Morgunblaðið - 16.08.1979, Page 28

Morgunblaðið - 16.08.1979, Page 28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. AGÚST 1979 28 Lovísa Sveinsdóttir frá Mœlifellsá Fædd 22. maí 1894. dáin 26. júlí 1979. Lovísa Sveinsdóttir, fyrrum húsfreyja á Mælifelísá, andaðist á Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki 26. júlí s.l. 85 ára að aldri. Lovísa var fædd á Mælifellsá í Skagafirði 22. maí 1894. Móðir hennar var Margrét Þórunn Árna- dóttir Sigurðssonar bónda og gullsmiðs á Starrastöðum í Skaga- firði og víðar; hann var þrígiftur og átti 25 börn. Steinunn Arnórs- dóttir prests á Bergsstöðum Árna- sonar biskups á Hólum var þriðja kona hans og móðir Margrétar. Faðir Lovísu og maður Margrétar var Sveinn Gunnarsson Gunnars- sonar bónda í Syðra-Vallholti Gunnarssonar hreppstjóra á Skíðastöðum í Laxárdal (Skíða- staðaætt). Sveinn var landskunn- ur maður, meðal annars fyrir „Veraldarsögu" sína, tækifæris- visur, verslun o.fl. Lovísa ólst upp í glaðværum systkinahóp á Mælifellsá, en þau voru alls 15. Þormóður Sveinsson segir í Skagfirskum æviskrám: „Heimilið á Mælifellsá var fjöl- mennt, og eftir að börnin komust á legg, ríkti þar glaðværð nóg. Stundum var þá efnt til samkomu- hlads þar, og þóttu „Mælifellsár- böllin“ hin ágætustu." Heimildarmaður Þormóðs er sýnilega faðir hans, Sveinn Eiríks- son, því í bókinni Minningar úr Goðdölum birtir Þormóður bréf frá föður sínum sem þá er við kennslustörf í Lýtisgsstaðahreppi. Bréfið er skrifað á Hömrum 26. febrúar 1905 og þar segir meðal - Minning annars: „Ég fór á skemmtisam- komu sem haldin var á Mælifellsá 30. desember s.l. Ég var þá á Daufá og fórum við þaðan fjórir, ég og bræðurnir þrír. Þar komu eitthvað um fimmtíu manna, og var vakað alla nóttina, og haft til skemmtunar það sem hverjum þótti best, dans söngur og spil“. Þökk sé þeim feðgum fyrir að varðveita þessa lýsingu af böllun- um á Mælifessá á því herrans ári 1905. Mælifellsárheimilið mun hafa verið með þeim allra fjölmennustu í Lýtingsstaðahrepp um aldamót- in. Gunnþórunn Sveinsdóttir, systir Lovísu, segir í bók sinni Gleym-mér-ey sem kom út 1957: „Eitt sumar á Mælifellsá man ég eftir að voru 24 í heimili. Þá. voru 16 nautgripir í fjósi og 200 ær í kvíum“. Það sem skráð er hér að framan, sýnir okkur best í hvaða and- rúmslofti Lovísa ólst upp, og eins hitt að snemma hefur hún þurft að taka til hendi. Lovísa var léttlynd og glaðsinna og hélt uppi hætti feðra sinna þegar hún fór að búa á Mælifellsá. Hún hélt smá veislur og spilaði sjálf á einfalda takkaharmóniku eða munnhörpu og stundum bara á hárgreiðu ef annað brást. Ég kom að Mæli- fellsá sem fósturbarn þriggja ára er faðir minn dó 1923, og man vel þessar gleðisamkomur þar, og þegar Gunnar, sonur Lovísu, komst á legg, kom í ljós að hann var bæði músikalskur og mikill gleðinnar maður og átti sinn þátt í því að „Mælifellsárböllin" féllu ekki niður meðan niðjar Sveins Gunnarssonar voru á Mælifellsá eða fram til ársins 1943. Var þá liðin hálf öld frá því Margrét og Sveinn fóru að búa á Mælifellsá og héldu sínar fyrstu skemmtisam- komur á staðnum. Lovísa giftist 1917 Jóhanni Magnússyni frá Gilhaga (dáinn 8. maí s.l.) og byrjuðu þau búskap í Breiðagerði sama ár, en fluttust að Mælifellsá 1921 og bjuggu þar til ársins 1944 er þau hættu búskap. Búskapurinn á Mælifellsá voru Lovísu á margan hátt erfið, bónd- inn oft að heiman og varð hún að stjórna börnum og búi langtímum saman. Það má segja að á þessum árum hafi skipst á skin og skúrir hjá þeim hjónum. Lovísa var um margra ára skeið afar heilsuveil og ofan á þá erfiðleika bættist að þau misstu dætur sínar tvær á unga aldri og reyndi þá mjög á þrek móðurinnar. Lovísa var kjarkmikil kona, sem hún átti kyn til, og þurfti mikið á því að halda um