Mosfellsblaðið - 01.01.2000, Side 15
Góð Idrkjusókn
um hátíðamar
Mjög góð kirkjusókn var í Mosfells-
prestakalli nú um jólin og kirkjumar
okkar þéttsetnar í hvert sinn sem boð-
að var til helgihalds. Þegar allt er talið,
almennar guðsþjónustur, bamastarf og
kvöldsamkomur lætur nærri að um
2.500 manns hafi sótt helgihaldið frá
aðventubyrjun til áramóta. - Þá em
ekki taldir foreldramorgnar, TTT-
fundimir eða starfið með 7-9 ára
bömum, ekki heldur þeir sem sóttu
sérstakar skímarathafnir í kirkjunum,
hjónavígslur eða útfarir.
Fjöldi fólks þurfti frá að hverfa þeg-
ar boðað var til hátíðarguðsþjónustu í
Mosfellskirkju á annan í jólum, en þar
söng Sigrún Hjálmtýsdóttir einsöng og
eiginmaður hennar, Þorkell Jóelsson
lék á hom. - Kirkjukór Lágafellssókn-
ar leiddi saihaðarsöng við undirleik
organistans Jónasar Þóris. Við guðs-
þjónustuna skírði sóknarpresturinn, sr.
Jón Þorsteinsson Amar Má, en foreldr-
ar hans em Guðrún Margrét Hreiðars-
dóttir og Páll Pálsson, Merkjateig 7 í
Mosfellsbæ.
Tolvuslýrður rennibekkur
Vélsmiðjan Sveinn hefur
fest kaup á tölvustýrðum
rennibekk fyrir um 5 rnillj.
króna, framleiddur í Þýska-
landi af tegundinni GILDE-
MEISTER. Haraldur V. Har-
aldsson sagði bekkinn keypt-
an eftir kröfum markaðarins
og það tæki um tvo mánuði að
læra fullkomlega á hann. Þessi
tölvustýrði rennibekkur vinn-
ur 60 % hraðar en venjuleg
gerð og tölvan geymir ná-
kvæmt forrit af vinnslunni á
hlutnum, upp á síðari tíma.
Á jólafundi Kiwanisklúbbsins Mosfells voru þessir teknir fonnlega í klúbbinn. F.v.tPétur
Jökull Hákonarson, Erlendur Fjeldsted, Sigurður Jóhannsson, Guðmundur Kristófersson,
Bjöm Magnússon, Omar Egilsson, Öm Haraldsson og Magnús Þorvaldsson.
Pílukast
Fimmtudaginn 20. jan. s.l. var
haldin keppni ungra áhugamanna í
Mosfellsbæ í pílukasti og fótbolta-
spili á veitingahúsinu Ásláki. Þátt-
taka var mjög góð og mikil spenna
eins og meðfylgjandi mynd sýnir,
en bræðumir Vilhjálmur og Jó-
hann vom meðal sigurvegara.
Dalbúar með
myndband
Víghóll, félag dalbúa í Mosfellsdal
hefur gefið út myndband um dalinn og
fólkið sem þar býr. Myndbandið er um
tveggja klst. langt og var gert í umsjá
Bjarka Bjamasonar og verður til sölu.
Mosfellsbær styrkti verkefnið.
Áslákur
í endurbyggingu
Miklar endurbætur hafa staðið yfir
á veitingahúsinu Ásláki, hinu
gamla heimili Gunnars Gunnars-
sonar, listmálara og skálds. Sem
kunnugt er hafa ung hjón tekið við
staðnum, þau Freyja Ámadóttir og
Guðjón Öm Ingólfsson. Um þessa
helgi er áætlað að taka í notkun
nýjan veislusal í risi þessa
skemmtilega húss og mun salurinn
taka 35 - 40 manns.
Pólitískar
ekkjur
í Mosfellsbæ
Við hið hörmulega fráfall Finns
Ingólfssonar úr pólítík er ljóst að
ekkjum hefur fjölgað í Mosfells-
bæ. Gæti verið um að ræða 4-5
nýjar ekkjur, sem syrgja sárt sinn
ektaleiðtoga. Blaðið sendir þeim
samúðarkveðjur, því þama hafa
brostið mikilfengleg bönd og
missirinn sár, en þó er huggun
harmi gegn að Seðlabankinn um-
vefur hann nú hlýju sinni og pen-
ingaseðlar svífa kring um hann
bæði í vöku og svefni. Mæti fólk í
Mosfellsbæ persónu með slör fyrir
andlitinu, þá er þar á ferð pólitísk
ekkja og ber að sýna henni hlut-
tekningu.
BÍLAVERKSTÆÐI
Guðvarðar og Kjartans
Onnumst allar almennar bifreiðaviðgerðir,
jeppabreytingar, rennismíði,
sprautun o.fl.
Flugumýri 16 c, Mosfellsbæ
Sími 566 6257 - Fars. 853 6057
Fax 566 7157
— —
I _________________
FRAMKÖLLUN
^ MOSFELLSBÆ
I Þverholti 9 Sími: 5668283
Starfskraftur óskast hálfan daginn,
seinni part.
Upplýsingar hjá Jóhanni, Framköllun,
Þverholti 9, Mosfellsbœ
Vönduð vinna - Lipur þjónusta - Opið mánudaga - föstudaga frá kl. 10 - 18
Mosfcllsblaðið ©