Morgunblaðið - 28.06.1979, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1979
HansBlix
utanríkisráð-
herra
Svíþjóðar:
Ifímm daga á
bóndabœmeð
fjölskylduna
„ÉG ER mjög ánægður með að vera kominn til íslands,
það er mjög mikilvægt fyrir mig sem utanríkisráð-
herra, að heimsækja Norðurlöndin öll. Utanríkisráð-
herra íslands, Benedikt Gröndal, kom í opinbera
heimsókn til Svíþjóðar í vor og ég greip fyrsta
tækifærið sem gafst til að endurgjalda þá heimsókn,“
sagði utanríkisráðherra Svíþjóðar, Hans Blix, við
komuna til íslands í gær. En Blix kom til Keflavíkur
um klukkan hálf þrjú í gær og notaði daginn m.a. til að
heimsækja sænska sendiráðið og fara með tveimur
sonum sínum 1 sundlaug Vesturbæjar.
Hans Blix býr á Hótel Sögu á öryggismál yfirleitt,
meðan hin opinbera heimsókn
hans stendur, en mun að henni
lokinni fara til Austurlands þar
sem hann mun dveljast á bónda-
bæ fram til fjórða júlí.
Hans Blix sagði að hann
myndi koma aftur til íslands í
ágúst til að sitja ráðherrafund
Norðurlandanna sem verður
haldinn í Reykjavík í byrjun
ágúst.
I viðræðum sínum við íslenska
ráðamenn mun Blix aðallega
ræða norrænt samstarf, en hann
sagði að á mörgum sviðum
mætti auka það að sínu mati
eins og til dæmis í efnahags- og
viðskiptamálum. Þá yrði að öll-
um líkindum rætt um Nordsat
sem væri ofarlega á baugi um
þessar mundir og annað sam-
starf Norðurlandanna í menn-
ingarmálum. Af alþjóðlegum
málefnum sagði hann að líklega
yrði rætt um afvopnunarmál
gang Salt-viðræðnanna og
einnig
hvernig unnt væri að bæta sam-
búð austurs og vesturs. Hans
Blix sagði að sennilega yrði rætt
um ástandið í suð-austur Asíu og
hvernig Norðurlöndin muni
bregðast við flóttamannavand-
anum þar.
Hans Blix snæddi kvöldverð á
Hótel Sögu í gærkvöldi í boði
Benedikts Gröndal. í dag mun
hann ræða við íslenska ráða-
menn í ráðherrabústaðnum og
snæða hádegisverð í Höfða í boði
Sigurjóns Péturssonar, forseta
borgarstjórnar Reykjavíkur. Þá
verður haldinn blaðamanna-
fundur á Hótel Sögu og síðdegis
mun hann renna fyrir lax í
Elliðaánum. Um kvöldið býður
hann til sín gestum til kvöld-
verðar í Þingholti.
Frú Eva Blix mun hins vegar
fara árla dags í dag til Þingvalla
í skoðunarferð, en síðdegis mun
hún heimsækja barnaheimilið
Dalbraut og skoða íslenskan
heimilisiðnað.
Flugleiðir segja
upptugumflug
í öryggisskyni
SAMKVÆMT upplýsing-
um sem Mbl. hefur aflað
sér eru væntanlegar upp-
sagnir næstu daga hjá
tugum flugliða Flugleiða,
flestum úr hópi flugfreyja,
en einnig flugmönnum,
flugvélstjórum og flug-
virkjum. Þessar uppsagn-
ir munu þó fyrst og fremst
vera í „öryggisskyni“ eins
og einn talsmaður Flug
leiða orðaði það, miðað við
stöðuna í farþegafluginu í
dag og það að ekki komi
til viðbótarverkefni í
haust og vetur fyrir flug
flota Flugleiða. Til dæmis
mun það hafa áhrif í þess-
um efnum ef staðfest verð-
ur í ágúst væntanlegt píla
grímaflug með 25 þús.
Nígeríumenn og ekki sízt
ef tían kemst fljótlega í
gagnið.
Reiknað hafði verið með
um 60 nýjum flugfreyjum
til starfa í sumaráætlun-
inni og var búið að ráða
hluta þeirra. Uppsagnir
munu að auki ná til nokk-
urra tuga fastráðinna
flugliða úr hópi beggja fé
laganna, flugmanna, flug
freyja og flugvirkja, en
talsmenn Flugleiða kváðu
mikið kapp lagt á að afla
viðbótarverkefna fyrir
flugflota fyrirtækisins og
væri það von allra að þess-
ar væntanlegu uppsagnir
þyrftu ekki að taka gildi.
„Er mjög ánægður
með samkomulagið’
„ÉG er mjög ánægður með þetta
samkomulag, og tel að þarna
hafi verið skynsamlega að
málum staðið“ sagði Olafur
Jóhannesson forsætisráðherra í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins í gærkvöldi er hann var
inntur áltis á því samkomulagi
sem undirritað hefur verið milli
Alþýðusambands íslands og
Vinnuveitendasambandsins.
