Morgunblaðið - 16.11.1979, Síða 10

Morgunblaðið - 16.11.1979, Síða 10
Vörur frá 28 verzlunum Á boöstólum hverskonar gjafavörur, fatnaöur og skór, heimlistæki, hljómplötur, ritföng, skartgripir og klukkur, blóm, skreytingar og húsgögn og margt fleira. Opíð föstudag kl. 13.00 ------- 22.00 laugiardag kl. 03.00 — 12.00 og mánudag kl. 13.00 ---------- 13.00 frá kl. 18.00-22.00 Barnaleikvöllur á 2. hæö Drekkiö kvöldkaffiö á hæö í Sýningarhöllinni. 2. Danssýning á vegum Heiöars Ástvaldssonar. Hinir landsfrægu skemmtikraftar Magnús og Jóhann koma fram kl. 18.00 — 20.00 Ennfremur kemur Tóti trúóur, eftirlæti allra barna. Sýningahöllinni Bíldshöföa 20 — S.81410 — 81199 Sýningahöllin — Ártúnshöfða Basar Dóm- kirkjunnar Kirkjunefnd kvenna Dómkirkj- unnar heldur sinn árlega basar á morgun, laugardag 17. nóvember, i Casa Nova, nýbyggingu Mennta- skólans í Reykjavík, og hefst hann kl. 2 sd. Gengið er inn í húsið um vesturdyr og er hægt að komast að húsinu bæði frá Bókhlöðustíg og frá Lækjargötu, yfir lóð gamla skólans. Á basarnum verður að venju mjög fjölbreytt úrval góðra hand- unninna muna og verðinu er mjög stillt í hóf. Þar er því hægt að gera ágæt kaup og kemur það sér áreiðanlega vel í allri dýrtíðinni. Þarna má fá marga fallega muni, sem eru tilvaldir til jólagjafa. Konurnar í kirkjunefndinni hafa unnið Dómkirkjunni ómetan- legt starf á undanförnum áratug- um. Öll þeirra mikla vinna hefur miðað að því að gera Dómkirkjuna hið fegursta guðshús. Þær hafa unnið fyrir kirkjuna af mikilli fórnfýsi og alúð og af einstakri starfsgleði og áhuga. Þær lögðu drjúgan skerf að viðgerð Dóm- kirkjunnar að innan fyrir tveimur árum og nú seinast í sumar, þegar kirkjan var máluð að utan. Það er áreiðanlegt, að Dómkirkjan væri ekki sá fagri helgidómur, sem raun ber vitni, ef kirkjunefnd- arkvenna og þeirra mikla starf hefði ekki notið við. En þær hafa líka notið stuðnings fjölda manna, sem hefur sótt basarinn þeirra og keypt þær vörur, sem á boðstólum eru og vonum við að svo verði einnig á morgun og að þar verði fjölmenni. Basar Kirkjunefndar kvenna Dómkirkjunnar hefst sem fyrr segir á morgun kl. 2 e.h. í nýbyggingu Menntaskólans í Reykjavík, Casa Nova. Hjalti Guðmundsson. Hjálmar Bárðarson í forsæti nef nda á þingi IMCO ELLEFTA þing Alþjóðasigl- ingamálastofnunarinnar, IMCO, var sett mánudaginn 5. nóvember s.l. í London og mun standa í tvær vikur. Á þinginu eru verkefni IMCO og fjárhagsáætlun næstu tveggja ára ákveðin, en á dagskrá þingsins eru m.a. siglingamál, öryggi á sjó, varnir gegn mengun sjávar og aðstoð við þróunarlönd varðandi siglingamál. Hjálmar R. Bárðarson siglinga- málastjóri var í upphafi þingsins einróma kjörinn formaður stjórn- unar-, fjárhags- og laganefndar þingsins. 2248D

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.