Morgunblaðið - 01.08.1979, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 01.08.1979, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1979 • borvaldur Ásgeirsson golfkennari, eini íslenski atvinnumaðurinn í golfi. í baksýn má sjá golfsett frá John Lettersfyrirtækinu, það eina sem til er þessarar tegundar hér á landi. Ljósmynd.RAX. Útimót í körfu Körfuknattleikssambandið gengst í ár fyrir útimóti í körfu- knattleik. Mótið verður haldið í Njarðvík 17. —19. ágúst n.k. UMFN hefur tekið að sér fram- kvæmd mótsins fyrir sambandið. Útimótið er nýjung í starfi KKÍ. Með því að hefja keppni í körfubolta utanhúss viljum við fyrst og fremst leggja áherslu á að hann er íþrótt sem auðvelt er að stunda allt árið um kring. Mörg af bestu körfuknattleiks- liðum okkar taka sér sífellt styttri sumarfrí. Keppnin í úr- valsdeild er hörð og á miklu ríður að liðin séu í fullri þjálfun frá upphafi keppnistfmabils. Einstök félög eru jafnvel farin að leita eftir þátttöku f mótum utan iandsteinanna á haustin til að vanda enn betur undirbúning- inn. bátttaka f útimóti á þessum tfma getur þvf vonandi orðið liður f undirbúningi félagslið- anna fyrir veturinn. Tilkynningum um þátttöku óskast skilað til Gunnars bor- varðssonar, Holtsgötu 27, Ytri-Njarðvík, s. 92/3073, eða skrifstofu KKÍ, íþróttamiðstöð- inni í Laugardai. • Hugi S. Harðarson Selfossi setti nýtt lslandsmet f baksundi. Bjarni vann besta afrekið Huai setti islandsmet Sundmeistaramóti Islands • Bjarni Björnsson sigraði f fjórum greinum á sundmeistaramótinu. Her sést hann fyrir miðju taka á móti verðlaunum. Ljósmynd Guðjón B. MEISTARAMÓT íslands í sundi fór fram um sfðustu helgi f sundlauginni f Laugardal. Held- ur var hljótt um mótið og for- ráðamenn þess iétu ekki einu sinni fjölmiðla vita um að það ætti að fara fram. bað er varla nema von að deyfð sé yfir sund- fþróttinni ef svona er á málum haldið. Árangur á mótinu var í heild frekar slakur. Eitt íslandsmet var þó sett. Hugi S. Harðarson frá Selfossi bætti met sitt í 200 m baksundi og synti á 2,20,1 mfn. Ólafur Einarsson, Ægi, setti unglingamet f 400 m fjórsundi og 800 m skriðsundi. Besta afrek mótsins vann Bjarni Björnsson, Ægi, er hann synti 400 metra skriðsund á 4,25,4 mfn. og hlaut hann Páls- Þorvaldur með samning við John Letters bORVALDUR Ásgeirsson golf- kennari gerði fyrir skömmu samning við skoska golfvörufyr- irtækið John Letters og umboðs- menn þess her á landi, Tak h/f. Er þessi samningur að mörgu leyti athyglisverður. borvaldur er annar atvinnumaðurinn f golfi á Norðurlöndum sem gerir slfkan samning við hið skoska fyrir- tæki, en þeir hafa um 200 at- vinnumenn á samningum úti um allan heim á sfnum snærum. bað er þvf mikil viðurkenning sem felst f þvf að komast á samning hjá fyrirtækinu. Samningur Þorvalds við fyrir- tækið gildir í tvö ár og fær Þorvaldur ákveðna þóknun árlega auk þess sem Letters-fyrirtækið útvegar honum golfkylfur og ann- að tilheyrandi golfi af bestu teg- und. Hann mun þess í stað auglýsa vöruna. Margir frægir golfleikar- ar eru á samningi hjá John Lett- ers-fyrirtækinu en þeirra frægast- ur mun þó vera bandaríski golf- leikarinn Lee Trevino, og þess má