Morgunblaðið - 01.08.1979, Side 32

Morgunblaðið - 01.08.1979, Side 32
Sími á afgreiðslu: 83033 JW»r0iinblnt>it> Sími á ritstjórn og skrifstofu: 10100 JtUrgunblatiib MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1979 Knut Frydenlund: Varar N orðmenn við veiðrnn innan 200 mflna KNUT Frydenlund, utanríkisráðherra Norðmanna skoraði í gær á norska sjómenn að veiða ekki á „umdeilda" svæðinu innan 200 mflna fiskveiðilögsögu íslands, þar sem viðræður ættu eftir að fara fram um deilumál landanna. Sagði Frydenlund, að árekstrar við íslenzk varðskip gætu torveldað samkomulag við íslendinga og því varaði hann við „loðnu- stríði“, eins og það er nefnt í frétt, sem Morgunbiaðinu barst í gær frá AP-fréttastofunni og upprunnin er í Osló. Norsk loðnuveiðiskip um 230 sjómflur norð- ur af Svínalækjartanga eða 30—40 mflur utan íslenzku fiskveiðimark- anna. Myndin var tekin í gær. LjÓ8m. Helííi Hallvarðsson. í gær var haldinn fundur norskra útvegsmanna í Bergen. A fundinum kom fram mjög mikil óánægja með norsk stjórnvöld, sem útvegsmenn töldu sína mikla linku gagnvart Islendingum í deilumáii landanna. Skoruðu út- vegsmennirnir á norsk stjórnvöld að færa fiskveiðilögsöguna um- hverfis Jan Mayen tafarlaust út og að lýsa þegar yfir að miðlína gilti milli fiskveiðilögsagna ríkj- anna. Samkvæmt upplýsingum Land- helgisgæzlunnar voru engin skip í gær að ólöglegum veiðum innan 200 mílnanna, þar með var talið það svæði, sem Norðmenn hafa gert tilkall til vegna væntanlegrar fiskveiðilögsögu umhverfis Jan Mayen. í gæzluflugi í gær sást til 9 loðnuveiðiskipa Norðmanna um 120 sjómílur vestsuðvestur af Jan Mayen og virtust þau veiða þar vel. Áætlaði Helgi Hallvarðsson, skipherra á gæzluflugvélinni að skipin hafi verið komin með um 300 til 400 tonna afla þar, en veiðarfærin voru öll um borð og því augljóst að loðnan veiðist aðeins að næturlagi eða undir morgun. Svæðið, sem norsku loðnuveiðiskipin voru á, er í um 230 sjómílur norður af Svínalækj- artanga og voru þau þar um 30 til 40 sjómílur utan við íslenzka fiskveiðilögsögu. Austan við Jan Mayen sá áhöfn gæzluflugvélar- innar norska togara að veiðum, en á Jan Mayen-svæðinu voru einnig austur-þýzkir togarar svo og so- vézk hringnótaskip. Menn, sem Morgunblaðið ræddi við í gær lýstu sumir hverjir áhyggjum sínum á loðnuveiðum á Jan Mayen-svæðinu og töldu að gengi loðnan suður á bóginn í átt til Islands, myndu íslendingar stórskaðazt af veiðum sovézka flotans, sem myndi á næstunni sjúga til sín mikið loðnumagn. Stýristækj- um stolið úr Tjarnar- gosbrunni STVKITÆKJUM úr gosbrunnin- um í Tjörninni var stolið fyrir nokkru. og hefur vatn því ekki verið á goshrunninum að und- anfornu. Ný tæki eru nú á leiðinni til landsins. og ætti gosbrunnurinn þvi að komast í lag aftur na'stu daga. samkvæmt upplýsingum sem Morgunhlaðið fékk hjá skrifstofu garðyrkju- stjóra í gær. Stýritækin eru geymd uppi á landi, skammt frá goshrunninum, og voru þau höfð í læstum kassa. F’ingralangir menn hafa því fyrst brotið upp kassann, og siðan tekið tækin. Tæki þessi munu kosta um tvö hundruð þúsund krónur í innkaupi, en sem kunnugt er var gosbrunnurinn á sínum tíma gef- inn af sendiherra Bandaríkjanna á Islandi. Tryggingastofmm hleypur und- ir bagga með ríkisspítölunum Greiðsluvandi Tryggingastofnunarinnar þó enn óleystur „TRYGGINGASTOFNUNIN mun hjálpa þeim sjúkrahúsum, sem eru f mestum vandræðum og geta ekki greitt út laun," sagði Magnús H. Magnússon, heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær, er spurzt var fyrir um hvort vandi sjúkrahúsanna hefði verið leystur á ríkisstjórnar- fundi f gærmorgun. Magnús sagði að hann hefði haft í hyggju að taka málið upp á rikisstjórnarfundinum í gær, en það hefði reynzt tilgangs- laust, þar sem Tómas Árnason hefði ekki mætt á fundinn, en málið hefði verið þess eðlis að ekki var hægt að afgreiða það án hans nærveru. „Ég er að vona að unnt verði að leysa vandamálið að sinni með þess- um hætti,„ sagði heilbrigðisráðherra, en þegar hann var spurður að því, hvort fjárhagsvandamál Trygginga- stofnunar ríkisins hefðu verið leyst, en þar vantar eins og menn rekur minni til milli 7 og 8 milljarða króna, svaraði hann: „Nei, vandamál hennar eru enn óleyst, en hún getur þó eitthvað hjálpað til, þótt takmarkað sé. Hún hefur