Morgunblaðið - 17.10.1979, Side 17
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1979
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1979
17
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og skrifstofur
Auglýsingar
Afgreiósla
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Baldvin Jónsson
Aöalstræti 6, sími 10100.
Aðalstræti 6, sími 22480.
Sími83033
Áskriftargjald 4000.00 kr. á mánuöi innanlands.
i lausasölu 200 kr. eintakiö.
Þetta er réttlæti
vinstri stjórnar
Einhver versta afleiðing þeirrar óðaverðbólgu, sem hér hefur ríkt
meirihluta þessa áratugar er vaxandi efnamunur. Bilið milli þeirra,
sem lægst laun hafa og hinna, sem búa við bezt launakjör breikkar
stöðugt eins og bezt kemur fram í því, að við síðustu vísitöluhækkun
launa fékk láglaunamaðurinn 18 þúsund króna launahækkun en
ráðherrann 118 þúsund krónur.
Ætla hefði mátt, að vinstri stjórnin, sem nú er fallin hefði talið það
sérstakt hlutverk sitt að draga úr þessum launamun. Sú varð ekki
raunin. Þvert á móti. Aðgerðir vinstri stjórnar í launamálum hafa orðið
til þess að breikka bilið í stað þess að minnka það. Versta aðgerð vinstri
stjórnarinnar var þó, þegar hún tók ákvörðun um að skerða
vísitöluhækkun launa yfir 210 þúsund krónur á mánuði en taldi
láglaunafólki trú um að í sex mánuði a.m.k. þyrfti það ekki að sæta
vísitöluskerðingu. Nú er komið í ljós, að þetta var blekking ein.
Alþýðubandalag og Alþýðuflokkur blekktu láglaunafólk. Vísitöluskerð-
ingu á laun þess var ekki frestað í sex mánuði vegna þess að 1. desember
n.k. á að draga frá launum láglaunafólks það, sem ekki var tekið af
launum þess í sumar og haust. Þá á láglaunafólk að fá 9% en
hálaunafólk 11%. Þetta er réttlæti vinstri stjórnar. Þetta er umhyggja
Alþýðubandalags og Alþýðuflokks fyrir láglaunafólkinu í landinu.
Þetta ranglæti verður að leiðrétta. Láglaunafólk verður að fá sömu
vísitöluhækkun launa og aðrir hinn 1. desember n.k. Samstaða er um
þetta milli Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins eins og fram kom í
samtali við Geir Hallgrímsson í Morgunblaðinu í gær.
Hitt er svo annað mál, að þetta sérstæða réttlæti vinstri stjórnar
hefur orðið til þess að beina athygli að kjörum láglaunafólks í landinu.
Um það var einnig fjallað á þingi Verkamannasambandsins um síðustu
helgi. Alyktun Verkamannasambandsins um kjaramál er hófsöm. Þar er
viðurkennt að ekki sé grundvöllur til þess að krefjast stórfelldra
kjarabóta. Markið er sett við það að endurheimta kaupmáttinn frá júní
1977. Þetta markmið er óraunhæft í bráð en ekki þegar til lengri tíma er
litið. Við skulum ekki gleyma því, að það voru kjarasamningarnir 1977
sem áttu mikinn þátt í því að kynda undir óðaverðbólgunni á ný. í maí
1977 var hún komin niður í 26%. I júní voru gerðir verðbólgusamningar,
sem hafa haft hrikalegar afleiðingar fyrir efnahag íslendinga. Þess
vegna er óraunhæft að ætla að hægt sé að ná kaupmættinum frá 1977 á
skömmum tíma.
Hins vegar er óhjákvæmilegt að gera enn eina tilraun til þess að rétta
hag láglaunafólks gagnvart öðrum stéttum. Enn verður að láta á það
reyna hvort þeir hópar launþega, sem betur eru settir eru tilbúnir til að
failast á leiðréttingu fyrir láglaunafólk, sem ekki kemur öðrum til góða.
