Morgunblaðið - 25.11.1979, Page 1

Morgunblaðið - 25.11.1979, Page 1
Sunnudagur 25. nóvember Bls. 49-80 Landspítalinn veröur fimmtugur á næsta ári. Langur aðdragandi var aö stofnun hans. Það var eftirmaöur Bjarna Pálssonar í landlæknisembætt- inu, Jón Sveinsson, sem átti upphaflega hug- myndina aö því, aö hérlendis yröi stofnsett almennt sjúkrahús, rekið á alþjóöarkostnað. Það var árið 1791, eða fyrir nær 200 árum, að hann gerði áætlun um stofnun og rekstur slíks sjúkrahúss. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síöan og þaö var fyrst eftir rúma öld, eða 19. júní 1916 sem þessari hug- mynd Jóns var komið í framkvæmd. Var þá formlega stofnaður Land- spítalasjóður að tilhlutan íslenskra kvennasamtaka. Fljótlega kom al- þingi til móts við kvennasamtökin, en framkvæmdir hófust þó ekki við Landspítala fyrr en haustið 1925. Landspítalinn hóf störf án allr- ar viðhafnar í árslok 1930 og veitti viðtöku fyrsta sjúklingnum 20. desember það ár. Veröur spítal- inn því hálfrar aldar gamall á næsta ári, þó um tvær aldir séu liðnar frá upprunalegu hugmyndinni að stofnun hans. Mikiö hefur verið rætt um framtíðarhugmyndir um mannvirkjagerö á Landspítalalóð að undan- förnu. Breskur sérfræðingur, John Weeks, hefur undanfarin ár unniö að sérstakri þróunaráætlun fyrir spítalasvæöið. Landspítalinn hefur sérstöðu að því er varöar sjúkrahús hérlendis að því leyti, að hann er og hefur verið viðurkennd kennslu- stofnun samhliða því að vera eitt af stærstu sjúkrahúsum þessa lands. Þó hafa læknar annarra sjúkrahúsa einnig kennt við háskólann. Vegna framkominna framtíðarhugmynda um mannvirkjagerð á Landspítalalóö ræddi Mbl. við hr. Weeks, forráðamenn heilbrigð- ismála Landspítalans og nokkra for- ráðamenn þeirra deilda spítalans, sem mest hafa veriö í brennidepli í umræðunum um væntanlega mann- virkjagerð. Viðtöl þessi birtast í blaðinu í dag og næstu daga undir heitinu „Land- spítalinn framtíðarhugmyndir“. Morgunblaðið mun síðar reyna eftir aðstæðum að gera öðrum þáttum heilbrigðismála í landinu sams konar skil, t.a.m. þeirri nauðsynlegu upp- byggingu, sem verða þarf við önnur sjúkrahús og má þar til nefna Borgar- spítalann og Landakot, en uppbygg- ing þeirra er ekki síður brýnt og verð- ugt viðfangsefni á næstu árum. Þess má geta, að Mbl. gerði Landakotsspítala þó nokkur skil, þegar hann var gerður að sjálfseign- arstofnun, en meö því var merkilegt spor stígið í sjúkrhúsmálum. Þaö ætti ekki að vera neinum þyrnir í augum, þótt sjúkrahús séu ekki öll rekin meö sama hætti og raunar nauðsynlegt, að ólík „kerfi“ hafi aðhald hvert af öðru. hram- tídar hug- myndir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.