Tíminn - 29.06.1965, Side 13
1
«3ÐJUDAGUR 29. júní 1965
HMTiUJhiH TÍMINN ÍÞRÓTTIR
JL3
Full ástæða til að stokka upp framlínuna
ðanskur sóknarmaður sækir að Akureyrar-markinu, en Samúel mark-
rörður grípur knöttinn af tám hans. Tímamynd.GPK
Danir sigruðu 2:0
^CKKdAkureyri, mánudag.
Danska úrvalsliðið frá Sjálandi
Kk gegn Akureyrar-liðinu á laugar
dagmn og sigraði með 2:0. Danirnir
léku á móti vindi í fyrri hálfleik,
en sóttu þó öllu meira. Akureyrar
IHiiS Sttl þó sín tækfæri og t. d. átti
Sfehigrímur Björnsson hörkuskot á
20. mfn., sem danski markvörðurinn
varðí snilldarlega.
Fyrri hálfleikur var markalaus.
Strax í síðari ’hálfleik sóttu Akur
eyringar fast að danska markinu,
en árangurslaust. Sjálands-úrvalið
náði eftir þetta undirtökunum og
skoraði á 25. mín. 1:0. Og 10 mín.
síðar skoraði danska úrvalið 2:0
eftir mistök í Akureyrar-vörninni.
Fleiri urðu mörkin ekki.
Danirnír léku mjög lipurt og
töldu þetta hafa verið sinn bezta
leik hér til þessa. — Áhorfendur
voru margir þrátt fyrir kalsaveð-
ur. Leikinn dæmdi Rafn Hjaltalín.
- tilraunalandsliðið tapaði 0:2 fyrir SBU í gærkvöldi
Alf.-Reykjavík. — Leikur til-
raunalandsliðsins á Laugardals-
vellinum í gærkveldi gegn danska
úrvalsliðinu frá Sjálandi var sann
arlega ekki uppörvandi. Liðið náði
aldrei saman og náði aldrei að
sýna tilþrif eða baráttuhug, enda
fór svo, að Danirnir unnu með 2:0.
íslenzk knattspyrna ristir ekki
djúpt, ef ekki væri hægt að stilla
upp liði, sem gæti sigrað þessa
dönsku gesti. Ég er líka á því, að
það sé hægt að stilla upp sterkara
landsliði en því, sem lék í gær-
kveldi.
Og þá verður í fyrsta lagi að
gera róttækar breytingar á fram-
línunni. Það var enginn baráttu-
hugur í Ingvari Elíssyni, Reyni
Jónssyni eða Karli Hermannssyni
í gærkveldi — í staðinn fyrir
þessa leikmenn myndi ég hiklaust
taka Baldvin Baldvinsson, Gunn-
ar Felixson og svo auðvitað Þórólf
Beck. Gunnar myndi þá leika á
hægra kanti, Þórólfur sem hægri
innherji og Baldvin í miðherja-
stöðu. Eyleifur er sjálfsagður í
v. innherjastöðu og Sigurþór
Jakobsson á v. kant. Sem sé, það er
full ástæða fyrir landsliðsnefnd
að stokka upp framlínuna.
Það er svo sem engift ástæða
til áð hrósa neinum í tilrauna-
landsliðinu, sem lék í gærkveldi,
en veikasti hluti liðsins var greini
lega framlínan.
Danirnir skoruðu sitt markið í
hvorum hálfleik og var Jörgen
Jörgensen að verki í bæði skipt-
in. Hann fékk stungubolta frá
Dyrmose á 43. mín. fyrri hálf-
leiks og skoraði auðveldlega fram
hjá Sigurði Dagssyni, sem lék í
stað Heimis Guðjónssonar. Á 32.
mín. í síðari hálfleik skoraði Jörg-
ensen svo eftir gróf varnarmistök
Jóns Stefánssonar, sem „kiksaði"
illa.
Það er tæplega hægt að segja,
að ísl. liðið hafi átt hættuleg tæki-
færi í leiknum. Litlu munaði þó,
að Ingvari tækist að skora með
skalla á 40. mín. s. h., en knöttur-
inn fór rétt utan við stöng.
