Morgunblaðið - 28.06.1979, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.06.1979, Blaðsíða 1
36 SÍÐUR 143. tbl. 66. árg. FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Orrustu- þotum grandað Líbanir virða fyrir sér brak úr einni af orrustuþotum Sýrlands- hers er ísraelskar orrustuþotur grönduðu í loftbardaga yfir Suður-Líbanon í gær. ísraelsmenn sögðust hafa grand- að fimm orrustuþotum Sýrlend- inga, en Sýrlendingar viður- kenndu aðeins að hafa tapað fjórum þotum. Þá sögðust Sýrlendingar hafa grandað tveimur þotum ísraelsmanna, en ísraelsmenn sögðu allar sínar þotur hafa snúið heim heilu og höldnu. Sjá nánar frétt á bls. 16. Málamiðlun varð um 20 dollara grunnverð Genf, 27. júní, Reuter — AP. OLÍURÁÐHERRAR á fundi Opec-ríkja í Genf gerðu seint í gærkvöldi með sér málamiðlun um nýtt verð á olíu, en lengi vel voru viðræðurnar í algjörum hnút. Málamiðlunin gerir ráð fyrir því að grunnverð á olíufati frá öðrum Opec-ríkjum en Saudi-Arabíu verði 20 Bandaríkjadalir, og að Saudi-Arabar selji olíufatið á 18 dollara. Ennfremur að hámarksverð á olíufati frá Opec verði 23,50 dollarar, og miðast það við gæði olíunnar, hvar á bilinu 20—23,50 dollarar endanlegt verð á fati af olíu til kaupenda verður. Hið nýja verð tekur gildi frá 1. júlí næstkomandi. Verkfall 5 lamar póstinn? Lundúnum, 27.júní,AP. Fimm starfsmenn í frímerkja miðstöð brezku póstþjónustunn- ar hófu í dag verkfall vegna óánægju sinnar með kjaramál, og getur verkfall þeirra þýtt, að ekki verði hægt að póstleggja bréf á Bretlandseyjum upp úr næstkomandi mánaðamótum. Starf fimmmenninganna er fólgið í því að afgreiða pantanir á frímerkjum tii póststöðva víðs vegar um landið, og meðan þeir verða frá vinnu verður engum frímerkjum dreift. Núverandi frí- merkjabirgðir póststöðvanna end- ast í þrjár til fjórar vikur. Póstdreifing á Bretlandi hefur gengið treglega að undanförnu þar sem skortur hefur verið á bréfber- um. Þá eru 560 starfsmenn tölvu deildar póstþjónustunnar í verk falli, og hefur af þeim sökum ekki verið hægt að senda út reikninga fyrir afnot af síma, er að upphæð nema rúmum 350 milljörðum ís- lenzkra króna Sprengt á Fuengirola á Spáni MalaKa.Spáni,27.júní.AP. Heimagerð sprengja sprakk á tennisvelli í baðstrandarbæn- um Fuengirola árla í dag, en engin slys urðu á fólki, að sögn lögreglu.í sprengjunni voru um 20 kílógrömm af sprengiefni og hlutust af sprengingunni skemmdir á bifreiðum, sem lagt hafði verið í nágrenninu. Einnig brotnuðu rúður í bygg- ingum við tennisvöllinn. Lögregla gerði óvirka aðra sprengju sem komið hafði ver- ið fyrir við aðaldyr hótels á Torremolinos. Talið er að fé lagar úr aðskilnaðarsamtökum baska hafi komið sprengjunum fyrir. Ný stétt þjófa? Knoxvil]e,Tenne88ee,27.júnl,AP. Benzínþjófum hefur fjölgað mjög í Bandaríkjunum, f þeirri benz- ínkreppu, sem verið hefur í land- inu að undanförnu. Lögreglumaður í Knoxville stóð í dag nokkra bíræfna þjófa að verki þar sem þeir voru að stela úr birgðatönkum benzínsölu stór- markaðs í borginni. Tók lögreglan eftir því, að slöngur lágu neðan úr sendibifreið sem lagt hafði verið grunsamlega fyrir utan stórmark- aðinn, og við athugun kom í ljós að slöngurnar Iágu í tankana, sem voru í kjallara hússins. í sendi- bifreiðinni var svo dæla og sjö 250 lítra tunnur. Fimm menn eru í haldi vegna athæfisins, og bíða þeir dóms og laga. Ljóst er því að fulltrúum á Opec-fundinum hefur ekki tekist að koma sér saman um samræmt lágmarksverð á olíu, eins og vonast hafði verið til í upphafi. Ríki Opec höfðu flest