Morgunblaðið - 16.11.1979, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 16.11.1979, Qupperneq 1
32 SÍÐUR 253. tbl. 66. árg. FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Eldurí Bosporus Rúmenska olíuskipiö Independenta sprakk i loft upp fyrir utan höfnina i Istanbul i «ær eftir árekstur við xríska flutningaskipið Evrialy og skip hafa leitað árangurslaust að 47 mönnum sem er saknað úr brennandi flakinu. Allri 33 manna áhöfn griska skipsins var bjargað og þrir menn af rúmenska skipinu syntu i land en lík fjögurra félaga þeirra fundust ug hinna er saknað. Oliuskipið var með um 95.000 lestir af uliu ug tekizt hefur að slökkva eld i sex km langri uliubrák. Korschnoi leitar ásjár Evrópuþings Strassbourg, 15. nóvember. Reuter. HINN landflótta sovéski stór- meistari, Viktor Korschnoi, bað í dag Evrópuþingið um aðstoð við að fá son sinn, Igor, úr haldi í Sovétrikjunum. A fundi með fréttamönnum i Strassbourg sagðist Korschnoi hafa rætt við brezka og v-þýzka þingmenn og beðið þá um aðstoð við að fá fjölskyldu sína til V-Evrópu. Þá sagðist Korschnoi ætla að biðja Amnesty-samtökin að setja Igor Korschnoi á lista yfir samvizku- fanga. Brezki þingmaðurinn Barbara Castle sagðist ætla að taka málið upp í brezka þinginu en hún ræddi við Korschnoi. Igor Korschnoi var handtekinn í Mosvku á þriðjudag eftir að hafa farið huldu höfði í Sovétríkjunum í eitt ár. Hann neitaði að gegna herþjónustu. Þyngstu viðurlög við að neita að gegna herþjónustu í Sovétríkjun- um eru þriggja ára fangelsi. Samið um brezka stjórn í Rhódesíu London. 15. nóvember. AP. DEILUAÐILAR í Zimbabwe Rhodesiu samþykktu í dag áætlun Breta um beina brezka stjórn í landinu meðan kosningar fara fram og þessi mikli árangur sem hefur náðst á Rhódesiu-ráðstefnunni vekur vonir um að endanlegt samkomulag náist innan hálfs mánaðar. Friðarviðræðurnar færast nú á lokastig og við taka samningaum- leitanir um vopnahlé. Brezki utanríkisráðherrann, Carrington lávarður, sem er í forsæti, hyllti samkomulagið er náðist eftir margra vikna þjark og lítt dulbúnar hótanir Breta um að viðurkenna stjórn Abel Muzorew- as forsætisráðherra, ef skæruliðar Föðurlandsfylkingarinnar sýndu ekki samningsvilja. Árangurinn í dag náðist eftir sólarhrings viðræður, einum degi eftir síðustu úrslitakostina sem Carrington lávarður setti skæru- liðum. Bretar breyttu upphaflegum til- lögum sínum þannig að skærulið- ar heyrðu eins og stjórnarher- sveitir undir beina stjórn væntan- legs landstjóra Breta, sem hefur ekki verið tilnefndur. Talsmaður skæruliða sagði að þar með hefði verið gengið að kröfum þeirra um jafnrétti 20.000 skæruliða Föðurlandsfylkingar- innar og 12.000 manna hers hvítra manna. „Þegar landstjórinn kem- ur verða engir hryðjuverkamenn. Við verðum löglegur liðsafli," sagði hann. Bretar breyttu tillögum sínum þegar forseti Zambíu, Kenneth Kaunda, hafði gripið inn í viðræð- urnar sem nú hafa staðið á tíundu viku. Samkomulagið í dag opnar fyrsta raunverulega möguleikann á friði og myndun ríkisstjórnar svartra manna sem njóti alþjóða viðurkenningar. Ráðgjafí drottningar var njósnari Rússa London, 15. nóvember. Reuter. AP SIR Anthony Blunt, kunnur listfræðingur, listverkaráðun- autur Elísabetar drottningar og einn frábærasti fræðimaður sem hefur útskrifazt frá háskól- anum i Cambridge, hefur játað að hafa verið njósnari Rússa í síðari heimsstyrjöldinni, fyrir hana og eftir að því er Margar- et Thatcher forsætisráðherra sagði á þingi i dag. Drottningin sendi samtímis yfirlýsingu frá Buckingham-höll þar sem Blunt, eins og hann er nú kallaður, er sviptur aðalstign. Hann fór frá Bretlandi i gær til óþekkts ákvörðunarstaðar. Samkvæmt skriflegri yfirlýs- ingu frú Thatcher í Neðri mál- stofunni viðurkenndi hann svo snemma sem 1964 að hann væri dularfulli háskólamaðurinn sem réð gáfaða unga menn til njósn- astarfa fyrir Rússa í Cam- bridge-háskóla á árunum fyrir síðari heimsstyrjöldina. Hann