Morgunblaðið - 28.06.1979, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 28.06.1979, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ1979 MORÖUK/ Sk^7T\lÞÍ/ kafr/NO \\ J bflnum slnum eða hvað? Hann sagðist ekki elska mig lengur — ég væri svo lík þér. BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Á laugardag hefst Evrópu- meistaramótið 1979 í Lausanne í Sviss. Mót þessi eru haldin annað hvert ár enda ekki á hvers manns (æri að taka þátt í þessum erfiðu mótum árlega. Þar mun landslið íslands keppa við reyndustu spil- ara á meginlandinu og ekki verður hér spáð um úrslit eða árangur liðsins. En það er skipað þessum mönnum: Ásmundur Pálsson, Guðlaugur R. Jóhanns- son, Hjalti Elíasson, Jón Ás- björnsson, Símon Sfmonarson og Örn Arnþórsson en fyrirliði á spilamennsku verður Rfkharður Steinbergsson. Allt reyndir menn, sem áður hafa spilað fyrir okkar hönd. Sökum eigin framtaksleysis verður ekki sýnt nú spil eftir þá félaga. En í þess stað furðuleg vörn leikin á Spáni síðastliðið haust. Norður gaf, austur-vestur á hættu. COSPER Eigum við ekki að fara út að skemmta okkur í kvöld — ég meina sitt í hvoru lagi? Á ég að gæta bróður míns? Nú þegar blessun- heimsvalda- stefnu sósíalismans í Austur-Asíu knýr á dyr okkar, eins og alls heimsins, þá bregðast sósíalist- arnir illa við og harðneita að taka þátt í því að við gerum skyldu okkar. Þetta fólk, sem hefur kjark til þess að flýja og vill heldur drukkna en að búa við sósíalism- ann, sýnir manni, svo ekki er um að villast, að óbúandi er við hagkerfi sósialismans. Hann býð- ur aðeins upp á steina í stað brauðs. Víetnamarnir segja að flótta- mennirnir séu ríkt fólk sem ekki vill vinna. Hún er því liklega nokkuð löng 40 stunda vinnuvikan í Víetnam. Viðbrögð við flótta Víetnama eru ef til vill einna eindregnust hjá Rússum. Pravda segir að þessi flótti fólksins sé orðum aukinn áróður hjá Kínverjum. Miskunn- semin gagnvart þrautum almenn- ings er alltaf hin sama hjá ráða- mönnum Rússlands. Félagi Búlow var líka tekinn í dýrðlingatölu sósialismans í Rússlandi þegar hann var sendur til Úkraínu til þess að ræna mat frá bændunum og hafði tekið allan matinn frá ekkju með 3 ung börn. Þegar hún kom heim frá vinnu sinni og sá ástandið, tók hún til sinna ráða. Hún fór um kvöldið niður í þorps- krána og sagði félaga Búlow að hún hefði því miður falið 3 poka af korni uppi á háalofti. Hann fór því í góðri trú að ná í pokana, því þess meira sem þeir komu með, þess hærri voru launin. Ekkjan lét hann fara á undan og þegar hann beygði sig til þess að ná pokunum, skellti hún öxinni á háísinn á honum. Ég þarf ekki að taka það Norður S. K8743 H. D10843 T. D Vestur L. 32 S. ÁD H. 9 T. KG74 L. ÁKDG65 Suður S. 10962 H. ÁG T. Á10763 L. 97 í árlegri keppni á Melia Don Pepe voru margfaldir heimsmeist- arar ítala með spil austurs og vestur en danskur maður í sæti suðurs var leiður á að segja pass og opnaði á einum spaða. Vestur sagði þrjú lauf og sögnum lauk með fjórum spöðum norðurs. Dá- lítið tilviljanakenndar sagnir en hagstæð lega gerði vinning ekki útilokaðann — bara ekki í þetta sinn. Vestur tók tvo fyrstu slagina á lauf og spilaði þriðja laufi. Sagn- hafi trompaði á blindum, lét hjartagosann af hendinni, fór heim á hjartaás og spilaði trompi. Vestur tók strax á ásinn og spilaði laufi í fjórða sinn, sem austur trompaði með gosa