Morgunblaðið - 17.10.1979, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 17.10.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1979 3 Mannfjöldi fagnaði forsetah j ónunum Q ------------------------------------------------- BrUsHel 16. október, fré blaöamannl Mornunhlaösins. SlKtryKKÍ SÍKtryKKssynl. □ -------------------v------------------------——- O ÍSLENZKU forsetahjónin, Kristján Eidjárn ojj Halldóra Eldjárn. fengu hlýjar móttökur er þau komu til Briissel i daií. en þar hófst þritttíja daga opinber hcimsókn þeirra til BcIkíu. Mikill mannfjöldi beið þeirra er komið var til konuntíshallarinnar ok einnig var mikill mannf jöldi á Grand-PIace torginu þegar forsetahjónin heimsóttu ráðhús Hrussel siðdegis. Veifaði fólkið belgískum og isienzkum fánum. Flugvél forsetahjónanna og fylg- darliðs þeirra, Boeing 727-þota frá Flugleiðum, lenti á Caventem- flugvelli við Briissel klukkan 11.15. Á flugvellinum var mikill viðbún- aður, hermenn gráir fyrir járnum og lúðrasveit lék þjóðsöngva íslands og Belgíu. Baldvin konung- ur Belgíu og Fabíóla drottning tóku á móti forsetahjónunum á flugvellinum og síðan heilsuðu forsetahjónin og fylgdarmenn þeirra helztu framámönnum Beigíu, Martens forsætisráðherra Simonet utanríkisráðherra, þing- forsetum og fleirum. í fylgdarliði forsetahjónanna eru m.a. Hörður Helgason ráðu- neytisstjóri og frú, Birgir Möller forsetaritari og frú, og Kristján G. Gíslason ræðismaður Belgíu á íslandi og frú. Sendiherra íslands í Belgíu er Hendrik Sv. Björnsson. Að lokinni móttökuathöfn á flugvellinum var ekið til kon- ungshallarinnar í Brússel. Fjöldi fólks var saman kominn fyrir framan höllina með íslenzka og belgíska fána og lögreglusveitir á hestum gættu þess að allt væri í röð og reglu. í konungshöllinni var stutt viðstaða fyrir hádegisverð og þar var skipzt á heiðursmerkjum og gjöfum. Því næst var ekið til Laeken-hallar, en þar var snæddur hádegisverður. Klukkan 15 komu forsetahjónin og fylgdarlið til ráðhússins við Grand-Place torgið þar sem T. van Halteren borgarstjóri og aðrir framámenn borgarinnar tóku á móti þeim. Forsetahjónin fengu fagrar gjafir og rituðu nöfn sín í Gullnu bókina svonefndu, en þar rita nöfn sín heiðursgestir borgar- innar. Borgarstjórinn sýndi islenzku gestunum ráðhúsið, sem er glæsileg bygging frá 15. öld, fagurlega skreytt listaverkum og rómuðu gestirnir fegurð hússins jafnt að utan sem að innan. Næst lá leið gestanna þvert yfir Grand-Place torgið til safnahúss þar sem nú stendur yfir sýning á verkum hins fræga málara Rodier van der Weyden, en hann var uppi á fyrri hluta 15. aldar. Skoðuðu forsetahjónin sýninguna undir leiðsögn Fabíólu drottningar. Þarna á torginu voru móttökur einnig hlýlegar og margt fólk fylgdist með forsetahjónunum og Fabíólo drottningu er þau gengu yfir torgið og var mikið klappað þegar þau gengu inn í safnahúsið. I kvöld klukkan 20.30 hófst veizla belgísku konungshjónanna til heiðurs forsetahjónunum, dr. Kristjáni Eldjárn og Halldóru Eld- járn, í konungshöllinni. Baldvin Belgíukonungur hélt þar ræðu og að því loknu var íslenzki þjóðsöng- urinn leikinn. Kristján Eldjárn hélt síðan ræðu, en þá var belgíski þjóðsöngurinn leikinn. I dag heimsækja forsetahjónin og . fylgdarlið þeirra borgina Tournai í suðurhluta Belgíu, en þar búa um 300 þúsund manns. Þetta er gömul og sögufræg borg með Forsetahjónin, dr. Kristján Eldjárn og frú Halldóra Eldjárn, á Grand-Place torginu I Brtlssel I gær, til vinstri er Fabióla Belgiudrottning og til hægri Fernand Lefere borgarstjóri. (Simamynd AP). mörgum merkum minjum, þ.á m. fagurri dómkirkju í gotneskum stíl. I Tournai munu íslenzku gestirnir skoða söfn og heimsækja dómkirkjuna. Þá sitja forsetahjón- in hádegisverðarboð borgarstjórn- arinnar, en um kvöldið sitja þau síðan kvöldverðarboð belgísku ríkisstjórnarinnar í Egmont-höll við Brússel og eru Martens forsæt- isráðherra og frú hans gestgjafar. Dagskrá heimsóknarinnar lýkur á fimmtudag. Að morgni þess dags heimsækir dr. Kristján Eldjárn forseti Joseph Luns aðalfram- kvæmdastjóra Atlantshafsbanda- lagsins á skrifstofu hans i Brússel og ræða þeir saman í 15 mínútur. Síðan leggja forsetahjónin og fylgdarlið af stað til borgarinnar Tongres, sem er ekki langt frá Liege, um klukkustundarakstur frá Liege. Þar skoða þau minjar frá dögum Rómverja. Það mun hug- mynd Belgiumanna að þessi ferð verði ekki of formleg og t.d. gefst forseta Islands tækifæri til að ræða við fornleifafræðinga. Klukkan 20 á fimmtudagskvöld hefst kveðjuboð forseta íslands í St. Anne-höll í útjaðri Brússel. Þar verða konungshjónin belgísku, margt annað þarlendra stórmenna, Islendingar búsettir í Belgíu og fleira fólk. Sveit Rutar Ingólfs- dóttur heldur þar tónleika. Þessi heimsókn er fyrsta opin- bera heimsókn íslenzks forseta til Belgiu. Margt er sameiginlegt með þessum nálægu Evrópulöndum, en einnig margt ólíkt. íhúar Belgíu eru t.d. tæplega 10 milljónir, en landið aðeins um 30 þúsund fer- kílómetrar að stærð og mun Belgía vera þéttbýlasta land Evrópu. Á hinn bóginn koma íslenzku gest- irnir frá einu strjálbýlasta landi Evrópu. hvilíkur munur Ajax þvottaefni losar úr bletti og óhreinindi strax 1 forþvotti. Það er sama hvort um er að ræða hvítan, mislitan eða mjög viðkvæman þvott, sama hvaða hitastig er notað eða þvotta- stilling. Með Ajax skilar árangurinn sér í tandurhreinum dfe blettalausum þvotti. 1 Ajax lágfreyðandi þvottaefni fyrir allan þvott skilar tandiirhreinii

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.