Morgunblaðið - 28.06.1979, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ1979
Þeir hafa >?ert það gott (írásleppukarlarnir á Suðvesturhorninu að undanförnu og sömuleiðis hefur
vertíðin verið góð hjá Barðstrendingum. Fyrir Norðurlandi gerði hafísinn grásleppukörlum ljótan
gríkk og þegar honum sleppti tóku við mislynd veður. Það er Jón í Görðunum, sem á þessari mynd
situr makindalega í sœti sínu um borð í Garðari og ber sig fagmannlega að við vinnuna. Vindillinn er
á sínum stað. (Ljósm. Jón P. Ásgeirsson).
Verzlunarmenn og starfsmannahald Varnarliðsins:
Deila um túlkun á kjaradómi
um laun verzlunarmanna
STJÓRN Verzlunarmannafélags
Suðurnesja fékk í gœr umboð fél-
agsfunda til að grípa til þeirra
aðgerða.sem hún telur nauðsynleg-
ar til að leita réttar félaga sinna í
deilu sem upp er komin milli
verzlunarmanna á Suðurnesjum og
starfsmannahalds Varnarliðsins
vegna túlkunar á dómi sem nýlega
féll um kjör verzlunarmanna. Val-
garður Kristmundsson. formaður
Verzlunarmannafélags Suðurnesja
sagði að þeir teldu túlkun starfs-
mannastjóra Varnarliðsins á kjara-
dómum vera langt frá réttu lagi og
hann hefði upp á sitt eindæmi
skorið fyrri launaflokka niður og
þá jafnvel skipt þeim í 4 flokka.
Rétt væri að skrifstofu- og verzlun-
arfólk, sem starfaði hjá Varnarlið-
inu hefði hækkað eitthvað í kaupi en
ekki í samræmi við niðurstöður
kjaradómsins.
Valgarður sagði að her væri um að
ræða laun um 300 starfsmanna hjá
Varnarliðinu en einnig virðist túlkun
einstakra atvinnurekenda á fyrr-
nefndum kjaradómi ætla að verða
áþekk, þannig að aðgerðir félagsins
kynnu að beinast gegn fleirum en
Varnarliðinu. „ Við skiljum ekki
hvernig yfirmenn starfsmannahalds
Varnarliðsins hafa komist að þessari
niðurstöðu og um það að við getum
kært þessi vinnubrögð til kaupskrár-
nefndar ríkisins eins og starfs-
mannastjórinn hefur sagt, þá vil ég
aðeins segja að hann hefði þá átt að
fá staðfestingu á þessum gerðum
sínum fyrirfram hjá nefndinni. Við
höfum ekki ákveðið til hvaða aðgerða
við kunnum að grípa en við gætum
gripið til margvíslegra aðgerða og
þurfum ekki að láta starfsmanna-
stjóra Varnarliðsins segja okkur
hvað við eigum að gera," sagði
Valgarður.
Guðni Jónsson, starfsmannastjóri
Nordmenn bednir
aðstoðar við að
útvega svartolíu
SVAVAR Gestsson viðskiptaráð-
herra lagði fram beiðni um aðstoð
Norðmanna við útvegun á 40.000
tonnum af svartolíu á þessu ári á
fundi með Hallvard Bakke við-
skiptaráðherra Noregs í gær. Eftir
fundinn sagði Bakke að hann ætti
von á því að (slendingar legðu fram
innan skamms beiðni um viðræður
við Norðmenn um oiíukaupasamn-
ing til langs tíma.
í fréttatilkynningu frá viðskipta-
ráðuneytinu um viðræðurnar segir
að ráðherrarnir hafi rætt viðskipti
landanna, samstarf innan EFTA og
önnur viðskiptamál. Svavar Gests-
son lagði áherzlu á mikilvægi út-
flutnings á dilkakjöti til Noregs.
Þá segir að rædd hafi verið hugs-
anleg olíuviðskipti íslands og Noregs
og að Hallvard Bakke hafi sagt, að
Norðmenn hafi -hingað til ekki verið
aflögufærir um olíu til íslands, en
talið að norska ríkisstjórnin tæki til
vinsamlegrar athugunar óskir af
Islands hálfu um olíuviðskipti í
framtíðinni.
26 tonna bátur
sökk út af Skaga
Áhöf ninni 2 mönnum b jargað
TUTTUGU og sex tonna bátur frá Hólmavík, Vinur ST 21, sökk í
gærmorgun 3 til 4 mflur út af Skaga. Tveir menn voru á bátnum og
fóru þeir í gúmbjörgunarbáti en flugvél Landhelgisgæzlunnar, Syn,
fann bátinn eftir skamma leit um kl. 18. Jökulfellið, sem statt var um
klukkustundar siglingu frá gúmbjörgunarbátnum bjargaði mönnun-
um og kom með þá í gærkvöldi til Skagastrandar.
Vinur var á leið frá Hólmavík til sínum tíma gerður út frá Skaga-
Varnarliðsins, sagði að Varnarliðið
væri ekki samningsaðili á landinu
heldur fylgdi það þeim kjörum, sem
tíðkuðust á markaðnum hverju sinni.
