Tíminn - 29.06.1965, Page 14

Tíminn - 29.06.1965, Page 14
14 TÍMINN ÞRIÐJUDAGUR 29. júní 1965 SÍLDVEIÐARNAR ^STÖÐVAST Framhalct al L. síðu ar voru hátt á annað hundrað skip lögð af stað til heimahafnar, ef þau voru það þá ekki fyrir, þar sem bræla hafði verið undanfarna daga á miðunum. Munu alls um 160 skip hafa tekið þátt í þessum mótmælaaðgerðum. Við Grímsey söfnuðust saman 40—50 skip og sigldu áleiðis vest- ur fyrir land, og komu allmörg þeirra til Reykjavíkur upp úr há- degi í dag, en önnur höfðu farið inn á ýmsar hafnir á leiðinni. Skip, sem vöru á suðurfjörðunum, söfnuðust einnig saman og sigldu suður fyrir land. — Við finnum ekki svona ódýra síld í sjónum, og við treystum okk ur ekki til þess að leita að henni fyrir þetta verð, endurtóku skip- stjórarnir allir sem einn maður í dag, og það er okkar álit, að krafa okkar sé mjög sanngjörn. Það er hundrað prósent samstaða milli okkar, og verður ekki látið úr höfn fyrr en þetta er komið fram. Blaðið átti tal við allmarga út- gerðarmenn í dag og spurði um álit og afstöðu þeirra til deilunn- ar. Kom fram af svörum þeirra, að samstaða þeirra með sjómönn- um er miklu meiri en komið hefur enn fram opinberlega og ætla mátti eftir tilkynningu stjórnar LÍÚ að loknum fundi í morgun, þar sem skilja mátti svo, að 3ja manna nefnd væri kjörin til að knýja skipstjóra síldveiðiflotans til hlýðni og annað ekki. Kom þetta spánskt fyrir vegna þess að vitað var eftir hlustun á fjar- skiptasamtöl útgerðarmanna og skipstjóra um málið, að fjöldi út- vegsmanna beinlínis skipaði skip- stjórum sínum suður — að ógleymdu því, að bátaútvegsmenn allir innan LÍÚ urðu fyrstir til að mótmæla formlega bráðabirgða- lögunum um síldarskattinn, sem lækkar síldarverðið til sjómanna og útvegsmanna um 15 krónur á hvert mál. Á stjórnarfundi LÍÚ í morgun var kosin 3ja manna nefnd og verkefni hennar bókað svohljóð- andi: „ . . . að ræða við forsvars- menn sjómanna og vinna að lausn málsins, þannig að flotinn geti hafið veiðar sem fyrst“. Aðspurð- ur sagði Kristján Ragnarsson, full trúi hjá LÍÚ þó, að í þessari bók- un fælist ekki það, að nefndin Imætti ekki ræða við ríkisstjórnina um lausn á málinu — nefndar^ menn hefðu óbundnar hendur! f VIÐ ÖÐINSTORG — S.iMI 20. r4 ^0^ ÞAKKARÁVÖRP Öllum þeim, sem sýndu mér vinsemd, með heim- sóknum, gjöfum og skeytum, á sextugsafmæli mínu 18. júní s.l., sendi ég beztu kveðjur og þakklæti. Lifið heil. Magnús Kristjánsson, Þambárvöllum. Við þökkum öllum þeim mörgu, sem vottuðu okkur samúð og vinarþel við fráfall og jarðarför Gunnars Vilhjálmssonar, Gerði. ‘Vandamenn. Hjartans þakkir til allra fyrir auðsýnda samúð vegna andláts og Útfarar sonar míns og bróður okkar, Sveins Jónssonar,, bifreiðarstjóra frá Hæringsstöðum, Svarfaðardal, Sérstaklega þökkum við fjölskyldurvum Skíðabraut 14, Dalyík og Stórhólsvegi 7, Dalvík og einnig þökkum vlð fjölmargar blóma- og minningargjafir. Guð blessi ykkur öll. Jón Jóhannesson, systklni og aðrir vandamenn. Innilega þökkum við öllum þeim sem sýndu vinarhug og samúð við andlát og jarðarför, Þóreyjar Jónsdóttur frá Kleifastöðum. Sérstaklega viljum við þakka hjúkrunar. og starfsfólki „Sólvangs", svo og stofusystrum, fyrir alla umönnun \ löngum veikindum hennar. Guðmundur Jónsson, börn, tengdabörn og barnabörn. Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og bróðir, Magnús Halldór Ólafsson, andaðist að heimili sínu Ægissíðu 105, aðfaranótt 26. þ. m. Guðrún Þ. Þorkelsdóttir, Guðrún H. Magnúsdóttir, Baldvin Erlendsson og barnabörn. Ester Ólafsdóttir, Björg S. Ólafsdóttlr. nefndina voru kosnir: Ágúst Flygenring, Matthías Bjarnason, alþm., og Tómas Þorvaldsson. Samkvæmt viðræðum við marga útvegsmenn í dag er ljóst, að stöðvunin nýtur algerrar samúðar útgerðarmanna, þ. e. að um algera samstöðu útgerðarmanna, skip- stjóra og háseta er að ræða, og má ætla að þessi samstaða sé svo sterk, að hún gliðni ekki á næstu dögum nema gengið verði til móts við kröfurnar. Óánægjan er fyrst og fremst vegna 15 krónu skatts- ins á hvert mál, sem renna á til að greiða flutningskostnað til Norðurlandshafna og til að borga uppbætur á saltsíld norðanlands. Er hér um verulega mikla skatt- lagningu á sjómenn og útvegs- menn að ræða til að standa straum af atvinnubótaráðstöfunum, sem skýlaust ætti að greiða af almanna sjóðum í stað þess að láta eina framleiðslugrein standa undir þeim með þessum hætti. Þá telja útgerðarmenn, að það hefði verið eðlilegra að leita eftir samningum við verkalýðshreyfinguna um að verja fé úr atvinnuleysistrygginga sjóði, sem nú mun vera um 700 milljónir, til að greiða fyrir síld- arflutningnum og bæta þannig at- vinnuástandið norðanlands. Vestmannaeyjaskipin, sem síld- veiðar stunduðu sunnanlands, hafa einnig öll verið stöðvuð, en það er gert til að mótmæla því, að ekkert verð hefur enn fengizt ákveðið fyrir bræðslusildina sunn an lands. Þingmenn beggja stjórnarflokk- anna voru kallaðir saman til fund ar í kvöld til að ræða málið. Rík isstjórnin lagði það eitt til mál- anna í gær, að óska eftir því við dagblöð og útvarp, að þau birtu enn ájný.ífíáðabirgðalögin um Síld arskattinn, sem stöðvað hefur síld- veiðarnar, mikilvægasta þáttinn í þjóðarbúskapnum. Fjöldi fólks er kominn til starfa á söltunarstöðvum og við síldar- bræðslur, bæði norðan lands og austan, og óttast menn nú, að þetta fólk haldi á brott, og erfið- leikum kunni að verða bundið að ná saman starfsliði, þegar síldar- flotinn heldur á miðin aftur, ef langur tími líður. Á höfnunum bæði á Norður- landi og á Austfjörðum liggja bát ar í höfn, aðallega þó heimabátar. Þó eru allmargir aðkomubátar inni á Seyðisfirði og í Neskaup- stað, og hafa áhafnir bátanna flog ið heim í gær og dag, en einn eða tveir menn orðið eftir til þess að gæta þeirra. Á Siglufirði eru fáir bátar í höfn, og þar sagði fréttaritarinn, að fátt væri orðið um aðkomufólk, enda hefðu síldarsaltendur lítið gert af því enn sem komið er að ráða aðra en heimamenn, því út- litið með síldarsöltun hefði ekki verið gott. Á Raufarhöfn eru komnir 500 til 600 aðkomumenn og konur til þess að vinna við síldina í sumar, og eru menn þar uggandi um, að þetta fólk haldi heim, ef síldveiðin dregst mikið á langinn, og þá geti gengið erfið- lega að ná því aftur. Þar er til síld til einnar viku bræðslu í verk- smiðjunni. Á Vopnafirði skiptir síldarfólk- ið hundruðum, og allflest komið á tryggingu, en þó er ekki ósenni- legt, að það haldi heim, ef það fær ekkert