æfina. Má nefna Gunnar sonur hennar lamaðist ungur að árum, og sonarsonur hennar einnig. Við þessum erfið- leikum brást Lovísa með æðru- leysi, og óbilandi kjarki svo að einstakt var, og létti þeim lífskjör- in með ráðsnilld og dugnaði. Fórnfýsi hennar og hetjulund vöktu bæði undrun og aðdáun þeirra sem til þekktu. Lovísa var smávaxin kona, létt í hreyfingum og hljóp oft við fót. Henni veittist létt að vinna þó lítil væri. Hún var handlagin og saumaði mikið, þó hún væri ólærð í saumalistinni, voru afköstin með ólíkindum, mikil og góð. Eftir að Lovísa og Jóhann hættu búskap, fluttu þau hjónin að Varmalæk og áttu þar heimili. Þó var Jóhann þar lítið því hann vann hér og þar, en Lovísa hélt heimili og rak verslun um nokkra ára skeið eftir að Gunnar, sonur hennar, fluttist til Reykjavíkur M. árið 1954. Árið 1961 fluttist Lovísa til Reykjavíkur og héldu þau hjónin heimili þar til 1971, að þau fluttu aftur að Varmalæk og voru þar í skjóli Sveins, sonar þeirra, og konu hans, Herdísar Björns- dóttur, uns yfir lauk, en héldu þó heimili sjálf til áramóta 1978. Þau Lovísa og Jóhann áttu saman fjögur börn. Elst barna þeirra var Gunnar, fyrrum bóndi og verslunarmaður á Varmalæk, giftur Þuríði Kristjánsdóttur frá Hamragerði. Þau áttu saman 8 börn, 6 syni og 2 dætur. Gunnar lést 9. jan s.l. Næst var Margrét Helga sem dó atþriðja ári. Þriðji í röðinni er Sveinn bóndi og kaup- maður á Varmalæk, giftur Herdísi Björnsdóttur frá Stóru-Ökrum. Þau eiga 6 börn, 4 syni og 2 dætur. Fjórða barn þeirra Mælifellsár- hjóna var Helga Margrét, sem dó er hún var vöggubarn. Fóstursonur þeirra er undir- ritaður, Jóhann Hjálmarsson Jó- hannessonar bónda á Grímsstöð- um, fyrrum bóndi á Ljósalandi í Lýtingasstaðahrepp, nú umsjón- armaður í Menntaskólanum við Harmahlíð, kona María Bene- diktsdóttir frá Óspakseyri í Strandasýslu, eigum 8 syni. Barnabörn okkar fóstbræðr- anna eru 26 eftir því sem næst verður komist. Lovísa var sínu fólki góð og mikill vinur vina sinna. Hjálpsöm var hún og greiðvikin og gestrisin svo af bar. Hún var mikil trúkona og treysti á æðri máttarvöld til að leysa hin erfiðustu vandamál sem mannlegar verur fá lítt við ráðið. Bænheit var hún og treysti á mátt bænarinnar. Hún var forlagatrúar og áleit að hverjum manni væri ætlað sitt lífsmunstur, sem ekki yrði út af brugðið. Nú er þeim farið að fækka úr hinum glaðværa systkinahóp frá Mælifellsá, sem settu svo sterkt svipmót á samtíðina á fyrri helm- ingi þessarar aldar, eftir lifa aðeins þrjú af fimmtán systkinum í hárri elli, Sigurlaug, fyrrum húsfreyja í Hlíð í Hörðudal, komin á tíræðisaldur. Hin eftirlifandi systkynin eru Ólafur, fyrrum kaupmaður í Reykjavík, og Hersilia, fyrrum skólastjóri í Steinsstaðaskóla í Skagafirði. Þessu heiðursfólki og Stefönu, konu Ólafs, sendi ég og kona mín sérstakar samúðar- og vinarkveðj- ur. Þessum minningarorðum vil ég svo ljúka með þakklátum huga og innilegum samúðarkveðjum frá mér og minni fjölskyldu til fjöl- skyldanna á Varmalæk og barna- börnum fóstru minnar og annarra ástvina hennar. Blessuð sé minning hennar. Jóhann Hjálmarsson frá Ljósalandi. + Hjartkaer kona mín, móöir okkar og amma KRISTÍN JÓNSDÓTTIR, frá Austur-Meðalholtum, til heimilis aö Langholtsvegi 164, veröur jarösungin frá Langholts- kirkju föstudaginn 17. ágúst kl. 1.30. Árni Egilsson, börn og barnabörn. Móöir okkar, + SIGRÚN S. BJARNAR, Kvisthaga 11, veröur jarösungin frá Fríkirkjunni föstudaginn 17. ágúst kl. 3 síödegis. F.h. vandamanna. Vílhjélmur Bjarnar, Þorsteinn Bjarnar, Sigríöur Bjarnar. Faöir okkar, tengdafaöir og afi, ÓLAFUR BJARNIÓLAFSSON vélstjóri, frá Nýja Bœ, Tálknafiröi síöast til heimilis aö Ægisgötu 10, Reykjavík er lést 9. agúst veröur jarðsunginn föstudaginn 17. ágúst kl. 15 frá Fossvogskirkju. Ólafur