geta, að nafn hans er á öllum kylfum sem framleiddar eru hjá fyrirtækinu. Einkaumboð Letters hér á landi, Tak h/f, hefur gefið öllum íslenskum kylfingum, sem farið hafa holu í höggi á mótti, pútter, og hefur gefið 15 mönnum síðan árið 1975. Þorvaldur Ásgeirsson er á samningi hjá GSÍ sem farkennari sambandsins. í sumar hefur hann kennt golf á sjö stöðum á landinu og verið með alls 254 nemendur, þar af eru 128 nýliðar. Vinsældir golfíþróttarinnar eru alls staðar að aukast. —þr. bikarinn fyrir afrekið. Bjarni sigraði í fjórum greinum á mót- inu. Ingólfur Gissurarson frá Akranesi sigraði í þremur grein- um og Hugi Harðarson í tveimur greinum. Úrslit í meistaramóti ís- lands í sundi: íslandsmeistarar í einstök- um greinum urðu: 1500 m skriðsund karla: Bjarni Björnss. Ægi, 17.22,7 mín. 800 m skriðsund kvenna: Ólöf Sigurðard. Self., 10.04,4 mín. 400 m bringusund karla: Ingólfur Gissurars. ÍA, 5.38,0 mín. 400 m fjórsund karla: Ingólfur Gissurars. í A, 5.11,5 mín. 100 m flugsund kvenna: Margrét Sigurðard. UBK, 1.13,4 mín. 200 m baksund karla: Hugi Harðarson 2.20,1 mín., ísl.m 400 m skriðsund kvenna: Ólöf Sigurðard. Self., 2.44,5 mín. 200 m bringusund karla: Ingólfur Gissurars. ÍA, 2.44,5 mín. 100 m bringusund kvenna: Margrét Sigurðard. 1.27,4 mín. 100 m skriðsund karla: Bjarni Björnsson, Ægi, 56,7 sek. 100 m baksund kvenna: Margrét Sigurðard. UBK, 1.19,1 mín. 200 m flugsund karla: Bjarni Björnsson, Ægi, 2.44,0 mín. 4x100 m skriðsund kvenna: A-sveit Ægis 4.44,4 mín. 4x100 m fjórsund karla: Sveit Ægis 4.33,2 mín. 400 m fjórsund kvenna: Ólöf Sigurðard. Self., 5.45,7 mín. 100 m flugsund karla: Brynjólfur Björnsson 1.05,7 mín. 200 m baksund kvenna: Anna Jónsd. Ægi, 2.51,9 mín. 400 m skriðsund karla: Bjarni Björnsson, Ægi, 4.25,4 mín. 200 m bringusund kvenna: Elín Unnarsd. Ægi, 3.08,2 mín. 100 m bringusund karla: Ari Haraldsson, KR, 1.15,7 mín. 100 m skriðsund kvenna: Ólöf Sigurðard. Self., 1.07,8 mín. 100 m baksund karla: Hugi S. Harðars. Self., 1.06,4 mín. 200 m flugsund kvenna: Anna Gunnarsd. Ægi, 2.49,6 mín. 4x200 m skriðsund karla: Sveit Ægis 9.20,0 mín. 4x100 m fjórsund kvenna: A-sveit Ægis 5.18,7 mín. - ÞR. Brynjolfur bætir BRYNJÓLFUR Hilmarsson. hinn ungi og efnilegi millivega- lengdahlaupari úr UÍA, er býr í Gautaborg í Svíþjóð. náði um helgina sínum langbezta árangri í 800 metra hlaupi. Hljóp Brynj- ólfur á 1:57,3 mínútum og bætti sinn fyrri árangur því um fimm sekúndur. Brynjólfur hefur stór- bætt sig á öllum vegalengdum í sumar, og eflaust lætur hann ekki hér við sitja, heldur bætir sig enn meir. Brynjólfur keppir með unglingalandsliðinu í frjáls- íþróttum í Ósló um helgina. Lilja Guðmundsdóttir IR, sem sig einnig dvelst í Svíþjóð, náði sínum bezta árangri í 800 m í ár miðviku- daginn fyrir Kalott-keppnina, en þá hljóp hún á 2:10,6 mínútum á móti í Gautaborg og sigraði með yfirburðum. Guðrún Sveinsdóttir UÍA tók einnig þátt í hlaupinu og varð fjórða á rúmlega 2:20 mínút- um. Á sama móti setti Brynjólfur nýtt íslenzkt drengjamet í 1,500 metra hlaupi, 4:00,9 mínútur, eins og komið hefur fram í Mbl. Friðisar (bróttir Kðrfuknaltlelkur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.