Morgunblaðið - 17.10.1979, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1979
21
Júrí Averbah segir frá 50. þingi FIDE:
Aukið vald f orseta FIDE við fram-
kvæmd heimsmeistaraeinvígis
í viðtali, sem birtist nýlega
við sovéska skákmeistarann
Júri Averbah, segir hann frá
50. þingi FIDE, sem fram fór
á Puerto Rico i byrjun sept-
ember.
— Þetta er fyrsta þing hins
nýja forseta FIDE. Hvernig
stendur hann sig í hlutverkinu,
að þínum dómi?
— Mjög vel. Friðrik Ólafsson
er lögfræðingur að mennt og
fyrir honum eru lög — lög. Max
Euwe var sannarlega mjög góður
skákmaður en það kom einstaka
sinnum fram, að hann var án
allrar lögfræðilegrar þekkingar.
í hans augum voru lög og
ákvarðanir FIDE ekki alltaf
óumbreytanleg.
— Skákheimurinn beið með
talsverðri óþolinmæði eftir hvað
kæmi út úr starfi sérnefndar
þeirrar, sem fjallaði um reynsl-
una frá Bagío og átti að gefa
þinginu meðmæli sitt nýrri til-
högun við heimsmeistaraeinvígi.
Hver varð úrskurður þingsins?
— Ákveðið var að halda
óbreyttri tilhögun. Heimsmeist-
araeinvígið verður áfram þann-
ig, að sá sem fyrst vinnur sex
skákir hann ber sigur úr býtum.
Leikjafjöldi verður ekki tak-
markaður. Tekið var tillit til
óska heimsmeistarans, A. Kar-
pov, sem var einmitt hlynntur
þessari tilhögun.
— I Bagío komu oft upp
ágreiningsatriði. Að hvaða leyti
er höfð hliðsjón af þeirri
reynslu, sem þar fékkst?
— I Bagío var starfandi áfrýj-
unarnefnd sem í voru 7 menn.
Hún áttti í stöðugu málavafstri.
Hvað viðkemur fyrrverandi for-
seta FIDE, þá stóð hann oft hjá
sem áhorfandi.í ákvörðun FIDE-
þingsins stendur nú: Forseti
FIDE á sjálfur að bera ábyrgð á
framkvæmd heimsmeistaraein-
vígisins og hann á að skipa
dómnefnd með þremur mönnum.
Þeir, sem í þessari nefnd eru
eiga ekki að vera frá þeim
löndum, sem keppendur koma
frá. Þess skal þó getið, að þetta
síðasta gildir ekki, ef þátttak-
endur eru frá sama landinu.
Forsetinn getur beitt neitunar-
valdi á ákvarðanir dómnefndar-
innar. í stuttu máli þá er
hlutverk forseta FIDE orðið
mun meira hvað varðar fram-
kvæmd einvígsins.
— Nú upp á síðkastið hefur
orðið vart nokkurrar áhyggju
vegna mikillar fjölgunar á stór-
meisturum. 1 fyrra fengu 20
skákmenn titilinn, ef ég man
rétt. Hvað hefur þú um þetta
mál að segja sem formaður
þeirrar nefndar FIDE, sem út-
nefnir stórmeistara?
— Já, þarna er um nokkurt
vandmál að ræða og var komið
inn á það á þinginu. Ákveðið var
að gera skilyrðin strangari. Nú
verða menn að hafa 2450 byrjun-
arstig til þess að hljóta titilinn
(fyrir meistaratitil 2350) og
verða tvisvar að ná stórmeistara
„standard", sem samsvarar
u.þ.b. 2600 stigum. Á þessu ári
hafa aðeins 4 fengið titilinn.
Fyrst og fremst snýst málið um
framkomu og heiðarleika skák-
mannsins og nú getur FIDE, ef
því finnst ástæða til, svipt skák-
mann titlinum.
