Morgunblaðið - 28.09.1979, Síða 16

Morgunblaðið - 28.09.1979, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1979 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1979 17 Útgefandí Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og skrifstofur Auglýsingar Afgreiósla hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson Aöalstræti 6, sími 10100. Aðalstræti 6, sími 22480. Sími83033 Askriftargjald 4000.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 200 kr. eintakiö. „Forkastanleg valdníðsla mennta- málaráðherra” Stöðuveitingar Ragnars Arnalds, menntamálaráð- herra, hafa sumar hverjar þótt ganga þvert á ríkjandi hefðir og almenna réttlætis- vitund. Eitt nýjasta og gróf- asta dæmi þessa er veiting skólastjóraembættis við grunnskólann í Grindavík. Tíminn, málgagn forsætisráð- herra, birtir forsíðufrétt um þessa stöðuveitingu í gær undir fyrirsögninni: „Forkast- anleg valdníðsla menntamála- ráðherra — Ragnars Arnalds bolar í burtu skólastjóra grunnskóla Grindavíkur en ræður í hans stað réttinda- lausan mann“. Hefur Tíminn eftir skólanefndarmanni í Grindavík, að málatilbúnaður allur af hálfu menntamála- ráðuneytisins hafi verið „hinn ömurlegasti" og hér sé verið að „hygla pólitískum banda- manni á svívirðilegasta hátt“. Svipað kemur einnig fram í fréttum í Morgunblaðinu. Forsaga málsins er sú að undanfarin þrjú ár hefur valinkunnur skólamaður verið settur skólastjóri grunnskól- ans í Grindavík, í fjarvist skipaðs skólastjóra, er var við nám erlendis og í launalausu leyfi. Er skipaður skólastjóri sagði síðan starfi sínu lausu, um mánaðamótin ágúst/september sl., vildi meirihluti skólanefndar setja starfandi skólastjóra í stöð- una til eins árs, vegna þess hve nálægt skólastarfi var komið, en auglýsa síðan stöð- una formlega í vor. Þvert á vilja meirihluta skólanefndar auglýsir menntamálaráðherra síðan stöðuna lausa til um- sóknar með rúmlega viku um- sóknarfresti, sem er styttri umsóknarfrestur en lög segja til um. Tveir umsækjendur sóttu um stöðuna. Starfandi skólastjóri, sem hefur full kennsluréttindi, og var studd- ur af meirihluta skólanefndar og hátt í 700 Grindvíkingum, eða rúmlega 70% atkvæðis- bærra manna í plássinu, sem skriflega mæltu með ráðningu hans. Hinn umsækjandinn hafði aðeins fimm sjöttu hluta BA-prófs frá háskóla, og hafði ekki lokið tilskildu námi í uppeldisfræðum og því ekki full kennararéttindi. Þrátt fyrir það að starfandi skólastjóri í Grindavík hefur full kennararéttindi, meðmæli meirihluta skólanefndar og þorra Grindvíkinga, gengur menntamálaráðherra fram hjá honum og ræður þann réttindalausa í stöðuna. Dagblaðið Tíminn segir orð- rétt í frásögn sinni um þessa veitingu: „Sagan segir, að Ragnar hafi, áður en hann tók þessa ákvörðun sína, tryggt sér stuðning sinna manna innan forystuliðs kennara- samtakanna, svo tryggt væri að mótmæli yrðu ekki nema orðin tóm.“ Starfandi skóla- stjóri, sem menntamálaráð- herra hefur nú vikið til hliðar, segir m.a.: „Þessi skipan mála kom mér mjög á óvart. Og ég tel hér um hreina valdníðslu af ráðherra að ræða, að ráða réttindalausan mann til starf- ans. Ég mun vissulega leita réttar míns í þessu máli, og m.a. láta reyna á það, hvort ég hefi greitt stéttarfélagsgjald til samtaka kennara til einsk- is öll þessi ár.