Morgunblaðið - 16.08.1979, Page 12

Morgunblaðið - 16.08.1979, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1979 Ferð um Sprengisand og Kjöl Er ég vaknaði morguninn 6. ágúst, var eins og hvislað í eyra mér: Farðu með Norðurleið til Akureyrar um Sprengisand og Kjöl. Oft hafði mig dreymt um það að fara þessar leiðir, þótt aldrei hefði orðið úr því, og nú upp á síðkastið hafði ég talið mér trú um, að slík för væri of erfið fyrir mig, þar eð ég er ekki heill heilsu. En hvað um það. Ég snara mér í símann og tala við kunningja minn og spyr hann, hvort hann sé ekki til í að slást í för með mér, sem hann kvaðst óðara reiðubúinn til. Var nú þegar hafizt handa og leitað upplýsinga hjá Umferðar- miðstöðinni og far pantað með næstu ferð, sem áætluð var mið- vikudaginn 8. ágúst. Laust fyrir kl. 8 miðvikudaginn 8. ágúst vorum við svo mættir, og af stað var lagt á mínútunni kl. 8. Leiðsögumaður er með í þessum ferðum. Kvaðst hann heita Jó- hann, en bílstjórann nefndi hann Rúnólf. Kynnti hann sér síðan tölu farþeganna og þjóðerni. Far- þegarnir voru að ég ætla 32 og. meiri hluti þeirra útlendingar, þótt að litlu hafi munað, en mér skildist, að þó væru íslendingar með flesta móti í þetta sinn. Útlendingarnir voru að ég held allir enskumælandi, þótt vera kunni, að þeir hafi verið frá fleiri þjóðlöndum. Síðan kynnti leiðsögumaður í stórum dráttum áætlun dagsins, sem var á þá leið, að morgunverð- ur skyldi snæddur í Árnesi um kl. 10; síðbúinn hádegisverður, en hann orðaði það svo, í skála Ferðafélagsins í Nýjadal, og eftir- miðdagskaffi drukkið við Aldeyj- arfoss ca. kl. 8, en Aldeyjarfoss er í Skjálfandafljóti rétt ofan við byggð í Bárðardal. Það skal tekið fram, að allar þessar áætlanir stóðust, og farþegum var gefinn góður tími á öllum áfangastöðum. Auk þessara áfangastaða var svo víða staðnæmst og farþegum gefinn kostur á að rétta úr sér og teyga öræfaloftið og víða farnir smá afkrókar, þar sem bezt naut útsýnis, t.d. var gengið á Gauks- höfða, þar sem vel sést um Þjórs- árdal; farið um hjá Búrfellsvirkj- eftir THEÓDÓR DANÍELSSON un, og staðnæmst á Sigöldu og Þórisvatn skoðað, svo að eitthvað sé talið, en miklu oftar var numið staðar til augnayndis, hvíldar og hressingar. Kom það sér ekki sízt vel fyrir reykingafólkið, því að til þess var mælzt í upphafi ferðar, að ekki væri reykt í bílnum, sem allir virtu með hinni mestu prýði, svo og að slíta ekki upp hinn viðkvæma gróður öræfanna. Til Akureyrar var komið kl. 10.30 um kvöldið. Föstudaginn 10. ágúst var síðan lagt af stað frá Akureyri kl. 8,30, en nú lá leiðin suður Kjöl og var henni í öllum aðalatriðum hagað eins og á leiðinni norður. Áningar- staðir þeir, er matazt var á, voru Varmahlíð kl. 10, morgunverður, miðdegisverður um kl. 4 í Skíða- skálanum í Kerlingarfjöllum, og síðdegiskaffi á Laugarvatni, í Edduhóteli. Viðkomustaðir voru margir sem fyrr, svo sem Hvera- vellir, Gullfoss og Geysir, auk margra annarra. Farþegar voru eitthvað færri á suðurleið og ekki allt sama fólkið. Nú varð leiðsögumaðurinn okkar að flytja mál sitt á íslenzku, ensku, frönsku og þýzku, sem honum varð og ekki skotaskuld úr, því að maðurinn virðist tala bæði tungum manna og engla. Og auk þess að miðla okkur af miklum fróðleik um jarðsögu auðna þeirra, er að mestu var ekið um, kunni hann og glögg.skil sögulegs fróðleiks um menn og málefni, er tengdist þessum öræfaleiðum, svo og þjóðsögum og jafnvel drauga- sögum. Fararskjótinn okkar, bíll- inn, var nýr og í alla staði hinn þægilegasti og bílstjórinn í engu síðri. Nú myndi sjálfsagt margur spyrja: Hvers vegna er maðurinn að tína þetta allt til. Svar mitt við því er ofur einfalt. Ég vil