Tíminn - 24.06.1965, Side 12
FIMMTUDAGUR 24. júní 19G5
TÍMINN
HÚSGÖGN
GETUAA TEKIÐ TIL UMBOÐSSÖLU VEL MEÐ FARNA:
Svefnsófa - Svefnbekki
Séfmett og Klæðaskápa
B deild SKEIFUNNAR kjörgardi
HMSKIP H.(.
hafnarhusinu reykjavik
SIMNEFNI: HAFSKIP SIMI 21160
ÆNDUR
gott vothey og
notið maurasýru.
Fæst í kaupfélögunum
um allt land.
Á NÆSTUNNI MUNU
SKIP VOR LESTA TIL
ÍSLANDS SEM HÉR
SEGIR:
HAMBORG:
„RANGÁ" 15/7
„SELÁ" 24/7
ANTWERPEN:
„RANGÁ" 12/7
„SELÁ" 26/7
ROTTERDAM:
„RANGÁ" 13/7
„SELÁ" 27/7
HULL:
„RANGÁ" 19/7
„SELÁ" 29/7
KAUPMANNAHÖFN:
„LANGÁ" 27/7
GAUTABORG:
„LANGÁ" 28/7
GDYNIA:
„LANGÁ" 23/7
i ögf r.skrif stofan
Iðnaðarbankahúsinu
IV. hæð.
Tómas Árnason og
■K.
Vilhjálmur Árnason.
SMJOR
og
OST
* BILLINN
Rent an Ioeoar
I 18833
Islenzk frímerlct,
fyrstadagsumslög.
Erlend frlmerfcL
Innstungubæfcur.
Verðlistar öm fl
FRÍMERKJASALAN
LÆK3ARSOTU 6a
Á VÍÐAVANGI
Framhald af 3. síðu
lætið enn við lýði, og hæpið að
guma af því öllu lenguir, að
allir, sem hæfileika hafi, hafi
jafna mögu leika til framhalds-
náms.“
NÝJA LÍNAN
Framhald af 3. síðu
inger svæðisstjóri fyrir Evrópu
hjá verksmiðjunum í Englandi.
Shiner sagði við það tækifæri
að MF legði ekki aðeins á-
herzlu á að fullk'omna dráttar-
vélarnar fyrir bændur um víða
veröld, heldur reyndi líka að
stuðla að hinni hröðu uppbygg
ingu sem nú á sér hvarvetna
stað, með því ,að framleiða
hjóladráttan'élar og hjálpar-
tæki fyrir alls konar iðnað og
framkvæmdír. Þess má geta hér
að íslendingar hafa síður en
svo farið varhluta af þessari
eftirsóttu framleiðslu Massey-
Ferguson, því megnið af hinum
sambyggðu gulu ámokstursvél
um og skurðgröfum eru frá.
MF, og hafa létt mörgum mann
inum erfiðið frá því .þær byrj
uðu að flytjast til landsins.
Hin nýja gerð af MF er fram
leidd í 6 gerðum, en umboðið
mun leggja áherzlu á innflutn
ing fjögurra þeirra, sem
reynslan hefur sýnt að hena
vel hér á landi og að auki eina
sem ætla má að komið geti hér
að góðum notum.
Mesta nýjungin á Þessari
nýju gerð, er án efa Multi-Lift
vökvakerfið, eða þungatilfærslu
kerfi, og eykur það dráttar-
hæfni vélanna um 100%. Hafa
verksmiðjurnar með þessu
kerfi enn brotið blað í dráttar
vélaframleiðslu heimsins, en
fyrir um tveim árum kom
fram hjá þeím nýjung sem olli
byltingu í gerð dráttarvéla —
Multi-Power vökvaskiptingin
sem gerir mögulegt að tví-
skipta öllum gírum dráttarvélar
innar á ferð. Hið nýja kerfi
hefur aukið dráttarhæfni Mass
ey-Ferguson vélanna stórkost
lega, jafnframt því sem þessi
aukna dráttarhæfni kemur ekki
fram í þunga sjálfrar vélarinn
ar, og er hún því jafn létt og
lipur við alla almenna vinnu
eftir sem áður. Útlit nýju vél
anna er allt annað en þeirra
■ eldri, einkar nýtízlculegt og
smekklegt. Fullkomið upplýst
mælaborð, með eldsneytismæli
og sígarettukveikjara auk
breiðra fótstifa báðum megin
er eitt það fyrsta sem menn
reka augun í Þegar þeir fara
að skoða nýju vélarnar náið.
