Morgunblaðið - 16.08.1979, Síða 13

Morgunblaðið - 16.08.1979, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1979 13 Spölkorn út i buskann Við göngum af veginum inn í norðurendann á Snókagjá. Þar eru lóðréttir hamraveggir til beggja handa en botn gjárinnar er víða vafinn gróðri. Hér er að finna rennisléttar flatir en þó þarf að klöngrast yfir stórgrýti á nokkrum stöðum. Þótt héðan úr gjánni að veginum handan við gjárvegginn sé aðeins steinsnar þar sem ys og þys umferðarinnar heyrist jafnt og stöðugt, erum við innilokuð í þessum klettasal í þögn og kyrrð. Og okkur liggur ekkert á, því hér er margt að skoða og hér getum við rölt áfram í rólegheitum án nokkurr- ar truflunar. Heita má, að samfelld gjá sé sunnan frá Þingvallavatni og Þingvellir III Við höfum þegar farið tvœr gönguferðir um þjóðgarðinn á Þingvöllum og leggjum í dag af stað í þá þriðju. Við skulum geyma bílinn hjá Þjónustumið- stöðinni á Leirunum (við gatna- mótin) og ganga síðan eftir gjánum suður að Öxarárfossi. Talið er, að þessi hraun, sem við sjáum hér, hafi myndat fyrir um það bil 9000 árum, en þá seig spildan milli Almannagjár og Hrafnagjár og í þeim ham- förum mynduðust gjárnar, sem við ætlum að skoða sérstaklega í dag. Þjóðvegurinn liggur niður á Leirurnar um svonefndan Tæpa- stíg, en hann er á milli Hvanna- gjár, sem er fyrir norðan veginn og Snókagjár að sunnanverðu. norður í Ármannsfell. Þessi gjá heitir ýmsum nöfnum. Fyrir norðan veginn er Hvannagjá, sem fyrr er nefnd. Fyrir sunnan hana er Snókagjá, þá Stekkjar- gjá, Almannagjá, Hestagjá, Lambagjá og syðst er Hrútagjá, en hún er fyrir vestan og norðan Kárastaðanesið. Öll þessi nöfn minna á ákveðna þætti í störfum fólksins, sem fyrrum bjó á Þing- völium. Auk rústanna af stekkn- um í Stekkjargjá eru þar Gálga- klettar, en þar voru þjófar hengdir fyrrum. í Almannagjá er Drekkingarhylur, rétt við brúna, þar sem öxará fellur austur úr Almannagjá. Þannig minnir næstum hvert spor, sem við stígum hér í þessari ferð okkar, á kafla úr sögu þjóðarinn- ar, sumir þeirra vekja gleði og fögnuð, en aðrir þjáningar og tár. Þegar við erum komin að Öxarárfossi skulum við halda þvert yfir vellina og austur að Flosagjá. í Flosagjá er mikið vatn og eins í Nikulásargjá, en hún gengur suður úr Flosagjá austan við Spöngina. Brú er á Nikulásargjá, og kasta menn gjarnan peningum í vatnið ofan af brúnni. Sá siður er ekki gamall. Nikulásargjá dregur nafn sitt af því, að árið 1742 drukknaði Nikulás Magnússon sýslumaður í Rangárvallasýslu í henni, en Flosagjá er nefnd eftir Flosa Þórðarsyni frá Svínafelli í Öræfum, en hann stjórnaði að- för að Njáli á Bergþórshvoli og sonum hans og brenndi þá inni. Árið eftir Njálsbrennu, árið 1012, var barist á Alþingi, þegar menn gátu ekki sæst um vígs- bætur, og þá er sagt að Flosi hafi stokkið yfir gjána á flótta undan óvinum sínum. Á leiðinni að Flosagjá höfum við gengið fram hjá Brennugjá. Hún er fast við veginn til vinstri handar. Þar voru galdramenn brenndir á 17. öld. Eldsneytið var nærtækt, nokkrir hestburðir af hrísi úr Þingvallaskógi. Við göngum nú norður eftir vestri barmi Flosa- gjár. Hún er víða hvldjúp og margra metra lóðréttir hamra- veggir niður að vatninu minna okkur á, að hrasi einhver og falli í vatnið, er harla lítil von um skjóta björgun. Skulum við því fara varlega. Þannig röltum við til baka norður á Leirurnar, þar sem bíllinn bíður. Ekki er unnt að segja hve lengi við verðum á þessari göngu en þó má nefna 4 klukkustundir. I þessari ferð höfum við staldrað við á ýmsum þeim stöðum er geyma minningar úr sögu Þingvalla um „grimmd og göfgi, þrek og sár“. Þessi tilvitn- un er í kvæði eftir skáldið Jakob Jóhannesson Smára. Ég læta kvæðið fljóta hér með i lokin og tel sjálfsagt að þú samferðamað- ur minn, festir þér það vel í minni áður en þú leggur af stað í gönguferðina. Kvæðið er svona: Þingvellir Sólxkinið titrar. hætct um hamra ok Kjár. en handan vatnsins sveipast fjöllin móöu. Himinninn breiðir faöm jafn fagurblár sem fyrst. er menn um þessa velli tróöu. Og hingaö mændu eitt sinn allra þrár. ótti og von á þessum steinum glóöu. Og þetta