A. Ólafsson, Guóný Siguröardóttiir, Þorbjörg J. Ólafsdóttir, Bragi Bergsveinsson, Þórdis Ólafsdóttir, og barnabörn. t Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og jaröarför konu minnar, dóttur, móöur, tengdamóöur og ömmu, KRISTÍNAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Trönuhólum 14, Reykjavik. Sérstakar þakkir viljum viö færa læknum og hjúkrunarfólki gjörgæzludeildar Landakotsspitalans fyrir frábæra umönnun. Páll Krístinsson Guórún Helgadóttir, Helga Pálsdóttir, Þórir Eyjólfsson, Kristinn Pálsson, Geröur Siguröardóttír og barnabörn. Valur J. Hinriks- son—Minning Fæddur 13. júlí 1924 Dáinn 4. ágúst 1979 Hann Valur dáinn. Stundum er sannleikurinn svo ótrúlegur að það tekur langan tíma að skilja hann til fulls. Svo sannarlega var því þannig farið með okkur hjónin þegar við fréttum að þessi vinur okkar hefði hnigið niður án nokk- urs fyrirvara aðeins 55 ára gamall — maður, sem bókstaflega ljóm- aði að hreysti og karlmennsku. Kynni okkar af Val og fjöl- skyldu hans eru jafngömul hjóna- bandi okkar eða svo til nákvæm- lega 10 ára, og'hófust þegar við fluttum í húsið Hörðaland 15, sem þau voru þá nýflutt í. Við fundum strax að Jiér var fyrir sérlega ástrík og elskuleg fjölskylda, sem tók okkur, og síðar sonum okkar, opnum örmum og hafa þau tengsl lítt rofnað, þó ekki sé lengur um sambýli að ræða. langar til að þakka honum fyrir allar samverustundirnar sem við áttum með honum. Að eðlisfari var Válur léttur í lund og alltaf tilbúinn að glettast. Með orðum sínum og látbragði sem honum einum var lagið kom hann okkur iðulega til að hlæja. Alltaf var heimili hans, Láru og Gísla opið okkur og þar höfum við átt margar ánægjustundir. Þau voru ætíð boðin og búin að gera hvað sem var til að gleðja okkur. Stundum fengum við systurnar að gista hjá þeim og var þá alltaf glatt á hjalla, því Valur með sinni einstöku kæti gerði allt til að gera þessar stundir ógleymanlegar. Því Valur hafði gaman af að gantast við okkur þar til við grétum af hlátri. Er við minnumst þessara góðu stunda með Val er ótrúlegt að hugsa sér að þær verði ekki fleiri. Við vitum að Vals mun vera sárt saknað af öllum sem hann þekktu. Við þökkum Vali fyrir allt og minnumst hans með söknuði. Guð gefi Láru frænku og Gísla styrk í sorg þeirra. Blessuð sé minning hans. Olga, Hrönn, Lilja og Lára. Valur var oft langdvölum að heiman vinnu sinnar vegna, en alltaf hlökkuðu Lára og Gísli jafn mikið til endurfundanna og svo var áreiðanlega líka um Val. Betri heimilisföður er vart hægt að hugsa sér og verða minningarnar um allar góðu samverustundirnar gott veganesti fyrir einkasoninn Gísla og styrkur Láru okkar á þungbærum stundum. við þökkum af alhug góð kynni. Guð gefi Val frið og veiti Láru og Gísla styrk um ókomin ár. Ásdís og Gunnar Waage. Það er ótrúlegt, að Valur, sem við sáum fyrir örfáum vikum, hressan og kátan að venju, sé horfinn frá okkur. Við eigum erfitt með að sætta okkur við að eiga ekki eftir að njóta samvista við hann oftar í þessu lífi. Okkur systrunum í Hlégerði Samkoma helguð Pétri Pálssyni Nokkrir herstöðvaand- stæðingar gangast fyrir samkomu í minningu Péturs Pálssonar, sem lést fyrir skömmu, fimmtudag- inn 16. ágúst. Samkoman verður í Stúdentaheimilinu við Hringbraut og hefst hún klukkan 21.00. Pétur mun þekktastur fyr- ir tóngerð sína við Sóleyjar- kvæði Jóhannesar úr Kötlum og verður sungið úr þeim á samkomunni. Ennfremur verða flutt ljóð úr Herfjötri auk óbirtra ljóða og laga eftir Pétur, m.a. lög við ljóð Jónasar Svafárs. Lesið verð- ur úr Sköpunarsögu er Pétur vann að síðustu árin og fluttur kafli úr revíu, sem ekki hefur áður verið flutt. Einnig verður flutt stef eftir Guðmund Ingólfsson, samið í minningu Péturs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.