og þá var daninn mættur. En einn niður var ekki nóg. Austur spilaði hjarta og spaðadrottningin varð þriðji trompslagur varnarinnar. Austur S. G5 H. K7652 T. 982 L. 1084 Lausnargjald í Persíu Fftir Evelyn Anthöny Jóhanna Kristjónsdóttir sneri á íslenzku 6 Helztu sögupersónur: Logan Field — athafnasamur og umsvifamikill forstjtíri Imperial-olíuféiagsins. Eileen Field — kona hans — sem verður ein helzta persóna sögunnar. James Kelly — framkvæmda- stjóri í fyrirtæki Fields. Aðdá- andi eiginkonunnar. Janet Armstrong — ástkona Logans Fields. Ardalan hershöfðingi — yfir- maður SAVAK. Khorvan — efnahagsmálaráð- herra írans, sem á að semja við Logan um 'mikilsháttar fram- kvæmd í olíumálum. Peters — Bandaríkjamaður, forsvarsmaður skæruliðahóps sem undirbýr mannrán. fagna. Hann hafði kosið mann sem reyndist fær um að kljást við frönsku stjórnina og það í reynd þýddi ekki sfzt að kljást við keisarann sem var sannar- lega ekki á margra færi. — Þetta er aldeilis frábært, hélt Field áfram lágróma. — Mesta olfusvæði á fimmtfu árum — og breyting á olfuverði fyrir Vestur-Evrópu. Við hljót- um að ienda í mannkynssög- unni, James. — Ég reyni náttúrlega að vera ekki með óþarfa svartsýni, en ég held samt ég geti ekki trúað þessu fyrr en ég hef séð ráðherrann skrifa undir í eigin persónu. — Fyrst keisarinn styður þetta á hann engra kosta völ, sagði Field. — En ég vil fá hann yfir á okkar hlið James. Ég vil að þetta gangi fyrir sig eins hávaðalftið og hægt er. Og eins greitt og unnt er. Ég veit að þetta samkvæmi skiptir ekki nokkrum sköpuðum hlut og á morgun reynir hann að hefja skemmdarstarfsemi gagnvart okkur aftur, en samt er ég trúaður á að þetta takist. James svaraði ekki. Hann dreypti á viskfinu og horfði á Eileen Field. Hún lagði sig alla fram við að vera notaleg og skemmtileg við ráðherrann. Hann velti syrir sér hvort Logan gerði sér grein fyrir hversu farsæll hennar þáttur var í þessu öllu. Hann var of skýr til þess að háfa uppi gagnrýni á Logan Field þótt hann væri sjálfur ástfanginn af konunni hans. Hann mat marga góða kosti Logans og hann neitaði því ekki að Kogan gat verið heillandi og skemmtileg- ur þegar hann vildi það við hafa. En hann lét fólk ekki hafa mikil áhrif á sig. Auðurinn hafði ekki gert hann að apa. En hann skildi gildi peninga og hegðaði sér samkvæmt því. Hann átti mikið og voldugt safn grískra fornmuna. Þegar Jam- es hafði látið í Ijós hrifningu sína hafði hann sagt honum hispurslaust að þetta væri miklu betra og öruggara en eiga peninga í banka. Þessi afstaða fór feiknalega í taug- arnar á James. Allt varð að hafa sinn tilgang, ef ekki var um að ræða vald og áhrif, þá hagnað í einhverri mynd. Hann hélt áfram að horfa á Eileen og hugsaði með sér að hún væri oýenjulega fölleit. — Ég er að hugsa um að halda einkasam kvæmi fyrir Khorvan, sagði Logan. — Daliíið oéenjulegt. í huáinu hjá þér, það er skemmti legra en á hóteii og persónu legra. — Mér finnst heldur ósenni iegt hann fáist til að koma, svaraði James. — Raðherrar þiggja sjaldan slík einkaboð en við getum auðvitað reynt. — Við skulum koma til þeirra. Logan gekk í áttina til Khorvans. — Þú býður honum. James varð undrandi þegar ráðherrann þá boðið umsvifa laust. — Ég þigg það mcð mestu ánægju. sagði hann. — Ég verða að fá annað tækifæri til

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.