“ En eitt helzta baráttumál kennarastéttar- innar hefur verið það, að réttindamenn gangi fyrir réttindalausum mönnum við stöðuveitingar. í ljósi framan- sagðs verður fróðlegt að sjá viðbrögð stéttarfélags kenn- ara í þessu máli, sem hinn almenni borgari í þjóðfélag- inu mun áreiðanlega fylgjast vel með, en Tíminn hefur það eftir deildarstjóra grunn- skóladeildar menntamála- ráðuneytisins, að valkostur menntamálaráðherra „hafi ekki tilskilin réttindi til að gegna stöðu skólastjóra í grunnskóla". Vinnubrögð núverandi ríkisstjórnar hafa ekki styrkt stöðu hennar í hugum fólksins í landinu, enda ráða flokks- sjónarmið og pólitískir stund- arhagsmunir meiru í verkum hennar en þjóðarheill. Þess eru þó fá dæmi að höfuðmál- gagn forsætisráðherra og ríkisstjórnarinnar þurfi að lesa einstökum ráðherra aðra eins lexíu og dagblaðið Tím- inn sendi menntamálaráð- herra í gær. Honum er borið á brýn „forkastanleg vald- níðsla", að bola burt réttinda- manni úr skólastjórastöðu fyrir réttindalausan jábróður, ganga þvert á vilja skóla- nefndar og þorra almennings í Grindavík, og ofaníkaupið að „hafa tryggt sér stúðning sinna manna innan forystu- liðs kennarasamtakanna" til sýndarmótmæla. Þessi vinnu- brögð eru dæmigerð fyrir Al- þýðubandalagið. Þess afstaða mótast ekki af málsatvikum, rökum eða réttlæti, heldur pólitískum litarhætti viðkom- enda. Slík misnotkun valds hlýtur að mæta andstöðu allra heilbrigt hugsandi manna í landinu. Skólastjóraveitingin í Grindavík MIKIL reiöí og óánægja er meðal Grindvíkinga með þá ráðstöfun menntamálaráðherra, Ragnars Arnalds, að ráða réttindalausan mann í skóla- stjórastöðu Grunnskólans í Grindavfk og ganga þar með fram hjá umsækjanda, sem gegnt hefur skólastjórastöðunni undanfarin þrjú ár. Morgun- blaðið ræddi í gær við Grindvíkinga um þessa stöðuveitingu og fara viðtölin hér á eftir. Bogi Hallgrimsson. „Fólk finnur fnykinn af þessari afgreiðslu ” — segir Bogi Hallgrímsson „ALÞÝÐUBANDALAGIÐ bauð fyrst fram í bæjarstjórnarkosningum i Grindavik i fyrra og það andrúmsloft sem skapaðist þá og hefur verið hér síðan var óþekkt hér áður. Ég man aldrei eftir þvi að menn hafi verið ósamtaka um málefni bæjarins fyrr cn eftir þær kosningar.“ Þannig mæltist Boga Hallgrimssyni þegar blaðamaður Morgunblaðsins innti hann eftir upp- tökunum að þeim deilum sem risið hafa eftir hina umdeildu afgreiðslu Ragnars Arnalds á skólastjórastöðunni i Grinda- vik i fyrradag. Bogi hefur verið starfandi kennari í Grindavík meira og minna síðan 1951 með nokkrum hléum. Hann starfaði um nokkurn tíma sem lögreglumaður á Keflavíkurflugvelli en síðan 1964 hefur hann samfellt stundað kennslu í Grinda- vík. Hann lauk íþróttakennaraprófi frá Iþróttakennaraskólanum 1946 og handa- vinnukennaraprófi frá Handíðaskólan- um 1950. „Atvikin höguðu því þannig," sagði Bogi, „að árið 1975 fékk þáverandi skólastjóri launalaust leyfi og síðan ársfrí. Það lenti á mínum herðum að sinna skólastjórastarfinu næstu þrjú árin þar á eftir í stað