Morgunblaðið - 22.06.1979, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 22.06.1979, Qupperneq 32
EF ÞAÐERFRETT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU \l U.YS|\(, \ SÍMINN KK: 22480 EFÞAÐERFRETT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU AMil.YSIM, \ SIMINN F.U: 22480 FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1979 Það eru fleiri en þeir fullorðnu sem nýta hábjargræðistímann til vinnu og uppbyggingar. Víða um land vinna hópar krakka á starfsvöllum við húsbyggingar og annað tilfallandi, eins og þessir krakkar sem myndin sýnir. Ljósm. Mbi. Kristinn. Gjaldeyristekjur af laxveiði nema 1.1 milljarði á þessu ári ÁÆTLAÐ er að verðmæta- sköpun laxveiðihlunninda sé 1.6 milljarðar á árinu 1979, en gjaldeyristekjur af veiði og veiðimönnum verða sennilega 1.1 mill- jarður. Ennfremur eru tekjur ríkis og sveitarfélaga af laxveiði og veiðihlunnind- um 4 sinnum hærri en öll árleg framlög ríkisins til veiðimála. Eftir er ad veiða innan við 100 þús- und tonn af þorski Þorskaflinn 195 þúsund tonn fyrstu 5 mánuði ársins ÞORSKAFLI landsmanna var um síðustu mánaðamót orðinn um 195 þúsund tonn, þ.e. fyrstu 5 mánuði ársins. Þá sjö mánuði. sem eftir eru ársins, má því ekki veiða nema 85—95 þúsund tonn verði farið eftir þeirri fyrirætlan stjórnvalda að heildarþorskaflinn í ár verði 280—290 þúsund tonn. 1 júlí Ojí ágúst er togurun- um skylt að stunda aðrar veiðar en þorskveiðar í 30 daga og á tímabilinu frá 1. maí til 30. september skulu togararnir verja 70 dögum til annarra veiða en þorskveiða. Margir togaranna munu vera langt komnir með þann tíma, sem þeir hafa hingað til getað nýtt til annarra veiða en þorskveiða. Það er þó mis- jafnt eftir landshlutum og útgerðarfélögum, á ýmsum stöðum hafa ýmsir erfiðleikar verið þv.í samfara að fara á karfa og grálúðuveiðar, m.a. vélakostur. Ef litið er á tímabilið frá ársbyrjun til loka maímánað- ar í fyrra, þá var þorskaflinn orðinn 170.975 tonn á því tímabili. Árið 1977 var veiðin orðin 185.179 tonn. Heildar- þorskafli landsmanna í fyrra var um 320 þúsund tonn, árið 1978 319.7 þúsund tonn og 10 þúsund tonnum meiri árið 1977. Heildarafli landsmanna var í maímánuði sl. 51.278 lestir, en var í sama mánuði í fyrra 59.667 1. Heildarfiskafl- inn frá áramótum var um síðustu mánaðamót orðinn rúmlega 840 þúsund lestir, en var 732 þúsund lestir sömu mánuði í fyrra. Bátaaflinn varð í maí í ár 18.794 lestir, en 19.638 lestir í sama mánuði í fyrra. Togaraaflinn varð í mánuðinum 30.181 lest í ár, en 28.292 í sama mánuði í fyrra. Þurrð á víntegund- um í ríkinu ÞURRÐ er þessa dagana á nokkrum eftirsóttustu víntegundunum í Áfengis- verzluninni. Þannig gengu upp ýmsar tegundir af vodka, viskýi, rauðvíni og hvítvíni í verkfalli far- manna, en hins vegar mun nóg vera til af þessum vínum, en ekki af þeim tegundum sem mest er keypt af. Ragnar Jónsson hjá ÁTVR sagði í samtali við Mbl. í gær, að langt væri frá að um nokkra vöru- þurrð væri að ræða. Hins vegar fengjust ekki nokkr- ar vinsælar tegundir, en fólk hefði þá getað fengið aðrar tegundir. Hann sagði að vínsendingar lægju í skipum og biðu uppskipun- ar eða þá að þær hefðu þegar verið pantaðar. Greenpeace í Bandarík junum: Herferð gegn ís- lenzkum vörum? Útseld vinna hækkar VERÐLAGSYFIRVÖLD haía heimilað hækkun á útseldri vinnu í framhaldi af launa- hækkunum, sem tóku gildi 1. júní s.I. Er hækkunin á bilinu 9,22-11,4%. VERÐI skipi Greenpeace-samtakanna haldið í Reykjavík Iengur en til næsta þriðjudags, hafa samtök hvalfriðunarmanna í Bandarikjunum tilkynnt, að þau muni beita sér íyrir því, að fólk þar í landi kaupi ekki íslenzkar vörur, en þar er cinkum um fisk að ræða. Þetta kom fram í samtali Morgunblaðsins í gær við David