Morgunblaðið - 16.11.1979, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 16.11.1979, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1979 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthfas Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 4000.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 200 kr. eintakiö. • • Oldrunarlækningar Heilbrigðisstéttir héldu nýverið fund um rekstrarstöðu sjúkrahúsa. í máli heilbrigðisráðherra kom m.a. fram, að öldruðu fólki, 80 ára og eldri, hefði fjölgað um 50% hérlendis 1972—1978, á sama tíma og þjóðarfjölgun var um eða innan við 7%. Þessi vaxandi hópur aldraðra hefur stóraukið á samfélagslegar kröfur um öldrunarþjónustu. Meirihluti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur á fyrra kjörtímabili stóð fyrir byggingu þriggja fjölbýlishúsa fyrir aldraða, sem geta séð um sig sjálfir, samhliða starfrækslu heimahjúkrunar og heimilisþjónustu. Ráðherra taldi hins vegar að á höfuðborgarsvæðinu væru 300—350 sjúk gamalmenni, sem þyrftu að komast á hjúkrunardeildir, en tiltækt húsnæði væri yfirfullt, auk þess sem öldrunarsjúkl- ingar tækju upp sjúkrarými á almennum sjúkrahúsum. Meðalævi íslendinga hefur lengst verulega á undanförnum áratugum, sem þýðir óhjákvæmilega aukna öldrunarþjónustu á heilbrigðissviði. Þjóðfélagið hefur verið langt á eftir í að sinna skyldu sinni í þessu efni, sem snertir allar fjölskyldur í landinu; alla einstaklinga, annaðhvort nú þegar eða í sjáanlegri framtíð. Arðsemi framkvæmda á að vera meginregla í fj árfestingu, enda forsenda þess, að þjóðartekjur rísi undir frambúðarör- yggi, bættum lífskjörum og raunar einnig mannúðar- og menningarmarkmiðum. Þessi meginregla á hins vegar ekki að ná til öldrunarþjónustu, sem á að vera ljúf þjóðfélagskvöð, raunar aðalsmerki á menningu þjóðar. Núverandi húsnæðis- aðstaða í hjúkrunarmálum aldraðra — eða skortur á aðstöðu er hins vegar þjóðarhneisa. Sparnaður og heil- brigðisþjónusta Landspítalinn er miðstöð meðferðar illkynja sjúkdóma í landinu. Þar skortir enn verulega á aðstöðu og tækjabúnað til að hægt sé láta í té sams konar heilbrigðis- þjónustu og bezt gerist annars staðar, þó vissulega hafi miðað í hina réttu áttina. Hins vegar hefur spítalinn á að skipa hinum hæfustu sérfræðingum í þessari grein. Hér þarf til að koma bætt húsnæðis- og starfsaðstaða og tækjabúnaður, sem gefið hefur mjög góða raun með öðrum þjóðum. Hér gildir ekki sízt að greina sjúkdóma nógu skjótt til að koma við nauðsynlegri meðferð í tíma. Arðsemi slíks útbúnaðar, mæld í lífs- og batalíkum, er vissulega mikil, en árlega eru greind hérlendis 500—600 krabbameinstilfelli. Staða útflutningsframleiðslu, viðskiptakjara og þjóðar- tekna, að ógleymdri verðbólguþróun hérlendis, gerir óhjá- kvæmilegt að draga saman segl í ríkisbúskapnum um sinn, ef ná á markmiðum jafnvægis, rekstrar- og atvinnuöryggis. En sá samdráttur verður að miðast við íslenzkar aðstæður og má ekki bitna á þeim, sem verst eru settir í þjóðfélaginu, þ.e. hinum öldruðu og sjúku. Sjálfsagt má spara einhvers staðar í heilbrigðiskerfinu, án þess að draga úr þjónustu þess, og efling heimilislækninga, göngudeilda og þjónustu utan sjúkrahúsa dregur efalítið úr annars vaxandi þörf ýmiss konar sjúkrarýmis. Jafnljóst er og, að fjárveitingavaldið hefur um of litið fram hjá ýmsum þörfum heilbrigðisþjónust- unnar. Þegar Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, gerði grein fyrir sóknarstefnu Sjálfstæðisflokksins gegn verðbólgu, sem m.a. felur í sér skattalækkun og samdrátt í ríkisgeiranum, lagði hann áherzlu á tvennt: 1) að vernda þyrfti láglaun og laun fólks með skerta starfsorku og 2) að ekki mætti draga úr virkni heilbrigðisþjónustunnar. Og næstu stóru verkefnin á þessum vettvangi hljóta að verða á sviði illkynja sjúkdóma — og á sviði aukins svigrúms til öldrunarlækninga. ■ AÆTLUN Sjálí- stæðisflokksins um snarpar aðgerðir til að vinna bug á verð- bólgunni, sem kynnt var undir kjörorðinu: ,JLeiftursókn gegn verðbólgu“ fyrir réttri viku, hefur orðið helsta umræðu- efni stjómmálamanna. Forvígismenn ann- arra flokka hafa reynt að gera stefn- una tortryggUega með margvíslegum hætti. Þannig hefur Tíminn eftir Steingrími Her- mannssyni formanni Framsóknarflokks- ins: „Uppvakningur íhaldsins ómenguð kreppustefna — Sjálfstæðismenn vilja hefja stríð við allan almenning.