gert það, en aðstoð Borgarráð úthlut- aði 77 lóðum í gær BORGARRAÐ úthlutaði í gær 77 lóðum undir einhýlishús og raðhús f Seljahverfi í Breiðholti og á Eiðs- granda. Var hér um að ræða 34 einbýlishúsalóðir og 43 raðhúsalóð- ir. Nú var í fyrsta skipti úthlutað byggingarétti samkvæmt nýju punktakerfi. í þeim tilfellum þar punktafjölda voru fleiri en lóðirnar, sem í boði voru, var dregið milli umsækjenda. Tveir fulltrúar sjálfstæðismanna í borgarráði, Birgir ísleifur Gunnars- son og Albert Guðmundsson, létu bóka mótmæli við lóðaúthlutunina. Sjá nöfn þeirra. sem lóðir hlutu og hókanir sjálfstæðismanna á bls. hennar er fólgin í því að hún greiðir upp í væntanleg daggjöld, greiðir fyrr en henni er ætlað að gera. Annars hafa vandamál Trygginga- stofnunarinnar verið leyst frá viku til viku,“ sagði ráðherra. Morgunblaðið spurði Magnús H. Magnússon, hvort það ætti þá að vera tryggt að starfsfólk sjúkrahús- anna ætti ekki að fá tóm launaum- slög í dag. Hann sagði: „Ég reikna með því, en hitt er annað mál að ég þori ekki að ábyrgjast að það geti ekki komið fyrir í einhverju einstöku sjúkrahúsi einhvers staðar á landinu — en komi það fyrir, þá munum við reyna að kippa því í lag, þannig að það yrði þá bara dagspursmál, en ekki um daga að ræða. Þetta munum við raunverulega ekki vita fyrr en á morgun. Magnús kvað greiðsluerfiðleika sjúkrahúsanna vera meiri nú en ella, þar sem mikið væri af afleysingafólki í sjúkrahúsunum og því væru launa- greiðslur þyngri á þessum mánuðum en á öðrum tímum árs. Ingólfur Ingólfsson um úrskurð geröardóms farmanna: Nokkurt tillit er tekið til krafna farmanna HINN lögskipaði gerðardómur, sem settur var með bráðabirgðalögum rikisstjórnarinnar til þess að kveða upp úr um hver skyldu vera laun farmanna. skilaði úrskurði sínum í gær, en í iögunum var svo kveðið á um að hann skilaði af sér fyrir 1. ágúst. Úrskurður dómsins er upp á 80 blaðsíður og er að stofni til sá rammi að samningum, sem aðilar höfðu orðið sammála um í hinu langvinna farmannaverkfalli. Dómurinn er tvískiptur. Frá gildis- töku bráðabirgðalaganna og til 31. júlí gilda gömlu samningarnir að viðbætt- um 5% og þaklyftingu, þar sem hún á við, en frá 1. ágúst gildir sú kerfis- breyting, sem aðilar höfðu náð saman um og hefur dómurinn þar fyllt út textann með launatölum. Ingólfur Ingólfsson, forseti Far- -.manna- og fiskimannasambands ís- lands sagði í samtali við Morgunblað- ið í gær, að svo virtist í fljótu bragði að nokkurt tillit hafi verið tekið til þess, sem farmenn hefðu haldið fram og vildu fram fá, en hann sagði að við fljótan yfirlestur sýndist sem dómur- inn hafi gætt verulegrar aðhaldssemi í launatölum. Hann kvað erfitt að #Torí» ríninhíipfan samanhnrð á launum farmanna fyrir og eftir breytinguna og væri þar nauðsynlegt að taka saman heilt ár, eins og var og eins og verður. Væri það vegna niðurfellingar ýmissa atriða í kjarasamningum far- manna, sem jafna verði til annars sem kæmi inn við kerfisbreytinguna. Því kvað Ingólfur dæmið flókið og ekki væri unnt að fá niðurstöður í því þegar í stað. „Mér sýnist að í flestum greinum hafi verið komið nokkuð til móts við okkur,“ sagði Ingólfur, „en þó er gætt varfærni að því er varðar launin." Hann kvað við yfirlestur úrskurðar dómsins svo líta út sem nokkur launahækkun verði hjá skipstjórum og yfirvélstjórum, en kvað þess að gæta að þar komi inn í þaklyfting, sem þeir einir stétta höfðu ekki fengið. Þorsteinn Pálsson, framkvæmda- -.stjóri Vinnuveitendasambands ís- lands tók mjög í sama streng og forseti F.F.S.I. um að kerfisbreytingin gerði samanburð á kjörum farmanna fyrir og eftir úrskurðinn, það flókinn, að ógerningur væri að gera sér grein fyrir því hvað hann þýddi í raun og veru. VSÍ myndi reikna út þetta dæmi, en fyrr en niðurstöður lægju fyrir kvaðst hann ekki geta tjáð sig Lim málið. Hækkun á leikhús- miðum og rafmagni RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á fundi sínum i gærmorgun að heim- ila 15% hækkun á töxtum Lands- virkjunar og 17% hækkun á töxt- um Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Þá heimilaði ríkisstjórnin enn- fremur að Þjóðleikhúsið fengi að hæþkka verð aðgöngumiða um 50%. Haekkanir þessar gilda frá og með deginum í dag, 1. ágúst.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.