McTaggart, formann Evrópudeildar Greenpeace, og hann sagði ennfremur, að í fyrrakvöld hefði Ilörður Ólafsson, lögfræðingur Grcenpeace, kært til Ilæstaréttar úrskurð borgarfógeta um farbann á Rainbow Warrior úr Reykjavík- urhöfn meðan fjallað cr um kröfu Ilvals hf. um Iögbann á tiltcknar aðgerðir skipverja. — Ef ríkisstjórn íslands heldur skipinu hér án þess að hafa lagalega heimild til þess, þá munu Greenpeace-samtökin í Bandaríkj- unum grípa til sinna ráða, sagði McTaggart. — Við höfum ekki haft frumkvæði í þessu máli, en samtökin í Bandaríkjunum hafa tilkynnt okkur að þau muni grípa til þess að reyna að koma í veg fyrir sölu á íslenzkum vörutegund- um í Bandaríkjunum ef skipinu verður haldið hér lengur en til næstkomandi þriöjudags. Við höf- um ekki fengið neinar lagalegar skýringar á því hvers vegna okkur er haldið hér og teljum ekki að þær sé að finna. Við viljum ekki ógna útflutningi Islendinga, en það að reyna að koma í veg fyrir sölu á íslenzkum vörum í Banda- ríkjunum er svar vina okkar og samstarfsmanna í Bandaríkjun- um. Aöspurður sagði McTaggart að samtök Greenpeace-manna í Bandaríkjunum væru sterk og þá einkum á vesturströndinni. Áð Þetta ásamt mörgu öðru kom fram á aðalfundi Landssambands veiðifélaga, sem að þessu sinni var haldinn á Hvanneyri í Borgarfirði. Fundinn sóttu 50 fulltrúar úr öllum landsfjórðungum auk gesta. Landssambandið hefur undanfar- in ár styrkt rannsóknir á fisk- ræktarmöguleikum heilla vatna- hverfa með fjárframlögum, og hyggst halda því áfram í sam- vinnu við Veiðimálastofnunina. Meðal ályktana þingsins má nefna málefni eins og eflingu Fiskræktarsjóðs, leiðbeiningar- þjónustu út um land, og skráningu veiðivatna í þeim tilgangi að gera sér betur grein fyrir bættri nýt- ingu þeirra. Undanfarin ár hefur velta Landssambandsins síaukist að krónutölu, við vaxandi dýrtíð. Niðurstöðutölur reikninga ársins 1978 eru um 4.5 milljarðar, en fjárhagsáætlun þessa árs er 6.5 milljarðar. Sambandið hefur skrifstofu á Hótel Sögu og selur þar veiðileyfi og veitir upplýsing- ar um veiði og veiðimál. Formaður Landssambandsins er Þorsteinn Þorsteinsson, bóndi á Skálpastöð- pm. Friðrik efst- ur í Manila FRIÐRIKI Ólafssyni stórmeist- ara hefur til þessa gengið mjög vel í alþjóðlega skákmótinu í Manila á Filipseyjum. Friðrik er langefstur þegar 6 umferðum er lokið, hefur 5 xk vinning. Annar í röðinni er stór- meistarinn Eugene Torre frá Fil- ipseyjum með 4 vinninga. í mótinu taka þátt 4 stórmeist- arar auk Friðriks, þeir Torre, Keene, Dorfman og Averbach. auki myndu önnur samtök nátt- úruverndarmanna taka þátt í slíkri herferð ef til kæmi. Hann sagðist í gær hafa rætt við starfs- menn brezka sendiráðsins og beðið um ráðleggingar í málinu, en einnig beðið um aðstoð sendiráðs- ins til að fá upplýst hvers vegna skipinu er haldið í Reykjavík. Er Mbl. spurði hvað Green- peace-menn myndu gera ef lög- bann yrði sett á tilteknar aðgerðir skipverja á Rainbow Warrior, svaraði McTaggart því til að það yrði ekki ákveðið fyrr en niður- staða lægi fyrir í þessu máli. Hins vegar sagðist hann vilja benda á að efnahagslögsaga lands væri ekki hið sama og réttarlögsaga. Þannig gæti íslenzka ríkisstjórnin aðeins bannað tilteknar aðgerðir að 12 mílna mörkunum, en ekki 200 mílna. Farafanov, sendiherra Sovét- ríkjanna, sem senn kveður ís- land. Sendiherra- skiptihjá Rússum SENDIHERRASKIPTI standa fyrir dyrum í sendiráði Sovét- ríkjanna í Reykjavík. Georgí Farafanov sendiherra mun fara héðan þann 10. júlí og taka við nýju starfi í utanríkisráðuneyti Sovétríkjanna f Moskvu, að því er Hörður Ilelgason skrifstofu- stjóri í utanrikisráðuneytinu staðfesti í samtali við Morgun- blaðið í gærkvöldi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.