koma á framfæri þakklæti mínu og reynd- ar fleiri af samferðarfólkinu til Norðurleiða fyrir mjög ánægju- lega ferð. Leiðsögumanni og bíl- stjóra færi ég alúðarþökk og svo sámferðafólkinu öllu. Mig hafði lengi dreymt um að kynnast öræf- um landsins meir en ég hafði áður átt kost á, og nú hefur sá draumur rætzt. Ég varð í engu fyrir von- brigðum. Töfrar öræfanna eru samir við sig og breytast lítt, þótt aldir renni. Þeir eru í senn ævin- týralegir og heillandi. Mig grunar, að þeir, sem leggja leið sína um þessar fornu öræfa- leiðir, ókunnugir, fari margs á mis, jafnvel þótt þeir séu vel birgir af kortum og öðrum útbún- aði. Einmitt á þessum leiðum er mest nauðsyn góðrar leiðsagnar. Ég hef víða flækzt og oft komið ánægður heim úr ferð en aldrei ánægðari. Reykjavúcurvikan: Fundur og tvennir tónleikar Reykjavíkurvikunni svo- nefndu verður haldið áfram í dag, og verður Þróunarstofn- un með kynningarfund að Kjarvalsstöðum. Þar verður til umræðu „Vinna og fram- kvæmd deiliskipulags til- raunareita í Seljahverfi“, og einnig verður farið í skoðun- arferð þangað. Þessi dag- skrárliður stendur yfir á milli klukkan 17.00 og 19.30. Klukkan 20.30 í kvöld verða síðan tónleikar að Kjarvals- stöðum, Rut, Unnur María og Inga Rós Ingólfsdætur ásamt Herði Áskelssyni leika verk eftir Bach, Hándel, Telemann og Purcell. Á sama tíma, eða klukkan 20.30, leikur Brunaliðið síðan í Tónabæ. Valda ostr- ur kóleru? BANDARÍSKIR vísindamenn við sex opinberar rannsóknarstofur kanna um þessar mundir hvort verið geti að ostrur valdi kóleru. Seint á síðasta ári kom upp kólera í Louisiana og var það í fyrsta skipti í yfir hálfa öld að sjúkdómsins varð vart í Banda- ríkjunum. Ekki þykir útilokað að kóleran hafi átt rætur sínar að rekja til ostra. Þorskur eða fiskifrœðingar Þvílíku hefur verið dengt yfir okkur á undanförnum árum af fiskifræðingaspeki, að yfir alla bakka flæðir og nú nýverið bættist í bunkann þar sem eru ókjör af haglega gerðum og af miklum vísdómi, ritsmíðum þriggja há- skólamanna, um auðlindaskatt, skipastól og fiskveiðar. Tilkvaddir segja svo álit sitt á þessum fræðum fjórir dáindis- menn. Tveir þeirra reyndust eðli samkvæmt fylgjendur háskóla- fræðanna, en hinir drógu allt í efa enda reyndir menn á þessum vett- vangi. Ölium var samt sameigin- legt að enginn dró í efa kenningu fiskifræðinga um ástand þorsk- stofnsins og segir það sína sögu um það hvernig þjóðin hefur verið sefjuð. Mesta furðu vekur þó að mætir menn skuli láta hafa sig til að ræða þær firrur sem þarna eru á borð bornar að ekki sé minnst á þá hörmung að sá mæti maður, Kristján Friðriksson, skuli hafa látið hugmyndaflugið teyma sig i þær ógöngur sem raun ber vitni. „Þeir sletta skyrinu sem eiga“ og vitanlega er ekkert við það að athuga þótt þeir sem búa yfir visku og þekkingu, láti hana fávís- um almenningi í té. Ekki þarf undan viðtökunum að kvarta því þorri þjóðarinnar virðist taka öllum boðskap fiskifræðinga og annarra sem telja sig vita, eins og evangelíum. Svo alger er þessi sefjun að fiskimenn, útgerðarmenn og fisk- kaupendur eru gersamlega orð- vana gagnvart allri viskunni og láta helst frá sér heyra til að dásama og leggja blessun sína yfir þessi frábæru fræði. Stöku Tómasar munu þó til, þótt lítt eða ekki hafi látið til sín heyra. Sá er þessar línur hripar er einn þeirra. Hvað er maðurinn að fara? munu menn spyrja, er þetta ekki vísindalega útreiknað og óyggj- andi? Fiskifræðingarnir vita ná- kvæmlega hve stór stofninn er og hve mikið má veiða. Já, svo mörg eru þau orð, en ýmislegt má kannski að þessu finna. Hvernig er stærð hrygningar- stofnsins fundin? Jú, tekin nokkur sýnishorn á hrygningarstöðvun- um, draslinu