Morgunblaðið - 16.08.1979, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1979
23
Minning:
Kolbeinn Ivars-
son bakarameistari
Fæddur 25. febrúar 1891
Dáinn 7. ágúst 1979.
Kolbeinn ívarsson, tengdafaðir
minn, var fæddur í Hafnarfirði og
voru foreldrar hans ívar Helga-
son, verslunarstjóri frá Flekkuvík
á Vatnsleysuströnd, og kona hans,
Þóra Bjarnadóttir, ættuð úr Hafn-
arfirði. Systkinin, sem upp kom-
ust, voru fimm og eru nú öll
gengin.
Lífsreynslan kom snemma í lífi
Kolbeins. Móður sína missti hann,
þegar hann var 14 ára og elsti
bróðir hans fórst sama ár, 19 ára
gamall, í því hörmulega sjóslysi,
sem varð 16. sept. 1905, er ellefu
ungmenni drukknuðu við land-
steinana á Akranesi, þar af fimm
systkini og þrír bræður.
Þau, sem nú stóðu eftir af
fjölskyldunni, misstu ekki kjark-
inn, en gengu út í baráttu lífsins
góðum hæfileikum búin í trú og
trausti til Hans, sem hamingju
gefur og högum ræður.
Árið 1904 réðst Kolbeinn til
náms í bakaraiðn hjá Bernhöft.
Bakaríið var þá enn í hinu fræga
húsi við Bakarabrekkuna, nú
Bankastræti.
Hann lauk námi 1907. Á árun-
um 1909 til 1913 starfaði hann að
iðn sinni hjá Haraldi Böðvarssyni
á Akranesi. Hinn 12. júní 1912
kvæntist hann Ingibjörgu Gísla-
dóttur úr Reykjavík og hófu þau
búskap sinn á Akranesi. Árið eftir
eignuðust hjónin son, sem dó
skömmu eftir fæðingu. Eftir þann
viðburð festu þau ekki yndi á
Akranesi, en fluttu til Reykjavík-
ur og bjuggu í Vesturbænum.
Kolbeinn réðst þá til starfa hjá
Sveini Hjartarsyni, bakarameist-
ara, og starfaði alla tíð síðan í
Sveinsbakaríi.
Um árabil, eftir að Steinunn,
ekkja Sveins, seldi bakaríið, átti
hann þriðjung í bakaríinu. Kol-
beinn lét ekki að fullu af störfum í
iðn sinni fyrr en hann hafði fjóra
eða fimm um áttrætt. Hann þótti
einn af mætustu bökurum þessar-
ar borgar.
Þau Ingibjörg og Kolbeinn eign-
uðust dóttur árið eftir að þau
fluttust til Reykjavíkur. Hún |
fæddist í Oddgeirsbæ og var skírð
Þóra eftir ömmu sinni. Gleðin hélt
þar með innreið sína á heimilið. j
Rúmum tveim árum síðar fæddist ,
þeim sonur, sem skírður var Ing- '
var Gísli í höfuðið á foreldrum
móðurinnar og voru þá óskabörnin
komin. Eftir þetta eignuðust þau
þrjár dætur, Gyðu, Jóhönnu Svövu
og Ingibjörgu, en síðastur í röð-
inni varð svo sonur þeirra, ívar.
Smám saman jókst byrði foreldr-
anna og fyrirvinnan varð að leggja 1
meir og meir á sig, en allt blessað-
ist vel.
Börnin fengu gott og kristilegt
uppeldi því trúrækni var í heiðri
höfð. Þau voru send í sunnudaga-
skóla KFUM og á fundi í þeim
félögum og sjálf sóttu foreldrarnir
þar samkomur og kirkju. Trúar-
traustið entist Kolbeini allt til
hinstu stundar.
Kolbeinn naut mikilla vinsælda
hjá samstarfsfólki sínu og var
gleggsti votturinn um það, að það
hafði samband við hann árum
saman eftir að það var hætt að
starfa hjá fyrirtækinu bæði með
heimsóknum og hlýjum kveðjum á
hátíðum og tyllidögum.
Árið 1940 varð Kolbeini þungt
ár. Kona hans hafði misst heils-
una og þjáðist mikið. Og þótt vorið
nálgaðist birti ekki yfir fjölskyldu
hans, því húsmóðirin varð æ
veikari og 2. maí skildi hún við
þennan heim. Þá varð ekki annað
leitað til huggunar en til Drottins,
sem gaf, og Drottinn sem tók. Það
er stórt skarð höggvið, þegar
húsmóðirin er fallin frá og eftir'
stendur syrgjandi faðir og sex
börn. En þá er það elsta dóttirin
Þóra, sem tekur að sér húsmóður-
starfið og heldur áfram uppeldi
yngstu systkina sinna í sama anda
og móðir hennar hafði gert. Þau
halda öll saman heimili við blítt
og strítt og tryggðin og trú-
mennskan eru einkunnarorð
þeirra. Enn kemur sorgin í heim-
sókn, rétt fyrir jólin 1946 deyr ein
systirin Gyða, sem þá átti unga
dóttur, Ingibjörgu Helgu Júlíus-
dóttur. Áður en hún dó hafði hún
falið föður sínum og Þóru systur
sinni að annast þessa litlu dóttur
sína og það var víst, að hún var í
góðri umsjá hjá þeim Kolbeini og
Þóru. Hún var til mennta sett og
skildist ekki við heimilið fyrr en
hún gifti sig og fór að búa á eigin
heimili.