hins skipaða skólastjóra. Öll þessi ár var óvissa með það hvort sá sem var skipaður skól- astjóri myndi segja starfi sínu lausu eða ekki og það var alltaf á síðustu stundu sem það lenti á mér að sinna stöðunni. Þetta var eins í sumar og það var ekki fyrr en um mánaðamótin ágúst-septemb- er að sá sem verið hefur skipaður skólastjóri sagði starfi sínu lausu. Skólanefndin hugðist leysa málið eins og undanfarin ár til þess að trufla ekki skólastarfið og höfðum við Halldór Ingvason, sem verið hefur yfirkennari, og ég gefið okkar samþykki fyrir því. Þá var það sem fulltrúi Alþýðubanda- lagsins í skólanefnd neitaði að styðja mig og fór fram á aö skólastjórastaðan yrði auglýst. Ég og Halldór vorum kallaðir fyrir skólanefndina og fræðslustjóra Reykja- nesumdæmis og við spurðir hvort við vildum taka starfið að okkur að vilja meirihluta nefndarinnar. Við töldum engin tormerki á því og héldum að aðeins væri formsatriði að ganga frá þessum málum. Þetta fannst víst flestum, nema Ragnari Arnalds. Hann krafðist þess að stöðurnar yrðu báðar auglýstar með rúmlega viku umsóknarfresti, sem er alltof stuttur. Við höfðum vissu fyrir því að þeir Alþýðubandalagsmennirnir myndu ekki auglýsa nema hafa einhvern mann í pokahorninu og í gær var sem sagt gengið frá þessu. Ég er auðvitað stórhneykslaður á þessari afgreiðslu Ragnars Arnalds og þau virðast lítils virði þessi samtök okkar kennara ef öll slagorðin og áhersl- an á réttindamálin eru eftir allt saman orðin tóm. Þá held ég að kennarar hafi fulla ástæðu til þess að hugsa sitt. Ég vil að lokum hiklaust segja það, að fólkið hér í Grindavík finnur fnykinn af þessu máli. Menn vita nú hvar þeir hafa þessa menn. Þetta er aðeins eitt dæmið af mörgum um vinnubrögð þessara afla.“ ólína Ragnarsdóttir „ Vilji fólks- ins skiptir þá enguy nema rétt fgrirkosn- ingar” — segir Olína Ragnarsdóttir „FÓLK ÚR öllum þremur lýðræðis- flokkunum vann að þessari undir- skriftasöfnun meðal Grindvíkinga og fólk úr öllum flokkum skrifaði undir,“ sagði ólina Ragnarsdóttir, bæjarfull- trúi Sjáfstæðisflokksins í Grindavík. Jafnframt því að vera bæjarfulltrúi er ólína varamaður í skólanefndinni. Hún sagði, að í tcxta undirskriftasöfn- unarinnar hefði verið áskorun á Ragnar Arnalds, menntamálaráðherra, þess efn- is að Bogi Hallgrímsson yrði endurráð- inn í stöðu sína sem skólastjóri í Grindavík. I áskoruninni sagði ennfrem- ur að Bogi hefði gegnt stöðu skólastjóra í Grindavík síðastliðin þrjú ár og verið afar farsæll í starfi, svo að tilefnislaust væri nú með öllu að veita öðjum manni stöðuna. Ólína sagði, að undir þessa áskorun hefðu 670 atkvæðisbærir Grindvíkingar ritað nafn sitt, en það væri um 80% þeirra sem atkvæðisrétt hefðu í Grinda- vík. Þetta hefði gerst þrátt fyrir að mjö'g margir hefðu verið erlendis eða við vinnu sína úti á sjó. „Þá vil ég leiðrétta þann misskilning að verið hafi verið að hnýta í aðra umsækjendur, þetta var aðeins stuðn- ingsyfirlýsing við'mann sem sýnt hafði að hann gæti sinnt starfinu með sóma,“ sagði Ólína ennfremur. Olína sagði að Ragnar Arnalds hefði tekið vilja skólanefndarmanna Alþýðu- bandalagsins fram yfir vilja