Morgunblaðið - 28.06.1979, Page 27

Morgunblaðið - 28.06.1979, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ1979 27 Júlíus Þórdarson: Fréttir og hugleið- ingar frá Kanarí Morgunpóstserindi Gunnars Eyþórssonar fréttamanns í morgunútvarpinu 2. maí sl., um fiskveiðivandamál Spánverja við Kanaríeyjar o.fl. olli því að þessar línur eru skrifaðar. Við vorum 4 klst. á leiðinni í rútubifreið frá Loftleiðahótelinu í Reykjavík til Keflavíkurflugvallar föstudaginn þann 9. marz s.l. Snjóskaflar voru víða á veginum en rútustjórar óku varlega framhjá þeim með því að fara út af veginum. Við Vogastapa var 4 m hár skafl, sem verið var að ryðja af veginum, en hann tafði okkur mest. Ferðaáætlunin var bókuð til Gran-Canari án viðkomu á leið- inni. — Við flugum þangað á 5 klst., en eyjarnar eru um 3840 km beint í suður frá íslandi, reyndar á sama lengdarbaug, og var því óþarft að breyta klukkunni. — En breytingin varð mikil á veðurfar- inu og gróðrinum. — En það var ekki meiningin að fjalla um það mál, enda þekkja svo margir Islendingar þá „Paradísarsælu" bæði af auglýsingum og eigin raun. — Ég hélt lengi vel að eyjarnar hefðu verið skírðar eftir fuglinum, en nú veit ég að það er eftir hundinum. — Ekki var þó mikið um þá þarna, en við sáum þó einn með hringaða rófu, og eftir því af íslenskum ættum. Columbus hefir líkelga tekið með sér hvolpa frá íslandi. þegar hann kom hér við á landafundaferðum sínum til þess að fræðast af farmönnum okkar. Þeir hafa svo stungið hann af á eyjunum. Hallgrímur Oddsson, sem var áður útvegsmaður í Reykjavík, hefir dvalið á Gran-Canari sl. 9 ár. Hann ekur fólksflutningabifreið, og leiðbeinir og fræðir íslenska ferðamenn, sem sækja á hans fund. — Ég fékk hann til þess að aka okkur til hafnarinnar í höfuð- borginni Las Palmas, sem er um 50 km frá Play del Inglés, þar sem við bjuggum. í borginni búa 350 þús. manns og höfnin er sú mesta á Spáni hvað vöruflutninga og önnur umsvif varðar, sumir segja að hún sé næststærsta á jörðinni. Vegurinn liggur á ströndinni, og við ókum framhjá víðáttumiklum gróðurhúsum undir plasthimni. Það eru 3 ávaxtauppskerur á ári og fjölbreytnin er mikil á þessum eyjum „hins eilífa vors“. Stór verksmiðja, sem breytir sjó í ferskvatn, var þarna á ströndinni, líklega í þágu ræktunarinnar og til drykkjar, því vatn er ekki drukkið úr krönum á þessum slóðum. Þegar við komum í hafnarhverf- ið lá stór floti flutningaskipa á ytri höfninni. Hallgrímur sagði að meirihluti þeirra væri rússneskur. Þau sigldu frá Rússlandi með allar nauðsynjar til fiskiskipa- flota Rússa og flyttu svo aftur heim fullunnar fiskafurðir, þar með frystan fisk úr hinum stóru og fullkomnu frystihúsum, sem Rússar eiga á eynni. Fiskiskipa- floti þeirra er stór og eru þar í „ryksugutogarar", nótaskip, sem fiska túnfisk, makríl o.fl. — Rúss- neskar flugvélar sjá um flutning skipshafna frá og þegar skipti fara fram. — í höfninni voru einnig fiskiskip frá Japan og Kóreu, og eitt móðurskip frá Bandaríkjunum, það var með 6 12—15 