Morgunblaðið - 28.06.1979, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1979 '
Mætir Ásgeir
Feyenoord
ígömlu ÍBV
peysunni?
Ásgeir Sigurvinsson heíur reynt að fá leyfi hjá félagi sinu Standard
Liege, til þess að leika með ÍBV, þegar ÍBV mætir Feyenoord í
vináttuleik í Vestmannaeyjum í næsta mánuði.
_ Verði af þessu er víst, að Eyjamenn munu fagna því að fá að sjá
Ásgeir leika með sínu gamla félagi á ný, þó aðeins sé um einn leik að
ræða. Ásgeir er einn besti knattspyrnumaður sem ísland hefur átt og
hefur aldrei verið betri en nú.
Real og Valencia
leika til úrslita
REAL Madrid og Valencia tryggðu sér sæti í úrslitaleik spænsku
bikarkeppninnar í knattspyrnu, sem leikinn verður á laugardaginn.
Real Madrid sigraði Sevilla 2—1, en fyrri leik liðanna lauk með
markalausu jafntefli. Smáliðið Valladolid vann Valencia óvænt f siðari
leik liðanna, 2—1, en Valencia vann fyrri leikinn 2—0 og komst því í
úrslitaleikinn á samanlögðu markatölunni 3—2.
Real Madrid er þegar spænskur deildarmeistari og leikur Valencia
því í Evrópukeppni bikarhafa hvort sem liðið sigrar Real eða ekki í
úrslitaleiknum.
• Ásgeir Sigurvinsson, einn af
snjallari knattspyrnumönnum
landsins.
• Og hvað er að sjá. Atli Aðalsteinsson hellir úr golfpokanum úti á miðri braut. Ljósm. Sigurg.
• bað er mikið fjör hjá þeim í golfskálanum í Eyjum á Jónsmessunótt. Og mikið var sungið við undirspil
Gísla vélstjóra á Kópi sem kann enn á vélina, því að hann leikur einnig golf og á gítar. Ljósm. Sigurg.
tmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Skagamenn fly tja
enn heimaleikina
LEIKUR ÍA og ÍBV, sem fara átti fram á Akranesi á laugardaginn,
hefur verið fluttur til Eyja. Þetta er í annað skiptið í sumar, sem
Skagamenn víxla heimaleikjum og er ástæðan nú hin sama og síðast,
þegar heimaleikur liðsins gegn Val var fluttur í Laugardalinn.
Grasvöllurinn á Akranesi er engan veginn tilbúinn í slaginn og
malarvöllurinn hefur aldrei verið í fremstu röð.
Það er merkilegt, að meðan Skagamenn hafa ekki einn einasta
grasvöll, eru Eyjamenn á sama tíma að velta því fyrir sér á hvorum
grasvellinum þeir eigi að mæta ÍA. í Eyjum eru nefnilega tveir góðir
grasvellir! Hafa fyndnir menn verið að stinga upp á því að
undanförnu, að Skagamenn ættu að leigja einn völlinn fyrir
heimaleiki sína. Varla græddu þeir á þeim viðskiptum þegar
ferðakostnaðurinn bættist við.
2. deild f kvöld:
Topplióin i ströngu
TVEIR leikir fara í kvöld fram í 2. deild íslandsmótsins í
knattspyrnu. í þeim báðum eiga í hlut efstu lið deildarinnar.
Breiðablik sækir Austra heim á Eskifjörð og FH fær Þrótt frá
Norðfirði f Kaplakrika. Báðir leikirnir hefjast klukkan 20.00.
Ekki þarf að f jölyrða um mikilvægi leikjanna, en allt getur gerst og
er þess skemmst að minnast, að Áustri veitti FH harða keppni í
Kaplakrika um sfðustu helgi og Þróttur kom nýlega suður og gerði
sér þá lítið fyrir og hirti stig af UBK, besta liðinu í deildinni.
Golfleikur um
miðja nótt
ÞAÐ ER ekki víða í veröldinni sem golf er leikið um miðja nótt. Þetta
er þó siðvenja hjá flestum íslenskum golfklúbbum á Jónsmessunótt.
En þá er venjulega slakað á öllum reglum og jafnan brugðið á Ieik. Og
sjálfsagt er það eina fþróttamótið þar sem aðeins er brugðið út af
regluseminni. Hjá Goifklúbbi Vestmannaeyia mættu 33 keppendur til
leiks og var keppnin fjörug og spennandi. I lokin voru jafnir þjálfari
ÍBV og markvörður ásamt gömlum knattspyrnusnillingi hér á árum
áður, Grími á Felli, cn í bráðabana sigraði Ársæll markvörður. Lagði
hann þjálfara sinn á annarri holu, þeir voru á þeirri fyrstu. Enginn
veit því enn hvort hann heldur sæti sínu í liði IBV. — þr.
• Þjálfari ÍBV í knattspyrnu, Viktor Helgason, og sigurvcgarinn í
keppninni, Ársæll Sveinsson markvörður ÍBV. Þeir létu sér ekki duga
að sigra Hauka fyrr um daginn 4—0 heldur komu þeir galvaskir í
golfkeppnina og sigruðu. Ársæll þó endanlega. Ljósm. Sigurgeir.