Einungis með því móti er nokkur von til þess að hægt sé að bæta kjör
þeirra, sem við verstan hag búa í bráð.
Við skulum heldur ekki blekkja okkur á því, að þetta sé hægt að gera
án þess að þess verði einhvers staðar vart. Sameiginleg útgjöld
þjóðarinnar eru orðin of mikil. Verulegur niðurskurður þeirra er
forsenda fyrir því að hægt sé að leiðrétta kjör láglaunafólks.
Niðurskurður ríkisútgjalda og skattalækkanir eru forsenda þess, að
hægt sé að taka á þessu mikla réttlætismáli af fullri alvöru. En þá þurfa
verkalýðssamtökin að vera tilbúin til þess að taka höndum saman við
stjórnvöld, hvaða flokkar, sem hlut eiga að máli, um samstillt átak í
þessu skyni. Eru verkalýðssamtökin reiðubúin til þess eða ætla þau enn
að láta „íhalds“grýluna villa sér sýn?
Þegar til lengri tíma er litið verða kjör launafólks ekki bætt nema
framleiðsla þjóðarbúsins verði aukin. Til þess að svo megi verða þarf að
auka fjölbreytni atvinnuvega m.a. með eflingu orkufreks iðnaðar. Þá
dugar ekki fyrir verkalýðshreyfinguna að gera hvort tveggja í senn,
krefjast kjarabóta en leggjast gegn aðgerðum, sem eru forsendur þeirra.
Forseti íslands í Belgíu
För forsetahjónanna dr. Kristjáns Eldjárns og frú Halldóru
Eldjárns til Belgíu í boði konungshjóna landsins er staðfesting á
því sérstaka sambandi, sem skapast hefur milli íslands og Belgíu
undanfarin ár. Þegar fiskveiðilögsagan var færð út í 50 sjómílur 1972
voru Belgar fljótir til þess að viðurkenna hana og samningar tókust um
mjög takmörkuð veiðiréttindi togara þeirra innan lögsögunnar. Sömu
sögu var að segja við útfærsluna í 200 sjómílur 1976. Og nú eru Belgar í
hópi þeirra þriggja erlendu þjóða, sem hafa samningsbundnar
veiðiheimildir í íslenskri fiskveiðilögsögu.
Fordæmi belgískra stjórnvalda við gerð þessara samninga hafði
margþætt gildi fyrir málstað okkar íslendinga. 1 framkvæmd
viðurkenndu þeir, að veiðar þessar yrðu aðeins stundaðar hér til
skamms tíma, því að fjármunum var varið til leitar að nýjum
fiskimiðum og belgískum togurum hefur fækkað jafnt og þétt.
Samningarnir sónnuðu þann málflutning okkar íslendinga, að við
vildum komast að sanngjarnri niðurstöðu. Síðast en ekki síst urðu
Belgar traustir stuðningsmenn íslensks málstaðar innan Efnahags-
bandalags Evrópu og Atlantshafsbandalagsins, þar sem sköpum skipti,
að málstaður Islands nyti stuðnings.
í för sinni mun forseti íslands einnig eiga viðræður við Joseph Luns
framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins í höfuðstöðvum þess. Með
því er enn einu sinni staðfest, hve mikilvæg aðild íslands að bandalaginu
er bæði fyrir okkur sjálfa og varnir Vesturlanda á Atlantshafi.
Geir Hallgrímsson á Alþingi í gær:
Hér fer á eftir í heild ræða sú, sem Geir
Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins flutti á Alþingi í gær. Það skal
tekið fram að ræðan var flutt blaðalaus
og er birt skv. endurriti þingritunar.
