Morgunblaðið - 22.06.1979, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ1979
25
fclk í
fréttum
+ HINN nafntogaði leyni-
þjónustumaður Vest-
ur-Þýzkalands Reinhard
Gehlen, er nýlega látinn
segir í frettum frá Bonn.
Gehlen sem starfaði í
þýzku leyniþjónustunni á
heimsstyrj aldarárunum,
gekk bandamönnum þegar
á hönd í stríðslokin og
starfaði hjá Bandaríkjaher
í V-Þýzkalandi. I beinu
framhaidi af því varð hann
svo yfirmaður leyniþjón-
ustu vestur-þýzku leyni-
þjónustunnar. — Hann
sætti síðar meir harðri
gagnrýni t.d. fyrir starfs-
aðferðir sína. — Mikil
leynd hvíldi jafnan yfir
manni þessum, sem var
orðinn 77 ára er hann lézt.
Ljósmyndir voru mjög fáar
til af honum eftir að hann
tók að reskjast.
+ FYRIR skömmu gekk skákheimsmeistarinn Ana-
toly Karpov í hjónaband í Moskvu. — Gekk hann að
eiga stúlku sem Irina heitir og fór vígsluathöfnin
fram í giftingarhöllinni þar í borg. — Efri myndin er
tekin er Karpov hrókerar giftingarhringnum á
baugfingur brúðar sinnar. — Á neðri myndinni eru
hjónin komin út í góða veðrið á Rauðatorginu og þar
er með þeim á myndinni formaður Skáksambands
Sovétríkjanna Vitali Sevastyanov.
+ HESTAMENN. — Þessi mynd er tekin íkonungsstúkunni á Epsom-kappreiðaveilinum í
Surrey á Bretlandi nú í byrjun þessa mánaðar. — Þau eru bæði kunnir hestamenn
Elizaheth Bretadrottning og sonur hennar Karl prins. — Konan sem stendur að baki
drottningarinnar og móðir hennar. Þessar kappreiðar, sem þau voru viðstödd eru hinar
Irægu Dcrhy-veðreiðar og var það í 200. skiptið, scm þær fóru íram.
LÍTIL VERSLUN
í miðbænum til sölu.
Góö tæki, góöur lager. — Verzlun í fullum gangi. —
hentugt þeim sem vilja skapa sér sjálfstæöan
atvinnurekstur. — Til afhendingar strax eöa eftir
samkomulagi.
Nánari uppl. gefur.
Magnús Sigurðsson hdl.
Laufásvegi 58, sími 1-34-40.
SJON-
VARPS-
TÆKI
kr. 439.000
20 tommu
kr. 476.600
22 tommu
ikr. 304.000
L-4.4 tommu
kr. 381.500
_ 18 tommu
HLJOMDEILD
Laugavegi 66, s. 28155, Glæsibæ. s. 81915. Austurstræti 22, s. 28155.
KARNABÆR
Þú færð nóg að
gera hjá okkur
Viö erum aö opna nýja, glæsilega saumastofu og erum að
leita aö góöu fólki til aö hjálpa okkur aö reka hana, helst vönu
saumaskap, erum ekki á móti því aö kenna fólki meö áhuga
fyrir starfinu. Mjög góö vinnuskilyrði. Gott kaup (bónus). Þarf
aö byrja strax eða um miðjan ágúst.
Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 28155 eða á saumastof-
unni að Laugavegi 59, 4. hæð.
KARNABÆR