Morgunblaðið - 28.09.1979, Side 29

Morgunblaðið - 28.09.1979, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1979 29 /S VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100KL 10—11 FRÁ MANUDEGI Qmjtfmapfasi'ij if nokkurn veginn nákvæmlega í sama umfangi og „málgagnið" Þjóðviljinn, — á meðan allir aðrir fjölmiðlar töldu málefnið tæpast þess virði að minnzt væri á það. En siðan hefur mikið vatn runnið til sjávar, og ekki annað sjáanlegt en að undanfarin tvö ár hafi hinir kjörnu stjórnendur útvarpsins tekið að beita hús- bóndavaldi sínu. — Það hefur nefnilega reynzt nokkuð ljóst, að þrátt fyrir heiðarlegar tilraunir umræddrar róttæklingadeildar, hefur áróðurinn að umfangi og einnig efnislega verið aðeins svip- ur hjá sjón, miðað við það sem 1 viðgekkst, þegar mest gekk á. Það er því talið að umræddri róttæklingadeild ríkisútvarpsins, | að ógleymdum SUSÚ þeirra Þjóð- viljamanna (skýring: Samtök um sósíalistaáróður í útvarpi), sé nú meiri vandi á höndum en oftast endranær, — og er talið að nú um j nokkurt skeið hafi hrosshausa- og 1 þorskhausalið þessara samtaka lagt hausa sína kyrfilega í bleyti, ef vera kynni að heilabúin skiluðu með þeim hætti einhverjum óvæntum nothæfum heilafóstrum. Og viti menn. — Fjallið tók jóðsótt og fæddist lítil mús. Það þótti nefnilega talið víst, að nú um nokkurt skeið hafi verið um nokk- uð augljóst gat að ræða á framan- greindum húsbóndaaga í útvarp- inu gegn róttæklingaáróðri. — Tekizt hafi nefnilega með alveg sæmilegum árangri að læða áróð- ursiðjunni í gegn, með því að syngja framleiðsluna! — Eyjólfur er semsagt ekki dauður úr öllum æðum, — og er nú talið nokkuð öruggt að útvarpsáætlun liðsins næstkomandi þrammdag sé eitt- hvað á þessa leið: Reynt skal að halda uppi hefð- bundnum grímuklæddum og grímulausum gönguáróðri eftir föngum, en þó verði lögð sérstök áherzla á að nýta til fullnustu framangreint andvaraleysi hús- bændanna, og verði nú sunginn áróður tvíefldur miðað við það sem áður hefur tíðkazt. — Verði teflt fram öllum tiltækum „bar- áttu“-poppurum sem á plötu hafa raulað, — og ekki sízt þeim sem undanfarið hafa stritað við að koma á skífur splunkunýjum heimsfrelsunarsöngvum sínum, til SKAK Umsjón: Margeir Pétursson Á skákmóti í Philadelphiu fyrr á þessu ári kom þessi staða upp í skák Bandaríkjamannanna Cooleys, sem hafði hvítt og átti leik, og Redmans. 23. e5!!, (23. Hfl virðist í fljótu bragði koma að sama gagni, því að ef 23. - cxb3 þá 24. Hff4! og vinnur. En svartur á öflugt svar, 23. — e5! og hvítur er kominn í vandræði). cxb3, 24. Hfl — dxe5, 25. Hff3! Nú sjáum við, að hvítur hótar 26. Dxh7+ — Rxh7, 27. Hxh7+ — Kxh7, 28. Hh3 mát. Svartur er svo aðþrengdur að hann á ekkert svar við þessari skemmtilegu hótun. Hann gafst því upp. sérstakra nota hinn mikla dag 29. september n.k. Við sjáum nú hvað setur, Velvakandi góður, — og skulum við nú fylgjast með hvernig rót- tæklingadeild ríkisútvarpsins og SUSÚ gengur við iðju sína, þegar hinn mikli göngudagur rennur upp. En blessaður skilaðu til rót- tæklingadeildarinnar, að hafa nú ekki af okkur grínið með því að fara að breyta þessum áætlunum sínum, — þó á þeim hafi verið vakin athygli hér. Og þú gaukar því kannski að þeim í leiðinni, að á fyrri göngu- dögum hefur flutningur ljóða og laga eins og sovétsöngurinn „In- ternationalinn", „Sjá roðann í austri" oft þótt fara prýðilega við sovét-dulurnar rauðu, — og væri nú kannski ráð að bæta við ljóðinu með hvatningunni góðu: „Sovét-ísland, óskalandið, hvenær kemur þú?“ En jafnframt hafa tilraunir útvarpsmanna til að gefa göngu- dögum þjóðhátíðarblæ með leik venjulegra íslenzkra ættjarðar- söngva þótt heldur léleg gæra á rauðúlfinn og hljóma frekar hjá- rænulega við rauðfánaþramm rót- tæklinga-gönguliðsins. — En þessi síðustu heilræði voru nú bara góðlátlegar ábendingar. Útvarpshlustandi • Þakkir Mætti ég þakka hr. Guðjóni E. Jónssyni fyrir upplýsingar um. höfundinn að vísunni „Norður— loga-ljósin há“ og þá ekki síður fyrir leiðréttinguna, sem er ef- laust hárrétt, þar sem um prent- aða samtímaheimild er að ræða, samkvæmt upplýsingum hr. Sveinbjarnar Sigurjónssonar. Ég get ekki fallist á leiðréttingu frúarinnar á vísu Látra-Bjargar. Það var einmitt þessi útgáfa sem ég var að leiðrétta. Að sjálfsögðu get ég ekki og frúin ekki heldur, komið með neinar fullgildar sann- anir fyrir á hvern veg vísan var, þar sem hér er um að ræða „húsgang" sem geymst hefur í manna minni, en ekki komist á prent að höfundi lifandi, a.m.k. ekki svo mér sé kunnugt. Síðasta hendingin: „Hann er á morgun gróinn" er beinlínis fáránleg. Virðingarfyllst Jón Eiriksson Kærar þakkir Konu minni, börnum okkar og barnabörnum, fyrrum nemendum mínum og öðru vinafólki mínu frá Djúpi vestur, svo og öllum skyldum sem óskyldum nær og fjær, er á áttræðisafmæli mínu hinn 6. þ.m. sýndu mér vinsemd með nærveru sinni, árnaðaróskum og góðum gjöfum, þakka ég innilega og bið viðkomend- um allra heilla í nútíð og framtíð. 25. sept. 1979 Jóhann Hjaltason. Hressingarleikfimi Kennsla hefst mánudaginn 1. okt. 1979. Kennslu- staöur: Leikfimisalur Laugarnesskólans. Byrjenda og framhaldsflokkar kvenna. Nýttr karlaflokkur — mánudags- og fimmtudags-' kvöld kl. 21.45. Fjölbreyttar æfingar allra flokka — músik-slökun. Veriö meö frá byrjun. Innritun og upplýsingar í síma 33290. Ástbjörg S. Gunnarsdóttir, íþróttakennari. Við erum fluttir aö Fosshálsi 27 (Árbæ) Pantanasími okkar er

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.