smálesta fiskibáta í uglum (davíðum) á þilfarinu. — í olíu- höfninni lágu tvö risa-olíu- flutningaskip. — Við litum á sportsiglinga-bátahöfnina og her- skipahöfnina, þar sem nokkur herskip sænsku krúnunnar lágu aðgerðarlaus. Stórt skemmti- ferðaskip lá einnig í sínum bás. — Kanarískir (svo vilja þeir heita) sjómenn (trillukarlar) voru við ádratt í vík rétt utan við höfnina, drógu frá landi og virtust fiska lítið. — Það sem þeir öfluðu, seldu þeir úr vögnum, en það var bæði lítill og ljótur fiskur. Þegar við ókum í gegnum þessi hafnarhverfi, mátti líta margar manntegundir. Sjómennirnir sátu á kössum og netahrúgum drukku bjór og sleiktu sólskinið, en land- verkamenn voru önnum kafnir við að hlaða og afferma skipin. — Sumir voru heldur skuggalegir ásýndum og vopnuð herlögregla á hverju horni gaf til kynna, að þarna væri allra veðra von, og að menn væru ekki alltaf á sama máli. Mér var líka orðið um og Fjölbrautaskólanum á Akranesi var slitið 24. maí sl. Ólafur Ásgeirsson skólameistari flutti yfir- litsræðu um starfsemi skólans. Nemendur í vetur voru 286 á 6 námssviðum. Auk þess annaðist skólinn kennslu í 8. og, 9. bekk grunnskóla. f vetur kenndu við skólann 43 kennarar, þar af voru 36 fastir kennarar. Að þessu sinni braut- skráðust frá skólanum nemendur á fjórum náms- sviðum. Fjórir af heilbrigð- issviði, 23 af tæknisviði, einnig útskrifuðust nem- endur af fiskvinnslubraut og uppeldisbraut. Af við- skiptasviði luku 8 nemend- ur verslunarprófi. Auk klukkan orðin 6, og sagði Hallgrími að nú væri komið nóg, og skyldi halda upp úr höfninni. — Fyrir ofan hana var nótastöð, sem var mörg hundruð metrar á lengd, mestmegnis undir berum- himni. Hallgrímur tjáði okkur að næturnar, sem hún framleiddi, væru mörgum sinnum stærri en stærstu loðnunætur á íslandi, og þá líklega mun afkastameiri. Ég fór að bera saman fiskiveiði- aðstöðu eyjaskeggja og okkar hér á íslandi, og fannst mér þá ekki óeðlilegt að þeir hugsuðu til sjálf- stæðishreyfingar. Generalisimó Frankó hefir víst verið mikill „businessmaður". Mér var sagt að hann hefði boðið Bandaríkjamönnum herstöðvar- aðstöðu á Spáni, vegna þess að hann vildi þá fremur en Rússa, og þeir mundu borga betur. — En svo virtist sem þeir síðarnefndu hafi einnig fengið góðar og alhliða fyrirgreiðslur á Gran-Canari, eflaust fyrir góðan gjaldeyri. Eftir þennan hafnartúr og hug- leiðingar um lífríki Norður-At- lantshafsins, var ekki vanþörf á að fá sér bjór á baðströndinni í borginni. „Playa Las Alcaravaneras". Hallgrímur lét sér nægja Coca-Cóla, reyndar orðinn hagvanur á hafnarsvæðinu. Ég held að óhætt sé að fullyrða, að þrátt fyrir náttúrufegurð, síglaða sól og ódýrt öl, verði flestallir fegnastir því að koma aftur til varins lands og veiði- svæða í hressandi golu norðursins. þessara nemenda luku 13 nemendur prófum frá skól- anum í desember. Sigríður K. Valdimars- dóttir, nemandi í 9. bekk, hlaut viðurkenningu úr verðlaunasjóði Ingunnar Sveinsdóttur fyrir ástund- un og góðar framfarir. Halldór