að gera. Þar eru allar þrær tómar, en búið að bræða 65 þúsund mál. Fréttaritari blaðsins á Eskifirði sagði, að reynt yrði að halda í fólkið eins lengi og fært þætti* eða á meðan söltunarstöðv- arnar hafa ráð á, en það er dýrt að hafa kostað það til þess að koma til Eskifjarðar, ef senda verð ur það aftur, án þess að það hafi unnið þar nokkuð að ráði, því vinnuveitendur verða að borga að minnsta kosti fargjaldið aðra leið ina. Eingöngu karlmenn eru komn ir til Eskifjarðar, líklega milli 30 og 40 talsins. Á suðurfjörðunum er minna um aðkomufólk, en þar hefur hingað til aðallega verið notazt við heima- fólk til söltunar og síldarvinnslu. Og er útlitið því ekki eins slæmt. Þó eru íbúarmr á Djúpavogi farn- ir að óttast framtíðina, ef engin síld berst þangað á næstunni, þvi síldarverksmiðjan, sem þar er i smíðum, er að verða fullgerð, og átti að geta tekið á móti fyrstu Síldinni nú upp úr mánaðamótun- um. ÞAÐ ER ENGIN SÍLD . . . Framh. aí bls 16. lítið tala, enda hefði hún verið sáralítil hjá þeím. Sagði Björn, að 40—50 bátar hefðu verið á leið fyrir Hom. Um aðgerðir sjómanna vildi hann það eitt segja, að alger sam staða væri um þær og væru Þetta mótmæli við ákvörðun bræðslu- síldarverðsins. „Tilkynningin um verðið var okkur nóg. Þá var ekki nema um eitt að gera“, sagði hinn ungi skipstjóri. VÍTA SKATTINN Framh af bls 16 Þá mótmæla stjórnimar því einnig, að ákveðið er, að greiða aðeins flutningsgjald á síld til bræðslu af austursvæðinu til Norðanlandsins en ekki gagn- kvæmt til austurlandsverksmiðja eins og ákveðið var af Verðlags ráði á s. 1. sumri, ef síldin skyldi aðallega veiðast fyrir norðan um lengri eða .skemmri tíma. Stjómir sambandanna víta einn ig það ákvæði bráðabirgðalag- anna, að gera sérstaklega sjómönn um og útvegsmönnum að greiða ákveðna fjárhæð vegna samnings ákvæðis ríkisstjórriarinnar við verkalýðsfélögin á Norðurlandi, um úrbætur í atvinumálum í þeim landshluta. Um leið og stjórnir samband anna mótmæla meðferð þessa máls sem heild, vinnubrögðum Verðlagsráðs sjávarútvegsins, ákvörðun meirihluta yfirnefndar og bráðabirgðarlögum ríkisstjórn arinnar, vilja þær að lokum benda á, að óhæft er með öllu, að ganga framhjá Farmanna- og fiskimanna sambandi íslands urn tilnefningu í nefndir, sem fjalla eiga um hags munamál meðlima þess.“ AFSTAÐA EYSTEINS Framhald af 1 síðu með lækkun á útborgunarverði á síld, sem landað er í nálægari verksmiðjum, tel ég að greiða beri sjómönnum og útvegsmönn um fullt síldarverð án nokkurs frádráttar." Fram hjá þessu meginatriði er gengið í greinargerð þeirri, sem hér fer á eftir: „Greinargerð formanns Síldar- verksmiðja ríkisins og fram- kvæmdastjóra þeirra um áætlun S.R. um bræðslusildarverðið. Sigurður Jónsson framkvæmda- stjóri Síldarverksmiðja ríkisins samdi áætlun um rekstur verk- smiðjanna 1965. Var áætlunin byggð á samþykkt stjórnar verk- smiðjanna, sem gerð var á verk- smiðjustjórnarfundi hinn 31. maí s. 1. og samþykkt með öllum at- kvæðum stjórnarnefndarmanna, þeirra Sveins Benediktssonar, Jóhanns G. Möllers, Eysteins Jóns- sonar, Sigurðar Ágústssonar og Þórodds Guðmundssonar. Er framkvæmdastjórinn hafði samið áætlunina samkvæmt fyrir- mælum verksmiðjustjórnarinnar, lagði hann hana