Morgunblaðið - 28.09.1979, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1979
Stöðugir fund-
ir um fiskverð
YFIRNEFND verðlagsráðs sjáv-
arútvegsins hefur setið á stöðug-
um fundum að undanförnu og
fjallað um nýtt fiskverð. Voru
fundir í gær og stóð fundur enn kl.
23 í gærkvöld og var ekki lokið er
Mbl. fór í prentun. Fiskverð á að
liggja fyrir eigi síðar en 1. október
auk þess sem brýnt er að ákveða
verðið þar sem oddamaður nefnd-
arinnar, Jón Sigurðsson forstjóri
Þjóðhagsstofnunar, er á förum
utan með Svávari Gestssyni við-
skiptaráðherra á fundi.
Metfjöldi farþega
með DC-10 í ágúst
RÚMLEGA 4,6 milljónir farþega
flugu með DC-10 breiðþotum í
eigu flugfélaga víða um heim í
ágúst 1979. Er þetta metfjöldi á
einum mánuði — 400 þúsund
farþegum fleira en í fyrra met-
mánuði, sem var í marz 1979,
segir í fréttabréfi Flugleiða og
samsvarar þetta því að 150 þús-
und farþegar að meðaltali hafi
ferðast með DC-10 vélum á degi
hverjum.
Frá því vélarnar voru teknar í
notkun árið 1971 hafa þær flutt
alls 233 milljónir farþega, en til
eru nú 283 vélar af þessari gerð í
eigu 41 flugfélags. Þá kemur fram
í fréttabréfi Flugleiða, að félög
innan vébanda Bandalags evr-
ópskra flugfélaga, m.a. Flugleiðir,
hafa gert samkomulag um að fá
fyrirtæki í Bandarikjunum til að
kanna hvort hugsanlegt sé að
krefjast tjónabóta vegna stöðvun-
ar á flugi DC-10 vélanna sl. sumar.
Sagði Leifur Magnússon hjá
Flugleiðum að könnun þessi
myndi taka alllangan tíma og vart
ljúka fyrr en á næsta vetri.
Byggingars j óður:
Afgreiðsla málsins bíð-
ur fjármálaráðherra
„MALIÐ er í biðstöðu. Vegna
fjarveru fjármálaráðherra var
Svavar utan
á tvo fundi
SVAVAR Gestsson, viðskiptaráð-
herra, er nú á förum til útlanda
og mun hann þar sitja tvo fundi,
fund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins,
sem haldinn verður í Belgrad i
Júgósiavíu, og síðan ráðgjafa-
nefndarfund EFTA í Genf, þar
sem Svavar verður í forsæti.
Svavar sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær, að hann myndi
aðeins hafa eins dags viðdvöl í
Belgrad, þar sem aðalerindið væri
að sitja EFTA-fundinn í Genf.
Með Svavari fara á fundina nokkr-
ir embættismenn.
Þess má geta að þessi ársfundur
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er hinn
fyrsti, sem haldinn er í landi, þar
sem kommúnistar fara með völd.
afgreiðslu frestað og mér er
tjáð, að hann sé ekki væntan-
legur til starfa aftur fyrr en 7.
október,“ sagði Magnús H.
Magnússon félagsmálaráð-
herra, er Mbl. spurði hann
eftir ríkisstjórnarfund í gær,
hvað liði afgreiðslu á tillögum
hans varðandi útvegun f jár til
byggingarsjóðs.
Magnús sagði, að féð ætti að
öðru jöfnu ekki að koma til
útborgunar fyrr en í desember.
„En það er bagalegast með þá
óvissu, sem hlýtur að ríkja
meðan ekki er tekin ákvörðun í
málinu," sagði Magnús.
„Óvissan hlýtur að koma illa við
þá sem eru að byggja og hún
hlýtur líka að hafa áhrif á
afstöðu lánastofnana."
Jónas alþingismaður stjórnar þjóðkór hernámsandstæðinga: „Fyrr var oft í koti kátt“.
Sumir hrópuðu IslandúrNato - hermn burt,
en aðrirlsland íNato - kommar burt
Herstöðvaandstæðingar
funduðu í gærkvöldi fyrir fram-
an lokuð hlið á Keflavíkur-
flugvelli. Um það bil 300 manns
voru samankomnir fyrir utan
aðalhlið vallarins, en mikill
hluti mannfjöldans voru for-
vitnir áhorfendur úr Keflavík
og af höfuðborgarsvæðinu.
Herstöðvaandstæðingar höfðu
nokkurn viðbúnað, m.a. kom á
staðinn sendiferðabifreið hlaðin
kröfuspjöldum og kyndlum.
Fundarhöldin fóru friðsamlega
fram og kyrjuðu menn baráttu-
söngva og í bland ættjarðarlög á
milli þess sem þeir vitnuðu um
afstöðu sína til Nato og veru
varnarliðsins hér.
í lok fundarins hélt mestur
hluti áhorfenda á brott en um
50—100 manns tókst að brjótast
í gegnum vírgirðinguna. Nokk-
urt lið lögreglu kom þá á stað-
inn, en lögreglan hafði kallað til
aðstoðarlið úr Reykjavík, sem
beið átekta inni á vellinum.
Lögreglumennirnir tóku mjög
vægt á „innrásinni", en röðuðu
sér í hálfhring á veginum. Inn-
rásarliðið settist á veginn innan
við hliðið og söng þar undir
stjórn Jónasar Árnasonar alþm.
Fyrsta lagið sem þeir sungu var
„Fyrr var oft í koti kátt“ og
mátti heyra af viðbrögðum
áhorfenda, að mörgum þótti
fyndið að heyra hópinn syngja
sem einn maður „heim í gamla
hópinn minn, heim á fornar
slóðir".
