Morgunblaðið - 16.08.1979, Síða 14

Morgunblaðið - 16.08.1979, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1979 Alþjóðlegur hráefnasjóður Stefnt er að því að auka hlutdeild Þróunar landa í flutningum á sjó. í september í haust kemur nefnd á vegum Sameinuðu þjóð- anna saman til funda í Genf til þess að fjalla um fyrirkomulags- atríði í tengslum við nýskipan á sviði alþjóðviðskipta með ýmiss- konar hráefni. Ein mikilvægasta ákvörðunin. sem tekin var á viðskipta- og þróuriii'ráðstefn- unni UNCTAD V, sem haldin var í Manila á Filipseyjum f maf sfðastliðnum var að hraða stofn- un sjóðs svo sem mögulegt væri til þess að fjármagna þessa ný- skipan. Hugmyndin, sem liggur þessu að baki er sú, að gerður verði alþjóðlegur samningur um að koma á fót verulegum birgðum af átján vörutegundum til að byrja með. begar verðlag á þessum vörum lækkar á heimsmarkaði, beitir sjóðurinn sér fyrir auknum kaupum. Þegar verðið svo hækk- ar að nýju (væntanlega vegna aðgerða sjóðsins sem gert er ráð fyrir að gerist tiltölulega fljótt, þá verða vörubirgðirnar seldar á frjálsum markaði. Árangurinn af þessum aðgerð- um ætti að verða jöfn verðlags- þróun — einnig að því er varðar ýmsar af þeim iðnaðarvörum, sem verðbólgan hefur mest áhrif á og sem þróunarlöndin neyðast til þess að flytja inn frá iðnríkj- unum. Frjáls framlög Ákvörðunin um að stofna þenn- an sjóð var í rauninni tekin á UNCTAD fundi í mars á þessu ári, er óformlegt samkomulag var gert um málið milli þróunarlandanna og iðnríkjanna. Samkvæmt þeim rammasamn- ingi, sem þá var gerður verður umráðafé sjóðsins í fyrstu 750 milljónir Bandaríkjadala eða rúmlega 250 milljarðar íslenzkra króna. Verulegan hluta af þessu fjármagni skal nota til að kosta margvíslega rannsóknastarfsemi varðandi þær vörur og hráefni, sem mest eru í gangi í alþjóða viðskiptum. Meginhluta fjármagns síns fær sjóðurinn í fastbundnum framlög- um aðildarríkjanna, en til þess að unnt verði að leggja stund á þá rannsóknastarfsemi, sem að ofan greinir, verða ríkin að leggja fram að minnsta kosti 280 milljónir dala í formi frjálsra framlaga. Fram til þessa hafa ekki nema 13 lönd gefið vilyrði fyrir framlög- um til rannsóknastarfseminnar. Samanlagt nema þau framlög 87 milljónum dala. En Róm var ekki byggð á einum degi, og því þarf engum að koma á óvart þótt allt þurfi þetta sinn aðdraganda. Norðurlöndin hafa ekki látið sitt eftir liggja í þessum efnum. Nor- egur hefur lagt fram 2,2 milljónir Frá við- skipta og þróunar- ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna dala, Svíþjóð 5,5 milljónir, Dan- mörk tæpar 3 milljónir og Finn- land rétt um 2 milljónir dala. Tilflutningur tækni- þekkingar Annað mikilvægt mál, sem mjög var til umræðu á Manila ráðstefnunni voru þau vandkvæði, sem oft virðast því samfara að flytja tækniþekkingu til þróunar- landanna. Frá lokum síðari heimsstyrjald- ar hefur mikil tækniþekking flust til þróunarlandanna, sem á marg- an veg hefur ekki hentað aðstæð- um þar. Iðnríkin hafa fyrst og fremst einbeitt sér að tækni, sem sparað hefur vinnuafl, en þróun- arlöndin hafa hinsvegar (ennþá) mesta þörf fyrir þá tækni og tæknikunnáttu, sem skapað getur fleiri störf. Afleiðing þess að iðnríkin hafa flutt sína tækniþekkingu til þróunarlandanna, hefur orðið sú, að sú efnahagslega og félagslega þróun, sem menn áttu von á að kæmist á strik í þróunarlöndunum hefur látið á sér standa. Við þetta bættist svo, að verk- og tækni- kunnáttan hefur oftlega verið flutt með þeim hætti til þróunar- landanna, að þau hafa beðið af því efnahagslegt tjón, — sú staðreynd hefur meðal annars leitt til þess, að fátækari ríkin leggja nú stöð- ugt meiri þunga á þá kröfu sína að eftirlit með hinum alþjóðlegu stórfyrirtækjum verði aukið. Á vegum UNCTAD eru nú sérfræðingar að semja reglur, sem gilda eiga á alþjóðavísu og fjalla um flutning tækniþekkingar milli Mikil áherzla er lögð á aukna menntun og heilbrigðismál í þró- unarlöndunum. Mynd- in er frá skóla í Manila á Filippseyjum. landa. Á Manila-ráðstefnunni var ákveðið, að kalla saman sérstaka ráðstefnu um þetta efni fyrir lok þessa árs, og verður það verkefni hennar að ganga endanlega frá þessum alþjóðlegu reglum. Nýir samningar Fleiri alþjóðlegar ráðstefnur og samningafundir koma nú í kjölfar UNCTAD V. Þar má til dæmis minna á ráðstefnu, sem haldin verður í febrúar-mars á næsta ári