sagði brezku leyniþjón- ustunni að hann hefði afhent Rússum upplýsingar í síðari heimsstyrjöldinni þegar hann starfaði í leyniþjónustu hersins og árið 1951 hjálpaði hann brezku diplómötunum Guy Burgess og Donald MacLean að flýja til Sovétríkjanna að sögn frú Thatcher. Afhjúpun frú Thatcher á hneykslinu fylgir í kjölfar vax- andi bollalegginga um ónefndan enskan aðalsmann og kjarnorku- vísindamann sem minnzt er á í nýlegri bók sagnfræðingsins Andrew Boyle, „Climate of Treason". Frú Thatcher sagði að Blunt hefði játað 1964 þegar honum hafði verið lofað því að hann yrði ekki lögsóttur. Fram að þeim tíma voru engar sannanir til gegn honum, sagði hún. Þó var hann fyrst yfirheyrður 1951. Eftir játningu sína veitti Blunt mikilsverðar upplýsingar um leyniþjónustustarfsemi Rússa og samband sitt við Burg- ess, MacLean og vin þeirra Kim Philby sem flúði til Moskvu 1963. Blunt var eftirlitsmaður kon- unglega listaverkasafnsins 1945—1972 og varð síðan ráðu- nautur drottningar í listaverk- um safns hennar. Hann var sleginn til riddara 1956, en er ekki fyrsti maðurinn sem er sviptur aðalstign. Þó er hann Mynd frá 1959 af Sir Anthony Blunt ásamt Elisabetu Bretadrottn- ingu. fyrstur allra sviptur sérstakri viktorianskri riddaraorðu sem er veitt fyrir persónulega þjónustu veitta þjóðhöfðingja. Þjónn á heimili Blunts sagði í dag að hann væri farinn í leyfi til Italíu. Stúdentar neita að sleppa kvengíslum Áskorun send til höfuðborga Norðurlanda Teheran, 15. nóvember. AP. Reuter. ÍRANSKIR stúdentar höfnuðu i dag tillögu embættismanna um að sleppa konum ug blökkumönnum. sem eru meðal gíslanna i banda- ríska sendiráðinu í Teheran. og sögðust aðeins taka við skipunum frá Ayatullah Khumeini. Þetta er enn eitt dæmi um mikinn ágreining yfirvalda ug stúdenta i sendiráðinu. Það hefur aukið á óvissuna að Teheran-útvarpið tilkynnti, að Khomeini yrði ekki til viðtals fyrr en 5. desember vegna „lítils háttar þreytu og lasleika.“ Khomeini ávarp- aði í kvöld í hinni helgu borg Qom fulltrúa úr byltingarráðinu, sem heimsóttu hann, og sagði um þá ákvörðun Bandaríkjastjórnar að frysta íranskar innistæður: „Þeir ræna og frysta fé okkar eins og þjófar. Þannig haga Vesturlönd sér.“ Ákvörðun Carters forseta um að frysta innistæðurnar var gagnrýnd á ráðherrafundi Arababandalagsins í Túnisborg, en hafnað var kröfu frá Líbýu um sameiginlegar dipló- matískar og efnahagslegar refsiað- gerðir Araba gegn Bandaríkja- mönnum. Iran hafði beðið aðrar múhameðskar þjóðir um dipló- matískan stuðning gegn Bandaríkja- mönnum, en fengu aðeins stuðning Líbýumanna. Líbýa vildi fá sam- þykkta, ályktun þar sem afstaða bandarísku stjórnarinnar yrði for- dæmd, en Irak lagðist gegn því og sagði að stjórn Khomeinis væri jafnvel verri en keisarans. Carter forseti sagði á fundi verka- lýðssambandsins AFL-CIO, að írönsk yfirvöld bæru „fulla árbyrgð" á öryggi gíslanna í sendiráðinu. Hann sakaði byltingarstjórnina í íran um að æsa lýð fjandsamlegan Bandaríkjamönnum og sagði að Bandaríkjamenn mundu ekki ræða málefni Irans fyrr en gíslarnir yrðu látnir lausir. Bandarískir embættismenn segja að Iranskeisari verði ef til vill nógu heilsugóður til þess að geta farið frá New York eftir hálfan mánuð til Mexíkó, þar sem búizt er við að stjórnvöld veiti honum aftur hæli. Sendifulltrúi Irans í Mextkóborg, Manoucheher Kazemi, sagði í dag, að íran mundi biðja Alþjóðadómstólinn að úrskurða framsal keisarans, ef hann færi aftur til Mexíkó. íran bað í dag öll sendiráð í Skandinavíu að beita áhrifum sínum til þess að fá Bandaríkin til að framselja Iranskeisara. Iranska sendiráðið i Stokkhólmi birti áskor- unina, sem beinist til sendiráða og- sendinefnda í höfuðborgum allra Norðurlanda: Stokkhólmi, Kaup- mannahöfn, Ósló, Helsinki og Reykjavík. Sagt var að keisarinn fengi „opin og heiðarleg" réttarhöld þegar hann hefði verið framseldur til Irans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.