Hræðslan við kjósendur rak
Alþýðuflokk út úr vinstri stjóm
— ekki ábyrgðartilfinningin
Það telst til tíðinda, að stjórn
falli. Það telst til tíðinda, að þriðja
vinstri stjórnin á tæpum aldar-
fjórðungi er fallin eftir skemmst-
an valdatíma þeirra þriggja og
verstan viðskilnað. Það telst til
tíðinda, að þingrof er boðað og
nýjar kosningar innan nokkurra
vikna. Það eru minni tíðindi, að
mynduð skuli minnihlutastjórn til
þess eins að sjá fyrir þingrofi og
nýjum kosningum. Það er hlut-
verk þeirrar ríkisstjórnar, sem nú
tekur við í dag.
Við sjálfstæðismenn vildum una
fráfarandi ríkisstjórn starfsfriðar
fyrstu mánuðina sem hún sat.
Fráfarandi ríkisstjórn fékk
starfsfrið og það er meira en hægt
er að segja um ríkisstjórn, sem
beitt var ofbeldisaðgerðum utan
þingsalanna. Valdið var tekið af
löggjafarsamkomu þjóðarinnar
þá. Við höfum haldið uppi stjórn-
arandstöðu, sem er ábyrg og
jákvæð.
Krafa um
kosningar
Við höfum, frá því að ljóst var,
að fyrstu aðgerðir ríkisstjórnar,
sem boðaðar voru sem skamm-
tímaaðgerðir dugðu ekki og voru á
sandi byggðar, krafizt þess, að
nýjar kosningar færu fram. Frá
því um áramót hefur þetta verið
okkar krafa. Enginn stjórnar-
flokkanna hefur tekið undir þessa
kröfu fyrr en einn þeirra gafst upp
og hljóp frá borði ríkisstjórnar-
fleysins og tók undir kröfu okkar
sjálfstæðismanna um þingrof og
nýjar kosningar. Það var einsýnt,
að við sjálfstæðismenn hlytum að
ítreka þá kröfu, og halda þeim
stjórnarflokknum að þeirri
ábyrgð, sem hann ber á stjórnar-
athöfnum öllum og láta hann skila
stjórnartaumnum í hendur nýs
ábyrgs meirihluta, þegar kosn-
ingar hafa farið fram. Við töldum
eðlilegt, að fráfarandi ríkisstjórn
sæti fram yfir kosningar og sinnti
þessu hlutverki, en úr því að húp
treystist ekki til þess að standa
við verk sín og viðskilnað gagn-
vart kjósendum á kjördegi, þá var
næst að leifar hennar stæðu að
því.
Engin ábyrgð
á mannavali
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
heitið minnihlutastjórn Alþýðu-
flokks að verja þá stjórn van-
trausti. Þetta fyrirheit og þessi
ályktun þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins er bundin ýmsum skil-
yrðum en veigamest þeirra er
auðvitað, að á þessum örfáu vik-
um, sem um er að ræða, verði
engin nýmæli í löggjöf eða stjórn-
arframkvæmd í gildi sett. Sjálf-
stæðisflokkurinn ber því enga
ábyrgð á stjórnarathöfnum núver-
andi stjórnar öðrum en þeim, er
lúta að þingrofi og nýjum kosning-
um. Það er rétt að geta þess að
gefnu tilefni, að Sjálfstæðisflokk-
urinn ber því síður ábyrgð á
mannavali núverandi ríkisstjórn-
ar, Sjálfstæðisflokkurinn tekur
ekki við fyrirskipunum frá öðrum
flokkum um skipun forystu sinnar
eða trúnaðarstarfa á vegum Sjálf-
stæðisflokksins og flokkurinn hef-
ur engan áhuga og vill engin
afskipti hafa af eða ábyrgð bera á
því, hvaða menn aðrir flokkar
velja í trúnaðarstörf af sinni
hálfu. Ég tek þetta fram vegna
þess að þeir flokkar, sem hafa
verið undirgefnir því að láta aðra
flokka ráða mannavali sínu hafa
haft á orði, að Sjálfstæðisflokkur-
inn kunni að hafa haft hönd í
bagga með núverandi stjórn að
þessu leyti.