og fjalla mun um einkaleyfi og vörumerki. Þar munu komá fram sterkar óskir frá þróunarlöndun- um um að meira tillit verði tekið til þeirra í þessum efnum, en áður hefur verið gert. Önnur ráðstefna á vegum Sam- einuðu þjóðanna um skyld málefni verður haldin „samkvæmt sam- þykkt Manila ráðstefnunnar haustið 1979. Þar verður fjallað um viðskiptahætti er hafa í för með sér takmarkanir á sam- keppni. Verndarstefna Eitt af því.sem mjög var rætt á UNCTAD fundinum var sú ríka tilhneiging iðnríkjanna, að beita í auknum mæli verndarráðstöfun- um gegn vörum frá þróunarlönd- unum, sem eru samkeppnisfærar við eigin framleiðslu iðnríkjanna. Iðnríkin reisa tollmúra sér til verndar og beita að auki ýmsum öðrum brögðum sér til verndar. Niðurstaða umræðnanna varð málamiðlun, þar sem iðnríkin eru hvött til þess að hverfa smám saman frá þessari verndarstefnu í alþjóðlegum viðskiptum. Ymis af iðnríkjunum höfðu fyrirvara varðandi þessa sam- þykkt og fulltrúum þróunarland- anna fannst hún ekki ganga nægi- lega langt. Siglingar Annað, sem vissulega verður að telja til tíðinda af fundum UNCT- AD í Manila, er það að margar af helstu siglingaþjóðum vestur- landa tilkynntu ásamt með Sov- étríkjunum og Austur-Þýzkalandi, að þær væru reiðubúnar, til að fallast á alþjóðareglur um sigling- ar. Þessar reglur munu hafa það að markmiði að tryggja þróunar- löndunum aukna hlutdeild í flutn- ingum á sjó, og er vonast til þess að ekki líði á löngu, þar til unnt verði að setja slíkar reglur. Það urðu þróunarlöndunum að vísu nokkur vonbrigði, að ekki reyndist mögulegt að fá nægilegan stuðning við tillögu um að bæta hlut þeirra að því er varðar olíuflutninga og flutning farma í lausu, en þetta eru fjórir fimmtu hlutar allra flutninga á sjó, og þannig eru langflest hráefni flutt. Iðnríkin treystu sér heldur ekki til þess að styðja tillögu um efnahagslega og tæknilega aðstoð til handa þróunarlöndunum þann- ig að þau gætu byggt upp kaup- skipaflota. Framkvæmdaáætlun Á ráðstefnunni í Manila var samþykkt framkvæmdaáætlun fyrir þau lönd, þar sem þróun er allra skemmst á veg komin. Þar er meðal annars að finna hvatningu til þeirra ríkja, sem nú veita efnahagsaðstoð, að tvöfalda að- stoðina „svo fljótt sem verða má“ til allra fátækustu landanna. Á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna árið 1970 var samþykkt sem meginregla, að þau ríki, sem veita svona aðstoð skuli stefna að því að hún verði 0,7% af brúttó þjóðartekjum. Enn skortir veru- lega á að iðnríkin hafi náð þessu marki, hvort sem litið er á málið í heild eða framlög einstakra ríkja. Þetta á meira að segja ekki hvað síst við um fjölmennustu og auð- ugustu löndin. En nú er sem sagt verið að hvetja þau til þess að tvöfalda aðstoð sína við allra fátækustu löndin. Þetta og önnur viðfangsefni ráðstefnunnar, — þar á meðal eitt meginefnið, kerfisbreytingar á sviði alþjóðaviðskipta til þess að greiða götu nýskipunar efna- hagsmála í veröldinni, mun aftur og aftur verða til umræðu á komandi árum. Ætlunin er samkvæmt niður- stöðum Manila ráðstefnunnar að gera veg UNCTAD í þeim viðræð- um meiri en verið hefur fram til þessa. En nú næstu- árin munu þróunarlöndin, m.a. í beinu fram- haldi af umræðunum í Manila freista þess að auka mjög innbyrð- is skipti á tækniþekkingu. Vonir og raun- veruleiki Oft er það svo, að menn binda alltof miklar vonir við alþjóðlegar ráðstefnur á borð við UNCTAD ráðstefnuna í Manila. Þetta er kannski ekki hvað síst fjölmiðlum að kenna. Þegar þessi mál eru hugleidd eftir á í ró og næði (hver sem í hlut á) þá geta menn áreiðanlega fallist á, að þau vandamál, sem til umræðu eru, eru þess eðlis að þess er ekki að vænta að þau séu leyst til hlítar á skömmum tíma. Hvað UNCTAD V viðkemur þá er vissulega mikilvægt að hafa í huga, að fjölmörg flókin mál voru rædd, og ákveðið var að halda áfram að ræða þau og kanna. Samtölin milli suður og norður- hvels eru ekki hljóðnuð, heldur standa þau sem næst. Vera má að ýmsum, sem fylgj- ast með svona ráðstéfnum þyki nóg um skæklatogið, sem þar fer fram, þvargið og þrasið, og það sem stundum virðist innafltómt málæði. En eftir á að hyggja geta menn vissulega verið ánægðir með þann jákvæða árangur, sem sann- anlega náðist á ráðstefnu Samein- uðu þjóðanna um viðskipti og þróunar mál í Manila. Jörgen Larsen Upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.