Einn glæsilegasti
einkabíll landsins
Pontiac Bonneville Brougham til sölu á
tækifærísverði
Árgerð 1976, ekinn 33 þús. m. Útlit og ástand
sem nýtt. Litur: Hvítur með rauðum
vinyl-toppi, sjálfskipting, vökvastýri og
-bremsur. Rafknúnar rúöur, huröir og sæti,
sjálfvirk hraöastilling (cruise), dekk nýleg,
stereo-kassettur, útvarp o.fl. Ótrúlega spar-
neytinn. Upplýsingar í símum 42954 og 26611.
Lundarfar Kolbeins var ein-
stætt. Hann var svo ljúflyndur, að
hverjum manni leið vel í návist
hans, ekki síst barnabörnunum og
barnabarnabörnunum, sem leit-
uðu svo mjög til langafa síns.
Alltaf leitaði hann færis að gera
mönnum glatt í geði og hafði á
takteinum gamansamar sögur, en
þær voru græskulausar. Minnugur
var Kolbeinn með afbrigðum og
fékk að halda því meðan hann
lifði.
Mér er minnisstætt hve miklir
kærieikar voru með honum og
systkinum hans. Þau heimsóttu
hann reglulega og hringdu til hans
þess á milli. Þau voru fjögur, sem
náðu háum aldri. Það var líka gott
að heimsækja Kolbein og alltaf
var viðurgerningurinn mikill og
góður, en það sá Þóra dóttir hans
um því allt frá því Ingibjörg kona
hans dó hefur hún þjónað heimili
föður síns að öllu leyti og aldrei
farið frá því. Hún hlynnti að
honum á allan hátt, hjúkraði
honum þegar hann var sjúkur og
létti honum allt í elli hans og nú
síðustu þrjú árin, eftir að hann
komst varla nokkuð óstuddur, þá
kom best í ljós hin fádæma trú-
mennska og umhyggja fyrir föður
sinum. Það veit ég að Kolbeinn
vildi best þakka Drottni fyrir þá
dýrmætu gjöf, sem hann gaf hon-
um í sinni elskulegu dóttur.
Eftir að Kolbeinn var hættur að
vinna nú allra síðustu árin sat
hann gjarnan í stól sínum og las.
Þó var ein sú bók, sem honum var
alltaf næst, en það var Biblían.
Síðasta árið dapraðist sjónin mik-
ið og þá var það eins og hann
notaði síðustu skímuna til þess að
lesa orð í hinni helgu bók. Hann
sagði mér, að hann ætti sínar
föstu bænastundir á hverjum degi
og voru þær aldrei færri en þrjár.
Þá bað hann fyrir öllum sem
honum voru kærir og fyrir kristni-
boðsstarfinu meðal heiðingjanna.
Hann sótti styrk í trúna. Þangað
leitaði hann einnig, þegar eldri
sonur hans, Ingvar, veiktist og dó
fyrir tæpum fjórum árum. Ingvar
hafði haldið heimili með þeim
Þóru og Kolbeini. Þau höfðu búið
saman alla tíð og Ingvar réðst í
það að festa kaup á íbúð fyrir þau
þrjú, en stuttu eftir að gert hafði
verið út um kaup, féll Ingvar frá,
en traust sitt settu Kolbeinn og
Þóra á Drottin, þau trúðu, að
Hann mundi vel fyrir sjá. Eg á
Kolbeini mikið að þakka og minn-
ingin um hann er mér dýrmæt.
Bið ég þess nú, að allir hans
afkomendur megi blessun hljóta
og hann sjálfur hvíla í friði
Drottins og elsku um eilífð alla.
Við komum senn upp til sal^
hæða,/ Hvað sakar þá þótt ferðin
reynist ströng?/ Við öðlumst
kórónu og gnóttir gæða,/ Og
grátur allur snýst í feginsöng. (Fr.
Engelke þýtt.: B.J.).
Sigursteinn Hersveinsson
Stærðir Litur Verð
1 18- ■24 Rautt kr. 9.200
2 18- ■23 Hvítt og dökkblátt kr. 8.700
3 18- -23 Rautt og dökkblátt kr. 1Ö.400 -10.800
4 18- -23 Beige kr. 9.400- 10.800
5 22- -27 Brúnt kr. 7.200- 7.900
6 21- -29 Dökkblátt rúskinn kr. 9.800- 10.900
Austurstræti
sími: 27211