— Þú munt einnig vera for-
maður nefndar, sem sér um
hjálp til þróunarlandanna. Ég
mintist þess, að í síðustu heim-
sókn sinni til Moskvu kom Frið-
rik Ólafsson inn á það að þessi
þáttur starfsemi FIDE væri sá
mikilvægasti. Hvaða ráðstafanir
hafa verið gerðar í þessa átt?
Friðrik ólaísson.
— í þessari nefnd eru tveir
formenn, F. Kampomanes og ég.
Ég get fullvissað menn um það,
að í fyrsta sinn voru nú gerðar á
FIDE-þingi mikilvægar sam-
þykktir varðandi þessi mál. Lögð
hafa verið drög að allsherjar-
áætlun til hjálpar þróunarlönd-
unum mörg ár fram í tímann.
Það fyrsta, sem við gerum, er að
athuga hversu langt á veg skák-
listin er kpmin í hinum ýmsu
löndum, og þó það hljómi ef til
vill mótsagnakennt, þá eru flest
lönd vanþróuð á því sviði. Tökum
t.d. Japan. Háþróað kapitalískt
ríki. En í skák hefir það ekki náð
langt. Hjálp frá FIDE fer eftir
þróun skáklistarinnar í hverju
landi og getur orðið mjög mis-
munandi. Til eins lands þarf að
senda skákmeistara til keppni,
til annars kennara til að halda
námskeið og í það þriðja nægir
ekki einu sinni að senda heila
skáksveit.
Ákveðið hefur verið að stofna
til skákmiðstöðva í löndunum.
T.d. hefir Mexikó boðist til þess
að taka á móti 50 manns árlega,
en æskir í stað þess að fá frá
Sovétríkjunum eða Kúbu tvo
leiðbeinendur til þess að halda
námskeið. Ég vil láta þess getið
að FIDE hefur fylgst af áhuga
með miklum framförum og
starfsemi meðal ungs skákfólks í
Mexikó. Þar í landi hefur farið
fram heimsmeistaramót ungl-
inga og Ólympíuskákmót. 1980
bjóða Mexíkanar unglingum aft-
ur til keppni og í ár héldu þeir í
fyrsta sinn skákmót fyrir ungl-
inga undir 14 ára aldri. FIDE
hefur ekki tekið afstöðu til slíkra
móta, þó að Puerto Rico hafi
ásamt UNESCO haldið eitt hjá
sér um leið og þingið starfaði.
(APN).
Hugmyndin að
félagsvísindum
Bolungarvík:
Góð veiði í upp-
hafí rækjuvertíðar
BÓKAÚTGÁFAN Iðunn hefur
sent Irá sér bókina Hugmyndin að
félagsvísindum og tengsl hennar
við heimspeki eftir breska heim-
spekikennarann Peter Winch.
Jónas Ólafsson þýddi.
Höfundur er prófessor við King’s
College, London. Bók hans kom
fyrst út 1958 og hefur verið endur-
útgefin margsinnis og vakið miklar
umræður og deilur meðal þeirra
sem fást við heimspeki.
I bókinni eru gagnrýndar vissar
ríkjandi hugmyndir um eðli heim-
speki og félagsvísinda og þær
taldar gefa villandi mynd af sam-
bandi félagsvísinda við heimspeki
annars vegar og náttúruvísindi
hins vegar. Höfundur leiðir í stað-
inn til öndvegis hugmyndir sem
hann telur sig sækja í heimspeki
Wittgensteins.
Hugmyndin að félagsvísindum
skiptist í fimm aðalkafla, sem
heita: Þáttur heimspekinnar, Eðli
merkingarbærs atferðis, Samfél-
agsfræði sem vísindi, Hugur og
samfélag og Hugtök og samfélag.
— Aftast er bókaskrá, ennfremur
nafnaskrá og listi um óvenjuleg
orð. — Þessi bók er hin fyrsta í
fyrirhuguðum flokki sem nefnist
Heimspekirit og er í umsjá Páls
Skúlasonar prófessors. Hún er 128
bls., sett í Odda og prentuð hjá
Prenttækni hf.
