Morgunblaðið - 16.08.1979, Side 17

Morgunblaðið - 16.08.1979, Side 17
Stykkis- hólms- kirkja 100 ára Stykkishólmi, 14. ágúst 1979. AÐALFUNDUR Flóabátsins Baldurs h.f. í Stykkishólmi var haldinn í Stykkishólmi í gær, 12. ágúst. Niðurstöður rekstrarreiknings eru 86.4 millj. og eru helstu gjaldaliðir laun og önnur starfsmannaút- gjöld 41.9 millj. og olia 10 millj. Tekjuliðir eru farm- gjöld 19 millj., fargjöld 9 millj. og framlag úr ríkissjóði 60 millj., en hann er einn hluthafa. A fundinum var rætt um framtíð bátsins og tilhögun. Stjórn Baldurs skipa Friðjón Þórðarson, alþm., Ólafur E. Ólafsson fv. kaupfélagsstjóri, Jóhannes Árnason, sýslumaður Patreksfirði, Nikulás Jensson, Svefneyjum, Halldór Magnús- son, kfstj. Stykkishólmi og Guðmundur Lárusson, Stykkis- hólmi. Vantar fé til nýrrar kirkju- byggingar Nú er verið að mála utan gömlu og vinalegu kirkjuna okkar í Hólminum, enda á hún nú 100 ára afmæli á þessu ári. Hefur Haraldur ísleifsson ver- ið þar aðalframkvæmdamaður og unnið að þessu með oddi og egg. Einnig hafa þau hjónin Kristín og Haraldur unnið mikið í kirkjugarðinum og er hann orðinn mjög smekklegur og fallegur og hefur við þetta tekið miklum stakkaskiptum. Þá skal þess einnig getið að þau hjónin færðu kirkjunni 100 sálmabækur og hólf undir þær við hvern bekk kirkjunnar. Gamli kirkjugarðurinn við Víkurgötu hefur verið sléttað- ur og girtur á ný og hefur Haraldur einnig séð um það ásamt öðrum. Nýja kirkju- byggingin hefur ekkert þokast áfram undanfarið enda vantar fé til þeirrar byggingar. Henni var valinn mjög fallegur staður fyrir ofan Borg og milli hótels- ins og kirkjunnar verður svo sléttaður völlur þar sem fyrir- hugað er bifreiðastæði. Fréttaritari. Ríkisspítalar nú þeg- ar í miklu fjársvelti segir í ályktun frá læknaráði Landspít- alans og rannsókna- stofu Háskólans MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun, sem sam- þykkt var á fundi í læknaráði Landspítalans og rannsókna- stofu Háskólans við Barónsstfg þann 10. ágúst sl. „Almennur fundur í læknaráði Lsp. og RH v/Barónsstíg, haldinn 10.8.79, vill vekja athygli á því, að þær sparnaðarráðstafanir, sem stjómarnefnd ríkisspítalanna hyggst framkvæma skv. kröfum fjármálaráðherra, hafa í för með sér verulegan samdrátt í starf- semi ríkisspítalanna með ófyrir- sjáanlegum afleiðingum. Jafnframt vill læknaráð ítreka það sem kom fram í skýrslum læknaráðs og stjórarnefndar í byrjun þessa árs, að ríkisspítal- arnir eru nú þegar í miklu fjár- svelti." MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1979 17 Iðkar renniflug með stinnum vœngjum Fýllinn er snillingur í svif- flugi. Hann flýgur meö ákveðnum vængtökum, en iökar mjög renniflug meö stinnum vængjum og Þá gjarnan mjög lágt yfir haf- fletinum eöa viö snasir bjargbrúna. Stundum veltir hann sér á fluginu og virðist skemmta sér hiö bezta. Stundum er fýllin kallaöur fugl sjómannsins Dví tímum, dögum og jafnvel víkum saman getur hann fylgt skipi eftir og iöulega er hann fyrsti fuglínn sem boö- ar sjómanninum land fram- undan. Fýllinn er af fýlingaættinni og hefur pví lýsiskirtla sem veita honum m.a. vörn gegn öörum fuglum, en hann get- ur spýtt allhrikalega ef á hann er sótt. Egg fýlsins eru víóa nytjuó enda hió mesta lostæti. Þá hefur unginn verið nytjaður um langan aldur bæði í Vestmannaeyj- um og t.d. í Vík í Mýrdal, en saltaöur eöa reyktur fýll telja peir sem til pekkja einhvern bezta mat sem unnt er aó hugsa sér. Hjá fýlnum eru ríkjandi tvö lita- afbrigói. Einstaklingar Ijósa litaafbrigðisins og einstakl- ingar hins hánorræna dökka litaafbrigðis. Fýllinn er al- gengur um öll norólæg höf og víða er geysimikil mergó af honum. Þótt hann sé algengastur í sæbröttum út- eyjum pá tekur hann einnig heima í björgum langt frá sjó, jafnvel tugi kílómetra inni í landi eins og þekkist hérlendis. Fýllinn á svolítið fjölbreyttan tónaskala, en algengast er rámt gaggandi agg-agg-agg-arrr. —á.j. Með unga sinn I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.