Sérstök nefnd frá íslenska ríkinu
kaupskrárnefnd, ætti að sjá um að
ákveða hvaða kaupi og kjörum Varn-
arliðið ætti að fylgja hverju sinni.
Guðni sagði að í mörg ár hefðu
skrifstofu- og verzlunarmenn hjá
Varnarliðinu fylgt almennum kjör-
um verzlunar- og skrifstofufólks og
þegar þessi kjaradómur hefði legið
fyrir hefði næsta verkefni hjá þeim
verið að framkvæma hann.
„Eins og við skiljum kjaradóminn
þá er ekki tekið tillit til fyrri
yfirborgana hjá mönnum eða yfir
flokkunar og ein af ástæðunum fyrir
kjaradómi var sú að hjá mörgum
aðilum var mikið um yfirborganir.
Kjaradómurinn var fyrst og fremst
til þess ætlaður að tryggja rétt
þeirra sem ekki voru yfirborgaðir og
ná kaupi þeirra upp þannig að þeir
væru í samræmi við aðra. Vegna
framboðs og eftirspurnar höfum við
flokkað yfir eins og aðrir aðilar í
landinu, því að ella hefðum við aldrei
fengið nokkurn mann til starfa,
þannig að í framkvæmd reyndum við
að meta hvern mann inn á þessi nýju
kjör. Verzlunarmannafélagið telur að
þessi flokkun sé röng og það hefur nú
áfrýjunarrétt á þessu til kaupskrár-
nefndar," sagði Guðni.
Siglufjarðar en þar .átti hann að
fara í slipp og var báturinn væntan-
legur til Siglufjarðar í gærmorgun.
Þegar báturinn kom ekki þangað
var leitað aðstoðar Slysavarnar-
félagsins. Um fimmleytið var óskað
eftir því að flugvél landhelgisgæzl-
unnar, sem var úti fyrir Norður-
landi, leitaði að bátnum og fann
hún gúmbátinn með skipverjunum
eftir skamma leit.
Tveir menn voru á bátnum en það
voru Ástvaldur Pétursson, formað-
ur og Kristmundur Stefánsson,
báðir frá Hólmavík og sögðu þeir í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi að það hefði verið milli
klukkan 7 og 8 í gærmorgun, sem
þeir hefðu orðið varir við að leki var
komin að bátnum. Þegar Ástvaldur
hefði farið niður í vélarrúmið hefði
allt verið orðið fullt af sjó og
báturinn fyllst á augabragði. Ekki
sögðust þeir vita neina skýringu á
þessum skyndilega leka. Þeir sögð-
ust hafa reynt að ná sambandi við
nærstadda báta eða land um tal-
stöðina en ekki tekist. Flugvél
Landhelgisgæzlunnar hefði fundið
þá um klukkan 18 og tæpri klukku-
stund síðar hefði Jökulfellið komið
til þeirra. Til Skagastrandar kom
Jökulfellið rétt fyrir kl. 9.
Vinur hét áður Auðbjörg og var á
strönd. Hann var eikarbátur smíð-
aður í Hafnarfirði 1939.
Friðrikí
öðru sæti
FRIÐRIK Ólafsson er nú í
öðru sæti á skákmótinu á
Manila á Filipseyjum, hálf-
um vinningi á eftir stór-
meistaranum Torre frá
Filipseyjum, sem hlotið
hefur 8,5 vinninga. Torre
sigraði í viðureign sinni við
indverska skákmanninn
Ardijansah í 11. umferð-
inni í gær, en skák Friðriks
og Ástralíumannsins Rog-
ers fór í bið eftir 40 leiki. í
þriðja sæti á mótinu er
Sovétmaðurinn Dorfman
með 6,5 vinninga, en viður-
eign hans og Bretans Keene
í gær fór í bið.
Bora 210 metra
niður í Surtsey
Náttúrufræðistofnunin og
Bandaríska Jarðfræðistofnunin
munu á næstunni framkvæma all
viðamikla borun í Surtsey til þess
að kanna myndun móbergs í
eynni, hitastig og þróun mála frá
eldgosinu sem hófst 1963.
Náttúrufræðistofnunin íslenzka
fékk fyrir skömmu 33 millj. kr.
styrk frá Bandarísku Jarðfræði-
stofnuninni til þess að vinna
þetta verk og mun Sveinn
Jakobsson jarðfræðingur,
deildarstjóri á Náttúrufræði-
stofnun stjórna verkinu. Mun
varðskip fara á næstunni með 50
tonn af bortækjum, dælum,
dráttarvél og öðrum útbúnaði til
Surtseyjar og tvær þyrlur munu
skipa farangrinum á land, ein
Hæstiréttur vísaði frá
kærunni um farbann-
ið á Rainbow Warrior
HÆSTIRÉTTUR íslands vísaði í
gær frá kæru Greenpeace-samtak-
anna um farbann það, sem þeir
töldu borgarfógetann í Reykjavík
hafa sett á skip samtakanna Rain-
bow Warrior í fyrri viku. Sagði í
niðurstöðu Hæstaréttar að úrskurð-
urinn hefði ekki verið í réttu formi
og hefði þar af leiðandi ekki verið
kæranlegur.
