Morgunblaðið - 16.11.1979, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 16.11.1979, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1979 Bændur buðust til að afsala sér verulegum hluta launahækkunar- innar 1. desember nk. „ÞESSAR viðræður hafa verið ákaflega vinsamlegar. Fulltrúar bænda buðust reyndar til að afsala sér verulegum hluta launa- Karlakór Rvíkur: Góðar viðtök- ur í Peking Tókýó, 15. nóvember. Ap. KARLAKÓR Reykjavíkur hélt fyrstu tónleika sína í Peking i dag og hlaut kórinn afbragðs- viðtökur hjá yfir þúsund áheyrendum að sögn kínversku fréttastofunnar Xinhua. Xinhua segir að kínverskir tónlistarmenn hafi og látið í ljós aðdáun á flutningi kórsins og er þess sérstaklega getið að einsöngvararnir Sieglind Ka- • hman, Siguðrur Björnsson og Halldór Kjartansson hafi hlotið sérstakt lof áheyrenda fyrir söng sinn. hækkunarinnar, ef aðrir gerðu slíkt hið sama, en það voru menn nú ekki reiðubúnir til að gera, sem ef til vill var nú heldur ekki von til,“ sagði Magnús H. Magn- ússon félagsmálaráðherra, er Mbl. spurði hann i gærkvöldi um viðræður ríkisstjórnarinnar við fulltrúa launþega og vinnuveit- enda um stöðu launamálanna 1. desember. Magnús sagðist telja líklegast að launahækkunin yrði jöfnuð upp á við, þannig að allir fengju 13,2% hækkun. Varðandi búvöruverðshækkun 1. desember sagði Magnús að hann teldi eðlilegast að þeim hluta hennar, sem stafaði af öðrum þáttum en launaþættinum, yrði frestað, en að bændur fengju bættan sinn launaþátt sem aðrir. í gær ræddu þeir Magnús og Kjartan Jóhannsson við fulltrúa sjómanna, bankamanna, háskóla- manna og bænda og í fyrradag var rætt við fulltrúa ASI, BSRB og vinnuveitenda. Alda reiðhjólaþjófn aða í Hafnarfirði REIÐHJÓLAÞJÓFNAÐIR hafa farið gífurlega i vöxt í Hafnarfirði og má nánast segja að alda slikra þjófnaða hafi riðið yfir undanfarn- ar vikur, að sögn rannsóknarlög- reglumanna. Algengt er að drengir á aldrinum 10—13 ára hópi sig saman og stofni eins konar þjófafélög, sem standa að reiðhjóljaþjófnuðum og breytingum á reiðhjólum sem þeir hafa stolið. Eru hjólin síðan seld eða drengirnir nota þau sjálfir. Undanfarnar vikur hafa borizt tilkynningar til lögreglunnar um að reiðhjólum hafi verið stolið svo tugum skiptir. Eru það tilmæli lögreglunnar að foreldrar séu vel vakandi og fylgist með því hvort börn hafi undir höndum reiðhjól eða reiðhjólahluti, sem þau ættu ekki að vera með undir venjulegum kring- umstæðum. Yinstri stjómin og skattaálögurnar LÍNURIT þetta sýnir allar þær viðbótarskattaálögur, sem vinstri stjórnin lagði á almenning í landinu á árs valdaferli sinum. Samtals nema allar þessar álögur 31,6 milljörðum króna. Þær eru ýmist hækkun á gömlum skatt- stofnum eða nýir skattstofnar. Til samanburðar má geta þess, að allir beinir skattar á árinu 1978 námu 32,2 millörðum króna. Til viðbótar þessum skattstofn- um, má minna á, að um mitt síðastliðið sumar, lagði Svavar Gestsson, viðskiptaráðherra í vinstri stjórninni fram tillögur um enn auknar álögur á almenning, skatt á innflutning, sem nam 15 milljörðum króna, þannig að skattaálögur í raun ásamt þeim tillögum, sem Alþýðubandalagið vildi lögfesta nema 46,6 milljörð- um króna. Skattaálögurnar, sem línuritið sýnir, eru þessar: • Söluskattshækkun um 10%, 2 prósentustig, að upphæð 10,2 millj- arðar. • Vörugjald, að upphæð 5,6 millj- arðar króna. • Tekjuskattur einstaklinga, að upphæð 2,7 milljarðar króna. • Tekjuskattur félaga, að upphæð 5,3 milljarðar króna. • Eignaskattur einstaklinga, að upphæð 0,9 milljarðar króna. • Eignaskattur félaga, að upphæð 1.8 milljarðar króna. • Nýbyggingagjald, að upphæð 0,4 milljarðar króna. • Skattar á verzlunar- og skrif- stofuhúsnæði, að upphæð 1,3 millj- arðar króna. • Flugvallargjald, að upphæð 0,6 milljarðar króna. • Verðjöfnunargjald á raforku, að upphæð 0,9 milljarðar króna. • Sérstakur skattur á ferða- mannagjaldeyri, 10%, að upphæð 1.9 milljarðar króna. Allar þessar skattatölur vinstri stjórnarinnar eru miðaðar við fjárlög 1980. Þessa mynd tók Ragnar Axelsson Ijósm. Mbl. 1 gær i verksmiðju Álaíoss i Mosfellssveit, þegar Matthias Á. Mathlesen, Ólafur G. Einarsson og Bjarni Jakohsson hcimsóttu fyrirtækið og starfsmenn þcss. Við það tækifæri voru þeim færðar að gjöf