Morgunblaðið - 28.06.1979, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.06.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1979 13 Námskeið um vandamál drykkjusjúkra: Þýðingarmikið að efla samband presta og meðferðarstofnana Hjálparstofnun kirkj- unnar hefur í samráði við biskup gengist fyrir námskeiði um vandamál drykkjusjúkra. Er nám- skeiðið fyrir þá er starfa að vandamálum drykkju- sjúkra á kristilegum grunni t.d. presta, guð- fræðinema og aðra og hafa verið haldin námskeið í Reykjavík og á Akureyri. Að sögn Stefáns Jóhannssonar áfengisráðunautar sem stjórnaði námskeiðinu sátu það í Reykjavík milli 40 og 50 manns, stærsti hópurinn prestar, en einnig sál- fræðingar, félagsráðgjafar og menn úr heilbrigðisstéttum. Aðal- fyrirlesari var Gordon R. Grimm prestur frá Bandaríkjunum, sem haldið hefur námskeið fyrir starfsmenn kirkjunnar í Dan- mörku, Noregi, Finnlandi og Þýzkalandi, en hann er fram- kvæmdastjóri við Hazelden Foundation í Minnesotaríki í Gordon R. Grimm aðalfyrirlesari á námskeiðinu. Bandaríkjunum og fjallar einkum um skipulagningu og þjálfun starfsfólks. Stefán Jóhannsson sagði að þýðingarmikið væri að prestar gerðu sér far um að hafa samband Ragnar Guðmundsson í hinni nýju verslun sinni. Ragnar — ný herrafataverzlun „RAGNAR“ heitir ein nýjasta herrafataverslun borgarinnar og hóf hún starfsemi sína fyrir skömmu. Verslunin ber nafn eig- andans. Ragnars Guðmundsson- ar, sem er Reykvíkingum kunnur fyrir þrjátíu ára starf hjá Ander- sen og Lauth h.f. og Fötum h.f. Ragnar er til húsa að Baróns- stíg 27 þar sem áður var verslunin Nova. Verslunin Ragnar mun kappkosta að bjóða viðskiptavin- um sínum sem fjölbreyttast úrval herrafatnaðar fyrir alla aldurs- hópa. Auk fatnaðar yst sem innst mun Ragnar koma til með að bjóða snyrtivörur fyrir karla, töskur og smávöru. Ragnar Guðmundsson verður mikið til sjálfur í verzlun sinni til aðstoðar og leiðbeiningar þeim, sem þess óska. Héradsskólinn að Reykjum: 131 nemandi lauk prófi Héraðsskólanum að Reykj- um var slitið 24. maí sl. 139 nemendur hófu nám í skólan- um í vetur en 131 nemandi lauk prófi. Fjölmennasti bekk- ur skólans var 9. bekkur með 70 nemendur, en næstur hon- um var fyrsti bekkur fram- haldsskóla með 31 nemanda á þremur kjörsviðum, bók- náms-, uppeldis-, og viðskipta- braut. Hæstu einkunn í fyrsta bekk framhaldsskóla hlaut Gróa Böðvarsdóttir, Akur- brekku, 8,7, en næstur henni var Björn Jóhannesson, Laug- arbakka, með einkunnina 8,2. Einnig var gefinn kostur á sjóvinnu og siglingafræði en þeir nemendur sem luku prófi á því sviði öðluðust réttindi til að stjórna 30 tonna bátum. Hæstu einkunn á því sviði hlaut Árni Skúlason, Hvammstanga, fyrstu ágætis- einkunn. Aðsókn hefur verið mikil að skólanum undanfarin ár og hafa færri komist að en vilja. Frá námskeiðinu í Reykjavík. við meðferðarstofnanir drykkju- sjúkra og hefði hann t.d. í starfi sínu orðið var við að prestar reyndu slíkt, en mætti að sínu mati vera mun meira. Sagði hann að þeir fengju oft til meðferðar t.d. skilnaðarmál, sem reyndust t.d. sprottin út frá áfengisvanda- málum og gæti þá presturinn t.d. oftlega leitað aðstoðar við meðferð slíkra mála hjá meðferðarstofnun. Á námskeiðinu fjallaði Grimm um þetta samband, um sjúkdóminn alkóhólisma og andlegt og sið- ferðilegt viðhorf. Stefán Jóhannsson kvaðst von- ast til þess að námskeið þetta yrði til að auka samband milli presta og meðferðarstofnana og hefði t.d. biskup lýst yfir áhuga sínum að fylgja námskeiði þessu eftir á einhvern hátt. Sagði Stefán að kirkjan hefði jafnan veitt samtök- um AA húspláss og unnið mikið starf með því og hennar hluti gæti án efa verið þýðingarmeiri í þessu starfi. Sláttuvélar fyrir garða sem almenningsbletti, f rá Flymo og Murray Útsölustaðir Flymo: Reykjavík: Alaska, Breiðholti. BB byggingavörur. Jón Loftsson byggingavörur. O. Ellingsen. Biómaval, Sigtúni. KRON, Hverfisgötu. Jes Ziemsen, Hafnarstræti og Ármúla. Brynja, Laugavegi. Sölufélag Garðyrkjumanna. Kópavogur: BYKO. Tæknimiðstöðin. Hafnarfjörður Versiunin Málmur. Mosfellssveit: Samvirki. Vestfirðin Rörverk, (safirði. Norðurtand: Raforka, Akureyri. Austuriand: Fell, Egilsstöðum. Suðuriand: Kristall, Höfn Hornafirði. G.A. Böðvars- son, Selfossi. Brimnes, Vestmannaeyjum. Flyitio loftpúðavélarnar cru sterkar,léttar og meðfærílegar. Margar tegundir! Murray sláttuvélarnar eru m.a. fáanlegar sjálfdrifnar. Ámerísk hörkutól! Heildsölubirgðir: Tæknimiðstöðin H.F. S. 91-76600

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.