Morgunblaðið - 28.06.1979, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ1979
ptnrgmiiMalííilí
Útgefandi
Framkveemdaatjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og skrifstofur
Auglýsingar
Afgreiösla
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guómundsson.
Björn Jóhannsson.
Baldvin Jónsson
Aóalstræti 6, sími 10100.
Aöalstrnti 6, sími 22480.
Sími 83033
Reynslan af sösialisma
Sósíalismi í framkvæmd á að baki 60 ára reynslusögu í
Sovétríkjunum. Reynslutími sósíalisma í ríkjum
A-Evrópu er víðast kominn á fjórða áratuginn. Fjölmargar
þjóðir Asíu og Afríku hafa og mislanga reynslu af
sósíalisma í framkvæmd, þó skemmri sé en fyrrgreindra
Evrópuþjóða. Það er einkar athyglisvert að reynsla þessara
þjóða allra fellur í einn og sama farveginn, bæði að því er
varðar persónufrelsi, þ.e. þegnréttindi einstaklinganna, og
varðmætasköpun og lífskjör, sem mótast m.a. af viðkom-
andi hagkerfi.
Alþjóðlegar skýrslur sýna að verðmætasköpun á hvern
þjóðfélagsþegn í ríkjum sósíalismans er afgerandi minni en
í hagkerfum vestrænna ríkja og almenn lífskjör að sama
skapi lélegri. Enn ömurlegri er þó sú reynsla, er lýtur að
persónulegu frelsi manna: pólitísku frelsi til skoðanamynd-
unar og tjáningar, frelsi til starfs og framkvæmda, frelsi til
listsköpunar, að ekki sé minnst á ferðafrelsi í stað
átthagafjötra.
Við fengum átakanlegt dæmi um framkvæmd sósíalisma
í fræðslumynd í Sjónvarpinu sl. mánudag, þar sem greint
var frá sölu A-Þjóðverja á pólitískum föngum vestur fyrir
Berlínarmúrinn. Fólk, sem sætt hafði frelsissviptingu,
jafnvel árum saman, vegna skoðana sinna einna, var selt
eins og markaðsvara fyrir eftirsóttan vestrænan gjaldeyri.
Þessi viðskipti hafa viðgengizt árum saman, þó nú fyrst séu
að koma upp á yfirborð almennrar vitneskju. Verzlun með
lifandi fólk, sem flestir héldu að heyrði til grárri forneskju,
er einkenni dagsins í dag í því ríki sósíalismans, sem þó er
lengst komið, a.m.k. efnahagslega.
Okkar borgaralega þjóðfélag hefur vissulega ýmsa
annmarka. En þaö hefur tryggt þegnum sínum bæði
verulega betri lífskjör og víðtækari persónuréttindi en ríki
sósíalismans. Höfuðkostur þess er samt sá að geta þróazt
frá annmörkum sínum á friðsaman hátt, fyrir meirihluta-
áhrif í almennum, leynilegum kosningum. Þessa þjóðfélags-
gerð þarf að vernda; einnig fyrir þeim öflum hérlendis, sem
leynt og ljóst vilja neyða sósíalisma upp á íslenzkt
þjóðfélag.
Varanleg vegagerð
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins fluttu á liðnu þingi
tillögu um varanlega vegagerð, sem því miður náði ekki
fram að ganga. Tillagan gerði ráð fyrir 15 ára verkáætlun
um lagningu hringvegar og vega til allra þéttbýlisstaða með
bundnu slitlagi. Hún fól jafnframt í sér fjármögnun
framkvæmdanna, sem byggja átti á umframtekjum af
sérsköttun umferðar, happdrættislánum og framlagi
byggðasjóðs, auk fjárveitinga á fjárlögum til almennrar
vegagerðar.
I greinargerð kemur fram að olíumalarvegur með 1000
bíla árdagsumferð skilar stofnkostnaði í minna vegavið-
haldi á tæpum áratug, en umferðarþungi ræður að
sjálfsögöu, hvers konar slitlag yrði lagt á einstaka
vegarkafla. Athuganir sýna að varanleg vegagerð er arðbær
og skilar kostnaði sínum á undraskömmum tíma, ekki
aðeins í minna vegaviðhaldi, heldur einnig í minni
viðhaldskostnaði ökutækja, lengri endingartíma þeirra og
minni bensíneyðslu, sem er stórt atriði í .viðblasandi
verðþróun á olíu. Sverrir Hermannsson alþingismaður, 1.
flm. tillögunnar, segir í viðtali við Mbl. sl. þriðjudag, að
útreikningar sýni að fólksbifreið á malárvegi noti 19%
meira bensín en á varanlegu slitlagi. Slit á hjólbörðum er
talið 170% meira á malarvegi en malbiki. I stuttu máli
komust vísindamenn að þeirri niðurstöðu, að meðaltalsslit
á bifreið sé 63% meira við akstur á hinum verri vegunum
en varanlegum.