Hallgrímsson hlaut viðurkenningu Tré- smíðafélags Akraness fyrir góðan námsárangur og Jón Hreiðarsson viðurkenningu frá Sveinafélagi málmiðn- aðarmanna. Viðurkenningu Lionsklúbbs Akraness fyrir félagsmálastörf hlaut Elín Árnadóttir fráfarandi for- maður nemendafélags skól- ans. Aðrir embættismenn nemenda hlutu bókaverð- laun. Fjölbrautarskólan- um á Akranesi slitið Vilhjálmur G. Skúlason ] skritar um lyf jC^lÍj Lyfjahandbókin — Vítamín VII Beztu vítamíngjafarnir eru lýsi, en það inniheldur mjög misjafnlega mikið magn af D-vítamíni. Sem dæmi j>má nefna, að lýsi úr túnfiski inni- heldur að meðaltali 10,000—40,000 a.e./g, lúðulýsi inniheldur 1200 a.e./g og þorska- lýsi inniheldur 100 a.e./g. Auk þess getur D-vítamín myndast með því að geisla húðina útfjólu- bláu ljósi (sólarljósi). Það hefur verið áætlað, að 1 cm! af hvítri húð myndi 18 a.e., ef hún er geisluð sólarljósi í 3 klukku- stundir. Dökk (sólbrún) húð myndar minna magn. D-vítamín verkar á þann hátt að auka nýtingu kalsíums og fosfats, sem berst með fæðunni. Einnig eykur það frásog kalsíums og fosfórs frá beinum og eykur útskilnað kalsíums um nýru. Skortur á D-vítamíni getur valdið krömpum vegna of lítils kalsíummagns í blóði. Bein afkalkast og verða brothætt. Hjá börnum myndast beinkröm. Hún lýsir sér sem minnkun á kölkun beina, sem verða mjúk og afmynduð og liðir þykkna. Börn verða kraftlítil og þroski þeirra verður hægari. Þörf fyrir D-víta- mín fer mjög eftir sólfari og er um 400—800 a.e. á dag yfir vetrarmánuðina. Minnsta dags- þörf fyrir þungaðar konur, brjóstmæður og börn er 400 a.e. Við meðferð á beinkröm hjá börnum og afkölkun beina hjá fullorðnum eru gefnar 2000—10,000 a.e. á dag. Sum lyf, einkum lyf gegn niðurfallssýki, sem tekin eru í langan tíma, auka þörf fyrir D-vítamín. Vert er að hafa í huga, að eiturverkanir get komið í ljós af stórum skömmtum af D-vita- míni og af öllum vítamínum er það hættulegast að þessu leyti. Leiða þeir til hækkunar á magni kalsíums og fosfats i blóði og þvagi. Kalsíum getur safnazt saman í mjúkum vefjum (hjarta, æðum, lungum, nýrum) og leitt til varnalegra nýrnaskemmda og háþrýstings. Einkenni yfir- skömmtunar eru þreyta, höfuð- verkur, lystarleysi, velgja, upp- sala, niðurgangur og þorsti, sem afleiðing af auknu þvagláti. D-vítamín er mjög óstöðugt efni og skal því geyma D-vítamínlyf varin ljósi og lofti og á svölum stað. E-vítamín, tókóferól Ekki fylgir bráður sjúkdómur í kjölfar skorts á öllum vítamín- um. Arið 1922 gáfu tveir vísinda- menn við Kaliforníuháskóla til kynna, að vítamínskortur, orsak- aði ófrjóemi í dýrum. Þeim tókst ekki að vinna þetta vítamín, sem þeir kölluðu E-vítamín, fyrr en árið 1936. Því var þá gefið nafnið tókóferól, sem er leitt af grísku orðunum tokos=barn og sögninni pherein=bera eða vítamín, sem er nauðsynlegt til þess að ala barn. Ekki er vitað með vissu, hvort eða hve mikið af E-víta- míni menn þurfa þótt fullvíst sé, að það er nauðsynlegt til þess að rottur geti géngið með og alið fullþroska