninu
AÐALFUNDUR Félags Nýlista-
safnsins var haldinn nýlega. Fé-
lagið stendur að rekstri Nýlista-
safnsins sem nú er til húsa að
Mjölnisholti 1. Tilgangur safns-
ins er einkum tvíþættur, annars
vegar að varðveita Iistaverk frá
síðustu 20 árum, sem er eins
konar vanrækslutfmabil í lista-
verkasöfnun hins opinbera. Hins
vegar er tilgangur félagsins að
standa fyrir gagna- og heimilda-
söfnun um myndlist þessa tíma-
bils.
Nú eru í eigu safnsins um 450
listaverk, sem öll eru gefin af
félögum þess og áhugamönnum
um starfsemi þess. Ragnar Kjart-
ansson hefur gefið 60 verk eftir
Diter Roth. Gallerí Suðurgata 7
hefur afhent safninu verk af
tveimur sýningum í heild sinni og
Robert Filliou ásamt nemendum í
Nýlistadeild Myndlista- og hand-
íðaskólans gáfu sýninguna „Poi
poi drome". Þá hefur Diter Roth
gefið safninu um 14 þúsund lit-
skyggnur af öllum húsum í
Reykjavík 1976. Gallerí SÚM og
Níels Hafstein hafa afhent safn-
inu mikið magn listaverka og
gagna. Tilgangur gagnasöfnunar-
innar er að koma upp sem full-
komnustu skjalasafni varðandi
list síðustu áratuga til afnota
fyrir almenning, fræðimenn og
skóla.
Á starfsárinu stóð safnið fyrir
sýningu í Ásmundarsal til kynn-
ingar á starfseminni. Fyrirhugað-
ar eru stærri sýningar á þessu ári,
sem opnar verða almenningi. Fé-
lag Nýlistasafnsins telur nu um 39
félaga. Formaður félagsins er
Níels Hafstein.
Prestsírúr sitja kaffiboð Kvenfélags ísafjarðarkirkju í Húsmæðraskólanum Ósk og horfa á tískusýningu á
meðan prestar þinga um kirkjumálefni.
„Ævintýri líkast”
— segja prestskonur á Isafirði
ísafirði 21. júnf.
í DAG er síðasti dagur presta-
stefnu íslands á ísafirði. A með-
an prestarnir þinga um sfn mál,
sitja frúr þeirra ekki auðum
höndum. í dag var þeim boðið til
kaffidrykkju í Húsmæðraskólan-
um ósk á vegum kvenfélags
ísafjarðarkirkju. Frú Guðrún
Vigfúsdóttir formaður kvenfé-
lagsins stjórnaði samkomunni.
Flutti hún fróðlegt erindi um
starfsemi kvenfélags ísafjarðar-
kirkju, en það var stofnað að
tilstuðlan Jónasar heitins Tómas-
sonar tónskálds, þá organleikara
kirkjunnar. Er oft mikið starfað
í félaginu en það sér aðallega um
búnað kirkjunnar og skreytingar
auk þess sem það hefur með
veitingar að gera þegar þess er
þörf. Þá gat hún sérstaklega
hannyrða frú Guðmundu Páls-
dóttur, en hún hefur heklað og
Stjórnarfundur
FIDE haldinn
hér í haust
ÁKVEÐIÐ hefur verið að stjórn-
arfundur Alþjóða skáksambands-
ins verði haldinn hér á landi í
haust. FIDE sendi Skáksambandi
Islands bréf með ósk um að það
sæi um fundinn og var það sam-
þykkt, að sögn dr. Ingimars Jóns-
sonar, varaforseta sambandsins.
Fundinn sækja auk Friðriks 01-
afssonar forseta FIDE allii
svæðaforsetar alþjóðasambands-
ins.
saumað út dúka og blúndur sem
prýða altari ísafjarðarkirkju, og
þykja sérstök listaverk. Guð-
munda var 78 ára, þegar hún
heklaði eitt fegursta verkið.
Þá gat Guðrún um sýningu á
kirkjumunum á vegum kvenfé-
lagsins, sem hefur verið opin í
anddyri barnaskólans meðan á
kirkjuþinginu hefur staðið. Á
meðan konurnar sátu að kaffi-
drykkju sýndu stúlkur fatnað frá
Vefstofu Guðrúnar Vigfúsdóttur
h.f. við forkunnargóðar undirtekt-
ir. Allur fatnaður vefstofunnar er
handofinn, að mestu úr íslenskri
ull.