ullarderhúfur, sem fyrirtækið framleiðir. Ólafur og Matthias eru hér að ræða sin á milli hvernig húfan fari hezt á höfði Ólafs. Niðurstaðan var sú að hún skyldi halla til hægri — hvað annað? Larsen kemur ekki á Ryikurskákmótið DANINN Bent Larsen heíur tilkynnt Skáksambandi íslands að hann sjái sér ekki fært að koma á Reykjavíkurskákmótið á næsta ári. Stjórnarmenn SÍ höfðu samband við Larsen í vikunni. Hann bar við persónulegum ástæðum. Þá hafði Larsen samband við þá Jan Timman og Robert Hiibner en báðir sögðust þeir ekki geta teflt í Reykjavík. Hins vegar lýstu þeir Sosonko og Guyala Sax yfir áhuga á að koma hingað. Tveir erlendir skákmenn hafa boðað komu sína á Reykjavíkur- skákmótið. Það eru þeir Walter Browne, Bandaríkjunum, og Svíinn Harry Schussler, alþjóðleg- ur meistari. Tveimur Sovét- mönnum hefur verið boðið en ekkert svar hefur borist frá So- vétríkjunum. Hinum landflótta Sovétmanni, Viktor Korchnoi, og Bretanum Michael Stean var og boðið á Reykjavíkurskákmótið en óljóst er hvort af komu þeirra getur orðið þar sem Korchnoi tekur þátt í kandidataeinvígjun- um og Stean er aðstoðarmaður hans. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti: Ritgerð þóknanleg a-þýzkum komm- únistum kennsluefni í félagsfræði í Fjölbrautaskólanum I Breiðholti er notuð til kennslu í félagsfræði bók, sem upphaflega mun vera doktorsritgerð höfundarins, Sævars Tjörvasonar. í þeim kafla bókarinnar, sem fjallar um tímahil heimsstyrjaldarinnar og eftirstríðsáranna 1940—1974 segir svo. „Meðan á Kóreustriðinu stóð (1951) var gerður herverndarsamningur við Bandaríkin, en þeirra her hafði horfið héðan 1947. Að baki þessum herverndarsamningi lágu fyrst og fremst hagsmunir Bandaríkjanna, og frumkvæði að samningunum kom frá þeim og þeirra fulltrúum hérlendis. Við samningsgerðina var á sárgrætilegan hátt með efnahags- og stjórnmálabrellum leikið á innlenda borgarastétt og jafnaðarmenn, sem ennþá höfðu litla reynslu í rekstri utanríkismála. Samningar þessir höfðu viðtæk félagsleg, stjórnmálaleg og efnahagsleg áhrif á líf fólksins i landinu. Efnahagslegar afleiðingar stríðsins og herverndarsámningsins voru fyrst og fremst útþenslulegs eðlis.“ Morgunblaðið sneri sér í gær til Guðmundar Sveinssonar, skóla- meistara Fjölbrautaskólans og spurði hann hvernig á því stæði að bók eða ritgerð af þessu tagi væri kennd við skólann, þar sem svo augljóslega væri gerð tilraun til pólitískrar innrætingar og mis- notkunar með efni hennar. Guð- mundur Sveinsson sagði: — Tilkoma þessa rits í kennslu er sú að þegar Sævar Tjörvason höfundur hennar gerist kennari við skólann grípur hann það sem honum stendur næst, enda ekki til bækur á íslensku um þessi efni. — Menn verða að gera sér grein fyrir því hvernig bókin er til komin, hún er samin sem prófrit- gerð höfundar við austur-þýskan háskóla og hartn veit hvað fellur í kramið hjá prófessor sínum, en bókin er alls ekki samin sem kennslubók í félagsfræði og hann grípur til hennar vegna bókar- skortsins, og kennarar gera það einatt að grípa það sem þeir hafa sjálfir sýslað með og er þeim handgengt. Bókin er aðeins notuð af litlum hópi, nánast ætluð til heimabrúks hér enda varasamt að taka til kennslu bækur, sem ekki eru hugsaðar sem kennslubækur. Margrét Björnsdóttir félags- fræðikennari við Fjölbrautaskól- ann þýddi þá kafla úr ritgerð Sævars er notaðir hafa verið til félagsfræðikennslunnar og vildi hún ekki tjá sig um mál þetta, nema hvað til stæði að endurskoða ritið. Geir Hallgrímsson Fundur Geirs á Húsavík SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN cfnir til fundar á Húsavík á sunnudaginn, þar sem formaður flokksins, Geir Hallgrimsson, hefur framsögu. Fundurinn verð- ur á Hótel Húsavík, Félagsheimil- inu, klukkan 15.30 á sunnudag. Geir mun gera grein fyrir stefnu Sjálfstæðisflokksins, og ræða almennt um stjórnmálavið- horfið. Þá mun hann svara þeim spurningum er Þingeyingar vilja leggja fyrir hann um stefnu Sjálf- stæðisflokksins eða önnur mál. í gæzlu- varðhald MAÐURINN, sem handtekinn var vegna gruns um bensínþjófnað í allstórum stíl á undanförnum vik- um, hefur verið úrskurðaður í gæzluvarðhald til 21. nóvember n.k. Rannsókn er haldið áfram á máli hans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.