meirihluta nefndarinnar og hann hefði gjörsamlega hundsað undirskriftir 80% atkvæðis- bærra Grindvíkinga. „Fólk hér í Grinda- vík er alveg undrandi á þessari af- greiðslu og þeim ummælum Ragnars Arnalds að undirskriftir Grindvíkinga skipti ekki máli. Það er eins og þessum mönnum komi ekki við hvað fólkið vill nema rétt fyrir kosningar," sagði Ólína að lokum. Ekki mitt málað gengið var framhjá manni með réttindi — segir Hjálmar r Arnason Hjálmar Árnason „ÞAÐ VAR nánast fyrir tilviljun að ég heyrði auglýst starf skólastjóra hér í Grindavík í miðjum september. Mér datt strax í hug að nú vantaði af einhverjum sérstökum ástæðum skóla- stjóra og eftir að hafa rætt þetta við vini mína og kunningja setti ég mig í samband við varaformann skólanefnd- arinnar og fékk þar hvatningu til að sækja um stöðuna. Það sem síðar gerist er það að alls kyns kynjasögur fara að berast um mig og mína umsókn héðan úr Grindavík. Eftir því sem mér fór að skiljast var komin upp mikil deila í skólanefndinni og ágreiningur meðal fólks hér í Grinda- vík. Deilan snerist aðallega um það hvort stækka ætti skólann eða verja peningum, sem í það áttu að fara, í byggingu íþróttahúss. Hvort tveggja virðist nauðsynjamál en deilan sýndist mér varða forgangsröðina. Næst heyri ég af undirskriftasöfnun meðal bæjarbúa og meðal kennara. Mér er sagt að flestir hafi skrifað undir. Þegar mér er það ljóst hve deilan er mögnuð velti ég því fyrir mér að draga umsókn mína til baka. Ég tók raunar ákvörðun um að gera það daginn sem umsóknarfresturinn er að renna út. En þá gerist það að allt frá hádegi og fram á kvöld línnti ekki símhringingum til mín frá fólki í Grindavík úr ólíkustu flokkum. Allt þetta fólk skoraði eindregið á mig að láta umsóknina standa. Fyrir áeggjan þessa fólks hætti ég við að draga umsóknina til baka. Loks gerist það í málinu að ég er settur í þessa skólastjórastöðu, en fæ að vita það í ráðuneytinu að skýringin sé sú að í uppsiglingu séu málaferli sem snúist um skólastjórann sem hætti fyrir þremur árum og Bogi Hallgrímsson hefur gegnt störfum fyrir. Þetta er mér sagt að sé hið mesta leiðindamál og ráðuneytið kjósi að hafa utanaðkomandi mann í skólastjóra- stöðunni þar til þeim málaferlum ljúki." — Nú vekur það athygli að Alþýðu- bandalagsmaður setur flokksbróður sinn í skólastjórastöðu, enda þótt annar hafi meiri réttindi til að gegna henni en hann. Hvað vilt þú segja um það atriði og hvernig lítur það út frá stéttarlegu sjónarmiði? „Ég neita því ekki að ég hef verið og er í Alþýðubandalaginu. Umsókn mín um þetta starf er þó ekki skyld því á neinn hátt. Ég hef starfað við kennslu í sjö ár og hef mikinn áhuga á kennslu- og uppeldismálum og sæki um semi slíkur. Hitt er svo annað mál að þannig vill til að þeir sem mér greiddu atkvæði í skólanefndinni eru í Alþýðubandalaginu, en það er að því er ég veit best til alger tilviljun. Ég held að þetta mál hefði komið upp alveg án tillits til þess í hvaða flokki ég væri. Varðandi síðari spurninguna er að segja að Bogi Hallgrímsson hefur full réttindi en ég ekki. í því sambandi verður þó að gæta þess að hér er einungis um setningu að ræða, ekki skipun. Mér finnst skiljanlegt að fordæmt sé að gengið sé framhjá manni með réttindi, en það er mál ráðuneytisins en ekki mitt. Það er þó ákveðið sjónarmið ráðuneytis- ins að hér verði utanaðkomandi maður á meðan fyrrnefnd málaferli standa yfir. Ég harma vissulega að skilyrðin til að taka við þessu starfi séu jafn slæm og raun ber vitni, en ég vona að hagsmunir skólans verði látnir sitja í fyrirrúmi.