Svo er ekki. Hins vegar eru
fordæmi um það t.d. þegar Fram-
sóknarflokkur lét undan þrýstingi
Alþýðuflokks og neitaði formanni
sínum, Jónasi frá Hriflu um ráð-
herradóm. Alþýðuflokkur lét líka
undan áróðri kommúnista og
felldi Stefán Jóhann frá for-
mennsku á sínum tíma. Mörg
önnur dæmi mætti nefna frá
öðrum flokkum en Sjálfstæðis-
flokknum, en Sjálfstæðisflokkur-
inn vill ekki viðhafa þessi vinnu-
brögð.
Spegilmynd
stjórnar-
samstarfs
í raun og veru er ekki þörf á því
að fara frekari orðum um aðild
eða ábyrgð Sjálfstæðisflokksins
að þeirri ríkisstjórn, sem nú tekur
til starfa. En það er fullkomin
ástæða til þess að fara nokkrum
orðum um aðdraganda þessara
stjórnarslita vegna þess, að þau
eru spegilmynd stjórnarsam-
starfsins og þeirrar upplausnar
stjórnleysis, sem ríkt hefur á
undanförnum 13 mánuðum. Það er
haft fyrir satt, að Alþýðuflokkur
hafi þá fyrst hlaupið frá borði,
þegar hann sá fram á það, er
fráfarandi forsætisráðherra lagði
fram þjóðhagsáætlun sína, að það
mundi verða meiri samstaða milli
Alþýðuflokks og Framsóknar-
flokks en milli þessara tveggja
flokka og Alþýðubandalags og
fyrirsjáanlegt væri, að Alþýðu-
bandalag mundi hlaupa frá borði.
Alþýðuflokkur gat ekki hugsað sér
að sitja eftir í stjórninni með
Framsóknarflokknum og vildi
þess vegna vera fyrri til. Það er
auglýst eftir ágreiningsefnum af
hálfu Alþýðuflokksins. Flokkur-
inn hefur ekki svarað.
Með sama hætti situr Alþýðu-
bandalag eftir með sárt ennið í
flatsæng með Framsóknarflokki
og kann illa við þau örlög og tók
ekki annað í mál heldur en
ríkisstjórnin segði af sér hið
bráðasta. Þetta er nú vitnisburð-
urinn um bróðurkærleik fyrrver-
andi stjórnarflokka. Þetta er nú
vitnisburðurinn um hversu viljug-
ir þeir eru að axla ábyrgðina. Það
er ekki ábyrgðartilfinningin, sem
rekur Alþýðuflokkinn úr stjórn-
inni, heldur hræðslan við kjósend-
ur, dóm kjósenda. Og sama
hræðsla við dóm kjósenda ræður
gerðum Framsóknarflokks og Al-
þýðubandalags.
Þrjár
höfuðstoöir
Við skulum líta á upphaf þess-
arar stjórnarmyndunar. Við höf-
um fengið vitnisburð um það, að
refskák hafi þá verið tefld af
framsóknarmönnum og alþýðu-
bandalagsmönnum. Ég held nú
e.t.v., að refskákin hafi verið
þríhliða á þeim tíma. En höfuð-
stoðir stjórnarmyndunarinnar
voru þrjár. I fyrsta lagi hið fræga
kjörorð, samningarnir í gildi. Til-
burðir voru hafðir uppi í þá átt í
byrjun september á síðasta ári,
þannig að hinir hæstlaunuðu
fengu mesta kauphækkun. Þakinu
var lyft og fleira í því skyni gert,
en hinir lægst launuðu ýmist enga
kauphækkun eða þá kauplækkun í
raun. Það er einkennandi, að nú
við lok þessa stjórnarsamstarfs
liggur það fyrir, að óbreyttum
lögum frá hendi þessarar vinstri
stjórnar, að hinir lægst launuðu
eiga að fá 2% minni verðuppbót
heldur en hinir hærra launuðu 1.
