Morgunblaðið - 28.06.1979, Síða 26
26
MÖRGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ1979
t
Eiginkona mín, móöir, tengdamóöir og amma
GUDBJÖRG GUDMUNDSDÓTTIR
Fýlshólum 1
lézt á sjúkrahúsi á Spáni þann 26. júní.
Snorri Guönason
Svala S. Jónsdóttir Einar S. Einarsson
Björk E. Jónsdóttir
og barnabörn
t
Maöurinn minn
BERGÞÓR SIGURÐSSON
andaöist á Landakotsspítala þriðjudaginn 26. júní. Jaröartörin
auglýst síöár.
Kristbjörg Þorvaröardóttir
t
GUÐRÍÐUR EYJÓLFSDÓTTIR, KRISTIANSEN,
f. 25.9. 1894 aö Bjalla í Landsvoit,
lézt aö heimili mínu, Steinjörd, Evenskjer, Noregi, þann 22. maí sL
Jaröarförin fór fram 29. maí.
Fyrir hönd vandamanna,
Helga póröardóttir, Thomassen.
t
JÓHANN ÞORSTEINSSON
málarameistari
Kleppsvegi 50,
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 29. júní kl. 3 e.h.
Þeim, sem vildu minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélag
íslands.
Rebekka Guömundsdóttir
Ragnheiöur Brynjólfsdóttir Engilbert Engilbertsson
Ólöf Brynjólfsdóttir Sigurður Þorsteinsson
og aörir vandamenn.
t
Eiginmaöur minn, faöir og stjúpfaöir,
GUÐGEIR GUDMUNDSSON,
vólgæzlumaöur,
Kleppsvegi 128,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, föstudaginn 29. júní kl.
13-30- Hulda Valdimarsdóttir,
Lárus Guögeirsson,
Baldur Álfsson.
t
Móöir okkar,
LAUFEY LÍNDAL
Arnartanga 78, Mos.
áöur Háteigsvegi 22, Rvfk.,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, föstudaginn 29. júní kl.
10 30 , h' Hulda Jensdóttir,
Fyrir hond vandamanna, E|lort Jon80oni
Theódór Helgason.
t
Eiginmaöur minn
TRYGGVI ÍVARSSON,
lyfjafræöíngur, Ránargötu 19,
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 29. júní kl. 10.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Styrktarfélag fatlaöra og
lamaðra.
Hildur Sveinsdóttir
t
Ástkær eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma
JÓNÍNA HALLGRÍMSDÓTTIR
Selvogsgötu 26, Hafnarfiröi
veröur jarðsungin frá Þjóökirkjunni f Hafnarfiröi', föstudaginn 29.
júní kl. 2 e.h.
SigÞór Marinósson
Aöalbjörg SigÞórsdóttir Gunnar Sigurösson,
Rafn SigÞórsson Guöný Albertsdóttir,
María SigÞórsdóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir samúö og vinarhug við andlát og útför
ÁSTHILDAR SÆMUNDSDÓTTUR
frá Gufuskálum
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Landakotsspítala.
Guö blessi ykkur öll.
Elínborg Þóröardóttir, Sigurður Friöríksson,
Mjöll Siguröardóttir, Ragnar Jóhannesson,
Ásthildur Ragnarsdóttir, Jón Halldórsson,
Ragnar Ragnarason, Elínborg Ragnarsdóttir.
Siguröur Ragnarsson,
Lárus Ágústsson, Helga Jónsdóttir,
María Mjöll Jónsdóttir, Aöalheiður Ragnarsdóttir.
Þórður Jónsson
Miíla—Minning
Fæddur 19. júlí 1930.
Dáinn 19. júní 1979.
