Morgunblaðið - 16.11.1979, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1979
31
Sigur KR kom á
síðustu stundu
KR—ingar báru sigurorð af ÍR í
leik liðanna í 1. deild íslands-
mótsins í handknattleik í gær-
kvöldi. Naumari gat þó sigur
þeirra ekki verið. Björn Péturs-
son skoraði sigurmark KR-inga
úr vítakasti þegar 30 sekúndur
voru til leiksloka. Allur siðari
hálfleikurinn var alveg hnífjafn
og mátti ekki á milli sjá hvort
liðið myndi hreppa bæði stigin
eða hvort jafntefli yrði upp á
KR — ÍR
20:19
höndina lengst af í fyrri hálfleikn-
um. Þeir komust í 5—2, en
ír-ingar seigluðust og sigu smátt
og smátt á. Guðjón Marteinsson
jafnaði svo metin 40 sekúndum
góðri líkamlegri þjálfun. Leik-
menn eru sterkir og leika varnar-
leik sinn nokkuð vel. Góð barátta
var í leikmönnum og hvöttu þeir
hvern annan óspart til dáða með
miklum hrópum. Sóknarleikur
liðsins var hins vegar of sveiflu-
kenndur, góður á stundum en þess
á milli datt hann niður. Jóhannes
Stefánsson átti góðan leik að
þessu sinni, svo og Símon Unn-
dórsson og Ólafur Lárusson. í
• Sigurður Svavarsson ÍR-ingur stöðvar hér Friðrik Þorbjörnsson KR, sem reynir að brjótast í gegn.
Ljósm. Rax.
áður en flautað var til hálfleiks.
Staðan í hálfleik var 10—10.
ÍR-ingum tókst að ná upp öllu
betri leik í síðari hálfleiknum, og
voru yfirleitt á undan til að skora
fram undir miðjan hálfleik. Þá
náðu KR-ingar aftur forystunni
með marki Konráðs. En yfirleitt
var jafnræði með liðunum svo til
allan hálfleikinn. KR- hafði svo
lokaorðið og tókst að krækja í
bæði stigin.
Leikurinn var ekki mjög vel
leikinn. Bæði liðin gerðu sig sek
um margar villur og mikil tauga-
spenna virtist hrjá leikmenn
lengst af. Þá bætti það ekki úr
skák að mikið ósamræmi var í
dómgæslunni hjá þeim Jóni Frið-
steinssyni og Árna Tómassyni. En
ekki er hægt að segja að það hafi
bitnað meir á öðru liðinu en hinu.
Lið KR er greinilega í mjög
Ward
fer
hvergi!
Samning Nottingham Forest og
Brighton varðandi sölu framherj-
ans Peter Ward frá Brighton til
Forest hefur rekið í strand. Ekk-,
ert verður úr öllu saman. Skýr-
ingar hafa ekki verið gefnar,
hvorki frá Brian Clough fram-
kvæmdastjóra Forest né Alan
Mullery stjóra hjá Brighton. Það
eina sem fram hefur komið, eru
ummæli eins af stjórnarmönnum
Brighton, sem sagði að Clough
væri illur viðureignar í slíkum
viðskiptum.
heildina er KR-liðið nokkuð jafnt
og ljóst er að það verður erfitt
viðfangs í vetur.
Lið IR var ekki sannfærandi í
leiknum. Varnarleikurinn var
langt frá því að vera nægilega
góður. Leikmenn hefðu gjarnan
mátt taka betur á í vörninni. Allar
þær brottvísanir sem ÍR-leikmenn
fengu í leiknum gefur ekki rétta
mynd af því að hart hafi verið
barist. Þá var sóknarleikurinn
afar fálmkenndur á köflum.
IR-ingar verða að gera betur ætli
þeir sér að standast flestum 1.
deildarliðunum snúning í vetur og
hala inn stig.
Besti maður ÍR í leiknum var
Ásgrímur Friðriksson markvörð-
ur. Það er ekki að sjá að það hafi
breytt neinu þótt Jens Einarsson
hafi gengið í Víking. Þá átti
Bjarni Bessason góðan leik, svo og
Guðjón Marteinsson og Guðmund-
ur Þórðarson sem farið hefur
mikið fram.
I stuttu máli: íslandsmótið 1.
deild. KR-ÍR 20-19 (10-10).
Mörk KR: Jóhannes Stefánsson 4,
Símon Unndórsson 4, Ólafur Lár-
usson 3 (lv), Haukur Ottesen 2,
Björn Pétursson 3 (2v), Konráð
Jónsson 2, Kristinn Ingason 1,
Friðrik Þobjörnsson 1. Mörk ÍR:
Bjarni Bessason 6, Guðjón Mart-
einsson 4, Guðmundur Þórðarson
3 (lv), Bjarni Bjarnason 1, Bjarni
Hákonarsón 2v, ‘ Ársæll; Haf-
steinsson 1, Sigurður Svavarsson
1. Brottvísun af leikvelli: Guðjón
Marteinsson, Sigurður Svavars-
son, Ársæll Hafsteinsson allir ÍR í
2 mín. hver. Jóhannes Stefánsson
og Þorvarður Höskuldsson KR í 2
mín. Misheppnuð vítaköst:
Ásgrímur varði víti hjá Ólafi
Lárussyni á 44. mín. Pétur
Hjálmarsson varði víti hjá Guð-
mundi Þórðarsyni á 19. mín. þr.
teningnum. Lið KR hafði tveggja
marka forskot 19—17 þegar tvær
minútur voru til leiksloka.