des. n.k. Þetta er táknrænt fyrir
núverandi stjórnarflokka, Alþýðu-
flokk og Alþýðubandalag, sem
gengu til kosninga undir kjörorð-
inu: samningarnir í gildi. Sú stoð
stjórnarmyndunarinnar er brostin
fyrir löngu. Enda er önnur stoðin,
auknar niðurgreiðslur, sem áttu
að leiða til lækkunar dýrtíðarinn-
ar, sömuleiðis brott fallin. Þeir
gáfust upp á auknum niðurgreiðsl-
um á miðju ári og drógu úr þeim,
enda er þetta falsráð til að ráða
niðurlögum verðbólgunnar, fals-
ráð sem hefnir sín. Það kemur
aðeins að tímabundnum notum og
þegar hækkanir verða á kostnað-
arþáttum verðlagsgrundvallar
landbúnaðarafurða, þá vegur sú
hækkun langtum þyngra í verð-
laginu, þegar tímar líða fram og
þessu hafa landsmenn kynnzt nú í
sumar og haust. Þessi höfuðstoð
átti að vera bjargráð fráfarandi
stjórnar. Ráðherrar Alþýðu-
bandalags slógu sér á brjóst og
sögðust hafa lækkað dýrtíðina á
þeim tíma. Þetta bjargráð hefur
snúizt gegn þeim og orðið þeim að
falli, sérstaklega þeim, sem gort-
uðu mest af þessu ráði, þ.e.a.s.
Alþýðubandalaginu.
Hver var Brútus?
Og hvað með þriðju höfuðstoð
stjórnarmyndunarinnar? Það var
aukin skattheimta, aukin skatt-
heimta til þess að standa að
falsráðinu gegn verðbólgunni.
Skattahækkanirnar eru sú stoð,
sem e.t.v. stendur en er þó að
bresta. Og hún er að bresta vegna
þess að fólkið þolir ekki þær
auknu skattaálögur, sem fráfar-
andi ríkisstjórn hefur lagt á þjóð-
ina. í raun og veru hafa fráfarandi
stjórnarflokkar heldur ekki treyst
sér til þess að hækka skattana til
þess að jafna rekstur ríkissjóðs.
Kunn er yfirlýsing fráfarandi
fjármálaráðherra, sem sagðist að
vísu breyta jöfnuði í ríkisrekstrin-
um á s.l. ári i halla vegna þess, að
hann ætlaði að lengja almanaks-
árið úr 12 mánuðum í 16 mánuði.
Þegar fyrirsjáanlegt var á þessu
ári, að það mundi ekki takast,
heldur mundu skuldir ríkissjóðs
stóraukast við Seðlabankann, lýsti
þessi sami fráfarandi fjármála-
ráðherra því yfir, um leið og hann
jók skattabyrðir almennings að
hann mundi enn lengja almanaks-
árið úr 16 mánuðum í 20 mánuði.
Það mun heldur ekki duga og
fjárlagafrv. er þess eðlis, að fyrir-
sjáanlegur rekstrarhalli yrði á
framkvæmd þess og áfram-
haldandi afgreiðslu miðað við þá
stöðu þings sem nú er. Við þessar
aðstæður er ekki um annað að
ræða en að nýjar kosningar fari
fram. Það voru boðaðar skamm-
tímaráðstafanir, en loks komu
langtímaráðstafanir. Það var
efnahagsfrv. forsætisráðherra,
sem engin samstaða varð um í
margar vikur, marga mánuði. Frv.
var borið fram hér 15. mars, á
dánardægri Caesars, og þá spurði
ég; hver er Brútus? Nú er komið í
ljós, hver Brútus er. Allir stjórn-
arflokkarnir hrósuðu sér af þess-
um efnahagslögum. Nú væri
bjargráðið fundið! Það er nú dæmt
ófært og raunar segja ýmsir, að
það sé orsök aukinnar verðbólgu á
sumar- og haustmánuðum.