Tveir ungir piltar úr hópi
herstöðvaandstæðinganna kom-
ust inn fyrir girðinguna á meðan
á fundinum stóð. Sátu þeir innan
við girðinguna, en hópur ungra
pilta úr Keflavík sendi þeim
háðsglósur. Gengu þeir síðar upp
á völl þar sem lögreglan tók við
þeim, en skilaði aftur í lok
fundarhalda. Sem dæmi um,
hversu margir komu í öðrum
tilgangi en að mótmæla veru
íslands í Nato má geta þess, að
oft mátti heyra sungið „Island í
Nato — kommar burt“, þegar
herstöðvaandstæðingar hófu
upp raust sína og sungu „ísland
úr Nato — herinn burt“.
Hernámsandstæðingar brjótast inn gegnum girðingarnetin.
r
Ragnar Júhusson útgerðarráósmaður BUR:
Samningurinn var ekki
borinn undir atkvædi
— L ágm ark að f orm aðurinn f ari rétt
með gang mála á fundum útgerðarráðs
„ÞAÐ ER lágmarkskrafa að formaður útgerðarráðs BÚR fari rétt
með það, sem gerist á útgerðarráðsfundum, þegar hann skýrir frá
þeim í fjölmiðlum,“ sagði Ragnar Júliusson, fulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins í útgerðarráðinu. „Björgvin segir bæði í viðtali við
Morgunblaðið í gær og Þjóðviljann að smiðasamningurinn fyrir
Stálvikurtogarann hafi á fundinum í gær verið samþykktur með 7
samhljóða atkvæðum. Hið rétta er að hann var aldrei borinn upp.“
Ragnar Júlíusson sagði, að
aðeins hefði verið borið upp og
samþykkt erindi bréfs Fisk-
veiðasjóðs, sem dagsett hefði
verið 25. september. Þegar til
tals kom að bera undir atkvæði
bréf Fiskveiðasjóðs kvaðst
Ragnar hafa mótmælt því og
lýst þeirri skoðun sinni að það
væri ónauðsynlegt, þar sem tog-
arasmíðin við Stálvík hefði verið
samþykkt 29. janúar síðastliðinn
og bréfið afleiðingu hans. Samn-
ingurinn var því aldrei borinn
upp á útgerðarráðsfundi BÚR í
gær, — sagði Ragnar Júlíusson.
Þá lýsti Ragnar Júlíusson
furðu sinni á þeim ummælum
Björgvins Guðmundssonar í
Morgunblaðinu, að hann myndi
ekki, hvort umburðarbréf LÍÚ
hefði verið tekið fyrir á útgerð-
arráðsfundi. Það hefði aldrei
verið gert, þrátt fyrir að bréfið
væri mikið innlegg í mál, sem
varðaði 4ra til 5 milljarða króna
fjárfestingu fyrir Reykjavíkur-
borg. Um það atriði í máii
Björgvins að frá umburðarbréf-
inu hefði verið skýrt í blöðum —
sagði Ragnar, að það afsakaði
ekki framferði formannsins, út-
gerðarráðsmenn ættu að fá upp-
lýsingar frá stjórnendum fyrir-
tækisins um mál er vörðuðu hag
þess, en ættu ekki að þurfa að
lesa um þau í fjölmiðlum.
Hverfandi truflun
af æfingum Nató
UM ÞESSAR mundir standa yfir
æfingar á vegum Nato austur af |
íslandi og á svæðinu milli Fær-
eyja og Noregs og þar sem
æfingar þessar snerta íslenzkt
flugstjórnarsvæði hafa átt sér
stað viðræður milli fulltrúa Nato
og íslenzkra flugmálayfirvalda.
Guðmundur Matthíasson deild-
arstjóra hjá flugmálastjóra sagði í
samtali við Mbl. að Nato hefði
jafnan samband við íslenzk flug-
yfirvöld þegar að þessum æfingum
kæmi þar sem þær næðu inn' á
flugstjórnarsvæðið og sagðist
hann í viðræðum við fulltrúa Nato i
hafa reynt að gæta hagsmuna
innlendra flugsamgangna og væri
svo um hnútana búið að þessar
æfingar trufluðu ekki íslenzka
flugumferð.
Hugsanlegt væri að þær gætu
haft áhrif á blindflug til Norð-
fjarðar, en það væri hverfandi og
ætti ekki við þá daga sem áætlun-
arferðir eru þangað. Sagði Guð-
mundur að frétt Þjóðviljans í gær,
þar sem haldið er frám að æf-
ingarnar trufli mjög íslenzka flug-
umferð, væri ekki rétt og rang-
hermt væri þar að bandaríska
herstjórnin á íslandi gæfi út
tilskipanir um þessi mál, þau
væru ákveðin á sameiginlegum
fundum, svo sem áður kemur
fram. ---------------
Eggjaverðið var
heildsöluverð
RANGHERMT var í blaðinu í gær að
hvert kíló af eggjum hækkaði í
smásölu úr 1090 í 1300 krónur. Þarna
var átt við heildsöluverð og kostar því
hvert kíló af eggjum í heildsölu
samkvæmt verðskráningu Sambands
eggjaframleiðenda nú 1300 krónur.
Ekkert fast smásöluverð er á eggjum
en kaupmönnum er heimilt að leggja
allt að 31% ofan á heildsöluverðið.
Síldveidin
UM 1200 tunnur síldar bárust á land
í Höfn í Hornafirði í gær og er það
mun minni afli en í fyrradag þegar
veiddust um 5.400 tunnur. Hæsti
báturinn var með kringum 200
tunnur, en margir með um 50
tunnur. Saltað var allan daginn enda
hafði ekki verið lokið við aflann frá
deginum áður og var einnig fryst
nokkuð.