skellt í tölvuna, teiknað línurit og þarna hafið þið stóra sannleikann í allri sinni dýrð. Þarna er það svart á hvítu upp á tonn. Ályktun: Þessi stofn þolir þessa veiði upp á tonn og helst ekki kíló framyfir. Ef hægt er að láta eftir GUÐMUND JAKOBSSON þjóðina leggja trúnað á svona fræði, hlýtur að vera hægt að láta hana trúa hverju sem vera skal ef það flokkast undir vísindi, sem eru raunar á góðri leið með að tortíma veröldinni. Engu virðist skipta hvers konar fiskur er veiddur, helst svo að skilja að æskilegast sé að veiða eingöngu hrygningarfisk. Ekki var talið gott í sveitinni að drepa gemiingana, en sá bóndi hefði víst verið talinn eitthvað skrítinn sem eingöngu hefði slátr- að ánum utanaf lömbunum en það virðit einmitt það sem fiskifræð- ingar vilja að gert sé við þorskinn. Víst er ekki gott að drepa fisk áður en hann hefur náð þokkaleg- um vexti, en hvenær verður sá fiskur til ef allur hrygningarfiskur er drepinn, en að því virðist mark- visst stefnt ef ekki má veiða yngri fisk en 6 til 8 ára. Nýlegt dæmi er það, að ekki fannst í aflanum smáfiskur 58 cm eða smærri. Víst höfðu fiskifræð- ingar ráð við því. Þeir einfaldlega stækkuðu smáfiskinn upp i 60 cm og enginn veit hvar þeir benda næst á tommustokkinn. Smá vandræðum hefur vaxandi fiskigengd í kringum allt land valdið, en þá er bara prjónað saman nýjum forsendum, þeir vissu þetta fyrir fiskifræðingarnir, en gleymdu að geta þess. Erlendir fiskifræðingar hafa komist að þeirri niðurstöðu, samanber grein sem birtist í Morgunblaðinu fyrir nokkrum vik- um og vandlega hefur verið þagað við, að allir þeirra útreikningar í þessum efnum séu á sandi reistir, allar forsendur vanti til að geta fullyrt eitthvað. íslenskir fiskifræðingar þurfa ekki að burðast með slíkar efa- semdir. Þeir vita þetta allt svo ekki verður véfengt. NákvSemlega er reiknað út hve mikið við megum veiða. En hvað um alla hina sem lifa á fiski? Fyrir nokkrum árum var talið að selur- inn einn æti 100 þúsund tonn árlega, nú hefur honum fjölgað stórlega og hve mikið veiðir hann nú? Vitað er að margir eru um brauðið hvað snertir seiðin, einnig er löngu vitað að þorskurinn étur sjálfan sig í stórum stíl og ýmsir telja að sterkir stofnar sem ná fullum þroska éti svo af eigin afkvæmum að frekari stofnstærð sé nánast ekki möguleg. Allir sjómenn hafa séð stóra fiska veiðast með fulla maga af eigin afkvæmum, og til er að „meltingar" séu svo stórir og óskemmdir að þeir eru hirðandi. Fiskifræðingar segja okkur að geyma beri fiskinn, þar til hann hefur náð þeim aldri og stærð sem þeir telja æskilegt. Hann skal fæðast á Selvogs- banka, svo liggur veiðin vestur — norður og austur, kannski hverfur hann svo í svona tvö ár en viti menn, eins og rekinn í rétt kemur hann upp á Selvogsbankann til að hrygna, hvaðan hann kemur, hvaða leið hann hefur farið suður fyrir landið skiptir ekki máli, þarna eru kindurnar allar með tölu. Að vísu hefur veiðst svo and- skoti stór fiskur fyrir Vestfjörðum og Norðurlandi upp á síðkastið og reyndar frá upphafi að við borð liggur að tölvurnar átti sig ekki á fyrirbærinu. Öllum er það kunnugt að tíma- bundiið fiskleysi á ýmsum svæðum umhverfis landið höfum við átt við að búa frá upphafi. Annálar segja menn koma af vertíðum með nokkra fiska til hlutar og .hallæri vegna fiskleysis. Einar Ben. sagði þann gula utar, en af hverju gekk hann ekki á hefðbundin svæði? Af hverju fannst ekki fiskur fyrir Vestfjörðum í fjögur ár? Af hverju var fisklaust fyrir Norðurlandi og Austfjörðum um áratuga skeið? Enginn hefur beðið fiskifræðinga um skýringar á þessu. Hér veiddu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.