Það fer illa á því, að hæstvirtur
fyrrverandi menntamálaráðherra
hafi orð á því, að fyrrv. ríkisstjórn
1974—1978 hafi ekki náð árangri í
baráttunni gegn verðbólgunni. í
byrjun árs 1977 hafði sú ríkis-
stjórn lækkað verðbólguna úr yfir
50% í 26%. Misbeiting krata-
brodda og kommúnistabrodda inn-
an launþegasamtakanna á þeim
samtökum, gerði það að verkum,
að aftur horfði í verri átt.
Að vinna at-
kvæði á fölskum
forsendum
Það fer ekki á milli mála, að
fráfarandi ríkisstjórn skilur sam-
kvæmt eigin yfirlýsingum við,
þegar verðbólgan frá ársbyrjun til
ársloka verður 55% og þegar
fyrirsjáanleg er hækkun fram-
færsluvísitölunnar um 13% 1. des.
n.k. Miðað við ár yrði verðbólgu-
vöxturinn nær 65%. Byggingar-
vísitalan hækkar ennþá meir.
Vaxtavísitala Seðlabankans eitt-
hvað þar á milli. Hver er afstaða
einstakra flokka, þegar svona
stendur á? Alþýðuflokkur talar af
ábyrgð að eigin sögn. Var ekki
formaður hans í ársbyrjun 1978 og
í aðdraganda kosninga 1978,
hæstvirtur forsætisráðherra
Benedikt Gröndal að tala um
samningana í gildi? Var það ekki
hann, sem ásamt Alþýðubandalagi
stóð að hervæðingu kratabrodda
innan launþegasamtakanna gegn
nauðsynlegum ráðstöfunum gegn
dýrtíðinni? Var það ábyrgðartil-
finning að vinna atkvæði að þessu
leyti á fölskum forsendum með
loforðum, sem hann vissi sjálfur,
að ekki væri unnt að efna. En hvað
hefur síðan gerzt? Ekki annað en
það, að sögn samstarfsflokka Al-
þýðuflokks í ríkisstjórn, að á
þriggja mánaða fresti hefur þessi
flokkur krafizt þess að dregið yrði
úr launahækkunum og dregið væri
úr og alls ekki stáðið við samning-
ana, sem í gildi voru. Var það ekki
þessi flokkur, Alþýðuflokkur, sem
gekk til kjósc'ida og sagði, að
hann vildi lækka skatta og skatta-
byrði almennings? Er það ekki
þessi flokkur, sem ber ábyrgð á
hærri skattaálögum heldur en
stjórnmálasagan kann að greina
frá? Er það ekki þessi flokkur,
sem ætlaði að draga úr og jafnvel
afnema tekjuskattana, en hefur
staðið fyrir hækkun þeirra meiri
en nokkru sinni áður hefur verið
framkvæmd á jafnskömmum
tíma? Er það ekki þessi flokkur
sem ætlaði að ráðast gegn verð-
bólgunni, en ber ábyrgð á mestu
verðbólguþróun, sem um getur í
sögu Islands?
Alþýðuflokknum
er ekki
treystandi
Það er rétt, að þessi flokkur
hefur staðið fyrir upphlaupum,
sýndarmennskuupphlaupum við
og við hér á Alþingi. En hann
hefur líka gefizt jafnoft upp.
Hann hefur jafnoft hjaðnað niður
og verið eins og lamb að leika sér
við, við fyrrverandi stjórnar-
flokka. Það er ekki fyrr en Sjálf-
stæðisflokkur setur Alþýðuflokki
þá úrslitakosti, setur Alþýðuflokk
í raun og veru upp að vegg og segir
honum að efna til þingrofs og
nýrra kosninga og hann beri
ábyrgðina og verði að skila af sér
með þeim hætti, að kjósendur fái
að ganga til kosninga og kveða
upp sinn dóm, að Alþýðuflokkur
gerir sér ljóst, að hann verður að
standa við stóru orðin, sem hann
hefur viðhaft í þingsölunum, en
hlaupið jafnskjótt og oft frá.