unga. E-vítamín er fituleysanlegt og finnst í mörgum fæðutegupdum, einkum hveitikímolíu og öðrum jurtaolíum, eggjarauðu, smjöri og salati. Talið er, að tókóferól myndist í blöðum jurta, en safn- ist saman í fræjunum. Nokkrar mismunandi tegundir eru til af tókóferóli, en sú tegund, sem hefur mesta líffræðilega verkun er kölluð alfatókííeról og er hún þess vegna notuð til lyfjagerðar. Nákvæmt hlutverk tókóferóls í líkama dýra er ekki þekkt. Hjá rottum lýsir skortur tókóferóls sér sem ófrjósemi. Hjá öðrum dýrategundum koma í ljós sér- kennilegar skemmdir í sléttum vöðva, þverrákóttum vöðva og hjartavöðva. Auk þess koma í ljós skemmdir á slagæðum og minnkun á blóðflæði háræða, sem oft hefur í för með sér frumubreytingar í mænu. Frum- orsök allra þessara breytinga er talin vera í frumuskemmd. Hjá mönnum hefur ekki tekizt með vissu að framkalla skort á tókóferóli. En meðal annars á grundvelli framangreindra tilrauna í lægri dýrum hefur tókóferól verið ráðlagt og notað gegn hinum margvíslegustu truflunum á starfsemi kynfæra (fósturlát, ófrjósemi), gegn vöðvarýrnun, margs konar band- vefssjúkdómum (gigt, bakverk) og hjarta- og æðasjúkdómum með mjög vafasömum árangri. Þó er talið hugsanlegt, að tókóferól sé gagnlegt gegn blóð- sjúkdómi hjá fyrirburðum, sem settur hefur verið í samband við E-vítamínskort. Slík börn geta einnig verið með húðbreytingar og bjúg af völdum vítamín- skortsins. Einnig er talið, að stórir skammtar af E-vítamíni geti aukið þol sundmanna á lengri vegalendum. Hafa slíkar tilraunir verið gerðar á áströlskum sundmönnum. Líkur eru taldar á, að í líkamanum kunni tókóferól að hafa þýðingu sem andoxunarefni til þess að koma í veg fyrir þránun einkum fyrir fjöl- ómettaðar fitusýrur ''g einnig til þess að vernda amínósýrur, sem sem innihalda brennistein. Einnig verndar tókóferól a-víta- mín gegn því að breytast fyrir áhrif oxunar. Lyfjaform, sem innihalda tókóferól, skal geyma varin áhrifum ljóss og lofts og á svölum stað. Venjuiegur dag- skammtur af E-vítamíni er talin vera 30 a.e., en a.e. samsvarar 1 mg af alfa-tókóferól asetati, en gegn ýmsum sjúkdómseinkenn- um hafa verið notaðir mjög breytilegir og miklu stærri skammtar. Vitamínlyf, sem inni- heldur alfa-tókóferól, er Tabl- ettae dextocoferyli 0,1 g (dextókóferyltöflur 0,1 g). K-vítamín, fytómenadíón, menadíón Á árunum 1929—1931 komust Henrik Dam og samverkamenn hans í Danmörku að raun um, að blæðingar hjá kjúklingum, sem aldir voru á fitusnauðu fæði, stöfuðu af óþekktu vítamíni, sem þeir gáfu nafnið K-vítamín (k stendur fyrir koagulation = storknun). Þeir komust einnig að raun um, að efni í blóði, sem heitir prótrombin og nauðsyn- legt er fyrir blóðstorknun, var til staðar í minna en eðlilegu magni og að sú væri orsök blæðing- anna. Árið 1939 einangruðu Dam og Karrer efni úr alfa-alfa, sem hafði K-vítamínverkun og þeir gáfu nafnið fytómenadíón. Dam hlaut Nóbelsverðlaun árið 1943 fyrir rannsóknir sínar. (framh.).

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.