Öryggisræsir eru á öllum nýju
vélunum, en það þýðir að þær
fara alls ékki í gang ef þær
eru í gír, sem er geysilegt ör-
yggi í alla staði, ekki hvað
sízt gagnvart börnum og þeim
sem ræsa vélarnar með því að
standa við hlið þeirra. Mis-
munadrifslás er á öllum MF vél
um sem hingað eru fluttar, eink
ar hentugt í lausum og hálum
jarðvegi. Hálf sjálfvirkan út-
búnað er hægt að fá til þess að
breyta sporvídd afturhjóla á
2—3 min. Núnar eru framljós
in orðin innbyggð, og því ekki
eins hætt við hnjaski. Aflúr-
takíð er að sjálfsögðu tveggja
hraða nú sem fyrr, og vinnsla
aflúrtaksöxlanna algjörlega ó-
háð gírskiptingu.
Massey-Ferguson dráttarvél-
arnar sem komnar eru til lands
ins eru 32, 46, 59 og 67 hest
afla, allar búnar hinum traust
ustú Perkins dieselvélum og
meira að segja er nú hægt að
fá vökvastýri á MF. Hér hefur
aðeins verið drepið á nokkrar
helztu nýjungar Massey Fergu
son vélanna nýju, en Dráttar
vélar h. f. í Reykjavík veita
allar nánari og fyllri upplýsing
ar um vélamar.
TIL ALÞINGISMANNA
U’ramnaid ai a siðu
en ljúka honum að Gullfossi árið
1970. Þessi vegalengd mun vera
röskir 8 km. sem fyrr segir. Eftir
því á vegarspotti þessi að tosast
áfram um einn km. á ári. 1 km. á
ári til ársins 1970. Má furðulegt
teljast, að einmitt Árnesingum
skuli vera boðið upp á slíkan
seinagang, þar sem bóndi úr því
héraði varð fyrstur til þess að
flytja jarðýtu til landsins og
leggja veg með henni fyrir aldar-
fjórðungi síðan. Og þó við höfum
nú á að skipa fullkomnustu vél-
tækni nútímans til slíkra verka,
þá á að bjóða okkur aðeins hálf-
an hraða í vegagerð á við hakann
og rekuna.
Ég leyfi mér að vona það, að þeg-
ar núverandi alþingismenn hafa
kynnt sér afrek fyrirrennara
sinna, ákveði þeir og framkvæmi
nú þegár, ekki einungis sama
hraða í vegalagningu og fyrri
starfsmenn, heldur auki þeir vega-
lagningarhraðann svo sem tækni
tímans gjörir kröfu til nú á hinum
síðari árum. Mér finnst líka að
kjósendum Ingólfs, og jafnvel
Ágústs, sé ekki bjóðandi annað en
fullkomin og fljótvirk vegalagn-
ing.
í harðri keppni fyrr á árum,
reyndu menn líka oft að komast
með hælana, þar sem fyrirrennar-
inn hafði haft tærnar.
Með beztu kveðju til alþingis-
manna Suðurlandskjördæmis.
24. júní 1965.
Ólafur Ketilsson.
SUMARBÚÐIR
Framhald af 3. síðu
menn og afhentu þeir gjafir til
skálans. Hátíðinni lauk með
því að Gylfi Svavarsson flutti
bæn.
Öllum viðstöddum var boðið
til kaffidrykkju, og munu það
hafa verið um 200 manns.
TÓNLISTARHÁTÍÐ
Framhald af i. síðu
hér á landi, verður nú reynt að
samstilla komur erlendra .skemmti
skipa slíkum árlegum tónlistar-
hátíðum og tryggja þannig sam
vinnu aðila þeirra, sem hagsmuna
eiga að gæta í þeim efnum. Mál
inu hefur verið vel tekið af hin
um erlendu skipafélögum, og hið
nýstofnaða Ferðamálaráð íslands
er á einu máli um að styðja hug
myndina. Er svo ráð fyrir gert
að hátíðir þessar hefjist ætíð 17.
júní, en haldi svo áfram fram á
sumarið svo lengi sem fært
þykir.
ERLENT YFIRLIT
Framhald af 3. síðu.
að Verkamannaflokkurinn
myndi fá 70—80 þingsæta
meirihluta, ef kosið væri nú.
Aðrar skoðanakannanir hafa
spáð íhaldsflokknum álíka sigri.
Hið rétta er sennilega það. að
úrslit yrðu mjög tvísýn, . ef
kosið væri í Bretlandi nú Ve'
getur farið' svo, að það gen
ráðið baggamuninn, hvernig
Wilson verður dæmdur af fram
göngu sinni á samveldisráðstefn
unni. Þ.Þ.