Tíminn - 29.06.1965, Qupperneq 1
HANDBOK
VERZLUNAR MANNA
ASKRIFTARSlrVII
•0688 16888 16688
HANDBÓK
VERZLUNAR MANNA
ÁSKRIFTARSÍMI
16688 16688
142. tbl. — Þriðjudagur 29. júní 1965 — 49. árg.
Einir tólf síldveiSibátar komu aS norSan hingaS til Reykjavíkur í gaerdag. Hér á myndinni sjást tveir þeirra vera aS sigla inn höfnina. Ásbjörn er til vinstri en til hægri er Ásþór.
Þeir voru keyrSir á fullu til hafnar. Tímamynd KJ.
SÍLDVEIÐARNAR STÖÐVAST
VEGNA SÍLDARSKATTSINS
TK-FB-BÞG—Reykjavík, mánudag.
Gjörvallur sfldveiðifloti íslendinga hefur nú stöðvazt vegna bráða-
birgðalagasetningar ríkisstjórnarinnar um stórfelldan nýjan skatt á
sjómenn og útvegsmenn, sem renna á til sfldarflutninga til Norðnr-
lands m. m. Telja sjómenn og útvegsmenn, að greiða eigi kostnað-
inn af sfldarflutningunum til Norðurlands og öðrum ráðstöfunum til
að bæta atvinnuástandið þar úr almannasjóðum í stað þess að
leggja þennan kostnað á útveginn einan og skerða þannig hlut
hans um tugi ef ekki hundruð milljóna króna. Er alger samstaða
ríkjandi meðal útvegsmanna, skipstjóra og sjómanna á sfldveiðiflot-
anum um að krefjast sanngjams verðs fyrir sfldina og fara ekki úr
höfn fyrr en gengið hefur verið til móts við kröfurnar. Yfirlýsingar
stjómar LÍÚ í morgun þóttu æði skrýtnar en rjúfa þó ekki þá
samstöðu sem skapazt hefur.
Ágætis veður var á miðunum
fyrir Austurlandi í dag, en ekki
eitt einasta íslenzkt skip við veið-
ar. Fann Ægir þar mikla síld í
dag 80 mílur suðaustur af Langa-
nesi og stóðu torfurnar á 20—40
faðma dýpi. Þá hafa síldveiðibát-
ar, sem stundað hafa síldveiðar
sunnanlands einnig verið stöðvað-
ir til að mótmæla því, að ekki hef-
ur enn fengizt ákveðið síldarverð
sunnanlands. Ríkisstjórnin hafði
það eitt til málanna að leggja í
kvöld, að biðja blöðin að endur-
prenta bráðabirgðalögin um hinn
rangláta síldarskatt á útveginn,
þótt öllum hljóti að vera ljóst,
nema ríkisstjórninni, að lausn
þessa máls þolir enga bið — og
það verður ekki leyst nema hin-
um rangláta skatti verði létt af og
síldarflutningarnir greiddir með
öðru móti.
Síðdegis á laugardag komu skip-
stjórar á einum 50 til 60 skipum
saman til fundar á Raufarhöfn,
og ákváðu þar að mótmæla bráða-
birgðalögum ríkisstjórnarinnar frá
því á fimmtudaginn og um leið
verði yfirnefndarinnar á fersksíld
veiddri í sumar. -Skipstjórarnir
mótmæltu lögunum og fóru um
leið fram á að verðið á síldinni
yrði 220 krónur fram til 15. júní
fyrir hvert mál síldar og 250 krón
ur eftir þann tíma. — Við ætlum
okkur að halda fast við þetta,
sagði einn skipstjórinn í viðtali við
blaðið í dag, og ákveðið er að
ekkert skip fari úr höfn fyrr en
gengið hefur verið að þessu.
Skipstjórarnir tóku síðan ákvörð
un um að leggja skipum sínum, og
sigldu flestir þegar í stað til
heimahafnar. Ákvörðun um þetta
var tekin bæði í gegnum talstöðv-
ar skipanna og síma, og segja þeir,
sem hlustuðu á samtölin, að Gunn-!
ar Hermannsson, skipstjóri á Eld- j
borginni, hafi kallað upp, að hann
væri á heimleið, og hvort ekki
væri einhver, sem vildi slást í för
með honum. Einhuga samstaða
virtist vera milli allra, því áður
en tvær klukkustundir voru liðn-
Framhald á l4. síðu
Þetta er mastraskógurinn í höfninni á Akureyri, en þangað leitaði fjöldi skipa inn um helgina, þegar síldveiði-
flotinn stöðvaðist. (Tímamynd GPK).
Formaður Framsóknarflokksins lét bóka í stjórn SR
FULL T SILDAR VERD GREIDIST
- ÁN N0KKURS FRÁDRÁTTAR
TK—Reykjavík, mánudag.
Eins og greinilega kemur fram
annars staðar í blaðinu, þá stend
ur síldardeilan raunverulega um
þá nýju skattlagningu á útveginn,
sem ákveðinAldr með bráða-
birgðalögunum, og renna á til
sfldarflutninga til Norðurlands-
| hafna m. a. í grehiargerð Sveins 0g útvegsmanna um 15 krónur á
! Benediktssonar, formanns Síldar bvert mál.
verksmiðja ríkisins, er alveg fram ÞaS var borið upp í síldar
hjá þessu atriði gengið, en hins verksmiðjustjórninni, hvort leggja
vegar lögð áherzla á, að alger ætti sérstakan skatt á sjómenn og
samstaða hafi verið í stjórn Sfldar útvegsmenn til að standa undir
verksmiðjanna um bræðslusfldar sfldarflutnimgunum. Eysteinn
( verðið. Skatturinn lækkar þó Jónsson, sem á sæti í stjórninni,
bræðslusíldarverðið til sjómanna I lagðist algerlega gegn því og taldi
að standa yrði undir kostnaði við
flutninga með öðrum hætti. Lét
hann m.a. bóka þetta í verksmiðju
stjóminni í sambandi við þetta
mál:
„Þar sem ég tel, að síldaf
flutninga til verksmiðja fjarri
veiðistað beri ekki að kosta
Framhald á l4. síðu.