Morgunblaðið - 28.06.1979, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 28.06.1979, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ1979 17 Myrtu fimm manns fyrir 46 þúsund kr. Ghent. 27. júní - AP TVEIR menn viðurkenndu í Ghent í dag að hafa myrt fimm manna fjölskyldu í nágrenni Ghent í Belgíu í vikunni. Þeir réðust inn á heimili f jölskyldunnar vopnaðir riffli og skutu fjölskyldumeðlimi einn af öðrum. Mennirnir tveir. Fernard Feneuille, 26 ára, og Freddy Horion, 32 ára, höfðu áður verið dæmdir fyrir rán. Horion var sleppt lausum á síðasta ári eftir að hafa afplánað helming fangavistar sinnar og Feneuille var sleppt lausum úr. fangelsi fyrir aðeins nokkrum vikum. Það sem morðingjarnir höfðu upp úr krafsinu á heimili fjöl- skyldunnar voru 135 dollarar — um 46 þúsund krónur og eitthvað af skartgripum. Saksóknarinn í Ghent sagði að mennirnir hefðu viðurkennt verknaðinn í dag. Þeg- ar Feneuille var sleppt úr fangelsi leitaði hann uppi Horion, en þeir höfðu kynnst í fangelsinu. Þeir ákváðu vopnað rán. Horion hafði hitt Rolands Steyaert, 47 ára samlan bílasala. Þeir ákváðu að ræna hann. Þeir fóru vopnaðir riffli að heimili Rolands Steyaert. Bönkuðu upp á og sögðust vilja fá seldan bíl. En um leið og þeim var hleypt inn í húsið tóku þeir bíla- salann, konu hans og dóttur hönd- um. Lokuðu konuna og dótturina, 13 ára gamla, niðri í kjallara en fóru með Steyaert inn í bílskúr þar sem þeir skutu hann. Skömmu síðar kom eldri dóttir hjónanna heim með unnusta sínum. Þau voru lokuð inni í kjallaranum. Unnustinn reyndi að kalla á hjálp en þá var hann umsvifalaust tekinn og skotinn í bílskúrnum. Síðan fóru morðingjarnir niður í kjallara og skutu mæðgurnar þrjár. Horion viðurkenndi einnig að hafa skotið konu í Ghent. Kínverjar nálgastnú milljarðinn Peking, 27. júní — AP. Reuter KÍNVERSK stjórnvöld tilkynntu í dag, að fólksfjöldi í Kína í árslok 1978 hefði verið 975 milljónir og 230 þúsund. Meðtaldir eru íbúar Taiw- ans en þar búa liðlega 17 milljónir manna. Árleg fólksfjölgun í Kína er 1,2% að sögn kínverskra yfirvalda. Þá hafa yfirvöld sett sér að koma fólksfjölgun í landinu niður í 1% á næsta ári og 0,5% árið 1985. Taugaveiki vart meðal bátafólksins Kuala Lumpur. 27. júní — AP. ERLENT ERJUR hafa að undanförnu verið miklar milli skæruliða Sandinista og hermanna stjórnar Somoza forseta Nicaragua. Skæruliðum hefur vaxið ásmegin upp á síðkastið, og í gær var Somoza fyrir enn einu áfalli er stjórnvöld í Perú rufu allt samband milli ríkjanna. Á þessari mynd sjást þjóðvarðliðar skjóta á fylgsni skæruliða. Veður víðaumheim Akureyri 10 rigning Amsterdam 20 léttskýjað Apena 31 heiðskirt Barcelona 25 lóttskýjað Berlfn 24 skýjaö Brdssel 23 heiðskírt Chicago 29 skýjað Frankfurt 24 skýjað Genf 26 skýjaö Helsinki 22 heiðskfrt Jóhannesarb. 17 heiðskírt Kaupmannah. 19 skýjað Lissabon 28 léttskýjað London 21 heiðskfrt Los Angeles 29 helðskfrt Madríd 32 heiðskírt Malaga 28 lóttskýjað Mallcrca 32 léttskyjað Miamí 22 heiðskírt Moskva 29 heiðskfrt New York 23 heiöskírt Ósló 15 skýjaö París 24 skýjaö Reykjavík 10 rigning Rio De Janeiro 25 rigníng Rómaborg 30 léttskýjaö Stokkhólmur 19 skýjaó Tókýó 27 rigning Vancouver 25 léttskýjaö Vínarborg 19 rigning Gagnrýna DOUGLAS Bern. 27. júní — Reuter. SVISSNESK flugyfirvöld, sem rannsaka óhapp DC-10 þotu á flugvellinum í Zurich fyrir tveimur árum, gagn- rýndu í dag McDonn- el-Douglas verksmiðjurnar fyrir að hafa ekki gefið leiðbeiningar um hvernig stöðva ætti þotu á miklum hraða á hálli flugbraut. Svissnesk flugyfirvöld segja, að þegar DC-10 þota með 181 manns á leið til ísrael var í flugtaki þá hafi einn hreyfla þotunnar misst afl. Flugmaðurinn hafi reynt að stöðva þotuna en ekki tekist og þotan hafi stöðvast um 80 metrum utan brautar- enda. Flugyfirvöldin kenpa McDonnel Douglas verk- smiðjunum að hluta og eins mistökum flugmanns. Engar leiðbeiningar hafi verið gefnar um hvernig stöðva ætti þotu í flugtaki á hálli flugbraut. Rússar smíða þrjár herflugvélategundir Washington. 