Morgunblaðið - 22.06.1979, Side 31

Morgunblaðið - 22.06.1979, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ1979 31 ímmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmma. Fór á hækjum 500 m ALMENNINGUR fylgist af mikl- sem nú er vel á veg komið, og um áhuga með landshlaupi FRÍ, öllum þeim f jölmörgu hlaupurum Ein af fjölmörgum ungum stúlkum sem tekið hafa þátt í boðhlaupi FRÍ umhverfis landið. Ljósmynd Jóhann. Ekkert heyrt frá Liverpool ÉG VIL sem minnst um þetta tala, það hefur staðið til að reyna að íá gott lið hingað til lands í tilefni af 80 ára afmæli KR, en okkur hefur ekkert borist í hendur þess efnis að Liverpool sé á leið til okkar í sumar. sagði formaður knattspyrnudeildar KR er Mbl. innti hann eftir því. Tilefnið var frétt dagblaðsins Vísis þess efnis. Þá kannaðist Kristinn Jónsson formaður knattspyrnudeildar KR ekki við að forráðamenn Liverpool ætlaði sér að útvega önnur fræg lið til landsins svo sem Forest eða Arsenal, eins og Vísir skýrir frá. — þr. Petur og Karl leika með ÍA! ALLT gengur samkvæmt áætlun varðandi komu hollenska stór- liðsins Feyenoord hingað til lands á vegum ÍA. Liðið kemur til landsins 23. júlí næstkomandi og leikur strax daginn eftir gegn ÍA á Laugardalsvellinum. Er það hugsanlegt að Pétur Pétursson leiki sinn hálfleikinn með hvoru félaginu. Mikilvægir leikir í 2. deild Næsti leikur hollensku snilling- anna verður í Vestmannaeyjum gegn IBV, en enn er nákvæm tímasetning ekki komin á þann leik, né aðra sem Feyenoord leikur hérlendis. Síðan liggur leiðin til Akureyrar þar sem KA mætir stórliðinu. Síðasti leikurinn fer síðan fram á Akranesi, þar sem Feyenoord og ÍA leiða öðru sinni saman hesta sína. Verður Karl Þórðarson þá að öllum líkindum með ÍA-liðinu. Þetta er með .meiri háttar at- burðum í sögu íslenskrar knatt- spyrnu, en gaman hefði verið ef hægt hefði verið að stilla upp landsliði íslands gegn liði þessu, því ávallt er verið að klifa á því aö landsliðið vanti samæfingu. sem lagt hafa hönd á keflið við að koma því umhverfis landið. Það var sýslumaður Norður-Þingeyj- arsýslu, Sigurður Gissurarson, sem tók við keflinu á Grímsstöð- um, en þar var fánaborg og mikil viðhöfn, og hljóp Sigurður fyrsta spölinn í Norður-Múlasýslu. Alls hlupu 550 manns á vegum ÚÍA. Aðalbjörn Gunnlaugsson skóla- stjóri í Lundi gerði sér lítið fyrir og fór á hækjum sínum um 500 metra, en hann er svo gott sem lamaður upp að mitti. Elstu þátttakendurnir á þessu svæði voru Áskell Sigurjónsson 81 árs, og Glúmur Hólmgeirsson 89 ára en hann er einn af stofnendum félagsins Efling. Skipulag Þing- eyinga var eins og annars staðar frábært. Óskar Ágústsson á Laugum hljóp fyrsta sprettinn fyrir Suður-Þingeyinga. Akur- eyringar tóku við keflinu á brún « Vaðlaheiðar um kl. 17 í gær. Formaður ÍBA Knútur Ottersted j hljóp svo fyrsta sprettinn í Eyja- I fjarðarsýslu. Mikil viðhöfn var á Ákureyri. Vegna þrengsla á íþróttasíðum blaðsins verður betri frásögn að bíða morguns. • Þetta er að öllum líkindum fyrsti kvenmaðurinn sem stund- ar línuvarðarstörf í knattspyrnu hérlendis og jafnvel þó víðar væri leitað. Hún heitir Guðbjörg Pedersen og var línuvörður í Vestmannaeyjum, er heimamenn mættu KR í 1. deild íslandsmóts- ins. ESKFIRÐINGAR tóku við keflinu í landshlaupinu á Vattarnesi um klukkan 5 í fyrrinótt. Bogi Nilsson sýslumaður hljóp fyrsta spölinn fyrir Eskfirðinga, en alls hlupu 20 manns þá 17 kflómetra. sem eru inn að Eyri, en þar tóku Reyðfirðingar við. Reyndar var kominn svefngalsi í Norðfirðingana, sem skiluðu keflinu til Eskfirðinga og einn þeirra brá á leik í morgunsárið. Hljóp