Það er víst og satt, að Alþýðu-
flokknum er ekki treystandi eftir
kosningar. Hann hefur sýnt sig
beran að því aö segja eitt fyrir
kosningar og annað eftir kosn-
ingar.
Flokkur gengis-
lækkunar og
vaxtahækkunar
Snúum okkur að Alþýðubanda-
lagi. Ekki voru orð þeirra veikari
varðandi samningana í gildi. Lof-
orðin jafnskýr og afdráttarlaus.
Með sama hætti voru verkalýðs-
foringjar þeirra háværir og beittu
ólögmætum aðgerðum jafnt sem
lögmætum. Ætla mætti, að þeim
hefði verið umhugað um að samn-
ingarnir yrðu í gildi, að kaupmátt-
urinn héldist eins og að var stefnt
í samningunum 1977 og þeir héldu
fram. En hvar hafa þessir verka-
lýðsforingjar verið síðustu 13
mánuði? Þeir hafa þagað þunnu
hljóði. Þeir hafa séð kaupmáttinn
falla og fyrirsjáanlegt er, að
kaupmátturinn verður minni
heldur en verið hefði, ef febrúar-
og maílögin frá 1978 hefðu fengið
að komast í framkvæmd án
skemmdarverka af hálfu þessara
manna.
Það heyrðist fyrir kosningar
1978 af hálfu formanns Alþýðu-
bandalags, Lúðvíks Jósepssonar,
að gengislækkun væri ekkert ráð.
En þeir fengu gengismálaráðherr-
ann og háttvirtur þingmaður
Svavar Gestsson hefur ekki haft
við að skrifa út heimildarbréf til
Seðlabanka íslands um ýmist að
fella gengið eða láta gengið síga.
Og Svavars Gestssonar verður
minnst í sögunni fyrir það að vera
sá ráðherra, sem hefur lækkað
gengið mest á skemmstum tíma.
Hvað er með verðlagsmálin?
Heyrðum við ekki í Þjóðviljanum
undir ritstjórn þessa sama manns,
að ríkisstjórnin gætí bara sagt:
Engar verðhækkanir. En hvað
hefur gerst? Verðlag hefur hækk-
að meira í tíð ráðherra Alþýðu-
bandalags sem verðlagsmálaráð-
herra en áður. Og hvað er með
vaxtamálin? Forsvarsmenn lág-
vaxtastefnunnar, Alþýðubanda-
lagið með Lúðvík Jósepsson í
broddi fylkingar hefur samþykkt
efnahagsfrv., hefur samþykkt
vaxtastefnu Alþýðuflokksins og
ber ábyrgð á þeirri vaxtastefnu og
framkvæmd hennar. Vextir hafa
þess vegna hækkað. E.t.v. var það
óhjákvæmilegt. En við sjálfstæð-
ismenn erum andvígir því, að
vextir séu sjálfkrafa hengdir aft-
an í verðbólguþróunina. Vextina á
að gefa frjálsa og ákveða þá með
framboði og eftirspurn og samkv.
ákvörðun viðskiptabanka og lána-
stofnananna, en ekki að ákvarðast
fyrirfram samkv. formúlu af
Seðlabankanum.
Við höfum heyrt það, að það
væri alveg útilokað að skerast í
leikinn varðandi gerð kjarasamn-
inga af hálfu Alþýðubandalagsins,
hvað þá heldur að torvelda verk-
föll, helgasta rétt hvers vinnandi
manns eins og þeir komast að orði.
En hvað hefur Alþýðubandalagið
gert á sínum stjórnarferli annað
en einmitt það að standa að
löggjöf um að skerast í gerða
kjarasamninga og banna verkföll
sbr. farmannaverkfallið. Og loks,
Alþýðubandalagið sem hefur haft
stór orð um, að varnarliðið þyrfti
að fara af landi brott. Alþýðu-
bandalagið hefur setið eins og mús
undir fjalaketti og ekki minnst á
varnarliðið eða brottför þess og
má í því efni segja, að batnandi
manni er best að lifa.
