Morgunblaðið - 28.09.1979, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1979
5
Söltun í Grindavík:
Síldin er stærri og
betri en var í fyrra
„ÞETTA er svipuð síld
og í fyrra, jafnvel heldur
betri," sagði Ragnar
Magnússon verkstjóri
hjá Gjögri hf. í Grinda-
vík, er Mbl. ræddi við
hann í gær, en þá var
verið að salta úr Kóp,
sem kom með um 750
tunnur í fyrrakvöld.
Ragnar sagði, að hjá
Gjögri væri búið að salta
í rösklega 600 tunnur og
Gunnar Tómasson hjá
Þorbirni hf. sagði Mbl.,
að þar væri búið að salta
í um 400 tunnur.
Fjórar söltunarstöðv-
ar verða í Grindavík og
er stutt í að söltun hefj-
ist hjá Fiskanesi og
Hópsnesi. Kópur er einn
Gjögurbáta byrjaður, en
þeir verða 3, og hjá Þor-
birni hafa tveir hafið
síldveiðar, en verða
fimm.
Sildin er stœrri og betri nú en i fyrra. Ljósm. Mbl. Guðfinnur.
Saltað hjá Gjögri hf. i Grindavik i gær. Ljósm. Mbl. Guðfinnur.
Eggert Jóhannes-
son kjörínn formað-
ur Þroskahjálpar
ANNAÐ landsþing landssam-
takanna Þroskahjálpar var
haldið á Hótel Loftleiðum 22. og
23. september s.l. Þingið sóttu
fulltrúar úr öllum landshlutum
Hinn nýkjörni formaður Þroska-
hjálpar, Eggert Jóhannesson.
en í samtökunum er nú 21 félag
með samtals um 7500 meðlimi.
Sérstakur gestur þingsins var
dr. Peter Mittler prófessor við
Manchesterháskólann, varafor-
seti alþjóðasamtaka þroska-
heftra, og flutti hann erindi um
þátttöku forelda i kennslu og
þjálfun þroskaheftra barna.
Frú Margrét Margeirsdóttir
félagsráðgjafi, sem gegnt hefur
formennsku í landssamtökunum
Þroskahjálp undanfarin 2 ár gaf
ekki kost á sér til endurkjörs en
hún er á förum erlendis í fram-
haldsnám. Voru henni færðar
þakkir fyrir mikið og fórnfúst
starf. Formaður Þroskahjálpar
var kjörinn Eggert Jóhannesson,
Selfossi, en aðrir í stjórn eru Jón
Sævar Alfonsson, Garðabæ, Jó-
hann Guðmundsson, Garðabæ,
Dúfa Sylvía Einarsdóttir, Kópa-
vogi, Bjarni Kristjánsson, Akur-
eyri, séra Gunnar Björnsson,
Bolungarvík, og Svanhvít Páls-
dóttir, Stykkishólmi. í vara-
stjórn eru Sigríður Garðarsdótt-
ir, Reykjavík, Þórhildur Svan-
bergsdóttir, Reykjavík, og séra
Davíð Baldursson, Eskifirði.
Á landsþinginu voru sam-
þykktar ýmsar ályktanir. Lýstu
fulltrúar m.a. ánægju sinni með
setningu löggjafar um málefni
þroskaheftra og þakkaði þingið
öllum þeim sem þar hefðu unnið
gott og mikið starf.
Þingið vakti einnig athygli á
því að enn hefur ekki verið
stofnuð deild sú í félagsmála-
ráðuneytinu sem gert er ráð fyrir
í 3. grein laganna og skoraði því
á ráðherra félagsmála að vinna
að framgangi þessa máls hið
fyrsta. Jafnframt yrði þess
vænst að fullt samráð verði haft
við Þroskahjálp um samningu
þeirra reglugerða er leiða af
setningu laganna og undirstrikuð
var nauðsyn þess að vel yrði til
þess vandað þar sem framkvæmd
laganna er mjög háð því hversu
til tekst um reglugerðarsamn-
ingu.
í öðru lagi skoraði þingið á
fjárveitingarvald og ríkisstjórn
að standa að fullu við lagaákvæði
um verðtryggingu Fram-
kvæmdasjóðs öryrkja og mót-
mælti allri skerðingu á framlagi
til sjóðsins. Þingið beindi því
einig til stjórnar Þroskahjálpar
og væntanlegrar stjórnarnefndar
að þess verði gætt að fram-
kvæmdasjóðum yrði ekki falið að
fjármagna þau verkefni sem
samkvæmt öðrum lögum eiga að
fjármagnast beint úr ríkissjóði.
Þá samþykkti þingið að fara
þess á leit við yfirvöld trygg-
ingamála að þau beiti sér fyrir
því að hjálpartæki fyrir þroska-
hefta á stofnunum verði greidd
af Tryggingastofnun ríkisins. Að
lokum lýsti þingið yfir megnri
vanþóknun á skilningsleysi
stjórnvalda varðandi fjárhags-
vanda stofnana fyrir þroska-
hefta. Skoraði þingið á stjórn-
völd að bæta þegar úr því
ófremdarástandi sem ríkt hefur í
þessum málum þannig að um
stöðnun og afturför í rekstri
þessara stofnana verði ekki að
ræða.