Morgunblaðið - 22.06.1979, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ1979
21
Hefðbundin
hátíðahöld
Bfldudal 20. júnf.
HÁTÍÐAHÖLDIN 17. júní fóru
fram aö hefðbundnum hætti á
vegum kvenfélagsins Framsóknar
eins og undanfarin ár. Ýmis
skemmtiatriði voru á íþróttavell-
inum svo sem knattspyrna milli
Bílddælinga og Tálknfirðinga.
Páll
Flugvélin
farin
fráEyjum
FLUGVÉLIN sem nauðlenti í
Vestmannaeyjum í fyrradag fór í
gær frá Vestmannaeyjum til
Reykjavíkur. Þaðan mun flugvél-
in siðan halda áfram til Brussel í
Belgíu eins og áður hafði verið
ætlunin.
Eins og áður hefur komið fram í
Morgunblaðinu varð flugmaður-
inn, sem er Bandaríkjamaður, að
nauðlenda vél siunni á Bakkagerð-
istúninu þar sem rafmagnið í
vélinni sló út. Vélin, sem er af
Cessnu-gerð, skemmdist ekkert.
Til Vestmannaeyja kom Banda-
ríkjamaðurinn frá Nýfundnalandi.
Norrœnt
úrsmiðaþing
í Reykjavík
ÞING norrænna úrsmiða verð-
ur haldið hér á landi um
helgina, dagana 23. og 24. júní,
í Norræna húsinu í Reykjavík.
Þátttakendur verða 23 talsins
frá Norðurlöndunum, auk ís-
lensku fulltrúanna.
Þing þessi eru haldin ár hvert,
til skiptis á Norðurlöndunum, og
er þetta í fjórða skipti sem þing
af þessu tagi er haldið hér á
landi. Á þingum þessum er rætt
vítt og breitt um ýmis hags-
munamál norrænna úrsmiða,
auk þess sem tækifærin eru
notuð til að kynnast viðkomandi
löndum. Að þessu sinni munu
þátttakendurnir meðal annars
fara norður til Akureyrar og að
Mývatni áður en þeir snúa heim
að nýju.
Frá sýningu Sigrúnar Eldjárns í Stúdentakjallaranum.
Ljósm. Kristinn
Sigrúnar-grafík í Stúdentakjallaranum
í STÚDENTAKJALLARAN-
UM stendur nú yfir sýning á
vcrkum Sigrúnar Eldjárns. Sig-
rún hefur mest unnið við grafík
og bókaskreytingar, en sýnir
nú í fyrsta skipti teikningar
unnar með blýandi, litblýanti
og tússi. Tvær grafíkmyndir
eru með á þessari sýningu til að
sýna mismunandi útfærslu á
sama myndefninu. Sigrún hefur
áður tekið þátt í mörgum sam-
sýningum, en þetta er fyrsta
einkasýning hennar. Hún er
aðili að Gallerí Langbrók
og selur grafíkverk þar.
Stúdentakjallarinn er opinn
alla daga frá kl. 11.30 til 23.30.
Sýningunni lýkur 5. júlí.
Guðgeir Matthíasson við eina af myndum sfnum.
Guðgeir seldi 20 myndir
GUÐGEIR Matthíasson listmálari frá Vinaminni í Vestmannaeyjum
hélt fyrir skömmu málverkasýningu í Akogeshúsinu í Eyjum þar sem
hann sýndi hugvitsmyndir sínar eins og hann kallar þær. Guðgeir seldi
20 myndir af 28 sem voru á sýningunni.
Ólafsvík:
Nýtt hús slysavarna-
félags og björgunarsveitar
FYRSTA skóflustungan var ný-
verið tekin að nýju húsi Slysa-
varnafélags Ólafsvíkur og björg-
unarsveitar þess. Húsið verður
200 fermetrar að gólfflatarmáli
og er þarna gert ráð fyrir að-
stöðu fyrir slökkviliðið.
Metta Jónsdóttir var stofnandi
Slysavarnafélagsins í Ólafsvík og
fyrsti formaður þess. Sigríður
Hansdóttir, dóttir hennar, tók
fyrstu skóflustunguna að nýja
húsinu.
Núverandi formaður
Slysavarnafélagsins er Björg
Jónsdóttir, en formaður björgun-
arsveitarinnar er Emanuel Ragn-
ars son.
70 millj. kr.
halli á KEA
REKSTRARIIALLI Kaupfélags Eyfirðinga á árinu 1978 var röskar
70 millj. króna og segir í frétt frá félaginu. að það stafi af mjög
skertum rekstursgrundvelli smásöluverzlunarinnar. Heildarvelta
félagsins 1978 varð rúmlega 26,3 milljarðar og hafði aukist um
53.50% frá íyrra ári. Ileildarlaunagreiðslur félagsins á sl. ári námu
tæpum 2,9 milljörðum króna, en fastir starfsmenn í árslok voru 705
og eru þá ekki taldir með starfsmenn dótturfyrirtækja kaupfélags-
ins. Ilafði starfsmönnum KEA fækkað um einn frá fyrra ári.
Fjárfestingar KEA á árinu
1978 numu 817,5 milljónum
króna, en þar af fóru 377,5
milljónir til áframhaldandi bygg-
ingar mjólkurstöðvarinnar. Þá
kemur fram í frétt frá fundinum
að mjög vaxandi erfiðleikar eru
hjá félaginu vegna stöðugt aúk-
innar birgðasöfnunar mjólkuraf-
urða.
Opinber gjöld KEA á aðal-
rekstrarreikningi námu 262
milljónum króna, en auk þess
innheimti kaupfélagið 846,6
milljónir króna í söluskatt.
