Morgunblaðið - 16.08.1979, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 16.08.1979, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1979 Minning: Ogmundur Jóns- son verkfrœðingur Fæddur 18. desember 1910. Dáinn 30. júní 1979. Ögmundur Jónsson verkfræð- ingur andaðist aðfararnótt hins 30. júní s.l. af hjartaslagi. Andlát hans bar óvænt að. Daginn áður hafði hann gegnt prófdómara- störfum í Háskólanum og tekið þátt í fagnaði vegna 50 ára stúd- entsafmælis með bekkjarsystkin- um sínum úr Menntaskólanum án þess að neitt óvenjulegt væri að merkja. Útför hans fór fram 9. júlí s.l. Er þar horfinn á braut mikill drengskaparmaður og að mati þess, er þetta ritar, einn lærðasti maður í grein sinni úr hópi ís- lenskra verkfræðinga. Ögmundur Jónsson fæddist 18. desember 1910 í Reykjavík. For- eldrar hans voru Jón Guðmunds- son yfirkjötmatsmaður og kona hans Helga Einarsdóttir. Jón Guð- mundsson var ættaður af Austur- landi; foreldrar hans voru Guð- mundur Jónsson af Jökuldal og kona hans Valgerður Hallsdóttir. En Helga, móðir Ögmundar, var dóttir Einars Ingimundarsonar smiðs á Eyrarbakka og konu hans Guðlaugar Guðjónsdóttur. Áður en Helga giftist Jóni hafði hún verið gift Ögmundi Gíslasyni bónda í Laugarási í Biskupstung- um en misst hann eftir skamma sambúð. Dóttir þeirra (og hálf- systir Ögmundar Jónssonar) er Steinunn Ögmundsdóttir hjúkrun- arkona, kona Ólafs Pálssonar mælingafulltrúa. Þau Jón og Helga, foreldrar Ögmundar Jóns- sonar bjuggu lengst af á Berg- staðastræti 20 hér í Reykjavík og voru vel metnir borgarar meðal samtíðarmanna sinna. Jón andað- ist árið 1952 en Helga 1969, og vantaði þá þrjú ár í hundrað. Snemma komu í ljós ágætar gáfur hjá Ögmundi og mun tæpast annað hafa komið til mála í uppvexti hans en að hann gengi menntaveginn, enda var hann námfús í besta lagi. Hann tók stúdentspróf frá stærðfræðideild Menntaskólans í Reykjavík vorið 1929 með mjög góðum árangri og sigldi þá um haustið til Þýska- lands til að nema verkfræði. Hann lauk fyrrihlutaprófi í byggingar- verkfræði við Tækniháskólann í Darmstadt haustið 1932 en fluttist síðan í Tækniháskólann í Berlín. Þar tók hann lokapróf í bygging- arverkfræði árið 1937. Ögmundur fór óhikað nýjar slóðir í námi sínu. Þegar hann fór í stærðfræðideild Menntaskólans, var sú deild aðeins fárra ára gömul og í hana fóru aðeins 8—10 nemendur úr hverjum árgangi. Svo ótrúlegt sem það virðist nú, þótti flestum stærðfræðideildin ekki henta öðrum en hálfgerðum sérvitringum og alls ekki kven- fólki. Að þessu kvað svo rammt á þessum árum, að sumir af virtustu kennurum skólans héldu uppi harðri gagnrýni í ræðu og riti á þessa nýjung að láta stærðfræði, eðlisfræði og efnafræði taka hluta af þeim sess, sem latína og enska höfðu skipað í náminu. Þeir óttuð- ust um framtíð íslenskra mennta- mála af þeim sökum. Fram til 1925 höfðu nær allir íslenskir verkfræðingar sótt menntun sína til Norðurlanda, langflestir til Tækniháskólans í Kaupmannahöfn. En upp úr því fóru íslenskir stúdentar einnig að leita til tækniháskólanna í Þýska- landi, og var Ögmundur Jónsson meðal hinna fyrstu, er það gerðu. Ýmsir hinna eldri verkfræðinga létu sér fátt finnast um þessa nýbreytni. En nú er talið, að tæknimenningu okkar sé styrkur að því að verkfræðimenntunar hafi verið leitað til margra þjóða. í námi sínu var Ogmundur jafnvígur á allt, en áhugi hans í háskólanáminu beindist þó öðru fremur að vatnsvirkjun