„Frávísunardómur Hæstaréttar
sannar það að mínu viti,“ sagði
Hörður Ólafsson, lögmaður Green-
peace-samtakanna í samtali við Mbl.
í gær,“ að málsaðili, sem fylgir
stefnu ríkisvaldsins og fógetaréttur
fyrir þann aðila geta farið sínu
fram, þótt ólöglegt kunni að vera
einungis ef framferðinu hefur verið
hætt, þegar Hæstiréttur þarf að
kveða upp dóm sinn um lögmæti
þess eins og á stóð. Einnig það að
Hæstarétti er það ekki á móti skapi
að bíða ögn með dóm sinn t.d. frá
föstudegi til miðvikudags til að gefa
málsaöilanum og fógetarétti og þeim
yfirvöldum, sem fógetaréttur hefur
gefið fyrirskipanir, ef til vill ólög-
mætar, kost á að ljúka sér af.”
Heimsókn forsetals-
lands tilManar lokið
Mön, 27. júní. Frá Elínu Pálmadóttur blm. Mbl.
LOK FJÖGURRA daga opinberrar heimsóknar forseta íslands og
forsetafrúar til Manar í dag hafa einkennst af því sem þessar eyjar
tvær, ísland og Mön, eiga sameiginlegt að arfi, sömu örnefnin,
fornkvæði og komu norrænna víkinga. í morgun stóðu forsetahjónin
í góðu veðri á tindi Snæfells, hæsta fjalls á eyjunni í fylgd forseta
Manar Körruush og konu hans og ekið var til Lagsey, sem er hið
fornfslenska orð Laxá.
í gærkvöldi var sett á svið af
skólabörnum þinghald á hinum
1000 ára þingstað eyjarskeggja,
Tyngwald. Sögðu þau fram lögin
eins og tíðkaðist á hinu forna
Alþingi á Þingvöllum. í kvöld
munu „víkingar" gera strandhögg
og ganga á land í bænum Peel á
vesturströndinni að viðstöddum
dr. Kristjáni Eldjárn, forseta og
frú Halldóru, fylgdarmönnum
þeirra og gestgjöfum.
Þing Manarbúa er einu sinni á
ári, 5. júlí, flutt úr þingsölum á
hina fornu Tyngwald-hæð og þar
eru lesin upp öll lög ársins eftir að
hafa verið staðfest af drottningu.
Verður Elísabet drottning sjálf á
fundinum í ár.
í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins í gær sagði forseti
íslands að heimsóknin hefði verið
mjög ánægjuleg og margbreytileg.
Þeim hjónum hefði verið sýnd
eyjan og m.a. uppgröftur á forn-
leifum sem kenndar væru við
norræna menn, en áberandi væri í
fari fólksins á Mön að það héldi
tryggð við fyrri tengsl við norræn-
ar þjóðir og kæmi það kannski
skýrast fram í því að til þessara
hátíðarhalda væri boðið forseta
íslands og Ólafi Noregskonungi.
Forsetahjónin fara héðan á morg-
un til London og heim á föstudag-
frá Varnarliðinu og önnur frá
gæzlunni.
Rannsóknirnar og borunin miða
að því að kanna myndun móbergs
undir og yfir sjávarmáli við Surts-
ey. Þá verður kannað hitasig undir
Surtsey og hvaðan sá hiti kemur
sem ennþá býr í eynni og einnig
verður athugaður gamli botninn
undir eynni. Boruð verður 210
metra djúp hola og munu þrír
bormenn framkvæma verkið. Auk
þeirra verða í leiðangrinum
kokkur og tveír jarðfræðingar,
Sveinn og bandarískur
jarðfræðingur, en reiknað er með
að verkið taki 6—8 vikur.
Surtseyj arfé lagið er aðili að
þessum rannsóknum og Náttúru-
verndarráð hefur veitt leyfi til
þeirra, en Surtsey er friðuð eins og
kunnugt er. Að lokinni borun-
inni og öflun kjarna, taka við
rannsóknir á þeim, en þetta er í
fyrsta skipti sem fylgst er með
móbergsmyndun úti í náttúrunni.
Fyrsta móbergið fannst í Surtsey
árið 1969, 1—2 árum eftir að
hitasvæði myndaðist í
öskusvæðinu kring um gömlu gíg-
ana. Munu hitastig og raki hafa
mikil áhrif á mótun móbergsins.
Sveinn sagði í samtali við Mbl.
að það væri mikið fyrirtæki að
koma öllum þessum tækjabúnaði
til Surtseyjar og væri hálfgert
stríðsástand í búðum leiðangurs-
manna um þessar mundir.
ASÍ semur vid
ríki ogborg
um 3%-in
I FRAMHALDI af samningum þeim
sem undirritaðir voru milli Alþýðu-
sambands íslands annars vegar og
Vinnuveitendasambands Islands og
Vinnumálasambandi samvinnufé-
laganna hins vegar, þann 25. júní
s.l., var í gær undirritaður samning-
ur við ríkið og Reykjavíkurborg um
3% grunnkaupshækkun, er taki gildi
frá 25. þ.m.