“ Og í Þjóðviljanum segir Guðmundur J. Guð- mundsson verkalýðs- rekandi að hann húist við því, að 10 til 20 þúsund manns flýi land verði stefnu sjálfstæðismanna hrundið í fram- kvæmd. Áætlun sjálfstæðismanna hef- ur þannig greinilega vakið skörp andsvör. Morgunblaðið sneri sér til Geirs Ilall- grímssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, og leitaði svara hans við ýmissi þeirri gagnrýni, sem fram hefur komið. * Geir, andstæðingar Sjálf- stæðisflokksins hafa sagt, að efnahagsstefna flokksins muni leiða til verkfalla og jafnvel „blóðugra átaka“ eins og einn þeirra komst að orði. Ætlar Sjálfstæðis- flokkurinn markvisst að láta skerast í odda á vinnumarkaðnum? — Stefna Sjálfstæðisflokksins gerir ráð fyrir frjálsum kjarasamn- ingum á ábyrgð aðila. Við viljum ekki valdboð ríkisins um kaup og kjör. Aðilar verða sjálfir að bera ábyrgð á samningum sínum. Ég man ekki betur en það hafi jafnan verið viðhorf verkalýðsfélaganna, að þau hafi umráð yfir samningum fyrir félagsmenn sína. í því felst auðvitað krafa um, að ríkisvaldið svipti félög- in ekki samningsfrelsi. Hafi ríkis- valdið gripið inn í kjaradeilur, eins og oft hefur gerst, hafa foringjar launþegasamtakanna oftar en hitt sagt, að ríkisvaldið væri aðeins verkfæri í höndum vinnuveitenda. Þetta viðhorf hefur ráðið stefnunni í forystusveit launþegasamtakanna og hún hefur jafnvel beitt áhrifum sínum til að hnekkja ákvörðunum ríkisvaldsins og samþykktum Al- þingis og nægir þar að vísa til aðgerðanna gegn iögunum sem sett voru í febcúfar og maí 1978. Við sjálfstæðismenn teljum ríkis- valdinu heimilt að hlutast til um gerð kjarasamninga beri brýna jf Geir Hallgrímsson ræðir við sjómenn á Austfjörðum VINSTRI BRUGÐI I — stefna sjálfstœðis- manna hefur mikinn hljóm- grunn nauðsyn til, en í okkar huga er slíkt algjört neyðarúrræði eins og ég lýsti yfir við setningu laganna í febrúar 1978. — Hvert er þitt álit nú tæpum tveimur árum síðar á viðbrögðum verkalýðshreyfingarinnar við þeirri lagasetningu? Finnst þér andmæl- endur laganna hafa styrkt stöðu sína á þeim tíma, sem liðinn er? — í mínum huga beittu Alþýðu- bandalag og Alþýðuflokkur sér fyrir skemmdarstarfsemi gegn þessuro lögum og þeim tókst að misnota verkalýðshreyfinguna stefnu sinni til framdráttar. Það má ekki gleym- ast í þessu sambandi, að kaupmáttur launa var hærri samkvæmt lögunum en hann er nú, þegar ríkisstjórn þessara flokka hrökklast frá eftir 13 mánaða óstjórn. Ég met stöðuna þannig eftir reynsluna af síðustu stjórn, að verkalýðsforingjar Alþýðubanda- lagsins eða Alþýðuflokksins séu í engri aðstöðu til að höggva aftur í sama knérunn. Þeir hafa enga mál- efnalega stöðu til þess, þar sem fullnægt er kröfu þeirra um samn- ingsfrelsi aðila samkvæmt stefnu Sjálfstæðisflokksins. Það er furðulegt vantraust á skynsemi og ábyrgðartilfinningu bæði launþega og vinnuveitenda, ef þeim er ekki treyst til að semja svo um kaup og kjör, að atvinnuöryggi sé tryggt og einnig viðunandi afkoma atvinnuveganna án þess að gengis- lækkun eða gengissig eigi sér stað eins og í tíð fráfarandi stjórnar. — En hvað þá um „blóðugu átökin"? — Hótanir um „blóðug átök“ eru vitnisburður um að skrílræði eigi að ráða ferðinni í stað lýðræðis og samningafrelsis. Og svartsýnisspár um að 10 til 20 þúsund manns muni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.