Morgunblaðið - 28.09.1979, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1979
11
Athugasemdir
vid grein Richards B jörgvins-
sonar um ósiðsamleg vinnubrögd
bæ jarf ulltrúa í Kópavogi
í grein sem Richard Björg-
vinsson ritaði í Morgunblaðið 27.
sept. s.I. tekur hann til meðferð-
ar launagreiðslur Kópavogs-
kaupstaðar til mín. Þykir mér
rétt að bæta því við sem Richard
lét kjurt liggja.
Bæjarstjórnarlaun
Það vekur furðu mína að
Richard Björgvinsson bæjar-
ráðsmaður í Kópavogi skuli ekki
hafa fyrir því í annars ágætri
grein að kynna sér staðreyndir
þessa máls, sem snýst um það
hvort ég hafi vélað fé út úr
Kópavogskaupstað af ásettu
ráði, með því að þiggja bæjar-
stjórnarlaun án þess að hafa
setið fundi.
Hið rétta er að ég reyndi hvað
eftir annað að fá þessar greiðsl-
ur stöðvaðar, bæði hjá fyrrver-
andi bæjarritara svo og hjá þeim
sem nú hefur tekið við störfum.
Þegar svo málið var til lykta
leitt kom í ljós að enn ein
greiðsla hafði verið bókfærð á
mig og dregin frá ógreiddum
útsvörum. — Allan þann tíma
sem mér voru greidd þessi laun
sagði mér bæjarritari, sem hefur
með þessi mál að gera, að mér
bæri að taka þau. Það eru að
sjálfsögðu mín mistök að sýna
þarna ekki fyllstu hörku við að
fá launagreiðslur þessar stöð-
vaðar. Við lyktir málsins end-
urgreiddi ég að sjálfsögðu bæj-
arsjóði féð sem nam þá orðið 187
þús. kr. Vil ég biðja velvirðingar
á því að hafa orðið á þessi
mistök, og þakka Richard
Björgvinssyni fyrir að taka mál-
ið upp, þótt að sjálfsögðu hefði
mátt tina til fleiri dæmi um
afglöp af þessu tagi hjá Kópa-
Ásmundur Ásmundsson.
vogskaupstað, bæði gömul og
ný.
Starfsmat
Síðar í grein sinni víkur Rich-
ard að því að samningur, sem
bæjarráð fól bæjarritara að gera
við mig vegna vinnu við starfs-
mat, hafi verið óeðlilegur. Hvað
sem því svo líður þykir mér það
heldur seint í rassinn gripið af
hálfu Richards að kvarta yfir því
nú. Hefði hann betur fylgst með
og gert sínar athugasemdir
strax.
Fyrir mér horfði málið þannig
við að þar sem um töluvert mikla
vinnu var að ræða, sem átti að
fara fram á venjulegum vinnu-
tíma þá taldi ég ekki óeðlilegt að
fara fram á að fá greitt fyrir
hana það sama og ég annars fæ
fyrir mín störf sem verkfræðing-
ur. Var mér sama hvort formið
yrði á því haft, að ég þægi laun
og Kópavogskaupstaður bæri af
því allan kostnað, eða þá að um
útselda vinnu væri að ræða þar
sem allur kostnaður atvinnurek-
andans félli á mig. Bæjarritari
taldi síðari kostinn „eðlilegastan
og einfaldastan". Síðar var fall-
ist á 6000 kr/klst sem útselda
vinnu og er það töluvert undir
gildandi töxtum, enda tekið tillit
til aðstæðna.
Richard telur nú að réttara
hefði verið að semja um laun en
ekki útselda vinnu, og að þau
laun hefðu átt að vera 3450
kr/klst í upphafi. Þessi afstaða
hefði betur komið fram strax í
upphafi enda skynsamleg og
hefði hentað mér hreint ágæt-
lega.
27. 09. ’79
Með þökk fyrir birtinguna.
Ásmundur Ásmundsson.
/
A annað hundr-
að félagsmenn í
„Fimum fótum,,
Stofnað var í Reykjavík sl.
vor félag er hlaut nafnið „Fim-
ir fætur“ og er tilgangur þess
að efla áhugamennsku um
dansmennt. Stendur félagið
fyrir dansæfingum þar sem
einkum eru iðkaðir gömlu
dansarnir svo og
samkvæmisdansar.