Landsliðsnefnd reyndi Magnús
Jónatansson í h. framvarðarstöðu
og stóð hann sig allvel í fyrri hálf
leik, en lék ekki eins vel í þeim
síðari. Ég hugsa, að það sé sterk-
ari leikur að hafa Jón Leósson í
framvarðarstöðu en Jón lék í bak-
varðarstöðu í gær. Jón Stefánsson
gerði sig sekan um eina stóra
skyssu, sem kostaði mark, en stóð
sig að öðru leyti vel og var einn
skársti maður liðsins.
Veður var leiðinlegt í gær, þeg
ar leikurinn fór fram, frekar kalt
og skúrir öðru hverju. Áhorfend-
ur hafa líklega verið um 3 þús.
talsins. Carl Bergmann dæmdi
leikinn og gerði það mjög vel.
Hann hefur vaxið mjög í starfi og
er orðinn einn okkar gleggsti
dómari. Það er mikill kostur við
Carl, að hann lætur lítið á sér
bera.
Rvíkur-úrvalið
vann með 2:0
Danska unglingaliðið frá
Herlev, sem hér dvelst á vegum
Víkings, lék sinn fyrsta leik gegm
Rvíkurúrvali 2. flokks á Melavell
inum í fyrrakvöld. Rvíkur-úrvalið
vann 2:0 og skoraði Hermann
Gunnarsson, Val, bæði mörkin.
Aftur á jörðmni
Danska landsliðið í knattspyrnu
fór enga fræigðarför til Moskvu,
því það mátti bíta í það súra epli
að tapa 6:0 fyrir Rússum s. L
sunnudag. Leiknrínn var Hður í
heimsmeistarakeppninni og hafa
Rússar nú tekið forystu í riðlitn-
um.
í fyrri hálfleik stóð danska lið
ið sig eftir atvikum vel og fékk
þá einungis eitt mark á sig. í
síðari hálfleik fór danska vörnin
hins vegar úr sambandi og þá
stormuðu hinir eldfljótu rúss-
nesku framherjar hvað eftir ann
að í gegn og skoruðu fimm sinn
um.
E**”58” Búizt við miklu
fjðlmenni að Laugarvatni
Alf — Reykyjavík, mánudag.
Um næstu helgi verSur Laugarvatn sannkölluð íþróttamið
stöð. Búast má við, að þúsundir manna streymi þangað frá
öllum landsfjórðungum í sambandi við 12. landsmót UMFÍ.
Ef veður verður hagstætt, er ekki fráleitt að álykta, að milli
10 og 20 þúsund manns sæki mótið. Á fundi með frétta-
mönnum í dag skýrði landsmótsnefnd frá tilhögun mótsins,
sem farið var að undirbúa fyrir 2—3 árum, en um fram-
kvæmdina sér Héraðssambandið Skarphéðinn.
Keppendur og starfsfólk á
þessu 12. landsmóti verða yfir
eitt þúsund talsins — og það eitt
gefur til kynna hversu umfangs
mikið mótið er. Þátttakendur
verða frá 17 félögum og héraðs-
samböndum.
Vígsla íþróttamannvirkja.
Eins og gefur að skilja krefst
jafnstórt íþróttamót og þetta 12.
landsmót UMFÍ, íþróttamann-
virkja, þar sem keppni í hinum
nörgu greinum getur farið fram.
Eins og málum var háttað á Laug-
arvatni vantaði góða. aðstöðu fyrir
frjálsíþróttir og knattspyrnu, en
aú hefur verið fullgerður gras-
völlur, 112x74 m, i kast- og
braut, glæsilegt mannvirki, sem
vígt verður í sambandi við mótið
og mun keppnin að miklu leyti
fara fram á nýja svæðinu. Hefur
Árni Guðmundsson, skólastjóri
fþróttakennaraskólans, lagt mikla
vinnu að mörkum við uppbygg-
ingu íþróttasvæðisins — og
Iþróttakennaraskólinn, sem slíkur,
veitt mikla aðstoð til þess, að
svæðið gæti orðið tilbúið fyrir
landsmótið.
Þá er þess að geta, að komið
hefur verið upp plast-sundlaug,
þar sem sundkeppnin fer fram.
