Morgunblaðið - 17.10.1979, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 17.10.1979, Blaðsíða 32
á ritstjórn og skrifstofu: 10100 MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1979 ^SÍminn á afgreiðslunni er 83033 JB»r0xmbtobit> Alþingi rofið: Tveggia daga kosnmgar ALþlNGI var rofið í «ær og þingkosningar boðaðar 2. og 3. desember. Að loknum þinjísrofsumræðum í gær sagði Oddur ólafsson, forseti Sameinaðs Alþingis: „Háttvirtir alþingismenn. Ég þakka ykkur fyrir tiliitssemi og notalegheit þá fáu daga sem ég hefi stjórnað fundum sameinaðs þings. Ég þakka ykkur einnig fyrir litríkt, skemmtilegt samstarf á undanförnum átta árum og ég vona að flestir ykkar komi glaðir og ánægðir út úr þeirri orrahríð, sem framundan er í stjórnmálunum og hver hljóti þann árangur er hann hefur til unnið. Ég þakka öllu starfsfólki Alþingis fyrir störf og þjónustu og gef hæstvirtum forsætisráðherra orðið.“ Benedikt Gröndal, forsætisráð- herra, sagði: „Herra forseti. Ég færi fram beztu þakkir þing- manna fyrir ágæta og drengilega stjórn á þessu stutta þingi, fyrir einstaklega góða viðkynningu undanfarin ár.“ Þá las forsætisráðherra forseta- bréf um þingrof: „Forseti íslands gjörir kunnugt. Forsætisráðherra hefur tjáð mér, að Alþýðuflokkur- inn og Sjálfstæðisflokkurinn hafi orðið sammála um að stofna skuli nú til almennra þingkosninga og nauðsyn beri því til þess að Alþingi verði rofið svo efna megi til alþingiskosninga þegar á þessu ári. Samkvæmt þessu er Alþingi hér með rofið nú þegar. Gert að Bessastöðum 15. októ- ber 1979. Kristján Eldjárn/Benedikt Gröndal." Síðan las forsætisráðherra for- setabréf þar sem mælt er fyrir almennar þingkosningar sunnu- daginn 2. desember og mánudag- inn 3. desember n.k. Að lokum las forsætisráðherra forsetabréf til sín með umboði til að rjúfa þing, 101. löggjafarþing íslendinga, nú þegar. Síðan maelti hann orðrétt: „Samkvæmt þessu umboði lýsi ég yfir að Alþingi íslendinga, 101. löggjarfarþing, er frá og með þessari stundu rofið og störfum þess lokið." Vatnsæð hitaveitunnar í Reykjavík fór sundur milli Hafnarstrætis og Tryggvagötu um hádegisbilið i gær þar sem standa yfir framkvæmdir við húsgrunn. Fór heitt vatn af svæði í miðbæ og upp í Þingholt og Vesturbæ en grafið hafði verið undan leiðslunni þannig að hún féll niður. Búist var við að bráðabirgðaviðgerð yrði lokið með kvöldinu. Lögreglan lét loka Hafnarstræti meðan unnið var að viðgerð og truflaði það mjög alia umferð og urðu strætisvagnar m.a. að breyta ferðum sinum gegnum miðbæinn. Benedikt Gröndal lýsir þingroíi og kosningum á Alþingi í gær. í forsetastól er Oddur Ólafsson, forseti Sameinaðs þings._ Vinnuveitendur um nýja kjarasamninga: Verðbætur á sex mánaða fresti Heildarlaunakostnaður aukizt ekki Kjaramálaráöstefna Vinnuveitendasambands íslands var haldin í gær í Reykjavík. í lok hennar var samþykkt stefnuyfir- lýsing þar sem segir m.a., að við endurnýjun kjara- samninga verði á hverjum tima að taka mið af af- komu atvinnuveganna og þjóðarbúsins þannig að ekki verði skipt meiru en aflað er. Sé ríkari ástæða til að fylgja þessu sjón- armiði eftir við núverandi efnahagsaðstæður. Þá er í stefnuyfirlýsingu VSÍ lögð áherzla á eftirfarandi atriði við endurnýjun kjarasamninga um næstu áramót: Breytingar á kjarasamningum verði gerðar innan þeirra marka að þær hafi ekki í för með sér aukinn heildarlaunakostnað, samningstími verði til 1. janúar 1982, heimilt verði að endurskoða kaupliði 1. janúar 1981 með hliðsjón af þróun þjóðartekna og að eftirtaldar breytingar verði gerðar á núgildandi verðbóta- ákvæðum sem sett voru á með Umræður um símareikninga Jóns Sólness á Alþingi; „Hef nánast verið út- skúfaður úr flokki mínum — af nokkrum hluta hans” UMRÆÐUR urðu á fundi Sameinaðs Alþingis i gær eftir að útvarpsumræðum