látið þá von í ljósi, svo að ekki endurtæki sig sá ruglingur sem skapaðist vegna mismunandi aukagjalda Opec-ríkja á fat af olíu. Hermt er að enn séu óleyst mörg atriði varðandi verðákvörðun út frá gæðum olíunnar. Um tíma leit svo út í kvöld sem kröfur Saudi-Araba um lág- marksverð innan við 20 dollara yrðu ofan á. Talið er að þrákelkni Yamanis olíuráðherra hafi hins vegar orðið til þess að önnur ríki Opec stóðu saman að kröfum um 20 dollara lágmarksverð. KURT Waldheim framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna gagn- rýndi í dag aftökur tveggja fyrrv- erandi þjóðarleiðtoga Ghana, er gerðar voru í gær. Framkvæmd- astjórar tveggja mikilvægra op- inberra stofnanna í Ghana voru handteknir f dag í kjölfar mót- Saudi-Arabar höfðu farið fram á 18 dollara lágmarksverð, en önn- ur á allt að 27 dollara. Um tíma hótuðu Saudi-Arabar að halda sig við sitt fyrra lágmarksverð, 14,55 dollara. mæla kristilegra leiðtoga gegn aftökunum. Fregnir hermdu að daglega væri fjöldi manns handtekinn í Ghana og að sveitir hinna nýju valdhafa héldu uppi umfangsmikilli húsleit sem hafin var hvarvetna í landinu er leiðtogaskipti urðu í síðasta mánuði. Gagnrýni Giscards d’Estaing vekur uppnám á fundi í Tokyo Tokyo, 27. júní. AP EMBÆTTISMENN úr fylgdarliði Jimmy Carters forseta mótmæltu í dag harðri gagnrýni Valery Giscard d’Estaings Frakklandsfor- seta á stefnu Bandaríkjanna í orkumálum, degi fyrir leiðtogafund iðnríkja um efnahagsmál í Tókýó. Carter var sagður reiður ummælum sem birtust í fréttaritinu Newsweek sem var dreift í Tókýó í dag. Bandarískur embættis- maður sagði að þetta væri í annað sinn sem Giscard heíði farið hörðum orðum um stefnu Bandaríkjastjórnar og í annað sinn sem Frakkar hefðu sagt að orð hans hefðu verið slitin úr samhengi. Ciscard d’Estaing sakaði Banda- orkunotkun. Frammistaða Banda- JIMMY CARTER Bandaríkjaforseti og Margrét Thatcher forsætis- ráðherra Bretlands heilsast í upphafi stutts rabbfundar þeirra í bandaríska sendiráðinu í Tókýó í gær. í dag hefst í Tókýó fundur leiðtoga iðnaðarríkja um efnahagsmál, og verða þau Carter og frú Thatcher meðal leiðtoganna sem þar þinga Símamynd ap. rikjamenn um í viðtalinu að hafa ekki hafizt handa um að draga úr olíunotkun og sagði að það væri lífsnauðsynlegt fyrir framtíð efnahagslífs Bandaríkj- anna og annarra iðnrikja að Bandaríkjamenn drægju úr innflutningi olíu. Samþykkt var á fundi þessara ríkja í París í marz að minnka notkunina um fimm af hundraði Bandarískir embættismenn sögðu um ummæli Giscards að þau gætu ekki talizt hjálpleg tilraun- um Bandaríkjamanna til að finna sameiginlega lausn á orkumálun- um þótt þau yrðu ekki látin spilla þessum tilraunum. Þeir sögðu að Giscard hefði ekkert tillit tekið til þeirrar stefnu stjórnar Carters síðustu þrjú ár að draga úr ríkjamanna á þessu sviði væri betri en annarra. Ummæli Giscards vöktu þeim mun meiri athygli í Tókýó en ella vegna þess að þar hefst á morgun efnahagsmáláráðstefna leiðtoga iðnríkja. Allir þátttakendurnir eru komnir til Tokýo og á fundinum verður líklega einnig fjallað um vandamála víetnamskra flótta- manna. Leiðtogarnir hafa hitzt í smáhópum og rætt við gestgjafa sinn Masayhoshi Ohira, forsætis- ráðherra Japana, sem Carter hefur rætt við í tvo daga. Carter var í dag í hafnarborginni Shimoda og ræddi einnig við Margaret Thatcher, forsætisráðherra Breta, og Joe Claerk, forsætisráðherra Kanda. Gagnrýnir aftökur Sameinuðu þjóðunum. Accra.27. júní, Reuter

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.