og burðar- þolsfræði, og á þeim sviðum áttu flest störf hans eftir að verða. Að háskólanámi loknu vildi hann afla sér starfsreynslu á erlendum vett- vangi áður en heim til íslands væri snúið. Hann réðst því árið 1937 til starfa hjá þýsku ráðgjafa- fyrirtæki, Ingenieurbúro Johannes Schuster í Berlín, og vann þar við reikninga og hönnun á brúm fyrir bílabrautirnar þýsku og á verksmiðjubyggingum. í Berlín var hann, þegar heims- styrjöldin síðari braust út haustið 1939 og komst þá ekki brott frá Þýskalandi. Á námsárunum varð Ögmundur fyrir þeirri ógæfu að veikjast af berklum. Það var mikið áfall, því að á þeim tíma voru engin góð ráð gegn þeirri veiki, og lagði hún að velli margt fólk, ungt ekki síður en gamalt. Hann tafðist um tvö ár í námi af þeim sökum. En árið 1942 þurfti Ögmundur á ný að fara á heilsuhæli og fluttist þá frá Berlín til Davos í Sviss, þar sem hann dvaldi fram yfir styrjaldarlok. Við veikindum sínum brást ög- mundur af mikilli karlmennsku. Hann lét einskis ófreistað til að sigrast á þeim. Það tókst honum, þótt sá sigur væri dýr. En í öllu atferli sínu síðar varð hann að taka tillit til þessa og hann beitti sig miklum aga í því efni, sem fáir vissu gjörla um, því að hann hafði þá hluti lítt á orði. Að heimsstyrjöldinni lokinni fluttist Ögmundur heim til ís- lands árið 1945 og hafði þá dvalið erlendis að mestu í 16 ár. Hann réðst 1946 til Almenna bygginga- félagsins, sem þeir Árni Snævarr og Gústaf E. Pálsson höfðu stofn- að árið 1941, en það var fyrsta verkfræðilega verktakafyrirtækið, sem stofnað var hér á landi. Ögmundur vann hjá ABF til árs- ins 1969, er félagið hætti störfum. Starfsemi Almenna bygginga- félagsins var í aðalatriðum á tveim sviðum: verktakastarfsemi og verkfræðileg ráðgjafarþjón- usta. Ögmundur starfaði á síðar- talda sviðinu. Hann var yfirverk- fræðingur í verkfræðistofu félags- ins frá 1946 og framkvæmdastjóri hennar frá 1963. Verkfræðistofa ABF hafði með höndum fjölda verkefna, sem Ögmundur vann að ásamt Árna Snævarr, fram- kvæmdastjóra félagsins, og sam- starfsmönnunum á verkfræðistof- unni. Má þar nefna skipulag og hönnun á byggingamannvirkjum síldarverksmiðju Faxa í Örfirsey, áburðarverksmiðjunnar í Gufu- nesi, sementsverksmiðjunnar á Akranesi og kísiliðjunnar við Mý- vatn. Enn má nefna athuganir á möguleikum virkjunar írafoss í Sogi og fyrstu Vestfjarðavirkjan- anna. Með Rögnvaldi Þorlákssyni verkfræðingi gerði Ögmundur athuganir á virkjunarmöguleikum Jökulsár á Fjöllum ásamt frum- hönnun virkjana við Dettifoss og Vígabergsfoss, ennfremur rann- sókn á virkjunarmöguleikum Þjórsár hjá Búrfelli, ofan Tröll- konuhlaups. Á sviði hafnargerðar athugaði Ögmundur möguleika á að gera þurrkví í Reykjavík, í Hafnarfirði og á Patreksfirði og stóð fyrir hönnun á þurrkví við Vatnagarða í Reykjavík. Þá er að geta rann- sóknar á hafnarstæðum fyrir Reykjavíkurborg og hönnun fyrsta áfanga Sundahafnar. Undir stjórn Ögmundar hafði Verkfræðistofa ABF og með höndum verkfræði- störf vegna margra bygginga í Reykjavík, á Selfossi og víðar. Þegar bygging háhýsa hófst í Reykjavík um 1956 fékk bæjar- verkfræðingurinn í Reykjavík Ög- mund til að leggja á ráðin um, hvernig staðið skyldi að reikning- um slíkra húsa gagnvart jarð- skjálftaálagi og að yfirfara burð- arþolsreikninga og uppdrætti þar að lútandi. Þetta mun vera upphaf þess, sem Ögmundur vann að íslenskum byggingarstöðlum, en einkum frá 1969 vann