Fjármunamyndun ársins varð
alls 155,6 milljónir króna og
stofnsjóðir félagsmanna hækk:
uðu um 156,7 milljónir króna. I
skýrslu Menningarsjóðs KEA
koin fram, að úthlutað hafði verið
12 styrkjum að upphæð samtals
kr. 3.050.000 á nýafstöðnum fundi
sjóðsstjórnar en styrkir þessir
voru veittir ýmsum aðilum, ein-
staklingum og félögum á fé-
lagssvæði KEA, auk Kvenfélaga-
sambands íslands.
Á fundinum var samþykkt til-
laga um aukið samstarf sam-
vinnuhreyfingarinnar, bænda-
samtakanna og verkalýðshreyf-
ingarinnar en auk þess voru á
fundinum fluttar tvær framsögur
um sérmál fundarins, „verzlun-
arþjónustu samvinnuhreyfingar-
innar“.
Ur stjórn félagsins áttu að
ganga Gísli Konráðsson, Akur-
eyri, og Jón Hjálmarsson, Vill-
ingadal, en þeir voru báðir end-
urkjörnir. Ragnar Steinbergsson
hrl., Akureyri var endurkjörinn
endurskoðandi og Steingrímur
Bernharðsson, Akureyri, sem
varaendurskoðandi. Jóhannes Óli
Sæmundsson, Akureyri, var og
endurkjörinn í Menningarsjóð
KEA. Þá voru kjörnir 18 full-
trúar á aðalfund Sambands ísl.
samvinnufélaga.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Fótaaðgerðir
Sigrún Þorsteinsdóttlr, snyrti-
sérfræðingur, Rauöalæk 67, s(mi
36238.
Höfum kaupendur
aö góöum elnbýllshúsum strax.
Útborganir allt aö kr. 18 millj.
Fasteignasalan Hafnargötu 27,
Keflavík, sími 1420.
Au pair
Enskukennsla. Vinalegar fjöl-
skyldur. Lágmarksdvöl 6 mán.
Brampton, 4. Cricklewood Lane,
London NW 2, ENGLAND.
Múrarameistarar
Tilboð óskast í múrhúöun utan-
húss á 3ja hæöa blokk. 6 íbúölr í
Seljahverfi. Uppl. í slma 71550
og 76461.
Gróðurmold
heimkeyrö (lóölr. S(mi 40199.
Trjáplöntur
Birki margar stærölr. Brekkuvíö-
ir og fl.
Trjáplöntusala Jóns Magnús-'*
sonar. Lynghvammi 4 Hf. Sími
50572. Opiö tll kl. 22. Sunnu-
daga til kl. 16.
SIMAR 11798 og 19533.
Föstud. 22. júní
1. kl. 20.00 Þórsmörk, gist i húsi.
2. Kl. 20.00 SuöurhKöar Eyja-
| fjalla. Gist ( Þórsmörk. Komlö
m.a. í Paradísarhelll, Rútshelll,
aö Seljavallalaug, Kvernufossl
og gengiö meöfram Skógá. Far-
arstjóri: Jón Á Gissurarson.
3. Kl. 20.00 Gönguferö á Elríks-
jökul (1675 m). Glst í tjöldum.
Fararstjóri: Tryggvi Halldórsson.
Laugard. 23. júní
kl. 13.00
1. Gönguferö á Esju (Fjall árs-
ins). Gengiö á Kerhólakamb (851
m) frá melunum fyrlr austan
Esjuberg. Þar geta þeir sem
koma á eigin bílum slegist í
förina. Gjald: Meö bflunum frá
Umferðarmiöstööinni kr. 2.000,
fyrir aöra kr. 200. Þátttökuskjal
innifallö. Ath. aö þetta er síöasta
Esjugangan á þessu vori.
2. Útilega i Marardal. Æflng fyrlr
þá sem hafa í hyggju aö feröast
um gangandl meö allan útbún-
aö. Komiö til baka á sunnudag.
Fararstjóri og leiöbeinandl: Guö-
jón Ó. Magnússon.
Sunnud. 24. júní
kl. 09.00
Ferö á sögustaöi Njálu. Leiö-
sögumaöur: Dr. Haraldur
Matthíasson.
Aðrar feröir
27. júní — 1. júlí: Snæfellsnes,
Látrabjarg, Dalir.
29. júní — 3. júlí: Gönguferö um
Fjöröu.
3. — 8. júlí: Breiöamerkurjökull,
Esjufjöll.
6. — 13. júlí: Feröir í Furufjörö
og til Hornvíkur.
13. — 20. júlí: Feröir til Hornvík-
ur og Aðalvíkur.
Nánari upplýsingar á skrlfstof-
unnl.
Kynnist landinu.
Feröafélag islands.
ÚTIVISTARFERÐI'R
Föstud. 22. júní
1. kl. 16. Drangey — Málmey —
Þöröarhöföi um jónsmessuna,
eklö um Ólafsfjöró til Akureyrar,
flogió báóar leiöii. Fararstj.
Haraldur Jóhannss.
2. kl. 20 Eyjafallajökull — Þór»-
mörk. Fararstj. Jón í. Bjarnason.
Sumarleyfisferðir
1. Öræfajökull — Skaftafell,
3. -8. júlí.
2. Hornstrandir — Hornvfk,
6.—14. og 13,—22. júlí.
3. Lónsörafi, 25. júlí — 1. ág.
Farseðlar og nánari upplýslngar
á skrifst. Lækjargötu 6a, s.
14606.
Útivist
ai ci.ysim; vsimiw i
KR: f ‘
224BD
Jtiorgmrirtnfcft