Bjarni Hákonarson minnkaði
muninn niður i eitt mark og
Guðjón Marteinsson jafnaði leik-
inn 19—19, þegar ein minúta var
eftir. Þá upphófst mikill darrað-
ardans á fjölum hallarinnar og
KR-ingar fiskuðu vítið sem Björn
skoraði úr.
Lið KR var greinilega sterkara
framan af leiknum, og hafði yfir-
• Peter Ward.
• Hinir glæsilegu verðlaunagripir sem verðlaunamenn
Mbl. hreppa að þessu sinni.
íþróttaverðlaun
Morgunblaðsins
afhent í dag
Morgunblaðið mun i dag heiðra sex iþróttamenn i hófi sem haldið
verður í kristaisal Hótel Loftleiða. Haraldur Sveinsson framkvæmda-
stjóri útgáfufélags Morgunblaðsins mun afhenda leikmönnum
íslandsmótanna i knattspyrnu, handknattleik og körfuknattleik
veglega bikara. Þá mun markakóngur og stigakóngur i sömu greinum
hljóta verðlaun. Gr þetta i áttunda skipti sem Morgunblaðið veitir
þessi verðlaun sem orðin eru hefð í islensku iþróttalifi. Verðlauna-
menn Morgunblaðsins að þessu sinni eru. Leikmaður íslandsmótsins i
knattspyrnu er Ársæll Sveinsson; leikmaður íslandsmótsins i
handknattleik Ólafur Benediktsson og leikmaður íslandsmótsins i
körfuknattleik er Jón Sigurðsson. Markakóngur i knattspyrnu varð
Sigurlás Þorleifsson og markakóngur i handknattleik Geir Hall-
steinsson. Stigahæsti leikmaður íslandsmótsins i körfuknattleik varð
Mark Christianssen.
Verðlaunamenn
Morgunblaðsins
frá upphafi
EFTIRTALDIR leikmenn hafa
hlotið titii Mbl.. leikmaður
íslandsmótsins, frá þvi að eink-
unnagjöf blaðsins hóf göngu
sina.
KNATTSPYRNA
1971. Jón Alfreðsson ÍA
1972. Eyleifur Hafsteinsson ÍA
1973. Guðni Kjartansson og Einar
Gunnarsson ÍBK
1974. Jóhannes Eðvaldsson Val
1975. Marteinn Geirsson Fram og
Jón Alfreðsson ÍA
1976. Ingi Björn Albertsson Val
1977. Gísli Torfason ÍBK
1978 Karl Þórðarson ÍA
HANDKNATTLEIKUR.
1972. Geir Hallsteinsson FH
1973. Ólafur H. Jónsson Val
1974. Viðar Símonarson FH
1975. Hörður Sigmarsson Haukum
1976. Pálmi Pálmason Fram
1977. Björgvin Björgvinsson og
Hörður Sigmarsson Víkingi
og Haukum
1978. Gunnar Einarsson Haukum
/ Aarhus KFUM
Frá því Mbl. byrjaði að veita
markakóngi í íslandsmótinu í
handknattleik og knattspyrnu
verðlaun hafa þau fallið í hlut
eftirtalinna.
KNATTSPYRNA
1971. Steinar Jóhannsson ÍBK
1972. Tómas Pálsson ÍBV
1973. Hermann Gunnarsson Val
1974. Teitur Þórðarson ÍA
1975. Matthías Hallgrímsson ÍA
1976. Ingi Björn Albertsson Val
1977. Pétur Pétursson í A
1978. Pétur Pétursson í A
HANDBOLTI
1972. Geir Hallsteinsson FH
1973. Einar Magnússon Víkingi
1974. Axel Axelsson Fram
1975. Hörður Sigmarsson Haukum
1976. Friðrik Friðriksson Þrótti
1977. Hörður Sigmarsson
1978. Björn Jóhannesson Ármanni.
Kópavogshlaupið
fer fram á morgun
Kópavogshlaup UMSK fer fram á morgun og hefst það klukkan 15.00.
Hlaupið hefst á Kópavogsveili og verður hlaupnir 4—5 kilómetra, en
keppt verður bæði í karla- og kvennaflokki. Þess má geta, að hlaupið
er liður i víðavangshlaupakeðju FRÍ.
Hlaupin verður sama leið og i sama hlaupi i fyrra, en þá sigraði
Ágúst Þorsteinsson UMSB. Skráning er á Kópavogsvelli.