Bolungavík' 16. október.
SEX bátar hófu rækjuvertíðina
hér s.l. föstudag og fengu alls 14
lestir í fyrstu ferð, þar af fékk
rækjubáturinn Páll Helgi 5 lestir.
I venjulegu árferði veiðir hver
bátur í kringum fimm lestir, þannig
að ætla má að nokkuð af rækju sé í
Djúpinu að þessu sinni.
Rækjan sem veiddist á föstudag
er að mati þeirra sem til þekkja
mjög þokkaleg.
Þá eru bátar hér við Djúpið
farnir að fá smokkfisk í fyrsta sinn
síðan 1966. Bátarnir hafa fengið
allt að 800 kíló yfir nóttina.
— Gunnar.
AK.I.YSINC VSIMIVN KR:
22480
v_______________________________/
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Þvottavél til sölu
10 ára gömul, lítiö notuö. Síml
34252 eftir kl. 6.
□ HELGAFELL 597910177 VI -
2_________________________
IOOF 7= 16110178V2 =Spila
K.
Glitnir 59791017= 2.
RMR - 17 - 10 - 20 - VS - MT -
HT
Kristinboössambandið
Almenn samkoma veröur í
kristinboöshúsinu Betaníu, Lauf-
ásvegi 13, í kvöld kl. 20.30.
Kristinboösfélagiö Árgeisli sér
um samkomuna. Allir eru hjart-
anlega veikomnir.
Hörgshlíð 12
Samkoma í kvöld kl. 8.
Fíladelfía
Almenn samkoma kl. 17.00. Dr.
Thompson talar.
fundur verður í KR heimilinu í
kvöld 17. okt. kl. 8.30. Sýndur
veröur hárblástur. Mætiö vel og
stundvislega. Stjórnin.
A
%
Leðurvinnukvöld
Leðurvinnan hefst miövd. 17.
okt. kl. 20. aö Laufasvegi 41.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
11798 og 19533.
IOGT
Stúkan Einingin nr. 14 fundur í
kvöld kl. 20.30 í Templarahöll-
inni viö Eiríksgötu. Inntaka mál-
efnanefnd annast dagskrá. Sími
æðsta templars er 71021.
ÆT.
Laugardagur
20. okt. kl. 08.00
Þórsmörk. Gist í upphituöu húsi.
Farnar gönguferöir um Mörkina.
Nánari upplýsingar og farmiöa-
sala á skrifstofunni.
Feröáfélag islands.
Sálarrannsóknarfélag
íslands
Félagsfundur veröur aö Hallveig-
arstööum fimmtudaginn 18. okt-
óber n.k. K. 20.30. Ævar Kvaran
flyturerindi vandamál sálrænna
hæfileika.
Stjórnin.
radauglýsingar - - raðauglýsingar — raðauglýsingar \
\ til sölu I Til sölu Til sölu er áhöld til viðgerða á hjólbörðum ásamt lager. Tilboð óskast fyrir kl. 12.00 þriðjudaginn 23. október n.k. merkt: „Hjólbarðaverkstæði“. Nánari upplýsingar veitir Einar Pálsson verkstjóri í síma 10700. Mjólkursamsalan Laugaveg 162 Reykjavík sími 10700. húsnæöi óskast
Til sölu Ricoh offset 10 10 fjölritari ásamt myndavél og brennara. Einnig handpappírsskuröarhnífur, skuröar- breidd 75 cm. Uppl. í síma 96-21980, eftir kl. 7. Verzlunarhúsnæöi Verzlunarhúsnæði á jarðhæö óskast til leigu, helzt 5—10 ára leigusamningur. Húsnæðið þarf að vera í miöbænum eða við Laugaveg, neöanveröan. Stærö ca. 60—100 ferm. Upplýsingar á lögfræðiskrifstofu Vilhjálms Arnasonar hrl. lönaðarb'ankahúsinu, Lækjar- götu 12, símar 16307 og 24635.