Anna Sigurkarlsdóttir úr Hafn-
arfirði, hafði orð fyrir gestunum.
Sagði hún að allt ferðalag þetta
hefði verið ævintýri líkast. Gat
hún um ferð í . hraðfrystihús á
Isafirði, þar sem fylgst var með
framleiðslunni frá móttöku til
frystigeymis. Hún ræddi um
Byggðasafn Vestfjarða, sem gest-
irnir skoðuðu einnig, þar sá hún
tvö listaverk unnin úr mannshári.
Er annað myndarammi um mynd
af Laugarbólssystrum, en þær
voru einmitt náfrænkur frúarinn-
ar. Frú Anna fór mörgum fögrum
orðum um listfengi fatnaðarins úr
ísfirsku vefstofunni. Fullyrti hún
að þessi listiðn væri fullkomlega á
heimsmælikvarða og gat til sam-
anburðar, að í Finnlandi, en þar
þekkir hún vel til, væri talað um
að stúlkur fæddust í vefstólinn, en
greinilegt væri, að ísfirskar stúlk-
ur væru varla nema í vöggu, þegar
þær færu að fást við að vefa.
Flptti hún gestgjöfunum bestu
þakkir fyrir frábærar móttökur
fyrir hönd gestanna og færði
kvenfélagi ísafjarðarkirkju að
gjöf bók um sögu kvenfélaga á
Suðurlandi. í eftirmiðdaginn
héldu konurnar svo ásamt eigin-
mönnum sínum til Bolungarvikur,
þar sem þau sitja kvöldverðarboð
sóknarnefndar Hólssafnað ar og
bæjarstjórnar Bolungarvíkur.
Bernhöftstorfan:
Tillaga Al-
berts felld
FRIÐUN Bernhöftstorfu
kom til umræðu á fundi
borgarstjórnar Reykjavík-
ur í gærkvöldi. Urðu um-
ræður um málið heitar, en
borgarstjórn lýsti yfir
stuðningi við álit húsfriðun-
arnefndar um málið, en
nefndin hefur lagt til að
Bernhötstorfan verði
friðuð.
Á fundi borgarstjórnar í gær-
kvöldi flutti Albert Guðmundsson
tillögu um að fram færi allsherj-
aratkvæðagreiðsla í Reykjavík,
þar sem borgarbúar yrðu spurðir
álits á því hver framtíð Bernhöfts-
torfunnar skyldi vera. Tillaga
Alberts var felld neð 12 atkvæðum
gegn 3, Með tillögunni greiddu
atkvæði þeir Birgir ísl. Gunnars-
son og Davíð Oddsson auk Alberts.
Dæmdur fyrir að
nauðga konu sinni
Brussels, 21. júní. AP.
í fyrsta sinn í sögu Belgíu hefur eiginmaður verið
dæmdur fyrir að nauðga eiginkonu sinni. Hann var
dæmdur í eins árs fangelsi fyrir að nauðga og
misþyrma eiginkonu sinni. Þar með felldi hæstirétt-
ur dóm undirréttar úr gildi en undirréttur hafði
aðeins dæmt manninn fyrir að misþyrma konu
sinni.
Maðurinn, Bruno de
Ridder, er 25 ára gamall. í
vitnaleiðslum kom fram
að de Ridder hafði barið
konu sína og bundið hana
þegar hún neitaði að eiga
mök við hann. Síðan hafi
hann nauðgað henni. í
dómi hæstaréttar sagði,
að „engin lög gætu þving-
að konu til að eiga mök
við mann sinn gegn vilja
hennar.
Það eru engin lög
til, sem heimila ofbeldi í
samræði fólks.“ „Og einn-
ig sagði, „ef löggjafinn
hefði viðurkennt hjóna-
band sem afsökun fyrir
nauðgun þá hefði verið
skýrt svo frá. Sú stað-
reynd að það er eiginkona
þín sem þú nauðgar er
engin afsökun.“ Og síðan
stóð í dóminum, „að með
hjónabandi samþykki
kona kynmök við eigin-
mann sinn. En eiginmað-
urinn á engan rétt á að
neyða hana til þeirra í
skjóli meiri líkamsburða".