26. júní. AP. RÚSSÁR vinna að smíði þriggja nýrra tegunda þungra sprengjuflugvéla sem þeir gætu tekið í notkun þegar Salt Il-samningurinn rennur úr gildi síðla árs 1985 samkvæmt heimildum í bandarísku stjórninni. Bandarískir embættismenn höfðu vitað að unnið var að smíði einnar nýrrar langfleygrar Tupe- lov-sprengjuflugvélar, en þeim kom á óvart þegar þeir fréttu að unnið væri að smíði tveggja annarra tegunda sovézkra sprengjuflugvéla af gerðunum Ilyushin og Antonov. Samkvæmt heimildunum þessu. Þeir telja að ein hinna nýju minntist sovézkur samningamað- ur á smíði hinna þriggja nýju sprengjuflugvéla á fundi með bandarískum fulltrúum í Genf áður en Salt Il-samningurinn var undirritaður í Vín. Bandarískir embættismenn segjast enga skýringu hafa á því hvers vegna Rússar sögðu frá sprengjuflugvéla kunni að geta borið stýrisflaugar (cruise). Á fundinum í Vín minntist enginn sovézkur embættismaður á hinar þrjár nýju sprengjuflugvél- ar sem unnið er að. Ekki er vitað hvort Jimmy Carter forseti eða Harold Brown landvarnarráð- herra hafa vakið máls á þessu við Rússa í Vín. Bandarískir leyniþjónustumenn hafa áður sagt að Rússar vinni að smíði einnar nýrrar langfleygrar sprengjuflugvélar sem þeir telja að verði sambærileg við hina hraðfleygu B-1 sprengjuflugvél Bandaríkjamanna sem Carter ákvað fyrir tveimur árum að hætt skyldi við. Gervibensín Wa.sinjfton, 26. júní. AP. Reuter. FULLTRÚADEILDIN í Banda- ríkjunum samþykkti ný lög um framleiðslu gervibenzíns á næstu fimm árum. Yfirgnæfandi meiri- hluti fulltrúadeildarinnar sam- þykkti lögin. Þar er gert ráð fyrir að árið 1984 verði framleidd um 500 þúsund olfuföt og 2 milljónir fata árið 1990. Sam- þykkt laganna gefur Jimmy Carter forseta, heimild til að láta hefja framleiðsluna úr kolum, olíurfkum steintegundum og fleiri tegundum. NOKKURRA taugaveikitilfella hefur orðið vart meðal víetnamskra flóttamanna á eyjunni Pulau f S-Kfnahafi, um 140 mflur suð-austur af Kuala Lumpur, höfuðborg Malasfu. Yfirvöld f Malasfu sögðu að engin hætta væri á. að veikin breiddist út meðal hinna 9500 flóttamanna á eyjunni. Yfirvöld í Malasíu halda áfram að taka báta flóttafólks í tog út á opið haf. í dag voru 826 flótta- menn dregnir á haf út í átta bátum. Hluti af fólkinu, sem var dregið á haf út kom til Malasíu í maí. Stjórnvöld kaupa nú báta af malasískum fiskimönnum, sem áður höfðu keypt báta af flótta- fólki, þegar það kom til landsins. Þá vinnur fjöldi manns við að gera við báta, svo hægt verði að senda fleira flóttafólk burt. Frá því stjórnvöld tilkynntu að allt fólk yrði dregið á haf út, sem kæmi til landsins, hafa rúmlega 14 þúsund manns verið dregnir út úr. land- helgi Malasíu. Stjórnvöld Á-Malasíu hafa gert umfangsmiklar ráðstafanir til að reyna að koma í veg fyrir að farsóttir komi upp meðal flótta- fólks. Á eyjunni, þar sem tauga- veikin hefur fundist er mikill rottufaraldur og flóttamenn hafa undanfarna daga drepið fjölda rottna auk þess að yfirvöld áforma að útrýma rottum á eyjunni. Utanríkisráðherrar í löndum S-Austurasíu koma saman til fundar í vikunni og verður flótta- mannavandamálið efst á baugi þar. Indónesíska fréttastofan Antara sagði í gær, að í Thailandi væru nú 230 þúsund flóttamenn frá Víetnam, Kambódíu og Laos. í Malasíu væru um 76 þúsund flóttamenn frá Víetnam, 31 þús- und í Indónesíu og um 5000 manns á Filipseyjum. Skildu skipin að áður en ítalska olíuskipið sökk Fiumcino, 27. júní. — AP. Reuter. BJÖRGUNARMÖNNUM tókst aö skilja í sundur skip, sem lentu í árekstri í svarta þoku skammt undan fiskibænum Fiumcino á Ítalíu. ítalskt olíusip, Vera Berlingeri, sökk skömmu eftir að tókst að skilja skipin. Hitt skipið, franskt flutningaskip, Emmanuel Delmas, er ofansjávar. Björgunarmenn fundu í dag lík 14 Frakka um borð í Emmanuel Delmas en þeir höfðu lokast af þegar gífurlegar eldstungur stigu upp í kjölfar árekstr- arins á þriðjudagsnóttina. Líkin fundust í vélarúmi og matsal og voru þau mjög illa brunnin. Björgunarmenn leituðu áfram í flakinu, sem er mjög brunnið. Enn er 10 manns saknað. Þegar hefur tekist að bjarga 23 mönnum, mörgum mjög illa brenndum. Olíuskipið sem sökk var um 5000 lestir en franska skipið 12 þúsund lestir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.