hann á undan þeim. sem bar keflið, og rétti sýslumanni trjágrein sem þó áttaði sig á að brögð voru í tafli áður en hann tók á sprett. Meðfylgjandi mynd tók Ævar Auðbjörnsson við Vattarnes í fyrrinótt og er Bogi Nilsson lengst til hægri í þessum föngulega hópi Eskíirðinga. Hagur Skaga- manna vænkast SKAGAMENN hafa illa saknað Kristins Björnssonar úr framlínu sinni, sem verið hefur bitlaus, svo að ekki sé meira sagt. Kristinn meiddist illa í Indónesíuferðinni, en hann er á svo góðum batavegi af meiðslum sínum, að hann hefur nú farið á sína fyrstu æfingu. Verður hann með áður en langt um líður. Þá má geta þess, að markvörðurinn ungi, Bjarni Sigurðsson. sem meiddist einnig illa í leiknum gegn KR fyrir nokkru, er á góðum batavegi og er reiknað með að hann verði til í slaginn eftir hálfan mánuð. íslandsmet hjá Lilju í 3,000 m IILAUPAKONAN Lilja Guðmundsdóttir ÍR setti nýtt íslandsmet í 3,000 metra hlaupi kvenna á frjálsíþróttamóti í Sollentuna í Svíþjóð í fyrrakvöld. Hljóp Lilja á 9:45,0 mínútum og bætti fyrra met sitt um tæpar 10 sekúndur, en það met setti hún í fyrra. Á mánudagskvöldið keppti Lilja á miklu frjálsíþróttamóti í Stokkhólmi og náði bezta árangri sínum í ár í 1500 m hlaupi, hljóp á 4:27,9 mínútum. „Ég held ég geti meira í 3,000,“ sagði Lilja í spjalli við Mbl. í gær. „Ég fékk stig eftir hraða byrjun. Við urðum tvær hnífjafnar í hiaupinu, höfum skipst á um að halda forystu. Stúlkan sú á bezt 9:33.“ Lilja kvaðst eiga við eymsli í hné að stríða og ef til vill yrði hún að gangast undir uppskurð í sumar til að fá bót meina sinna. í fyrrahaust gekkst hún undir uppskurð á sama hné. Á mótinu í Sollentuna keppti Guðmundur R. Guðmundsson í hástökki og stökk hann 1,95 metra. — ágás. í kvöld TVEIR leikir fara fram í 2. deild íslandsmótsins í knattspyrnu í kvöld, báðir mjög mikilvægir. Þór mætir Selfossi á Akureyri og þurfa Þórsarar að fara að gera átak á sínum málum ef ekki á illa að fara í deildarkeppninni. Liðið vann tvo fyrstu leiki sína í vor, en hefur síðan hvorki fengið stig, né skorað mark og slík útkoma býður ekki upp á annað en fa.ll. Selfyssingar eru hins vegar með- al efstu liðanna í deildinni og til alls líklegir. Hafa þeir reynst vera með rúmlega frambærilegt lið. Leikurinn hefst klukkan 20.00. Reynir í Sandgerði fær Breiða- blik í heimsókn og gera þeir vel að halda öðru stiginu, þar sem UBK virðist hafa yfirburðaliði í 2. deild á að skipa um þessar mundir. Reynismönnum hefur auk þess gengið miður vel í síðustu leikjum sínum. Leikurinn hefst einnig klukkan 20.00. ' Þá fara fram tveir leikir í 3. deild íslandsmótsins. í A-riðli leika ÍK og Grinavík á Kópavogs- velli og í B-riðli leika Bolungarvík og Skallagrímur. Báðir leikirnir hefjast klukkan 20.00. Verzlunarráð íslands efnir til kynningarfundar mánudaginn 25. júní 1979, kl. 16.00—18.00 í Kristalsal Hótel Loftleiöa um „Hvernig verðbólgan brenglar reikningshald og rekstur fyrirtækja áá Hjalli Geir Kriatjénaaon Chriatophar Lowa Óiafur Haraldaaon Árni Vilhjélmaaon Fundurinn er opinn öllum áhugamönnum um þessi málefni. Vinsamlega tilkynniö pátttöku í síma 11555, vegna fjölda pátttakenda. Kaffi verður fram boriö á fundinum. Dagskrá $etningarræða. Hjalti Geir Kristjánsson, formaður V.í. Áhrif verðbólgu á reikningsskil fyrirtækja. Christopher Lowe, Coopers & Lybrand. Gildi vísitölureikningsskila í verðbólgu. Ólafur Haraldsson, forstj. Fálkans h.f. Samanburður aðferða við aö laga reikningsskil aö veröbreytingum. Árni Vilhjálmsson, prófessor. Almennar umræöur og fyrirspurnir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.