hann mikið á því sviði á vegum Iðntæknistofn- unar íslands, aðallega í samstarfi við dr. Óttar P. Halldórsson. Ávöxtur þessa starfs eru m.a. íslenskir staðlar um steinsteypu, álag á byggingarvirki, jarð- skjálftaálag og hönnun steyptra burðarvirkja. Ögmundur var mjög oft skipað- ur dómari og matsmaður í tækni- legum málum og eignarnámsmál- um og er óhætt að segja, að slík viðfangsefni hafi tekið drjúgt af tíma hans, einkum hin síðari árin. Hann var meðdómari í mörgum málum í borgardómi Reykjavíkur og í matsnefnd eignarnámsbóta. Hann átti m.a. sæti í gerðardómi um vatnsréttindi við Dynjandi og Mjólká í Arnarfirði árið 1961. Eftir að kennslu til fullnaðar- prófs í byggingarverkfræði var komið á fót í Háskóla íslands, var Ögmundur prófdómari í burðar- þolsfræði. Störf Ögmundar einkenndust af mikilli ábyrgðartilfinningu og vandvirkni. Hann lét hvert verk- efni verða sér tilefni til öflunar nýrrar þekkingar. Hann var því sífellt að kaupa nýjar bækur og tímarit og lesa sér til og átti að lokum gott safn fræðirita. Auk verkfræðinnar átti hann sér ýmis áhugamál, sem hann lagði rækt við alla tíð eftir að hann komst á legg. Náttúrufræði var eitt af áhugamálum hans, einkum það sem laut að náttúru íslands. Á því sviði hlaut hann það happ á skólaárum sínum að fara ríðandi með föður sinum í eftir- litsferð umhverfis landið. Slík ferð var mikið fyrirtæki á þeim tíma, þegar ríða þurfti langflestar ár landsins og vegir voru svo ófull- komnir, að ekki var einu sinni bílfært fyrir Hvalfjörð. Er líklegt að þá hafi færri íslendingar verið uppi, sem áttu að baki sér slíka ferð en þeir, sem nú hafa farið umhverfis jörðina. Þessi ferð hafði mikil áhrif á Ögmund. Ögmundur hugsaði og las tals- vert um sögu og heimspekileg efni og hafði til þess ærið tilefni. Hann hafði dvalið í Mið-Evrópu nær samfleytt frá 1929 til 1945 og á þeim tíma höfðu orðið þar meiri tíðindi en á nokkrum öðrum jafn- löngum. Hvernig gat allt þetta skeð? Það er mikil lífsreynsla fyrir þann, sem alist hefur upp við frjálsræði í hugsun, að komast í það að búa í einræðisríki og vandasamt að halda dómgreind sinni sjálfstæðri. Það hygg ég að Helga Sigfúsdótt- ir frá Steins- stöðum -Minning Fædd 12. febrúar 1902 Dáin 2. ágúst 1979 Hún unni fegurðinni í öllum myndum: blómum, ljóðum, söng og ekki síst í samskiptum manna. Hún hafði ótrúlega víða og skarpa yfirsýn yfir þjóðlífið og gat skilið og umgengist fleiri en títt var. Hún var afskaplega fórnfús og í návist hennar leið mönnum vel. Margir munu sakna hennar. Fimmtudaginn 9. þ.m. var Helga Sigfúsdóttir til moldar borin á Akureyri, en hún lést í Landsspítalanum í Reykjavík viku fyrr, 77 ára gömul. Helga átti ættir að rekja til Svarfaðardals. Hún fæddist 12. febrúar 1902 á Krosshóli í Skíðadal. Móðir henn- ar var Soffía Guðrún Þórðardóttir frá Hnjúki og Halldóru Jónadótt- ur Péturssonar frá Holárkoti, en faðir hennar Sigfús Sigfússon frá Krosshóli og Herdísar Jónsdóttur, skagfirskrar ættar. Svo þótti Svarfdælingum sem Herdís væri afburðakona í góðvild og skör- ungsskap. Helga ólst upp með foreldrum sínum, fyrst á Krosshóli, þá í Arnarnesi og síðan frá 1911 að Steinsstöðum í Öxnadal og allt til fullorðinsára. Örlögin vistuðu hana á Völlum í Svarfaðardal 1923—24 og þar kyntist hún verð- andi lífsförunaut sínum. Oft minntist hún prestshjónanna á Völlum, frú Sðlveigar og séra Stefáns, með virðingu og þakklæti sem margir fleiri. Sumarið 1924 