Forsætisráðherra sagði, að
samkomulag þetta gilti til
áramóta og yrðu menn að vona að
það tryggði frið á vinnumarkaðn-
um þangað til að minnsta kosti.
ÍNNLENT
Forsætisráðherra um tillögu Geirs
Hallgrímssonar:
Verður afgreitt form-
lega í ríkisstjórn í dag
BRÉF Geirs Hallgrímssonar til
Ólafs Jóhannessonar forsætisráð-
herra verður tekið til formlegrar
afgreiðslu á fundi ríkisstjórnar-
innar í dag, að því er Ólafur
Jóhannesson forsætisráðherra
sagði í samtali við Morgunblaðið
síðdegis í gær, Sagðist forsætis-
ráðherra ekki vera reiðubúinn til
að tjá sig um efnisatriði bréfsins
fyrr en að loknum fundi ríkis-
stjórnarinnar.
Eins og Morgunblaðið skýrði frá
í gær, ritaði formaður Sjálfstæðis-
flokksins, Geir Hallgrímsson, for-
sætisráðherra bréf, þar sem hann
hvetur ríkisstjórnina til að skipa
nefnd til að kanna alla möguleika
á olíukaupum á sem hagkvæmustu
verði. Þar á meðal eigi nefndin að
taka upp viðræður við Sovétmenn
um breytt fyrirkomulag verðmið-
unar í olíukaupum frá Sovétríkj-
unum. Leggur Geir Hallgrímsson
til að nefndina skipi menn úr
öllum stjórnmálaflokkum.
Nafn mannsins,
erdrukknaði
MAÐURINN, sem drukknaði í
Miklavatni í Skagafirði sl.
þriðjudag hét Guðmundur Hall-
mundsson. Hann var fæddur 17.
apríl 1918 og starfaði sem leigu-
bflstjóri í Reykjavfls en heimili
hans var að Grensásvegi 60,
Reykjavík.
Geir Hallgrímsson um olíumálin:
Viljum hvetja ríkisstjómma tíl
víðtækra aðgerða í oliukaupum
MORGUNBLAÐIÐ sneri sér í gær til Geirs Hallgrímssonar,
formanns Sjálfstæðisflokksins og leitaði nánari fregna hjá honum
af bréfi því er hann ritaði forsætisráðherra fyrir helgi og skýrt var
frá í Morgunblaðinu í gær, þar sem lagt er til, að skipuð verði
nefnd með fulltrúum frá öllum stjórnmálaflokkum til þess að fjalla
um olíukaupamálin.
Geir Hallgrímsson kvaðst hafa
reifað mál þetta á fundi í mið-
stjórn Sjálfstæðisflokksins dag-
inn áður en hann ritaði bréfið og
gert miðstjórninni grein fyrir
þeim hugmyndum, sem þar koma
fram. Við viljum leggja okkar lóð
á vogarskálarnar til þess að
takast megi að fá olíu keypta á
sem hagkvæmustu verði. Eins og
málin standa nú er hér um mjög
alvarlegan vanda að ræða. Við
erum að flytja inn olíufarma, sem
kosta um 380 dollara tonnið af
gasolíu én útsöluverðið, sem við
búum nú við og öllum þykir
nægilega hátt er miðað við 260—
270 dollara tonnið. Stórfelld verð-
hækkun er því fyrirsjáanleg og
stjórnvöld hafa verið með hug
leiðingar um nýjar skattaálögur
til að greiða olíuna niður. Við
fiskverðsákvörðun um síðustu
mánaðamót var lofað óbreyttu
olíuverði.
I bréfinu til forsætisráðherra
er lögð áherzla á að leitað sé til
æðstu stjórnvalda og helztu olíu
fyrirtækja í olíusölulöndunum og
ennfremur að náið samstarf og
samráð verði haft við olíufélögin
— og veita
henniþað
lið, sem
við megum
íslensku og þau hvött til þess að
nýta olíuviðskiptasambönd sín til
þess að afla okkur sem hagkvæm-
astra tilboða. Þá var í bréfinu
lögð áherzla á að teknar verði upp
viðræður við Rússa um endur
skoðun á verðviðmiðun olíukaupa
samninga.
Þegar ég kynnti forsætisráð
Geir Hallgrímsson.
herra munnlega efni bréfsins sl.
föstudag, tjáði hann mér, að það
yrði væntanlega tekið fyrir á
ríkisstjórnarfundi síðari hluta
mánudags. Viðskiptaráðherra
skýrði mér frá því í símtali á
þriðjudag, að málið hefði verið til
meðferðar í ríkisstjórninni dag-
inn áður og óskaði eftir að
Sjálfstæðisflokkurinn væri reiðu
búinn til að tilnefna fulltrúa í
nefndina sem allra fyrst.
Við viljum með þessu bréfi
hvetja stjórnvöld til sérstakra
víðtækra aðgerða í olíukaupum
og bjóðumst til að veita ríkis-
stjórninni það lið, sem við meg-
um. Hér er um mál allrar þjóðar-
innar að ræða. Því er nauðsynlegt
að allir standi saman við að leita
ráða til lausnar þess.