Mér varð undarlega innan-
brjósts þegar mér var sagt lát
Þórðar Jónssonar bónda á Múla og
oddvita Þingeyrarhrepps, það kom
mér og vafalaust fleirum svo
gjörsamlega á óvart að hann
Þórður á Múla, sem maður sá,
hitti og talaði við svo að segja
daglega, væri allt í einu horfinn af
sjónarsviðinu fyrirvaralaust,
horfinn yfir landamæri lífs og
dauða, þaðan sem enginn á aftur-
kvæmt. Það var engu líkara en
einhver dimmur og kaldur skuggi
legðist yfir þetta litla byggðarlag
okkar, svo sem oft vill verða þegar
duglegir og framsýnir forgöngu-
menn falla í valinn svo að segja í
blóma lífsins, en um slíkt tjáir
ekki að tala og enginn deilir við
dómarann allra síst þann sem
ræður iífi og dauða okkar mann-
anna hér á jörð. Þórður Jónsson
var fæddur 19. júlí 1930 að Finn-
bogastöðum í Árneshreppi á
Ströndum en lést að heimili sínu,
Múla í Dýrafirði, 19. júní síðast-
liðinn, vantaði því mánuð upp á
49. aldursárið. Foreldrar Þórðar
voru Jón Samsonarson og Ragn-
heiður Guðjónsdóttir, bjuggu þau
um árabil á Finnbogastöðum en
munu hafa brugðið búi þar eftir
að mæðiveikin fór að herja á búfé
manna, fluttust þau þá að Múla í
Dýrafirði ásamt börnum sínum
Þórði, Karitas, Jóhönnu og Sverri,
öllum ungum. Múli var á þeim
árum ekkert stórbýli fremur en
mörg önnur kot hér í hrepp. En
þau hjón, sem bæði vou annáluð
fyrir dugnað, munu fljótlega hafa
lagt allt kapp á að rækta og bæta
jörðina og því starfi hélt Þórður
sleitulaust áfram að foreldrum
sínum látnum enda er nú svo
komið, að flest hús jarðarinnar
eru ný eða nýleg, þar á meðal gott
og vandað íbúðarhús. Má því segja
að í dag sé Múli nánast stórbýli á
mælikvarða okkar Dýrfirðinga.
Sem ungur maður vann Þórður
við skrifstofustörf hjá Kaupfélagi
Dýrfirðinga sem þá var undir
stjórn hins þekkt og ötula ákafa-
manns Eiríks Þorsteinssonar. Það
er ætlun mín, að á þessum árum
hafi Þórður bundist þeim böndum
við kaupfélagið og samvinnustefn-
una sem aldrei rofnuðu, heldur
treystust ár frá ári, samanber það
að árið 1967 er hann kjörinn í
stjórn Kaupfélagsins og nú síð-
ustu árin formaður kaupfélags-
stjórnar. Skamma hríð vann Þórð-
ur á skrifstofu Kaupfélagsins því
sökum vanheilsu lá leið hans
suður að Vífilsstöðum, þar gekk
hann undir svokallaðan lungna-
skurð þar sem numinn var brott
mikill hluti af öðru lunga hans. Nú
mætti ætla, að margur maðurinn
hefði reynt að verða sér úti um
létta og þægilega vinnu eftir það
sem á undan var gengið og valið
eitthvað annað en búskap. En mér
er til efs að slíkt hafi nokkru sinni
hvaflað að Þórði. Sjúkrasaga
Þórðar á Vífilsstöðum var ekki
eingöngu þrauta- og þjáningar-
spor heldur jafnframt mesta
heilla- og hamingjuganga í lífinu,
þar kynntist hann eftirlifandi
konu sinni, Jósefínu Friðriksdótt-
ur, sem staðið hefir við hlið hans í
blíðu og stríðu, hljóðlát og traust.
Þórður var mikill áhugamaður um
félagsmál almennt, enda fór það
svo að honum voru falin ýmis
trúnaðarstörf fyrir sveitunga
sína. Svo nokkuð sé nefnt þá var
hann fyrst kjörinn í hreppsnefnd
1966 og oddviti hreppsnefndar frá
1970, auk þess hefir Þórður innt af
hendi ýmis önnur störf í annarra
þágu sem hér verða ekki talin. Þau
ár sem Þórður var búinn að sitja í
hreppsnefnd og taka virkan þátt í
sveitarstjórnarmálum hafa jafn-
framt verið mestu athafna- og
framfaraár í okkar byggðarlagi.
Ekki kemur mér til hugar að
þakka þær framfarir neinum ein-
um, slíkt væri að gjöra þeim rangt
til sem með Þórði hafa starfað í
gegnum árin, hitt veit ég að þar
sem Þórður gekk fram með sínum
alkunna áhuga þar var jafnan
árangurs að vænta. Þórður var
geðríkur ákafamaður og nokkuð
einráður að því er sumum fannst,
en slíkt er oft einkenni þeirra
manna sem barist hafa mest og
best fyrir hag lands og þjóðar.
Og nú í dag, miðvikudaginn 27.
júní, verður Þórður til moldar
borinn og lagður til hinstu hvílu
við hlið foreldra sinna í grafreitn-
um á Þingeyri. Ég veit að margir
munu fylgja honum síðasta spöl-
inn að þeim krossgötum sem allra
bíða. Ég persónulega sakna Þórð-
ar og svo mun um fjölmarga aðra.