“ „Pólitískt brjálœði” — segir Gunnlaugur r Dan Olafsson „Undirskriftalistarnir meðal kennar- anna voru fyrst og fremst til stuðnings þeim vilja meirihluta skólanefndarinn- ar, að Bogi Hallgrímsson og Halldór Ingvason yrðu áfram settir í sín fyrri störf. Við tókum ekki afstöðu til um- sækjenda, enda var undirskriftunum safnað, áður en vitað var hverjir sæktu um stöðuna,“ sagði Gunnlaugur Dan ólafsson, kennari við Grunnskóla Grindavíkur. Gunnlaugur var einn þeirra kennara sem stóðu fyrir undir- skriftasöfnuninni meðal kennaranna. Hann sagði að um 20 kennarar væru við þennan 450 nemenda skóla, 14 hefðu skrifað undir en ekki hefði náðst í alla. „Mitt mat á þessu máli er annars það,“ sagði Gunnlaugur, „að þetta sé pólitískt brjálæði. Ég hefi setið fundi í skóla- nefndinni sem fulltrúi kennara og því haft aðstöðu til að fylgjast vel með því sem hefur verið að gerast. Gunnlaugur Dan ólafsson í stuttu máli er það í rauninni það, að maður sem ekki hefur full réttindi sækir um starf gegn manni sem hefur langa starfsreynslu og suk þess full réttindi," sagði Gunnlaugur. „Við eðlilegar kring- umstæður hefði það átt að vera ljóst hvor fengi stöðuna." Gunnlaugur sagði að allur sá dráttur sem verið hefði á því að skólinn tæki til starfa yrði að skrifast á reikning ráðu- neytisins. „Það er hætt við að þetta geti komið niður á nemendum einkum í níunda bekk sem tekur sitt samræmda grunnskólapróf í janúar eða febrúar. Þau mega vart við því að missa þetta mikinn tíma úr.“ „Lög skipta þessa menn engumáli” — segir Bjarni Gunnarsson „ÉG GET ekki séð annað en að tvö lagabrot hafi verið framin í sambandi við þessa stöðuveitingu. í fyrsta lagi hefur Hjálmar Árnason ekki sömu réttindi og Bogi Hallgrímsson og í öðru lagi var fresturinn til að sækja um stöðuna, allt of lítill, hann á að vera fjórar vikur,“ sagði Bjarni Gunnarsson sem sæti á i skólanefnd Grunnskólans í Grindavik. Bjarni er varabæjarfulltrúi fyrir framsóknarmenn i Grindavik. Bjarni Gunnarsson. Hann sagði að það hefði sýnt sig við afgreiðslu þessa máls að baráttuaðferðir alþýðubandalagsmanna væru þær sömu og tíðkuðust fyrir austan járntjald. „Lög skipta þá engu máli,“ sagði Bjarni. „Það hefur sýnt sig að þá varðar yfirleitt lítið um vilja meirihlutans, þessa heiðurs- menn, hvort sem það er í nefndum eða meðal fólksins." Bjarni sagðist halda að það yrði afskaplega erfitt fyrir hinn nýja skóla- stjóra að taka við starfinu við þessar kringumstæður, enda væri afgreiðsla málsins í óþökk þorra Grindvíkinga. Hann sagðist þó óska honum alls góðs í starfi, það skipti mestu máli úr því sem komið væri, að skólinn tæki sem fyrst til starfa. „Ranglega að undir- skriftasöfn- unnistaðið” — segir Guðrún Matthíasdóttir Guðrún