lauk um greiðslur á simareikningum Jóns G. Sólness alþingismanns. Upphaf umræðnanna var það að Vilmundur Gylfason dómsmálaráðherra lét þau orð falla í útvarpsrumræðunum, að hér væri á ferðinni alvarlegt mál sem þyrfti að kanna nánar, og sem yrði kannað. Jón Sólnes kvaðst ekki geta annað en svarað þessum orðum ráðherrans, sem ráðist hefði á sig í útvarpsumræðum, og héldi þar með áfram ofsóknarherferð á sig og fjölskyldu sína. Rakti þingmað- urinn síðan bréf það er yfirskoð- unarmenn ríkisreikninga sendu forseta Sameinaðs Alþingis, og samskipti sín og skoðunarmanna. Sagði hann þá ekki hafa gefið sér kost á að skýra sín mál áður en bréfið var sent og málið komið til fjölmiðla. Kvaðst Jón eiga inni fé fyrir not á einkabifreið sinni er hann hefði viljað láta ganga upp í símreikningana, en ekki hefði fengist úr þeim skorið þrátt fyrir ítrekaðar óskir sínar. Hins vegar sýndu athugasemdir í ríkisreikn- ingum frá 1978 að gert væri ráð fyrir að þeir reikningar yrðu greiddir. Þá sagði Jón Sóines að hann hefði verið nær útskúfaður úr flokki sínum vegna þessa máls, og rætt væri um að hann væri ekki hæfur til að vera í forystusveit flokksins, og einnig kvað hann fjölskyldu sína hafa liðið að ósekju vegna málsins. Albert Guðmundsson alþingis- maður tók einnig þátt í umræðun- um, og sagði hann að ekki væri vanþörf á að rannsaka fyrst yfir- skoðunarmenn ríkisreikninga, og það hvers vegna mál þetta hefði lekið út áður en það hefði verið kynnt réttum aðilum. Nánar segir frá umræðunum á blaðsiðu 14 i Morgun- blaðinu i dag. „Hair” í Tónabíó bráðlega ? ALLAR iíkur eru á því að Tónabíó i Reykjavík fái kvik- myndina „Hair“ eða „Hárið“, sem gerð er eftir samnefnd- um söngleik, til sýningar einhvern tíma á næstunni. Tónabíó hefur samning við bandariska kvikmyndafyrir- tækið United Artists, sem framleiddi myndina, en bíóið kaupir reglulega af þvi myndir. Samkvæmt upplýsingum Þorvalds Thoroddsens fram- kvæmdastjóra Tónabíós kaup- ir bíóið vanalega 15—20 myndir á ári af United Artists og þegar samningar voru síðast gerðir var „Hárið" ekki tilbúin. Innan mjög skamms tima verður hins vegar gengið frá samningum um næstu kvikmyndakaup og taldi Þor- valdur þá mjög líklegt að „Hárið" fylgdi þar með, en erfitt væri að segja á þessu stigi til um hvenær myndin fengist til sýningar hérlendis. Kvað hann það fara eftir því hversu mikla áherzlu þeir legðu á að fá hana til landsins. lögum um stjórn efnahagsmála o.fl. nr. 13/1979: Breytingar á verði innlendrar vöru og þjónustu, er stafa af hækkun launa, hvort sem er vegna verðbóta eða grunnkaups- hækkana hafi ekki áhrif á verð- bótavísitölu, breytingar á óbein- um sköttum og gjöldum hafi ekki áhrif á verðbótavísitölu né breyt- ingar á opinberum niðurgreiðsl- um vöruverðs, frekara tillit verði tekið til viðskiptakjarabreytinga en nú er gert og að verðbætur á laun skuli reiknast á sex mánaða fresti og greiðast hlutfallslega eins á öll laun. Að síðustu er síðan lögð áherzla á að unnið verði að gerð samræmds heild- arkjarasamnings. Skák: íslenska sveitin í milliriðil LOKIÐ er undanrásum í heims- ' meistarakeppni unglingasveita í skák, sem nú fer fram í Viborg i Danmörku. Sextán þjóðir taka þátt í mótinu og komst islenska sveitin i milliriðil. í riðli íslands urðu Skotar efstir með 9 vinninga af 12 mögulegum, ísland í öðru sæti með 8% vinning, Finnland í þriðja með 6% vinning og lestina ráku Belgar sem fengu engan vinning. Sveit Islands vann skosku sveitina með 2‘/i gegn lVfe, gerði jafntefli við þá finnsku og vann aljar skákirnar við Belgana. Með íslandi í milliriðli eru Eng- lendingar, Hollendingar og Vestur- Þjóðverjar, en í hinum riðlinum eru Svíþjóð, Júgóslavía, Danmörk og Skotland. Hefst í dag keppni í milliriðli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.