Morgunblaðið - 28.09.1979, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 28.09.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1979 3 Skattlegri rannsókn skipakaupanna frá Noregi lokið: Baksamningar að upp- hæð 635 milliónir kr. SAMKVÆMT niðurstöðum rannsóknar embættis skattrannsókna- stjóra á skipakaupum frá Noregi fengust upplýsingar um baksamn- inga að upphæð 8,3 milljónir norskra króna eða sem svarar til 635 milljóna islenzkra króna. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar ná þessir baksamningar til 27 skipa af þeim 47 sem keypt voru til landsins á árabilinu 1971 — 1976. Garðar Valdimarsson skatt- rannsóknastjóri sagði í samtali við Morgunblaðið, að kannað hefði verið, hvort kaupendur hefðu gefið upp hærra verð en það raunveru- lega var. Svo reyndist vera og var það gert þannig, að gerður var baksamningur samtímis kaup- samningi. Baksamningurinn var þá þess efnis, að hluti kaupverðs- ins skyldi renna til baka til kaupenda og honum varið til kaupa á ýmsum aukabúnaði til skipsins, til greiðslu fjármagns- kostnaðar og annars í þágu út- gerðarinnar. Ennfremur var um að ræða ýmsar aðrar endurgreiðslur eða afslætti. Rannsókn skattrann- sóknastjóra beindist að því að kanna, hvort þessar greiðslur hefðu í raun gengið til skipsins og útgerðarinnar, eða þá til forsvars- manna kaupenda til persónulegra nota. Að sögn Garðars gáfu kaup ellefu þeirra tuttugu og níu skipa sem um ræðir tilefni til afskipta skattyfirvalda. Kaup á 15 skipum gáfu tilefni til að boða breytingar á framtölum kaupenda eða for- Alfreð Jónsson oddviti i Grímsey afhenti í gærmorgun Gunnari Guðmundssyni hafnarstjóra i Reykjavik og formanni Hafnasam- bandsins veglegan fundarhamar frá nyrstu höfn landsins, en í Reykjavík er nú haldinn aðalfundur Hafnasambandsins. Hamar- inn er gefinn i tilefni af 10 ára afmæli sambandsins. Á myndinni er Alfreð (t.v.) að afhenda Gunnari hamarinn. — Ljósm.: ól.K.M. Hitaveita Akureyrar: Bilun í dælubúnaði frestar tengingum FRESTA hefur orðið tengingum hjá Hitaveitu Akureyrar fyrst um sinn, og stafar þessi seinkun af bilun i dælubúnaði einnar holunnar þegar sandur komst i Flugleidir: Önnur Boeing- þotan væntan- lega leigð til Guatemala NÝLEGA var undirritaður samning- ur milli Flugleiða og flugfélagsins Aviateca í Guatemala um leigu á Boeing 727 þotu til flugs frá Guate- mala City til ýmissa borga í Suður- Ameríku og Bandaríkjunum. Sam- kvæmt þessum samningi, sem undir- ritaður var með fyrirvara um ákveð- in leyfi, munu íslenskar flugáhafnir og íslenskir flugvirkjar fylgja þot- unni suðureftir. Þotan verður stað- sett í Guatemala City, og flýgur þaðan til Miami, Mexico City og væntanlega til New Orleans. Enn- fremur til ýmissa staða í Suður- Ameríku. Leigutíminn er frá 1. nóvember n.k. til 31. janúar 1980. hana og nýjar holur, sem boraðar hafa verið i sumar, hafa ekki gefið viðbótarvatn ennþá. Samkvæmt upplýsingum Gunn- ars Sverrissonar hitaveitustjóra er beðið eftir nýrri dælu til landsins svo og fóðurrörum og verður hægt að hefja tengingar að nýju í október eða byrjun nóvem- ber þegar útbúnaðurinn er kominn til landsins. Gunnar sagði að vatnsnotkunin hefði verið mikil að undanförnu og slæm tíð hefði einnig tafið framkvæmdir og væri vissulega slæmt að þurfa að draga þær fram á vetur. Sagði hann hugsanlegt að semja yrði við neytendur um að halda gömlum kynditækjum sínum í lagi ef grípa þyrfti til þeirra. — Ég vil leggja áherzlu á að menn nýti heita vatnið vel, sagði Gunnar, en alltof mikil brögð hafa verið að því, sérstaklega í fjölbýl- ishúsum, að vatnið fari of heitt út. Höfum við skrifað neytendum og bent þeim á að fá pípulagninga- menn til að yfirfara kerfi sín til þess að nýta megi vatnið sem bezt, en samkvæmt reglugerð á frá- rennslisvatn að vera innan við 45 gráða heitt. svarsmanna þeirra. Eitt mál var sent beint til ríkissaksóknara. Tvö hafa þegar farið fyrir dómstóla og hefur þegar verið dæmt í öðru þeirra, svonefndu Grjótjötuns- máli. Meginhluti fjárins sem um ræð- ir skiptist á 18 skip. Að sögn Garðars má segja almennt, að meginhlutinn hafi runnið til skips og útgerðar og myndað lögmætan skattstofn. Talsverðar fjárhæðir runnu þó til persónulegra nota kaupenda eða forsvarsmanna þeirra. Málinu er ekki lokið þótt skatt- rannsóknastjóri hafi lokið rann- sókninni á hinni skattalegu hlið málsins, 'eftir er að taka fyrir þá þætti, er snúa að öðrum aðilum. Ljóst er að kaupendur skipa sem gáfu upp of hátt kaupverð hafa fengið meiri gjaldeyrisyfirfærslu en þeim bar og hærri lán. Émbætti skattrannsóknastjóra hefur sent Seðlabankanum til- kynningu um kaup á 22 skipum, sem gjaldeyriseftirlitið vinnur nú við rannsókn á. Garðar vildi að lokum taka fram, að þessi rannsókn hefði verið unnin í mjög góðri samvinnu við gjaldeyriseftirlit Seðlabank- ans sem byrjaði á rannsókn máls- ins. Hann sagði að möguleikar á samvinnu þessara tveggja aðila hefðu stóraukist með lagabreyt- ingu 1977 og vænti hann sér mikils af henni. Umferðar- slys á Selfossi ÁTTA ára stúlka slasaðist í fyrradag er hún varð fyrir bíl á Selfossi. Var hún á hjóli og fór út af gangstétt framhjá kyrr- stæðum bíl út á götuna er hún varð fyrir bíl. Hlaut hún meiðsl á höfði og opið beinbrot á fæti. Eftir að- gerð á Selfossi var hún síðan flutt til Reykja- víkur. Nú taka FLUGLEIDIR Lækjargötu 2 og Hótel Esju Sími 27800 URVALI Samvinnuferdir I ú’ v/Austurvöll Sími26900 Landsýn hf. Austurstræti 12 Sími 27077 Austurstræti 17 Sími 26611

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.