Morgunblaðið - 01.08.1979, Side 5

Morgunblaðið - 01.08.1979, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1979 5 Norræna prestamótið: Messa og fyrirlest- ur í SkáUiolti í dag DÓMKIRKJAN var þétt- setin í gærmorgun þegar sett var þar norræn Menningar- viðburður í Stúdenta- kjallaranuni NORSKI íslandsvinur- inn Knut Odegaard og íslensku rithöfundarnir og ljóðskáldin Thor Vilhjálmsson, Einar Bragi og Birgir Svan munu á fimmtudags- kvöldið lesa upp úr verkum sínum í Stúd- entakjallaranum og hefst upplesturinn klukkan 21. Odegaard er mörgum Is- lendingum að góðu kunnur, en hann er eitt af fremstu núlif- andi ljóðskáldum Norðmanna. Hann hefur löngum sýnt ís- landi og íslendingum áhuga, og talar hann íslensku. Hefur hann þýtt íslensk ljóð yfir á norsku, meðal annars eftir Einar Braga, og nú vinnur hann að þýðingu skáldsögunn- ar Fljótt, fljótt sagði fuglinn eftir Thor Vilhjálmsson. 0de- gaard hefur einnig þýtt ljóð úr fleiri tungumálum, meðal ann- ars hefur hann snúið verkum Ungverjans Jula Guillia Iljes, en hann kom til álita við síðustu veitingu Nóbelsverð- launa í bókmenntum. Þá hefur Knut 0degaard lengi verið í fremstu röð þeirra manna í Noregi er láta sig menning- armál varða. prestastefna með guðs- þjónustu. Sr. ólafur Skúlason dómprófastur og formaður Prestafélags ís- lands setti prestastefnuna og í guðsþjónustunni pré- dikaði dr. Theol. Chr. Thodberg frá Danmörku, en sr. Hjalti Guðmundsson og sr. Þórir Stephensen þjónuðu fyrir altari. Prófessor Martin Lönnebo frá Svíþjóð flutti síðan eftir hádeg- Sigurður syng- ur í „Opnu húsiu NÆSTKOMANDI FIMMTU- DAGSKVÖLD SYNGUR Sigurð- ur Björnsson í „Opnu húsi“ í Norræna húsinu. Á efnisskrá eru íslensk lög (m.a. lög eftir Árna Thorsteinsson og Emil Thoroddsen) auk laga eftir Franz Schubert og Robert Schu- mann. Undirleikari er Agnes Löve. Eftir söngdagskrána verður sýnd kvikmyndin „Þrjú andlit íslands" eftir Magnús Magnússon. Myndin er með norskum texta. Aðgangur að „Opnu húsi" er ókeypis og öllum heimill. Sveinn Einarsson, þjóðleikhússtjóri: Athugasemd við athugasemd Hr. ritstjóri. I blaði yðar í gær er birt athugasemd frá formanni Félags íslenskra leikara við viðtal sem blaðamaður Morgunblaðsins átti við undirritaðan nýlega. Þarna gætir misskilnings eins og því miður oft áður og er því ástæða til að taka fram eftirfarandi: Mývetningar f unda um Kröflu í kvöld MývatnnHveil 31. júlí. SVEITARSTJÓRN Skútustaða- hrepps gengst fyrir almennum fundi í Skjólbrekku miðvikudaginn 1. ágúst klukkan 20.30. Rædd verða málefni Kröfluvirkj- unar í framhaldi af ákvörðun ríkis- stjórnarinnar um að hætta við bor- anir á tveimur holum við Kröflu svo sem ákveðið hafði verið. Sérstaklega eru boðnir til fundarins þingmenn kjördæmisins og fulltrúar Orku- stofnunar og iðnaðarráðuneytis. Einnig mæta á fundinum Kristján Jónsson rafmagnsveitustjóri og Sig- hvatur Björgvinsson alþingismaður. — KrÍHtján. Þar sem talað er um byrjenda- samninga, er ekki átt við B-samn- inga, eins og formaðurinn virðist halda. B-samningar hafa tíðkast í Þjóðleikhúsinu í einu eða öðru formi frá því það tók til starfa og á þeim samningi hafa alla tíð verið leikarar með ólíka reynslu að baki — örfárra ára leik eða áratuga. Með byrjendasamningum er átt við samninga fyrir þá, sem nýsloppnir eru úr leiklistarskóla, en skortir leikreynslu. Stjórn leikhússins hefur, eftir að nemendur fóru að brautskrást úr Leiklistarskóla Islands, reynt tvennt: A) Að fá ríkisvaldið til að samþykkja fasta nemendasamn- inga til eins árs, einn eða fleiri fyrir þessa ungu leikara. B) Áð fá stjórn Félags íslenskra leikara til að fallast á, að á fyrsta ári eða í fyrstu hlutverkum sé ungum leikurum greitt lægra kaup á C-samningi (lausráðið í einstök hlutverk) þannig að leik- húsið hafi tök á að gefa fleirum tækifæri til að afla sér leik- reynslu. Hvorugu þessara mála hefur verið sinnt. Með þökk fyrir birtinguna. 26. júlí 1979 Sveinn Einarsson Frá guðsþjónustunni í Dómkirkjunni í gær þegar norræna presta stefnan var sett. Ber eiga erfitt upp- dráttar ið erindi í Neskirkju sem hann nefndi Tilbeiðsla — leið til andlegrar endurnýjunar í nor- rænum kirkjum og fóru síðan fram umræður í hópum í Há- skólanum. í gærkvöld þágu er- lendur gestirnir síðan heimboð starfsbræðra sinna íslenzkra. Sr. Ólafur Skúlason sagði að undirbúningsstarf hefði verið mikið síðustu mánuði, en þetta er í annað sinn sem norræna prestamótið er haldið hérlendis. Var það síðast í Finnlandi og er haldið á þriggja ára fresti. í dag fara þátttakendur í ferð á Þingvöll og að Gullfossi og Geysi og hlýða messu í Skál- holti. Mótinu lýkur síðan á morgun. Stykkishólmi 26. júlí. NOKKRIR sólardagar hafa verið í Hólminum undanfarið og var þeim fagnað mjög eftir kalt sumar og enga sprettu. Voru þessir dagar notaðir vel af mörgum. Gróður tók við sér. En þó er gróður það langt á eftir að ekki er enn farið að slá í þeim sveitum hér sem ég hefi farið um eða haft spurnir af. Ekki verður séð að krækiber verði nokkur í sumar. Lyngið er viða rautt og sviðið og ef maður kemur við það þá dettur allt af því. Ekki hefi ég orðið var við einn einasta vísi að krækiberjum. Hins vegar virðist bláberjalyngið vera að spjara sig og vísar komnir og segja kunnugir menn, að ef ágústmánuður og fyrri hluti september verði frost- lausir geti menn búist við bláberjum og það jafnvel að nokkru marki. Krækiberjaspretta hefir verið léleg hér undanfarin ár og þetta ár verður engin undantekning ef ekki enn lélegra. Fréttaritari. Fallegur nýtízkulegur sumarfatnaður eykur á ánægju ferðalagsins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.