Félagar hafa einir aðgang gegn
framvísun félagsskírteinis, en
þeim sem áhuga hafa á dans-
mennt og fella sig að lögum
félagsins er heimil innganga. Varð
félagið til vegna takmarkaðs
framboðs á viðunandi aðstöðu til
dansiðkunar. „Fimir fætur“ héldu
fyrir skömmu aðalfund sinn þar
sem rædd voru félagsmálin og
kjörin ný stjórn, sem skipa: Guð-
mundur Guðjónsson oddviti, Sig-
rún Jónatansdóttir tónlistarvelj-
ari, Sigrún Marinósdóttir ritari,
Magnús Ásgeirsson fjárhaldsmað-
ur, Kristín Jónsdóttir, Einar
Einarsson og Ásmundur Leifsson,
Hreggviður Jónsson og Birgir
Strandberg voru kjörnir endur-
skoðendur. Félagsmenn eru hátt á
annað hundrað og eru æfingar um
það bil mánaðariega.
Heyskorturinn á Norð-Austurlandi:
Fóðureiningin 240
krónur eftir flutn-
ing frá Suðurlandi
Fódurbætirinn kostar 125 krónur
BÚNAÐARFÉLAG íslands, sem fer með yfirstjórn
forðagæzlunnar í landinu hefur nú sent öllum oddvitum
á þeim svæðum landsins þar sem heyskap er lokið ósk
um að þeir geri forðagæzlunni grein fyrir heyfeng í
sveitum sínum fyrir 7. október n.k. Nær þessi athugun
til Suðurlands, Vesturlands og Vestfjarða og að sögn
Gísla Kristjánssonar, sem hefur yfirumsjón með
forðagæzlunni hjá Búnaðarfélaginu, er með þessu verið
að kanna hversu mikill heyfengur er á einstökum
bæjum á þessu svæði og hvort unnt sé að fá þar hey til að
flytja á svæði, þar sem heyfengur er ekki nægur.
Sjálfur sagðist Gísli ekki hafa
trú á því að mikið hey fengist á
Suðurlandi nema hvað vitað væri
að heyfengur bænda í Skaftafells-
sýslum væri góður. Annað væri og
að þótt eitthvað hey fengist yrði
hver fóðureining í því orðin
óheyrilega dýr, þegar búið væri að
flytja heyið frá Suðurlandi til
Norð-Austurlands. Nefndi Gísli að
ef heykílóið fengist á 70 krónur
kostaði hver fóðureining 140 kr. og
að viðbættum flutningskostnaði,
sem vart yrði undir 100 krónum á
fóðureiningu, væri fóðureining í
heyinu komin upp í 240 kr. Erlend-
ar fóðurblöndur fengjust hins
vegar á 125 kr. fóðureiningin.
Tonnið af graskögglunum er nú að
sögn Gísla selt á 115 þúsund við
verksmiðjuvegg en gert er ráð
fyrir að það hækki á næstunni.
Hvað sem þessu liði sagði Gísli
að hjá þeim bændum, sem ekki
hefðu náð inn tuggu eða sáralitlu,
væri ekki um annað að ræða en
farga bústofninum eða kaupa að
hey, því að sauðfé og kýr þyrftu
ákveðið lágmarksheyfóður til að
jórtra ættu þær að lifa. Sagðist
Gísli ekki vilja ráðleggja bændum
að gefa sauðfé undir % af venju-
legu heyfóðri þeirra eða að lág-
marki 0,4 fóðureiningar á dag.
Kýrnar þyrftu að fá sitt viðhalds-
fóður til að jórtra eða 4 fóðurein-
ingar á dag.
Nýr söngstjóri
Kvennakórs Suðumesja
KVENNAKÓR Suðurnesja er að
hefja vetrarstarfið. Herbert H.
Ágústsson, sem stjórnað hefur
kórnum frá upphafi, lætur nú af
stjórn hans og við tekur Gróa
Hreinsdóttir.
Gróa er borinn og barnfæddur
Njarðvíkingur. Hún lauk prófi í
kórstjórn við Tónlistarskólann í
Reykjavík í vor. í frétt frá kórnum
segir að ætlunin sé að ráða einnig
reyndan raddþjálfara.
Á dagskrá kórsins eru m.a.
tónleikar fyrir styrktarfélaga og í
undirbúningi er söngför næsta ár.
EF ÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AUGLYSINGA-
SIMINN ER:
22480
Opið til kl. 7
í kvöld og hádegis P0
á morgun "
Austurstræti 22.
Sími frá skiptiborði 85055. *Sjl i|5ii