Það er sárt að sjá á bak honum
mitt í önn vaxandi verkefna á
tímum umbóta og ovissu. íslensk
bændastétt er fámenn og vafalítið
fækkandi, hún á því í vök að
verjast og seinbætt er það tjón
þegar forvígis- og framámenn
hennar falla í valinn á miðri
starfsævi, ekki hvað síst fyrir lítil
byggðarlög. Við verðum að vona
að maður komi í manns stað og
reynist þess megnugur að halda
merkinu á loft og bera það fram
til sigurs á komandi tímum. Um
leið og ég lýk þessum fátæklegu
minningarorðum vil ég þakka
Þórði fyrir góð kynni gegnum
árin, fyrir mannslund hans og
hjálpsemi. Ég bið það alheimsafl
sem öllu ræður og allt byggist á að
vernda og styðja konuna hans,
hana ínu, svo og börnin þeirra,
Maju, Rönku og Nonna litla. Megi
minningin um hann verða þeim
styrkur og huggun í nútíð og
framtíð. Sveitungi.
Guðmundur Helgason
— Minningarorð
Genginn er góður drengur. Guð-
mundur Helgason lést 26. maí
síðast liðinn og var jarðsettur að
Lágafelli 2. júní. Hann hafði alla
tíð verið heilsuhraustur þar til
síðustu mánuðina að hann átti við
þungbæran sjúkdóm að stríða, og
var sá tími erfiður honum og
fjölskyldu hans.
Guðmundur fæddist á ísafirði
14. nóv. 1924 sonur hjónanna
Jónínu Pétursdóttur og Helga
Benediktssonar skipstjóra. Sex
ára gamall fór hann í fóstur til
Þórðveigar Jósefsdóttur og Davíðs
Þorgrímssonar á Ytri-Kárastöð-
um á Vatnsnesi. Tengdist hann
fósturforeldrum sínum sterkum
böndum.
Hinn 28. apríl 1946 kvæntist
hann Ingibjörgu Margréti Krist-
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug við andlát og
jarðarför
BJÖRNS H. BJÖRNSSONAR
Furugeröi 1,
Ólína Björnsdóttir
og aörir aöstandendur
Móöir okkar
KATRÍN GUÐMUNDSDÓTTIR,
Laufásvegi 3, Stykkíshólmi,
veröur jarösungin frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 30. júní kl.
14.00.
Börnin.
Álftamýrl 1-Simar 8-1250 Ixknar 8-1251 verzlun
Vegna jarðarfarar Tryggva ívarssonar er lokað
föstudaginn 29. júní.
jánsdóttur frá Brúsastöðum í
Vatnsdal. Ung að árum kynntust
þau þegar bæði voru við nám í
Reykjaskóla í Hrútafirði, og lágu
leiðir þeirra saman eftir það. Þau
hófu búskap á Ytri-Kárastöðum
og bjuggu þar í sautján ár. Þá
fluttust þau til Akraness og dvöld-
ust þar í nokkur ár. Fyrir tíu árum
lá leiðin í Mosfellssveit. Festu þau
kaup á húsi að Hamarsteigi 3 og
bjuggu þar síðan. Gerðist Guð-
mundur starfsmaður ullarverk-
smiðjunnar á Álafossi.
Börn þeirra hjóna urðu sjö:
Margrét Sigríður, Kristján, Davið
Þór, Bjarni Rúnar, Ásgeir Pétur,
Örlygur Atli og Nína Hrönn.
Fimm elstu börnin hafa stofnað
eigin heimili, en tvö þau yngstu,
sextán og ellefu ára, eru enn í
heimahúsum. Hafa þau mikið
misst.
Börnum sínum var Guðmundur
einstakur faðir, mildur og ástrík-
ur. Og litlu barnabörnin sem
komu oft í heimsókn til ömmu og
afa nutu sömu ástúðar, enda fljót
að hiaupa í fangið á afa.
Það gefur að skilja að oft hefur
róðurinn verið þungur að sjá svo
stórum hópi farborða. Lá Ingi-
björg heldur ekki á liði sínu, en
vann mikið utan heimilis eftir að
þau fluttust úr sveitinni.
Á heimili þeirra hjóna var gott
að koma. Þar var gestrisni mikil,
glatt og alúðlegt viðmót. Var
Guðmundur einkar viðræðugóður
og naut þess að ræða við gesti
sína. Hann var mjög vel greindur
og minnugur, ættfróður og fylgd-
ist vel með málum líðandi stund-
ar. Guðmundur var jafnlyndur,
hlýr og glaðlegur í framkomu,
mikill drengskaparmaður með
ríka réttlætiskennd. Hann átti
heitt og stórt hjarta. Ef til vill
fann hann stundum of mjög til „í
stormum sinnar tíðar".
Nú er vegferðinni lokið. Megi
farsæld fylgja ástvinum hans
öllum. G.K.