Framsóknar-
flokkur
tvístígandi
Hvað er þá með Framsóknar-
flokkinn, sem byrjaði stjórnar-
myndunina með því að gefast upp?
Var ekki eingöngu sigraður í
kosningunum, heldur lét sigrast
eftir kosningarnar og gekk á hönd
Alþýðubandalagi og Alþýðuflokki
og lofaði að gera allt það sem
þessir flokkar vildu og framsókn-
armenn voru á móti í kosningun-
um 1978. Það var stórmannlega að
farið. Hver er skýringin önnur en
sú, að Framsóknarflokkurinn vill
alltaf halda fast í valdastólana, í
ráðherrastólana.
Framsóknarflokkurinn hefur
ekki haft neina sjálfstæða stefnu í
fráfarandi ríkisstjórn. Hann hefur
tvístigið á milli hinna tveggja
flokkanna. Hann hefur fyrst horft
til annars, síðan til hins. Hann
hefur stigið Óla Skans dans fram
og aftur milli Alþýðuflokks og
Alþýðubandalags. Hann hefur
ekki vitað sitt rjúkandi ráð. Aðal-
markmiðið hans er nú sem fyrr að
halda í völdin og ráðherrastólana,
enda er það einkennilegt og þó
ekki nema í samræmi við skoðun
Framsóknarflokksins og í sam-
ræmi við hver sárt Alþýðubanda-
laginu ér um ráðherrastólana, að
tillögur formanna þessara flokka
beggja til forseta var það, að það
væri nauðsynlegt að reyna að
mynda nýja vinstri stjórn, endur-
reisa vinstri stjórnina með þeim
þrem flokkum, sem að henni hafa
staðið. Fráfarandi forsætisráð-
herra lét líka orð að þessu falla í
sjónvarpsviðtali. Það eru fordæmi
fyrir þessu áður. Þegar vinstri
stjórnin féll 1958, þá var gerð
örvæntingarfull tilraun til þess að
endurlífga hana. Það átti að gera
sömu tilraun nú. Við sjálfstæð-
ismenn gengum ákveðnir til verka
og gerðum Alþýðuflokknum það
að standa við orð sín. Þess vegna
tókst ekki að endurreisa vinstri
stjórnina. En við skulum hafa það
í huga, að með því að ekki er
treystandi orðum neinna þessara
þriggja vinstri flokka, sem svo
vilja kalla sig fyrir kosningar, að
þeir standi við þau eftir kosn-
ingar, þá getur svo farið, að
tilraun verði enn gerð um myndun
vinstri stjórnar eftir kosningar.
Þó ættu þessir flokkar að vera
búnir að fá sig fullsadda af vinstri
stjórnum, sem reynslan sýnir, að
ekkert gagn hafa gert, en einungis
skaða. Við hljótum því að beina
því til landsmanna allra og kjós-
enda að vera á verði gegn því, að
slíkt geti endurtekið sig.
Allt er þá
þrennt er
Allt er þá þrennt er. Vinstri
flokkarnir svokallaðir hafa fengið
tækifæri sitt. Nú er reynslan
ólygnust. Vinstri stjórnir duga
ekki og nauðsynlegt er, að einn
flokkur hafi ábyrgðina á málefn-
um þjóðarinnar. Sjálfstæðisflokk-
ur hefur markað stefnu sína í
efnahagsmálum og öðrum málum
á landsfundi flokksins í vor. Hann
mun skýra þá stefnu í þeirri
kosningabaráttu, sem nú er hafin
og skírskota til þjóðarinnar að
ljúka þessu ófremdarástandi, sem
nú er fram komið með því að fela
honum ábyrgð á stjórn landsins.