Matthiasdóttir. „ÉG TEL að Hjálmar Árnason hafi miklu meiri menntun en Bogi Hall- grimsson og af þvi að svona litið vantar upp á að hann hafi full réttindi tel ég að hann hafi meiri rétt til stöðunnar. Það er ástæðan fyrir því að ég greiddi honum mitt atkvæði,“ sagði Guðrún Matthiasdóttir, annar fulltrúi Alþýðu- bandalagsins í skólanefndinni. Hún var spurð hvort það væri ekki einkennileg tilviljun að alþýðubandalagsmaður í skólanefndinni færi fram á að staðan yrði auglýst og síðan setti alþýðubanda- lagsráðherra alþýðubandalagsmann i skólastjórastöðuna. Guðrún var þá spurð að því hvort fresturinn sem gefinn var í auglýsing- unni hefði ekki verið í stysta lagi. Hún svaraði því til að hún hefði mælt með því að yfirkennarinn, Halldór Ingvason, yrði settur áfram en skólastjórastaðan hins vegar auglýst með löglegum fjögurra vikna fyrirvara og að skólastjóri yrði skipaður í stöðuna svo ekki þyrfti að koma til auglýsinga næsta vor. Þannig hefði mátt koma skólastarfinu í gang með setningu yfirkennarans. — Skiptir það engu máli i þessu sambandi að um 80% atkvæðisbærra manna í Grindavík skoruðu á mennta- málaráðherra að endurráða Boga Hall- grímsson? „Ég tel það skipta einhverju máli. En ég tel að það hafi verið ranglega að undirskriftasöfnuninni staðið. Það var ekki vitað hverjir myndu sækja um stöðuna og fólki sem skrifaði undir var sagt að með því að skrifa undir með Boga yrði friður um skólann en annars ófriður. Eftir að vitað var hverjir myndu sækja um stöðuna hringdi fólk í Hjálmar Árnason, héðan úr plássinu, og tók það fram að enda þótt það hefði skrifað undir væri það alls ekki á móti honum." — En varðandi það hvort pólitík sé í spilinu? „Ég vil sem sagt ekkert meira um málið segja.“ Jón Gröndal. „Máliðá upptök sín íherbúðum Alþgðu- bandalags- ins” — segir Jón Gröndal „AÐDRAGANDI máísins er allur hinn sóðalegasti og sprottinn af einstakl- ingsbundnum ástæðum. Málið á upptök sín í herbúðum Alþýðubandalagsins,“ sagði Jón Gröndal sem sæti á í skóla- nefnd Grunnskólans í Grindavík fyrir Alþýðuflokkinn. Jón er einnig kennari við grunnskólann. Hann sagði að annar handleggur málsins sneri síðan að kennarasamtök- unum í landinu þegar réttindi manna væru einskis virt, eins og nú hefði átt sér stað. „Það hefur verið eitt helsta bar- áttumál kennarasamtakanna undanfarin ár að réttindalausir menn séu ekki settir eða skipaðir í stöður í skólum landsins, þegar völ er á mönnum með full eða jafnvel margföld réttindi. Menntamála- ráðherra, Ragnar Arnalds, bítur höfuðið af skömminni með því að setja réttinda- lausan flokksbróður sinn í embætti og skera um leið mann sem hefur verið farsæll í starfi og nýtur stuðnings meirihluta bæjarbúa," sagði Jón Grön- dal. Hann sagðist einnig vilja taka það fram að nú væri að hefjast annar kafli þessa máls, sá sem sneri að skólastarfinu og því að veita börnunum þá kennslu sem þau ættu rétt á. „Þó að ég telji að sækja eigi málið með stöðuveitinguna eins langt og unnt er, þá verða menn að snúa bökum saman með hagsmuni skólans og nemendanna að leiðarljósi," sagði Jón Gröndal að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.