Samkvæmt vegaáætlun núv. ríkisstjórnar verður 11%
magnminnkun vegaframkvæmda í ár frá fyrra ári, þegar
einnig var um nokkurn samdrátt að ræða. Hins vegar setur
samgönguráðherra á pappír framkvæmdaaukningu fyrstu
þrjú ár næsta áratugar, án þess þó að fjáröflunarákvörðun
fylgi, sem er þó mergurinn málsins. Stjórnarandstaðan
hefur hins vegar mótað stórhuga framkvæmdastefnu í
varanlegri vegagerð, sem nær bæði til verkáætlunar og
fjármögnunar. I tilvitnuðu samtali við Mbl. segir Sverrir
Hermannsson, að hann sé samdráttarmaður við ríkjandi
efnahagsaðstæður í þjóðarbúinu. Þó séu tvö verksvið, þar
sem við höfum ekki efni á „sparnaði": í orkumálum og
vegagerð. Undir þau orð er rétt að taka.
Lögreglumenn, félagar úr björgunarsveitinni Ingólfi og Hjálparsveit skáta vinna að slökkvistarfi
skammt fyrir ofan Sandskeið. Ljósm. Mbl. Emilía.
Sjö tíma að slökkva eld í mosa
Á þriðjudag var eldur laus f
mosa skammt ofan við Sand
skeið og tók það lögreglumenn
ásamt mönnum úr Slysavarna
sveitinni Ingólfi og Hjálpar
sveit skáta um sjö tíma að ráða
niðurlögum eldsins.
Tilkynning um eldinn barst
frá flugvél, sem var á flugi yfir
svæðinu en erfitt var að komast
að brunastaðnum nema á tor-
færubílum. Ekki er vitað um
upptök eldsins en grunur leikur
á að um íkveikju hafi verið að
ræða. í allt brann gróður á um
hálfum hektara.
Keflið á hápunkti ferðarinnar
LANDSHLAUP F.R.Í. fór um
Vestfirði um helgina. Vestur
ísfirðingar tóku við keflinu á
Þorskafjarðarheiði af Stranda
mönnum, og skiluðu því í hendur
Norðurísfirðinga á Breiðadals
heiði kl. 4.50 að morgni sunnu
dags. Á myndinni skilar bæjar-
stjórinn á ísafirði, Bolli Kjart-
ansson, keflinu í hendur Kristj-
áns Pálssonar sveitarstjóra á
Suðureyri í 610 metra hæð yfir
sjávarmáli við erfiðar aðstæður,
snjókomu og frost. Þarna má
segja að Landshlaupið hafi náð
hámarki, því einmitt þarna er
hæsti hluti þeirrar Ieiðar er
keflið góða fór í hringferð sinni
um landið.
— Úlfar.
tök í Sjálfstæðisflokknum
um olíuskrifín
Míðstjómin þaggaði niður í Moggamm
sem skilaði auðu um olíuna í gœr
voru oltumálin til umræöu og var
þar deilt hart um skrif Morgun-
blaösins og afleiöingar þeirra.
Þótti flestum sýnt aö áróöur
blaösins þrengdi Sjálfstæðis-
flokknum inn I blindgötu ef ekkert
væri aö gert. Aö fundinum lokn-
um ritaöi Geir Hallgrímsson ölafi
Jóhannessyni forsætisráöherra
„Uppsptmi frá rótum”
segir Sigurður Hafstein um „frétt” Þjóðviljans í gær
„Þetta er alrangt. Skrif
Morgunblaðsins komu yfirleitt
ekki til umræðu á fundi mið-
stjórnar, og því er þessi frétt
Þjóðviljans uppspuni frá rót-
um, hreinn uppspuni“ sagði
Sigurður Hafstein
framkvæmdastjóri Sjálfstæðis-
fiokksins í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi.
í forsíðufrétt í Þjóðviljanum í
gær er því haldið fram, að hart
hafi verið deilt um skrif
Morgunblaðsins um olíumál á
fundi miðstjórnar Sjálfstæðis-
flokksins síðastliðinn
fimmtudag. í fréttinni segir
einnig að miðstjórn Sjálfstæðis-
flokksins hafi þaggað niður í
Morgunblaðinu, og einnig segir í
þessari sömu „frétt" að flestum
þætti „sýnt að áróður blaðsins
þrengdi Sjálfstæðisflokknum
inn í blindgötu ef ekkert væri að
gert.—
„Frétt" Þjóðviljans í gær, um
að „miðstjórn Sjálfstæðisfokks-
ins hafi þaggað niður í Morgun-
blaðinu á eftirminnilegan hátt“.