var hún kaupakona hjá móður- bróður sínum, Sigurði Þórðarsyni á Egg í Hegranesi, en þaðan lá leiðin í hússtjórnardeild Kvenna- skólans í Reykjavík. Þar lauk hún prófi og það var hennar eina reglulega skólaganga, ef sleppt er barnaskóla. Eftir nokkra dvöl heima á Steinsstöðum fór Helga til Reykjavíkur og var um sinn hjá þeim ágætu hjónum Ársæli Árna- syni bókbindara og útgefanda og Svövu Þorsteinsdóttur, og gat hún þess oft hve þau hjón hefðu verið sér góð. Þegar hér var komið, var hún heitbundin Oddi Jónssyni, er hún hafði kynnst á Völlum. Oddur er Svarfdælingur, fæddur á Hofi, sonur Jóns Stefánssonar og Júlí- önu Hallgrímsdóttur. Hann var glæsimenni, greindur vel og at- orkusamur, skrifaði prýðilega og röskur til allra verka. Að liðinni vistinni hjá Ársæli og Svövu kom Helga aftur á heimaslóðir og giftust þau Oddur 31. maí 1926. Settust þau þá að í Höfn á Dalvík, þar sem Oddur gerðist sjómaður og skósmiður, en smíðina hafði hann numið af Hallgrími bróður sínum. Eftir nokkra dvöl á Dalvík fluttust þau Helga og Oddur til Akureyrar, þar sem þau áttu lengst af heima síðan. Þau bjuggu þó á Steinsstöðum 1942—46, voru í Reykjavík 1963 til að auðvelda tónlistarnám fósturdóttur sinnar og á Víkurbakka í Árskógshreppi dvöldust þau fyrir nokkru tvö sumur og einn vetur án þess þó að flytja þangað lögheimili sitt. Oddur Jónsson er kunnur borg- ari á Akureyri og gengur þar um á meðal okkar kvikur á fæti og beinn í baki þrátt fyrir háan aldur. Kunnastur er hann fyrir það, hvernig hann með einstæðum hætti hefur mótmælt í verki, meðan aðrir fjasa, vitfirringu dýrtíðar eða verðbólgu. Hann fylgir henni ekki eftir, er hann verðleggur vinnu sína vandaða og þjónustu sem fúslega er í té látin. Skammt mun vera síðan gjald fyrir vönduðustu viðgerðir frá hans hendi næmi þriggja stafa tölu. Ung var Helga Sigfúsdóttir væn kona og vel á sig komin, svipfögur og hárprúð, svo að til þess var tekið. Fegurðarsmekks hennar gæti í snyrtilegum klæðaburði. Hún nam orgelleik hjá Magnúsi organista Einarssyni á Akureyri, og orgelið var hennar hljóðfæri, en hún framúrskarandi hljómvís og söngelsk. Þar voru þau Oddur samvalin sem á fleiri sviðum, því að hann er raddmaður góður og mun hafa leikið á strengi. Helga las alla tíð mikið, fylgdist með ljóðagerð og skáldsagna og ræddi oft um þau efni við mig af áhuga. Hún var námgjörn og fróðleiksfús til hinsta dags. Sund lærði hún vel fullorðin, og esperantó var hún að kynna sér fram í andlátið og hafði náð á því allgóðum tökum. Ríkust var hún af kærleika. Hún var alls staðar bætandi og hafði svo gott lag á börnum, svo vandabundnum sem öðrum, að fágætt er. Hún var mjög fjölhæf, hagsýn, sparsöm og nýtin, en jafnframt afskaplega gjöful, greiðvikin, rausnarleg og um- hyggjusöm. Meðan hún gat staðið á fótunum, hlynnti hún að börnum sem veikindi aðstandenda bönn- uðu næga aðhlynningu. Hún var gædd ríkri kímnigáfu, var glað- lynd, rólynd, léttlynd og hrein- lynd. Þótt háar öldur risu kring- um hana, fékk það ekki haggað jafnlyndi hennar og hófstilltri framkomu. Henni lét vel öll rækt- un, kunni lag á blómum og dýrum, og þó lét henni kannski best að rækta það sem gott var í sjálfri henni og öðrum. Hún hafði unnið að mörgu. Hún gjörþekkti íslenskt atvinnulíf til sjávar og sveita af eigin raun, heyskapur og fiskvinnsla var henni hvort tveggja jafn tamt. Afmœlis- og minningargreinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.