berg var eins og ólgusjár. — þar allir straumar landsins saman flóðu. Minning um grimmd og göfgi. þrek og sár geymast hér. þar sem heilög véin stóöu. — höfðingjans stolt og tötraþrælsins tár. sem tími og dauði í sama köstinn hlóðu. Nú heyri ég minnar þjóðar þúsund ár sem þyt í laufi á sumarkvöldi hljóðu. útlendingar á 300 skipum í hálfa öld, þeir lágu í smáfiski og öllu sem drepið varð en ekkert dugði, öðru hverju gaus upp óhemju afli. Sjálfir drápum við allt sem til varð náð og frægt er Hvalbaksfiskiríið, þar sem togararnir fylltu sig nokkra túra á vori hverju af smátittum. Nú er erlendi flotinn horfinn og við hættir hornsílaveiðum og þá gerist undrið. Allur fiskur búinn. Engu skiptir þó við losnum við útlendingana, þeir skildu víst ekk- ert eftir fyrir okkur, við verðum að draga saman seglin ef þorskurinn á ekki að fara sömu leið og Geirfuglinn. Já þetta eru nú fræði sem segja sex og þeir eru ekki lystarlausir sem geta kyngt þessu. Enginn getur fullyrt að hvergi finnist sannleikskorn í kenningum fiskifræðinga, en fullyrðingar þeirra eru svo ábyrgðarlausar og út í bláinn að maður er furðu lostinn á því að enginn skuli andmæla og krefjast skýringa á ýmsu sem hér hefur verið drepið á og fjölmörgu fleiru sem of langt yrði að ræða. Af því sem að framan er sagt mætti ætla að fiskifræðingar okk- ar væru harla ábyrgðarlausir og hinir verstu skúrkar. Því fer auð- vitað víðsfjarri og ekki annað vitað en þeir séu upp til hópa valinkunn- ir sæmdarmenn sem vilja ekki vamm sitt vita. Hverju sætir þá að þeir skuli fullyrða svo mikið sem raun ber vitni? Því miður, þeir eru ekki einir mikilhæfra manna, sem orðið hafa trúarofstæki að bráð. I allri auðmýkt vil ég fara þess á leit við okkar ágætu fiskifræðinga, að þeir geri oss fávísum almenn- ingi í stuttu og skýru máli grein fyrir á hverju þeir byggja sínar óyggjandi niðurstöður um ástand þorskstofnsins, hvers vegna þeir einskis meta alla okkar reynslu frá fyrri árum og hvers vegna þeir láta sem ekki sé um náttúrulegar, óútreiknanlegar og tímabundnar sveiflur í fiskigengd umhverfis landið að ræða. Að framansögðu mætti e.t.v. ætla að ég væri alfarið á móti fiskvernd og friðun en því fer víðs fjarri, ef slíkt er framkvæmt með skynsamlegum hætti. Ég tel sem sé að miðað við fiskigengd um- hverfis allt land nema e.t.v. s.v. hornið ætti að miða við 400 til 500 þúsund tonn en ekki tæp 300 þúsund eins og nú er gert. Hvort sú veiði mundi leiða til minnkandi eða aukinnar fiskigengdar er að mínu viti háð náttúrulegum sveifl- um, sem fiskifræðingar ráða ekk- ert við og geta ekkert fullyrt um. Að sjálfsögðu ber að stöðva slíkt athæfi að fiskur sé gerður að gúanóvöru. Ýmsar ráðstafanir mætti hugsa sér t.d. minni troll, styttri togtíma, hámarksafla í veiðiferð, takmörkun netafjölda o.fl. Samræma ber afköst fisk- vinnslustöðva og afla, fleira mætti nefna þannig að tryggt væri að allur afli kæmi óskemmdur í land og væri nýttur svo sem best má verða. Nú er okkur sagt að árvissir séu toppar í fiskigöngum fyrir Vest- fjörðum á sumrum. Svo hefur verið nokkur undanfarin ár en fyrir okkur eldri Vestfirðinga eru þetta ný fræði. Um áratuga skeið sást tæpast fiskur fyrir Vestfjörð- um frá því vorvertíð lauk og fram í september og víðar mun hafa verið æði tregt á sumrum þótt nú veiðist sæmilega umhverfis allt land. Nú líður senn að því að fiskað hefur verið það magn sem fiski- fræðingar telja hæfilegt. Sjómönnum og útgerðarmönn- um ber því að bregðast hart við og afstýra þeim voða sem virðist í sjónmáli. Ég vil að lokum taka fram að fjölmargt er hér ósagt um þessi mál og stiklað á stóru, en um tvennt er að velja; ganga í trúfélag fiskifræðinga og lifa á loftinu hluta af ári hverju eða veiða fisk og nýta með eðlilegum hætti. Ekki beint útsala „ heldur orsa gott tilboð Barnajakkar, sem kostuðu kr. 14.900 nú kr. 10.900.- Peysur áður kr. 8.900- nú kr. 6.900.- Einnig ýmsar aðrar sumarvörur á góöu veröi. Lítið inn og geriö góð kaup — ekki veitir af í dýrtíðinni. 'WJÍL BARNADEILD mKARNABÆR Austurstræti 22. Sími frá skiptiborði 28155

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.