Á Laugarvatni er sundaðstaða, en
ekki hentug fyrir svo stórt mót
sem landsmótið er, og var því tek
ið til bragðs að .setja upp plast-
stökkgreinum og 400 m hlupaa-laug, 10x25 m. Hefur Þorsteinn
Einarsson, íþróttafulltrúi, séð um
útvegun á henni.
Keppnisgreinar.
Keppnisgreinar eru margar á
12. landsmótinvi, frjálsíþróttir,
knattspyrna, handknattleikur,
körfuknattleikur, glíma, starf.s-
íþróttir ýmislegar o. fl. o. fl. Þá
má nefna ýmiss konar hópsýning-
ar, fimleika-sýningar og dans-
sýningár.
Hið eiginlega mót hefst á laug
ardagsmorgun kl. 9 f. h., en þá
fylkja keppendur liði og ganga
inn á íþróttasvæðið. Árni Guð-
mundsson, .skólastjóri mun flytja
ávarp, en síðan vígir mentamála
ráðherra, Gylfi Þ. Gíslason hið
nýja íþróttasvæði. Þá flytur séra
Eiríkur J. Eiríksson, Sambands-
stjóri UMFÍ, setningarræðu. Að
því búnu hefst íþróttakeppnin og
verður keppt í ýmsum greinum
fram eftir degi. Um kvöldið, þ.e.
laugardagskvöld. verður kvöld-
vaka — og síðar stiginn dans. \
sunnudaginn verður dagskrwj) í
aðalatriðum eins, þ.e. KepiJiiin
byrjar strax um morguniftn og
keppt fram eftir degi, og um ^
kvöldið verður dansað .Dagskráin
í heild verður birt hér á síðunni
síðar í vikunni.
Mikil umferð.
Búast má við, að umferðastraum
urinn verði mikill að Laugarvatni
og hafa því verið gerðar víðtækar
ráðstafanir til þess, að hún gangi
sem greiðast fyrir sig. Mun hópur
lögregluþjóna úr Reykjavík fara
austur og annast umferðastjórn.
Þá má geta þess, að sérstakt
„heimavarnarlið“ Skarphéðins —
40 piltar — munu hjálpa við um-
ferðina og einnig verða skátar
úr hjálparsveitinni til staðar.
Ölvun bönuuð
Ávallt er nokkur hætta á því,
þegar útimót eru haldin, að ölvun
verði áberandi. Landmótsnefndin
hefur beðið blaðið að geta þess
sérstaklega — og undirstrika —
að öll ölvun á mótinu er strang-
lega bönnuð og verða ölvaðir
menn tafarlaust fjarlægðir af
mótsstað. — Að lokum má geta
þess. að um ferðir frá Rvík að
Laugarvatni sér Ólafur Ketilsson.
Um ferðir milli Selfoss og Laugar
vatns sjá beir Axel og Reykdal.
Þessi úrslit eru mikið áfall
fyrir Dani, sem nýverið sigruðu
Svía 2:1 og hafa síðan verið í
skýjunum. En með þessum úrslit |
um eru þeir komnir á jörðina
aftur.
Enginn
pressu
leikur
Alf — Reykjavík.
í stuttu viðtali við
Björgvim Schram, formann
Knattspyrnusambands ís-
lands,,í gær, tjáði hann blað
inu, að enginn pressuleik-
ur færi fram fyrir landsleik
inn við Dani, sem verður
n. k. mánudagskvöld. Ráð
geirt hafði verið, að pressu
leikur færi fram n. k.
fimmtudagskvöld.
Ástæðan fyrir þvi, að
pressuleikurinn er felldur
niður að bessu sinni mun
aðallega vera sá, að meist
araflokksleikmenn okkar
hafa staðið i ströngu síð-
ustu daga — fyrst erfið
törn i íslandsmótinu, en of-
an í hana kom svo heim-
sókn danska úrvalsliðsins
frá Sjálandi.
2. deild
Þrír leikir fóru fram í 2. deild
ar keppninni í knattspyrnu um
helgina og urðu úrslit eins og
hér segir:
FH—ísafjörður 2:4
Sandgerði — Þróttur 0:7
Vestmannaeyjar — Víkingur3:l
Þróttur hefur nú örugga for-
ystu í a-riðli með 7 stig, en í
b-riðli eru Vestm. og ísafjörður
jöfn að stigum með 6 stig, en
Vestm. hafa leikið einum leik
færra.