fyrir verksmiðju- stjórnina og gerðu engir stjórn- armenn S.R. athugasemd við áætl- un þessa. Áætlunin sýndi, að hægt var að greiða 225 krónur fyrir málið. Umræður fóru fram um hræðslú síldarverðið í Verðlagsráði Sjávar útvegsins siðari hluta mai mánað- ar og fram til 16. júní. Á síðustu i fundum Verðlagsráðs lá fyrir áætlun sú frá S.R., sem að fram- an getur, svo og áætlun frá öðrum verksmiðjum á verðlagssvæðinu norðanlands og austan. Á fundum Verðlagsráðs kom fram, að lýsisútkoman úr þeirri síld, sem veitt hafði verið móttaka utan venjulegs veiðitíma á Norður og' Austurlandi, þ. e. fram til 15. júní, var ekki nema 10 til 13 kg. úr máli, þ. e. 12 til 15 kg. minna lýsi úr hverju máli heldur en áætl- un S. R. gerði ráð fyrir, en hún er miðuð við meðaltal síðustu 5 ára. Verðmæti afurða úr hverju máli þessarar snemmveiddu síld- ar er þess vegna 93 til 116 krónum lægra en reiknað er með í áætlun S. R. Þegar ekki náðist samkomulag í Verðlagsráði sjávarútvegsins, var málinu vísað til úrskurðnr yfir- nefndar. Gert er ráð fyrir því, eins og í fyrra, að viðskiptamönnum Síldar- verksmiðja ríkisins sé heimilt að velja um, hvort þeir selja síldina föstu verði eða leggja hana inn til vinnslu, enda segi þeir til um hvorn kostinn þeir velji innan til- tekins tíma. Af framan rituðu er ljóst, að verðákvörðun bræðslusíldarverðs- ins í sumar hefur farið fram með venjulegum hætti og í fullu sam- ræmi við lögin um Verðlagsráð sjávarútvegsins. Reykjavík 28. júní 1965. Sveinn Benediktsson, Sigurður Jónsson." GREINARGERÐ Framliaid at i síðu samanburðar. má geta þess, að á- náðist samkomulag um verðið, var kr. 161,00 á mál, eða 11 kr. ætlaður vinnslukostnaður síldar verksmiðja ríkisins í fyrra, en þá hærra en verksmiðjunum er nú, skilið eftir. En hærri magnáætlun nú gerir meiri dreifingu fasts kostnaðar mögulega. Tillagan um verð vorsíldarinn ar byggist á könnun allra tiltækra heimilda um fituinnihald síldar- innar skv vinnsluútkomu og fitu mælingum. Á þeim grundvelli má telja tryggt, að lýsisútkoman verði innan við 13 kg. úr hverju máli. Er verðtillagan miðuð við það, að síldarverksmiðjurnar haldi ein ungis eftir af verðmætinu sem svarar breytilegum kostnaði vinnslunnar af þessu magni, en ekki reiknað með, að af þessu magni sé staðið undir fymingum né vöxtum af stofnkostnaði. Er það gert með fyrirvara af hálfu oddamanns, að sú viðmiðun sé ekki sérstaklega til fordæmis við tilsvarandi verðákvörðun síðar. Reykjavík, 28. júní. 1965. Bjarni B. Jómsson. ÁTTRÆÐ Frambaid aí 8 síðu Arnljóts Ólafssonar, er hann var heimilismaður í Sauðanesi á yngri árum. Hann var iðjumaður og val- menni, vel metinn af sveitungum sínum. Börn þeirra hjóna hafa þegar skilað drjúgu starfi fyrir samtíð sína, og hefur í þeim hópi hvort tveggja gengið í arf, hljóm- listarhæfileikar Péturs Metúsal- emssonar og kapp sunnlenzkra sjó sóknara í móðurætt. Sigríður Friðriksdóttir er enn við góða heilsu miðað við aldur. Og enn eiga vandamenn og vinir hauk í horni, þar sem hún er. Margir munu í dag minnast hennar og sjálfur vil ég hérmeð flytja henni árnaðaróskir mínar og minna, G. G. PILTÁR, EFÞIDEIISIP UNHUSTPNA ÞÁ fl É5 HRINMNfl /

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.